Fréttablaðið - 01.06.2001, Qupperneq 22
22
FRÉTTABLAÐIÐ
1. júní 2001 FÖSTUDAGUR
Fjórði bekkur Öskjuhlíðarskóla:
Mikil ævintýri bíða
sumargleoi Þau voru glaðbeitt börnin
í 4. bekk í Öskjuhlíðarskóla þegar
blaðamaður Fréttablaðsins rakst á
þau í gær. Skólastarfinu er nú lokið
og eftir þeim bíður sumar fullt nýrra
ævintýra. Sumir krakkanna töluðu
um að fara á ævintýranámskeið hjá
Öskjuhlíðarskóla, aðrir ætluðu sér í
sveit og enn aðrir töluðu um fram-
andi lönd og sögur sem lesa má í Þús-
und og einni nótt. Einn ieiðbeinenda
krakkanna, Jóhann Kristjánsson,
sagði að í tilefni þess að í gær var síð-
asti skóladagur vorsins hefði verið
ákveðið að bregða undir sig betri
fætinum, hoppa upp í strætó og halda
niður í bæ. Þegar þangað var komið
fengu allir ís, Borgarbókasafnið var
skoðað hátt og lágt og síðan skundað
niður að tjörn þar sem öndum, svön-
um, gæsum og öðrum fiðurfénaði var
gefið brauð. Krakkarnir eiga vafalít-
ið eftir að koma mörgu í verk í sum-
ar þar sem skólastarf í Öskjuhlíðar-
skóla hefst ekki aftur fyrr en 24.
ágúst n.k. ■
ÖNDUNUM GEFIÐ BRAUÐ
Krakkarnir voru mjög ánægðir
með að vera búnir að Ijúka önninni og
hlökkuðu mikið til þess að halda út i
sumarið. Margir hverjir ætla að leggja land
undir fót, sumir ætla í sumarbúðir á
vegum Öskjuhliðarskóla og enn aðrir eru
að spá í að skella sér i sveit og jafnvel að
takast á við mjaltir.
Vatikanið:
Biskup
bannfærður?
brúpkaup Hinn 71 árs gamli erkibiskup,
Emmanuel Milingo, sem gekk að eiga
Mariu Sung, 43 ára kóreskan svæða-
nuddara, við fjöldabrúðkaup Moonista
í New York á sunnudaginn, mun vænt-
anlega verða bannfærður af kaþólsku
kirkjunni, að því er fram kemur í frétt
frá Vatikaninu í dag. Milingo, sem hef-
ur verið viðriðinn andalækningar
segir „Þetta snertir mig ekkert," Mér
ber skylda til að gera það sem Drott-
inn býður mér og það er það sem ég er
að gera ... Ég hef ekkert á móti kaþ-
ólsku kirkjunni, en allt verður að byg-
gja á kærleika," sagði hinn aldni brúð-
gumi. Trúarleiðtoginn Moon valdi
konu handa Milingo. ■
Eins og við sögðum frá í gær barst
hluthöfum í Baugi í vikunni
fréttabréfið „efst á baugi“ þar sem
Hreinn Loftsson,
stjórnarformaður,
gerir gagnárás á þá
sem gagnrýnt hafa
Baug fyrir „yfir-
verð“ á matvöru og
að hafa ekki staðið
við stóru orðin um
„viðnám gegn verð-
bólgu“. Hréinn
heldur því fram að matarverð hafi
lækkað um 2,7% miðað við almennt
verðlag í landinu, og telur að verð-
hækkanir á grænmeti og verðspreng-
ing vegna gengisfellinga sé á ábyrgó
þeirra sem stjórna efnahagsmálum
og ráðuneytum.
Og svo er komið að Valgerði Sverr-
isdóttur: “Viðskiptaráðherra sak-
ar kaupmenn um gróðabrall og rök-
styður mál sitt með því að láta undir-
stofnun sína reikna út hækkun álagn-
FRÉTTIR AF FÓLKi
ingar en fæst ekki
til að horfa á kostn-
aðarhækkanir á
móti! í stað þess að
styrkja gjaldmiðil-
inn með því að laða
erlent fjármagn til
landsins og draga
þannig úr hættu á
verðbólguskriðu í kjölfar óhagstæðr-
ar gengisþróunar, dregur þessi sami
ráðherra að taka ákvarðanir og heim-
ila t.d. álver á Vesturlandi, þar sem
erlendir fjárfestar bíða með fjár-
magn sitt, vegna þess að hún vill
koma upp álveri á Austurlandi þar
sem flokkur hennar ræður ríkjum,
en allt er á huldu um fjármagn til
framkvæmdanna."
Starf skólameistara Borgarholts-
skóla var auglýst laust til umsókn-
ar um daginn, en Eygló Eyjólfsdóttir
sem gegndi starfinu fór til vinnu í
menntamálaráðuneytinu. Umsóknar-
frestur rann út föstudaginn 25. maí
síðastliðinn. Sex umsækjendur voru
um stöðuna. Þeir mættu á fund með
kennurum skólans í fyrradag og í
kjölfarið fór fram atkvæðagreiðsla
meðal kennara varðandi þeirra vilja.
