Fréttablaðið - 01.06.2001, Side 14
FRÉTTABLAÐIÐ
1. júní 2001 FÖSTUDACUR
HVERNIG FER?
14
Hvernig fer ísland- Malta?
PÉTUR PÉTURSSON
PJÁLFARI KR
Ég spái 6-0 fyrir (sland.
Ef Andri Sigþórsson er
með á hann eftir að
skora fjögur. Eiður
Smári Guðjohnsen og
Ríkharður Daðason
eiga síðan eftir að setja
sitthvort.
ARNÓR GUÐJOHN-
SEN FYRRVERANDI
LANDSLIÐSMAÐUR
Ég held að það fari 4-0
fyrir (sland. Vonandi
skorar strákurinn eitt.
Maður hefur ekki séð
liðið spila lengi svo það
verður gaman að sjá
hvernig þeir standa sig
í fyrsta leiknum hér
heima á þessu ári.
1 IVIOLAR
Samkvæmt nýjust fréttum getur
verið að Adrian Newey, einn af
aðal tæknimönnum McLaren
kappakstursliðsins, muni brátt klæð-
ast liðsbúningi Jagúarsliðsins. Jagú-
arliðið hefur boðið Newey fimm ára
samning og 17 milljónir punda sláist
hann í hópinn, en þetta er hluti af
framtíðaráætlun liðsins um að gera
Jagúar eitt af bestu liðum Formúlu
1. Talið var að Newey myndi ganga
til liðs við Jagúar í fyrra þegar
Bobby Rahal skrifaði undir samning
við liðið í fyrra en hann hætti við á
síðustu stundu. Samningur Newey
rennur ekki út fyrr en í ágúst á
þessu ári og hafa samstarfsmenn
hans hjá McLaren krafist þess að
hann verði kyrr hjá þeim.
Eric Snow var hetja Philadelphia
‘76 ers gegn Millwaukee Buck í
fimmta leik liðanna í úrslitum aust-
urstrandarinnar. Snow skoraði átján
stig í leiknum þótt
i hann væri tognaður
á ökkla, þar af
skoraði hann tvær
körfur á loka mín-
útum leiksins og
tryggði liðinu sigur
89-88. Meiðsli Snow
voru verri en talið
var í upphafi en
sem betur fer fyrir 76’ers ákvað
hann að spila leikinn en Allen Iver-
son átti vægast sagt hörmulegan leik
og hitti aðeins úr fimm skotum af
27. „Kona mín er svolítið stressuð.
Hún styður mig heilshugar en er
hrædd um að ég eigi eftir að meiðast
svo illa að ég geti ekki spilað körfu-
bolta framar,“ sagði Snow í samtali
við blaðamenn. „Eg vildi láta reyna
á þetta og sem betur fer tókst það,
og það líka svona vel.“ Snow var
spelkaður og límdur saman til að
koma í veg fyrir að löppin á honum
snerist ekki um 90 gráður.
Steven Gerrard leikmaður Liver-
pool, lýsti aðdáun sinni á franska
miðvallarleikmanninum Patrick
Viera þegar hann fagnaði 21 árs af-
mæli sínu. „Hann er frábær leik-
maður. Þú áttar þig ekki á því í hve
góðu formi hann er. Þegar þú ert 21
árs og hefur spilað takmarkaðan
fjölda leikja getur þú bætt nánast
allt,“ sagði Gerrard. „Ég reyni að
horfa á eins marga leiki með honum
og ég get, því það er mjög spennandi
að fylgjast með honum."
Tiger Woods veit það manna best
hvernig það er fyrir Casey Mart-
in að labba holurnar átján í golfi en
þeir spiluðu saman á Stanford vellin-
um nú fyrir stuttu. Casey þessi vann
mál hjá Hæstarétti fyrir stuttu og
gerir þ'að honum kleyft að notast við
golfbíl á PGA móta-
röðinni, en honum
hafði áður verið
synjað um það.
Margir af frægustu
golfurum heims eru
á mót dómnum og
segja Casey sleppa
við einn stærsta
hluta leiksins sem
er að ganga holurnar átján. Tiger
Woods hefur hinsvegar aðrar skoð-
anir á málinu. „Ég er einstaklega
ánægður fyrir hönd Casey. Að geta
séð hann spila án þess að eiga við
verki að stríða er alveg frábært,"
sagði Tiger um málið. Hann gagn-
rýndi einnig forsvarsmenn PGA og
sagði að þeir þyrftu að fara endur-
skoða reglurnar.
Yngsti keppandinn:
Þrettán ára, brosmild og með spangir
colf Sá keppandi sem vakti hvað
mesta athygli þegar Opna banda-
ríska mótið í golfi kvenna hófst í N-
Karólínufylki í gær, var Morgan
Pressel, frá Boca Raton í Flórída,
sem í síðustu viku hélt upp á 13 ára
afmæli sitt. í stað þess að fara í fé-
lagsfræðipróf, eins og vinir hennar í
Boca Raton, keppir hún nú á meðal
þeirra bestu á móti, þar sem fyrstu
verðlaunin eru rúmar 50 milljónir
króna.
