Fréttablaðið - 14.06.2001, Qupperneq 4
4
FRÉTTABLAÐIÐ
14. júní 2001 FIMIVITJPflGUR
SVONA ERUM VIÐ
ÁNÆGJA MEÐ LÍFIÐ
f NOKKRUM RÍKJUM
Þrátt fyrir að laun séu almennt lægri og
vinnutími almennt lengri á íslandi en í
samanburðarlöndum þá var fólk hér á
landi af einhverjum ástæðum hlutfallslega
ánægt með tilveru sína samkvæmt fjöl-
þjóðlegri rannsókn. Meðaltal 15 OECD-
ríkja var 7,58 og reyndust aðeins Danir
vera fyrir ofan okkur.
Staða skólameistara
Menntaskólans á Isafirði:
Villandi
réttinda-
umræða
skólamál „Umræðan um kennslurétt-
indi og undanþágur hefur verið vill-
andi í fjölmiðlum11, segir Ólína Þor-
varðardóttir um stöðuveitingu skóla-
meistara Menntaskólans á ísafirði.
Kröfur um hæfi umsækjanda eru i
fimm liðum og uppfyllir Ólína fjóra
þeirra. Kröfu um kennsluréttindi
uppfyllir Ólína hvað varðar háskóla-
stig en ekki framhaldsskólastig, sem
hún er þó reiðubúin að afla sér strax
á fyrsta starfsári. „Menntamálaráð-
herra hefur heimild skv. 24. gr. laga
nr. 70 1996 til að setja mann til
reynslu í embætti áður en hann skip-
ar í það, til eins árs í senn og aldrei
lengur en 2 ára og þess vegna ætti
undanþáguumræðan að vera óþörf“
segir Ólína.
Skólanefnd Menntaskólans var
einróma um að Ólína verði ráðin.
Annar umsækjandi, sem uppfyllti
kröfu um kennsluréttindi, hafði dreg-
ið umsókn sína til baka. ■
.-♦.
Sprengju-
maður fær
lífstíðardóm
nairobi. kenya. ap. Saudi-Arabinn, Al-
’Owhali, sem sprengdi upp sendiráð
Bandaríkjanna í Nairobi í Kenya hef-
ur verið dæmdur í lífstíðarfangelsi.
AIls létust 213 manns í sprenging-
unni sem gerð var árið 1998. Ekki
voru allir á eitt sáttir með dóm
bandaríska dómstólsins, en margir
höfðu heimtað dauðadóm yfir mann-
inum. í Kenya má dæma menn til
dauða, en hins vegar hefur enginn
verið tekinn af lífi þar í 10 ár. ■
—4—
Hamfarir:
36 látast í
aurskriðu í
Ekvador
OUITO, EKVADOR. ap. Að minnsta kosti 36
manns létust þegar aurskriða féll á
hóp mótorhjólafólks sem safnast
hafði saman eftir að önnur aurskriða
hafði hindrað för þeirra á mótorhjól-
unum. Fólkið sat inni í yfirgefnum
skúr til að hlýja sér, þegar gríðarleg
aurskriðan leystist úr læðingi. Að
sögn talsmanns Rauða krossins í
Ekvador lifðu um 10 manns hamfar-
irnar af.
Alls hafa um 41 manns látist und-
anfarna daga í Ekvador vegna mik-
illa rigninga í Andes fjöllunum. Um
2500 manns, flestir úr austur- og suð-
urhluta Amazon-svæðisins hafa þurft
að yfirgefa heimili sín vegna flóða. ■
Breytingar á tollalögum í vikulokin:
Utlit fyrir talsverða
verðlækkun grænmetis
grænmeti „Það er áformað að afnema erum við
fjáröflunartolla af 29 teg-
undum grænmetis. Þetta á
við um grænmeti sem er
annaðhvort ekki framleitt
hérlendis eða framleitt að
takmörkuðu leyti“ segir
Guðmundur Sigþórsson
skrifstofustjóri hjá land- niðurfelling
bunaðarráðuneytinu. „Við fjáröflunar-
höfum beðið eftir staðfest- tolla.
