Fréttablaðið - 14.06.2001, Side 1

Fréttablaðið - 14.06.2001, Side 1
EVRAN Skiptir ekki sköpum fyrir Breta bls 2 ÚRVALSVÍSITALA Overðskuldað fall Opinna kerfa bls 4 MYNPLIST Kyrrð hver- dagsleikans bls 18 - einfaldlega hollt! FRETTABLAÐIÐ 36. tölublað - 1. árgangur FIMMTUDAGUR Viðhorfin rædd STJÓRNMÁL Vinstri grænir koma saman og ræða viðhorfin til kom- andi sveitastjórn- arkosninga á veit- ingahúsinu Catal- inu í kvöld Lektor hjá sveitarfélögum menntamál Skrifað undir samning Háskóla íslands og Reykjavíkur- borgar um tímabundið starf lekt- ors á sviði félagsþjónustu sveitar- félaga. IVEDRIÐ í DACl Þverholti 9, 105 Reykjavík — simi 515 7500 Fimmtudagurinn 14. júní 2001 REYKJAVÍK Vestan eða norðves- tan 5-8 m/S og léttskýjað. Hiti 7 til 13 stig. VINDUR ÚRKOMA HITI fsafjörður © 5-8 Skýjað Q 9 Akureyri Q 5-8 Léttskýjað Q 9 Egilsstaðir O Skýjað Q 7 Vestmannaeyjar o Skúrir Q 11 Djassdrottning í Kaffileikhúsinu tónlist Tina Palmer syngur með Kjartani Valdimarssyni og Matthí- asi Hemstock í Kaffileikhúsinu. Njála og Þingvellir saga Jón Böðvarsson fer um Njálu- slóðir á Þingvöllum og gerir grein fyrir stjórnskipan á Þingvöllum. Barist í Bikarnum fótbolti Átta leikir fara fram í 32- Iiða úrslitum Coca Cola bikar- keppni karla í kvöld. Tveir leikir fara fram í Reykjavík, á Valbjarn- arvelli mætir KR liði Þróttar R. og að Ásvöllum mætast Haukar og Valur. Leikirnir hef jast kl.20. \ KVÖLDIÐ I' KVÖLD [ Tónlist 18 Bíó Leikhús 18 fþróttir Myndlist 18 Sjónvarp Skemmtanir 19 Útvarp smmsmlmmne mmm Kaffíhús á tjarnarbakkan opnum kl 12:00 Útvegurinn og sjómenn græða á falli krónunnar Sjómenn stórhækka í launum, segir formaður útvegsmanna. Utílutningsverðmæti ársins 15 milljörðum hærra í krónum talið. Ottast stöðugleikann og áhrifin á kjarasamninga, segja útvegsmenn. Fiskverð hækkar ekki þrátt fyrir gengishagnað, segja sjómenn. Taka undir að nokkrir þeirra hafi hagnast. gengi „Afurðirnar eru seldar á hærra verði og heildaráhrifin eru jákvæð vegna gengisbreytinga, en við erum ekki ánægðir ef þetta gengur lengra því þá fer þetta að hafa áhrif á stöð- ugleika og kjarasamninga," sagði Kristján Ragnarsson, formaður Landssambands íslenskra útvegs- manna, þegar hann var spurður um áhrif gengisbreytinga fyrir sjávarút- veginn. „Útgerð og fiskvinnsla hagnast. Það er engin stétt á landinu sem hagnast á þessu einsog sjómenn. Gengið hefur það mikil áhrif á sölu- verðið, fiskverðssamninga og það hefur strax áhrif á fiskverð á mörk- uðum. Kostnaðurinn leggst ekki af sama þunga á þá og okkur. Olía hækk- ar, lánin hækka og veiðarfæri hækka,“ sagði Kristján Ragnarsson. Gengistap hefur verið mikið í um- ræðunni, og sér í lagi hjá útgerðinni. „Þetta er gert samkvæmt alþjóða- reikningsskilavenjum. Hækkanir lána eru færðar á rekstrarreikninga á árinu sem gengið fellur, en til lengri tíma litið eru áhrifin af þeim gengis- breytingum sem hafa orðið sjávarút- veginum jákvæðar," sagði Kristján Ragnarsson. Þær háu tölur sem hafa verið nefndar vegna gengistaps segja ekki alla söguna, þar sem aðeins örlít- ið brot þeirra fjárhæða hefur komið til gjalda, þar sem oftast er um lang- tímalán að ræða. „Sjómenn á frystiskipum hagnast en ekki á öðrum skipum. Það hefur verið óbreytt verð á mörgum skipum í langan tíma, jafnvel sex ár. Vissu- lega hafa laun hækkað hjá þeim