Hin brosmilda Pressel, sem enn
er með 'spangir, er yngsti keppand-
inn í sögu mótsins til að öðlast
keppnisrétt á því. Síðast þegar hún
hitti hina keppendurna var á móti í
Miami, en þá var hún þar að safna
eiginhandaráritunum. Nú er hún
sjálf að gefa eiginhandaráritanir.
„Mínir stuðningsmenn eru litlir,“
sagði Pressel. „Kannski svona 8 til
10 ára gamlir.“
Pressel, hafði mikinn áhuga á
tennis þegar hún var yngri, en fyrir
um fjórum árum dvínaði sá áhugi og
þá hóf hún leika golf. Mike Pressel,
faðir hennar, sagði að hún fengi
kennslu á um þriggja vikna fresti,
en að hún nyti þess best að leika með
afa sínum. Morgan Pressel hefur
þegar látið til sína taka í golfheimin-
um, en á þessu ári hefur hún keppt á
mótum fyrir 18 ára og yngr og sigr-
aði hún á þremur mótum í röð.
Annar keppandi sem vakið hefur
athygli á Opna bandaríska mótinu er
Brenda Corrie Kuehn, en hún er
ófrísk, komin átta mánuði á leið.
„Ég hef kortlagt völlinn vel,“
sagði Kuehn. „Ég veit nákvæmlega
hvar öll baðherbergin eru.“ ■
HIMINLIFANDI
Wlorgan Pressel er yngsti keppandinn i
sögu Opna bandaríska mótsins í golfi
kvenna.
Ætla sér sigur gegn Möltu
Hermann Hreiðarsson er á góðri leið með að ná sér. Atli Eðvaldsson segir að varast beri eldfljóta framherja
Möltu. Byrjunarliðið verður tilkynnt eftir æfingu sem hefst klukkan 16 í dag.
knattspyrna Atli Eðvaldsson, lands-
liðsþjálfari íslands í knattpspyrnu,
sagði að menn ætluðu sér ekkert ann-
að en sigur í leiknum gegn Möltu,
sem hefst á laugardaginn klukkan 16.
Hann sagði að menn þyrftu hins veg-
ar að vara sig á því að vanmeta ekki
landslið Möltu, þar sem það hefði náð
athyglisverðum úrslitum í leikjum
sínum m.a. gert jafntefli við Tékka á
Möltu og tapað naumlega fyrir Norð-
ur-írum í Belfast.
„Það er góð stemmning í hópnum
og við erum staðráðnir í því að ná
þremur stigum í leiknum gegn Möltu,
þannig að eftir hann verðum við með
níu stig í riðlinum, það er mjög mikil-
vægt fyrir okkur,“ sagði Atli. „Við
munum leggja leikinn upp svipað og
við gerðum úti og reyna að nýta okk-
ur líkamlega yfirburði okkar og
styrk okkar í loftinu.“
Atli sagði að liðið myndi reyna að
sækja upp kantana og koma boltan-
um fyrir markið þaðan. Hann sagði
afar brýnt að liðið sýndi aga og þolin-
mæði, líkt og leiknum gegn Norður-
írum í október á síðasta ári, þar sem
sigurmarkið var skorað á lokamínút-
um leiksins.
ísland sigraði Möltu 4-1 í fyrri
leik liðanna í Valletta á Möltu, þann
25. apríl.
„Þeir eiga örugglega eftir að sitja
aftar en í leiknum úti,“ sagði Atli. „Én
þeir eru með alveg öskufljóta stráka
í framlínunni sem við verðum að
passa okkur á. Við munum því þurfa
á allri okkar einbeitingu að halda til
þess að sigra Möltu. Þetta er lið sem
að æfir allt árið um kring tvisvar
sinnum í viku og er miklu sterkara en
það var fyrir nokkrum árum.“
Atli sagði að ekki væri alveg útséð
um það hvernig byrjunarlið Islands
TILBÚNIR
íslenska landsliðið I knattspyrnu mun leika gegn Möltu á morgun og segir Atli Eðvalds-
son að menn verði að vara sig á því að vanmeta ekki Möltu-liðið, sem sé miklu sterkara
en fyrir nokkrum árum.
yrði skipað í leiknum á morgun, en
það verður tilkynnt eftir æfingu
landsliðsins í dag klukkan 16. Hann
sagði að Hermann Hreiðarsson væri
eini leikmaðurinn sem ætti við ein-
hver meiðsli að stríða, en að hann
væri á góðri leið með að ná sér og
ætti jafnvel að geta verið með í leikn-
um gegn Möltu ef á þyrfti að halda.