ingu breytingar á tollalög- Guðmundur Sigþórs-
um sem heimila þessa nið- son, skrifstofustjóri
urfellingu. Staðfestinguna landbúnaðarráðuneytrs.
að fá núna þessa dagana,
þannig að við reiknum
með að þetta geti gerst nú
í vikulok“. Ýmsar græn-
metistegundir ættu því að
geta orðið töluvert ódýrari
fyrir neytendur í næstu
viku þegar afnumdir hafa
verið 30 prósent fjáröflun-
artollar á þvi. Sem dæmi
um þær grænmetisteg-
undir sem hér um ræðir
má nefna lauk, spergilkál,
jöklasalat og rósakál.
Skiptar skoðanir hafa verið á því að
jöklasalat skuli tilheyra þessum
hópi, en hér á landi er heilmikil
ræktun á svokallaðri staðkvæmdar-
vöru og er þá átt við annað grænt
salat í þessum flokki svo sem kína-
kál, lambhagasalat, höfuðsalat og
NEYTENDUR GETA GLAÐST
Gangi áform um afnám á fjáröflunartollum
á 29 tegundum grænmetis eftir má búest
við að hagur grænmetisneytenda vænkist
fleira. Eftir breytinguna ætti jökla-
salatið hinsvegar að lúta sömu lög-
málum. ■
Þrjú félög falla út
úr úrvalsvísitölunni
Breytingar á fyrirtækjum í úrvalsvísitölu. Opin kerfi hafa lækkaö mest - eða um 60 prósent og falla
úr úrvalsflokki eins og Grandi og Þormóður rammi. Sjávarútvegsfyrirtæki og svokölluð tæknifyrirtæki
virðast ekki eiga upp á pallborðið hjá fjárfestum eins og sakir standa.
Stofnanafjár-
festar eiga
frekar viðskipti
með félög í
vísitölunni.
HLUTABRÉFAviÐSKiPTi. „Við kaupum und-
antekningarlaust í öllum félögum
sem eru í Úrvalsvísitölunni af við-
skiptavinum. Þar er miklu meiri
velta tryggð. Ef þú átt félag í vísitöl-
unni þá ertu tiltölulega tryggur um
—.4— að losna við bréfin
aftur á auðveldan
hátt,“ segir Anna
María Helgadóttir,
verðbréfaráðgjafi í
Kaupþingi, þegar
hún var spurð að
þýðingu vísitölunn-
ar fyrir fyrirtæki. Fyrirtækin Opin
Kerfi, Grandi og Þormóður rammi-
Sæberg falla út úr vísitölunni þann
1. júlí nk. vegna slaks gengis hluta-
bréfa á undanförnu ári. Betur hefur
gengið hjá Kaupþingi, Olíufélaginu
og SÍF og koma þau því inn í staðinn.
Anna María segir að íslenskir
stofnanafjárfestar á borð við Kaup-
þing og Íslandsbanka-FBA eigi nán-
ast kerfisbundin viðskipti með fé-
lögin í vísitölunni. Því má segja að
þau fyrirtækin sem detta út séu bók-
staflega að falla niður í aðra deild á
Verðbréfaþinginu. Anna María
segist ekki kunna skýringar á því af-
hverju Þormóður hafi fallið út, fé-
lagið hafi verið að skila góðum hagn-
aði en svo virðist sem sjávarútvegs-
fyrirtæki séu einfaldlega ekki vin-
sæl hjá fjárfestum um þessar mund-
ir. „Mikill munur er á kaup- og sölu-
verði i þessum félögum sem nánast
stöðvar viðskipti með þau,“ segir
Anna María.