sjó- mönnum sem fá að selja á markaði og á frystiskipum einsog ég sagði. Margir þeirra sem selja í beinni sölu hafa ekki fengið fiskverðshækkanir þrátt fyrir þessar miklu gengisfell- ingar,“ sagði Grétar Mar Jónsson, forseti Farmanna- og fiskimanna- sambandsins. Útflutningur sjávarútvegs er um 100 milljarðar á ári. Vegna falls krón- unnar hafa tekjurnar aukist rétt um 15 milljarða í krónum talið frá ára- mótum, en eðlilega eru þær krónur verðminni en áður. sme@frettabladid.is y 16 14 20 21 GAMAN f LAUGINNI Veðrið hefur leikið við landann. Það var mikið fjör í lauginni í Kópavogi þar sem ungir og eldri voru í besta skapi og léku við hvurn sinn fingur. Spáð er áframhaldandi blíðu viða um land. Aðhald áfram mikilvægt: FÓLK Verðbólgutoppnum er væntanlega náð verðbólga „Ég geri ráð fyrir að mán- aðarbreytingarnar fari lækkandi næstu mánuði, en verðbólgan verði samt há yfir sumarið," segir Þórður Friðjónsson forstjóri Þjóðhagsstofn- unar. „Þegar kemur fram á haustið má gera ráð fyrir að verðbólgan fari lækkandi á ný, aðallega vegna þess að gengisáhrif verða þá komin fram, auk þess sem dregið hefur úr eftir- spurn hér innanlands. Mér finnst ólíklegt að mánaðarbreytingar verði svo háar lengi enn.“ Þórður segir að það sé grundvall- aratriði þegar gengi hafi lækkað í kjölfar mikils viðskiptahalla að koma í veg fyrir að víxlverkun verð- lags, launa og gengis fari á stað. Það sem í daglegu tali er kallað óðaverð- bólga. „Það er verkefni hagstjórnar- innar að koma í veg fyrir að þessi víxlverkun fari af stað.“ Þórður segir brýnast að hafa góðar gætur á peningamálunum og gæta aðhalds í ríkisrekstri. Hann telur að menn verði að fara varlega í vaxtalækkanir eða skattalækkanir meðan verðbólgan sé svo mikil. „Við megum ekki taka áhættu á því að hér verði viðvarandi verðbólga sem er hærri en í nágrannalöndun- Þorsteinn J. ferðast um heiminn SÍÐA 16 Skattsvikamál: Tveir leystir úr haldi rannsókn Tveir þriggja manna sem verið hafa í gæsluvarðhaldi vegna rannsóknar á umfangsmiklu skatt- svikamáli voru leystir úr haldi í gær- kvöldi. Mennirnir, byggingaverktaki og annar mannanna sem komu að út- gáfu tilhæfulausra reikninga, hafa gengist við brotum sínum. Þar sem rannsókn málsins hefur gengið fram- ar vonum að sögn rannsakenda þótti ekki ástæðu til að halda mönnunum lengur í gæsluvarðhaldi. Sólarhring áður en mönnunum var sleppt hafði Hæstiréttur staðfest gæsluvarðhald yfir öðrum manninum sem hafði kært úrskurð héraðsdóms. Við rannsókn málsins hefur komið í ljós að einn mannanna hefur staðið í umfangsmeiri skattsvikum en fyrst var talið. Hann hefur ekki staðið skil á vörslusköttum. Þau svik hækka heildarupphæð skattsvikanna um nokkrar milljónir en enn liggur ekki fyrir nákvæmlega hversu miklum fjármunum hefur verið skotið undan sköttum. ■ I ÞETTA HELST I Eigið fé sjávarútvegsfyrirtækj- anna er að hverfa haldi fram sem horfir. bls. 10 fÞRÓTTIR Sigurður Jónsson á batavegi Aðalverktakar vilja að Jón Ólafs- son gefi upp hvað hann á mikið í fyrirtækinu. bls. 2 U ppgangur í bændagistingunni og víða uppselt yfir sumarið. bls. 22 Verð á sumu grænmeti mun lækka á næstunni vegna afnámi tolla. bls. Göturnar eru hreinsaðar, en fólk er misviljugt að færa bíla sína svo sópararnir geti athafnað sig. bls. 11

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.