Atli vildi lítið tjá sig um mögu-
leika liðsins á að komast upp úr riðl-
inum en sagði þó að allt væri mögu-
legt.
Hann sagði að ef sex stig næðust
út úr næstu tveimur leikjum, væri
það stórkostlegt, en á miðvikudaginn
leikur liðið gegn Búlgörum á Laugar-
dalsvellinum. ■
HM 2002 - RIÐILL 3
LEIKIR u J T MÖRK STIC
Tékkland 5 3 2 0 6:0 11
Búlgaría 5 3 1 1 10:6 10
Danmörk 5 2 3 0 9:3 9
ísland 5 2 0 3 7:9 6
N-írland 5 1 1 3 5:7 4
Malta 5 0 1 4 1:13 1
Leikir 2. júní:
N-lrland - Búlgaría kl. 15
Island - Malta kl. 16
Danmörk - Tékkland kl. 19.15
Opna franska:
Sampras fallinn úr leik
tennis Bandaríski tennis-
leikarinn, Pete Sampras,
féll úr leik í annarri um-
ferð Opna franska meist-
aramótsins í París.
Sampras, sem var númer 5
á styrkleikalista mótsins
tapaði fyrir Spánverjanum
Galo Blanco, sem er í 76.
sæti heimslistans, í þrem-
ur lotum, 7-6, 6-3 og 6-2.
Sampras, sem um tíma
var nánast ósigrandi, hef-
ur ekki náð sér á strik und-
VONBRIGÐI
Pete Sampras klórar
sér í höfðinu eftir
slakan leik.
anfarin misseri. í fyrstu um-
ferð mótsins lék hann gegn
Frakkanum Cedric Kauff-
mann, sem er númer 250 á
heimslistanum, og rétt marði
sigur, en Kauffmann fékk fjög-
ur tækifæri til að gera út um
leikinn.
Andre Agassi, félagi
Sampras, virðist hins vegar
vera í fínu formi. Hann komst
þriðju umferð mótsins eftir að
hafa sigrað Frakkann Julien
Bouttier, 6-3, 6-2 og 6-2. ■
Smáþjóðaleikamir í San Marinó:
r-
Islendingar mala gull
NBA:
Bryant betri
en Jordan?
körfuknattleikur Phil Jackson, þjálf-
ari Los Angeles Lakers, segir að
Kobe Bryant sé besti alhliða leikmað-
ur sem hann hafi þjálfað, jafnvel
betri en Michael Jordan, þegar kem-
ur að því að stjórna heilu liði.
„Kobe er orðinn stjórnandi liðs,
sem sárvantaði leikstjórnanda,"
sagði Jackson. „Leikmaður sem get-
ur ekki bara skorað, heldur einnig
gefið stoðsendingar og staðist álagið
á örlagastundu með því að gera út um
leiki. Ég hef alltaf gert gífurlega
miklar kröfur til Kobe og hann hefur
staðist þær og gott betur en það.
Hann hefur oft gert miklu meira en
ég hef beðið hann um.“
Þegar Jackson var spurður að því
hvort Bryant sé virkilega betri leik-
maður en Michael Jordan hafi verið,
sagði hann að erfitt væri að bera þá
saman, þar sem hann hefði gert allt
aðrar kröfur til Jordan sem leik-
manns, en hann geri til Bryant. Hann
hefði aldrei beðið Jordan um leika
stöðu leikstjórnanda og því sé erfitt
að bera þá saman að því leiti. Þegar
LEIKSTJÓRNANDINN
Phil Jackson, þjálfir LA Lakers, segir að
Kobe Bryant sé besti alhliða leikmaðuri
sem hann hafi þjálfað.
öllu sé á botnin hvolft sé Jordan hins
vegar besti körfunknattleiksmaður
sögunnar. ■
smAmóðaleikar íslensku keppendurn-
ir hafa náð í 41 verðlaunpening á
Smáþjóðleikunum í San Marinó. Sjö
gullverðlaun bættust í safnið í gær
og eitt íslandsmet vár sett. Lára
Hrund Bjargardóttir setti íslandsmet
í 200 metra skriðsundi á tímanum
2.04.86 mín. Jakob Jóhann Sveinsson
setti mótsmet í 200 m bringusundi og
kvennalandsliðssveitin setti nýtt
mótsmet í 100 m fjórsundi á tímanum
4.25.25 mín. Guðmundur Guðmunds-
son fékk brons í skotfimi með loft-
skammbyssu en þetta eru fyrstu al-
þjóðlegu verðlaunin í þessari grein.
Guðmundur Stephensen, borðtennis-
leikarinn knái, hefur staðið sig frá-
bærlega. Hann leiddi lið íslands sem
vann silfurverðlaun í liðakeppni og
er kominn í undanúrslit í einstak-
lingsekeppni. ■