Niðurstaðan var send skólanefnd
sem síðan sendir menntamála-
ráðherra sína umsögn. Niðurstaða
kennara var þessi: Bogi Ingimarsson,
aðstoðarskólameistari Ármúlaskóla 2
atkvæði, Guðmundur Guðlaugsson,
áfangastjóri Borgarholtsskóla 1 at-
kvæði, Magnús Ingólfsson, deildar-
stjóri Borgarholtsskóla 19 atkvæði,
Ólafur Grétar Kristjánsson, deildar-
sérfræðingur menntamálaráðuneyt-
inu 1 atkvæði, Ólafur Sigurðsson að-
stoðarskólameistari Borgarholtsskóla
16 atkvæði og Pétur Rasmussen kon-
rektor Menntaskólanum við Sund 0
atkvæði. Kennurum Borgarholts-
skóla er að sögn mikið í mun að
Björn Bjarnason menntamálaráð-
herra taki mið af þessari niðurstöðu
við ráðninguna.
Danmörk í sumar
Billund
tnm
Verð frá
26.545
___ InnifaliA nrflnn nn flnnunllnrskntfnr
kr,
Innifalið erflug og flugvallarskattar.
Flogið er alla mánudaga.
www.plusferdir.is BH
Blönduós Borgarnes ísafjörður Sauðárkrókur Akureyri Egilsstaðir Selfoss Vestmannaeyjar Keflavik Grindavík
S: 452 4168 S: 437 1040 S: 456 5111 S: 453 6262 S: 585 4200 S: 471 2000 S: 482 1666 S: 481 1450 S: 585 4250 S: 426 8060
Söluskrifstofur Plúsferða: Faxafeni 5 • 108 Reykjavík og Hlíðasmgra 15 • 200 Kópavogi
Sími 535 2100 • Fax 535 2110 • Netfang p!usf@plusferdir.is • Veffang www.plusferdir.is ’
EFLING STARFSMENNTA
Stefnt er að því að mennta íbúa til nýrra starfa i litlu samfélagi sem býr við hnignun í
atvinnulífi, sögðu þeir Páll Pétursson félagsmálaráðherra og Davíð Stefánsson for-
maður Starfsmenntaráðs á blaðamannafundi
Sjálfsmynd íbúa
í litlu samfélagi
Starfsmenntaráð styrkir verkefni sem snúast um
tölvulæsi opinberra starfsmanna, þekkingarþörf í
málmiðnaði og einelti og áreitni á vinnustöðum
menntir Starfsmenntaráð hefur
gengið frá styrkveitingum til hátt
á þriðja tug samtaka og félaga á
þessu ári fyrir alls 43 milljónir
króna.
Ákveðið var í upphafi árs að
þrenns konar verkefni skyldu
styrkt árið 2001; í fyrsta lagi þau er
tengjast notkun Netsins í starfs-
menntun (20 milljónir), í öðru lagi
verkefni sem stuðla að auknum
gæðum starfsmenntunar (20 millj-
ónir) og í þriðja lagi þau er stuðla
að starfsmenntun erlends vinnu-
afls (5 milljónir). „Við getum tekið
dæmi af stærstu verkefnunum
sem fengu hæstu styrkina, 3 millj-
ónir króna hvort“, segir Davíð
Stefánsson formaður Starfs-
menntaráðs. „Bandalag starfs-
manna ríkis og bæja hyggst efla
notkun upplýsingatækni meðal
sinna félagsmanna. Markmiðið er
að efla tölvulæsi og draga úr mis-
ræmi í þekkingu milli þeirra sem
kunna á tölvur og tölvutækni og
þeirra sem kunna það ekki. Hitt
verkefnið er á vegum Fræðsluráðs
málmiðnaðarins, sem mörg félög
standa að, og snýst um að leiða í
ljós núverandi þekkingarþörf í
málm- og véltækni og skilgreina
framtíðarþarfir í samvinnu við
óformlegan hóp manna innan
traustra fyrirtækja. Horft verður
til ófaglærðra, málmiðnaðar-
manna, millistjórnenda og stjórn-
enda.“
Alls bárust umsóknir um styrki
til 78 verkefna og hlutu 33 þeirra
styrk. Flestir styrkirnir eru að
upphæð frá 300 þúsund krónur að
2,5 milljónum króna. „Verkefnin
eru mjög fjölbreytt," segir Davíð.
„Eitt þeirra snýst um það að efla
sjálfsmynd íbúa í litlu samfélagi á
landsbyggðinni sem býr við hnign-
un í hefðbundnu atvinnulífi. Stefnt
er að því að mennta íbúana til
nýrra starfa sem tengjast meðal
annars ferðaþjónustu. Annað verk-
efni snýst um það að útbúa vef með
upplýsingum á erlendum málum
og á íslensku á vegum Nýbúamið-
stöðvar á Vestfjörðum.
Vefnámskeið um einelti og áreitni
á vinnustöðum var einnig styrkt,
svo og námskeið til undirbúnings
launþega VR undir árlegt starfs-
mannaviðtal við yfirmenn sína.“ ■