Þau félög sem hæst mark-
aðsvirói hafa á Verbréfaþinginu
mynda Úrvalsvísitöluna hverju
sinni. Gengistap fyrirtækjanna
þriggja sem falla út er mismikið;
þannig hafa Opin Kerfi fallið um
heil 60% á einu ári, Þormóður um
40% og Grandi um 20%. Þá hefur
velta með hlutabréf þessara fyrir-
tækja dregist verulega saman. ■
GRANDI
Sjávarútvegsfyrirtæki hafa gengið illa á
Verðbréfaþinginu undanfarin misseri.
Grandi og Þormóður rammi-Sæberg falla
út úr Úrvalsvísitölunni þann 1. júlí nk.
Opin Kerfl út úr Úrvalsvísitölunni:
„Óverðskuldað fall“
tæknifyrirtæki. „Svokölluð tæknifyr-
irtæki eiga í augnablikinu erfitt upp-
dráttar á hlutabréfamörkuðum og við
teljum það vera mjög óverðskuldað
því mörg þessara fyrirtækja hafa
verið að skila ágætis árangri. Ég held
að menn verði að horfa á þetta til
lengri tíma,“ segir Frosti G. Bergs-
son, forstjóri Opinna Kerfa um 60%
gengistap fyrirtækisins á einu ári og
fall úr Úrvalsvísitölunni.
Frosti segir að þrátt fyrir að Opin
Kerfi hafi fallið um 60% á árinu þá
verði að líta til þess að miklar sveifl-
ur hafi verið í verði hlutabréfanna.
„Við höfum hækkað mjög mikið ef
litið er yfir þriggja til fjögurra ára
tímabil, en flest tæknifyritæki hafa
lækkað umtalsvert á undanförnu
ári.“ Nefnir Frosti að Cisco Systems,
sem hefur mestu hlutbréfaveltu allra
fyrirtækja í Bandaríkjunum, eða um
það bil 100 milljónir hluta daglega,
hafi lækkað úr 80 dollurum í 20 á
tímabilinu.
„Það er ekki annað að gera fyrir
okkur en að halda þétt utan um rekst-
urinn til að endurheimta tiltrú mark-
aðarins. Sum félög sem við eigum í,
til dæmis Tæknival, eru nokkuð
skuldsett og fá þess vegna mikið
högg á sig vegna stöðu krónunnar, en
móðurfélagið er nokkuð vel sett í því
tilliti. Við verðum varir við það að
heldur er farið að hægja á í íslensku
efnahagslífi, en munum styrkja
rekstur okkar með nýju hlutafé
ásamt því að sameina einingar eins
og líkur eru á að verði með Aco og
Tæknival," sagði Frosti þegar hann
var spurður að því hvort bjartari tím-
ar væru framundan hjá félaginu. ■
FROSTI G. BERGSSON
Opin Kerfi hafa verið að hagræða
I rekstrinum með nýju hlutafé og samein-
ingu eininga í samstæðunni, til dæmis
Tæknivals og Aco.
Danska umhverfisstofnunin:
Sólarvörn í lagi
rannsóknir Danska umhverfisstofn-
unin hefur komist að þeirri niður-
stöðu að það sé með öllu óhætt að
nota sólarvarnir sem innihalda efnið
4-methylbenzyldidende camphor.
Efnið er notað til síunar útfjólublárr-
ar geisla sólar. Svissnesk rannsókn
hafði bent til þess að það gæti raskað
hormónajafnvægi og því hafði um-
hverfisstofnunin danska beint þeim
tilmælum til verslunareigenda að
þær fjarlægðu vörur sem innihalda
efnið úr hillum. Að því er Berlingske
Tidende greina frá hefur umhverfis-
stofnunin verið gagnrýnd fyrir við-
brögð sín í málinu en talsmenn henn-
ar vísa gagnrýninni á bug.
Vísindanefnd ESB hefur einnig
komist að þeirri niðurstöðu að ekki
hafi verið sannað að hættulegt sé að
nota sólarvörn sem inniheldur ofan-
greint efni, hvorki fyrir börn né full-
orðna. ■