Fréttablaðið - 14.06.2001, Síða 6
6
FRETTABLAÐIÐ
14. júní 2001 FIMIVIfUDAGUR
SPURNING DAGSINS
Konráð Eggertsson:
Veiðar væntanlega
ákveðnar
Hvað er svona gott við það að fara
í sund eldsnemma á morgnana?
Veistu það að ég var mætt hérna klukkan
7:10 í morgun, synti kílómetra og það er
geðveikt Maður er bara í stuði allan daginn.
Helen Breiðfjörð er 29 ára og er deildarstjóri
símavers Tals.
MEST AUKNING MEÐAL
EITURLYFJANEYTENDA
Samkvæmt upplýsingum Sameinuðu
þjóðanna fjölgaði alnæmissmituðum
úr 420.000 í 700.000 í 27 löndum
A-Evrópu og Mið-Asíu á síðasta ári.
A-Evrópa og Mið-Asía:
Alnæmi
breiðist út á
ógnarhraða
varsjá. ap. Alnæmissmituðum fjölgar
ógnarhratt í austur-Evrópa og fyrr-
um lýðveldum Sovétríkjanna. Löndin
eru illa í stakk búin til þess að taka á
vandamálinu segir Piotr Konczewski,
sem skipulagði ráðstefnu um aðferð-
ir í baráttunni gegn alnæmi. „Lönd A-
Evrópu og Mið-Asíu standa ráðþrota
gagnvart alnæmi. Sumar ríkisstjórn-
ir láta sem vandamálið sé ekki til
staðar, aðrar gera ekkert í þesstu.“
Ráðstefnan, sem haldin var um
síðustu helgi, var sú fyrsta sinnar
tegundar á þessum slóðum. Sérfræð-
ingar frá 27 löndum tóku þátt í henni.
Samkvæmt upplýsingum Sameinuðu
þjóðanna fjölgaði alnæmissmituðum
úr 420.000 í 700.000 á síðasta ári á
umræddu svæði. Tala smitaðra er þó
líklega miklu hærri. Mest aukning
hefur verið meðai eiturlyfjaneyt-
enda. ■
hvalveidar „Ég held að stjórnvöld
hljóti að vera búin að ákveða að hefja
veiðar á nýjan leik fyrst þau eru að
ganga í Alþjóðahvalveiðiráðið aftur
því annars hefðum við ekkert þangað
að gera“, segir Konráð Eggertsson,
formaður Félags hrefnuveiðimanna.
„Meðan við vorum aðilar fengum við
ekkert að veiða, ef við hins vegar
byrjum að veiða hval aftur er allt í
lagi að ganga í þetta helvítis rugl.“
Konráð segir að sér þyki ekki lík-
legt að það breytist nokkuð í störfum
brussel. belcíu. ap. Á fundi sínum í
Brussel í gær hvatti Bush, Banda-
ríkjaforseti, aðildarríki NATO til að
opna hjörtu sín og rétta út arma sína
fyrir löndum hinna fyrrverandi Sov-
étríkja sem hafa lýst yfir áhuga á að
ganga í sambandið. Þetta er í fyrsta
sinn í tvö ár sem 19 leiðtogar aðildar-
ríkja NATO hittast ásamt Banda-
ríkjaforseta, en síðast hittust þeir til
að halda upp á 50 ára afmæli sam-
bandsins í Washington í apríl 1999.
„Núna höfum við stórkostlegt tæki-
færi til að byggja upp sterka, frjálsa
og umfram allt friðsama Evrópu með
frelsishugsjón NATO sem kjarn-
ann,“sagði Bush. Forsetinn talaði um
að NATO skyldi halda öllum dyrum
opnum fyrir lýðræðisríki sem vilja
ganga í sambandið, en nefndi þó eng-
in nöfn í því sambandi. Búist er við
að rætt verði á fundi NATO í Prag í
nóvember á næsta ári hvort og þá
hvaða þjóðir fái inngöngu í samband-
ið, en Rússland, ásamt fleiri aðildar-
ríkjum NATO, hefur sett sig harðlega
gegn því að sambandið skuli stækkað
til austurs.
Bush talaði einnig um eldflauga-
varnarkerfið sem hann vill koma
upp, en það mái hefur vakið upp
mikla andstöðu ýmissa ríkja heims-
ins og hafa hundruð mótmælenda
safnast saman fyrir utan höfuðstöðv-
ar NATO til að gagnrýna stefnu hans.
„Við þurfum að styrkja bandalag
okkar, nútímavæða herafl okkar og
undirbúa okkur fyrir ógnir úr nýjum
áttum,“ sagði Bush. Frakkar og Þjóð-
verjar hafa lýst yfir áhyggjum vegna
stefnu Bandaríkjanna um eldflauga-
varnarkerfið. Sagði Gerard
Alþjóðahvalveiðiráðsins nema
bandarísk stjórnvöld fyrirskipi er-
indrekum sínum að starfa með öðr-
um hætti en þau hafa gert hingað til.
Annars haldi sama ruglið áfram.
Áhrif Bandaríkjanna séu einfaldlega
meiri en svo að menn fari að taka
ákvörðun um hvalveiðar í andstöðu
við þarlend stjórnvöld. Því hafi það
sennilega að hluta verið af ótta við
viðbrögð þeirra að hérlend stjórn-
völd hafa ekki treyst sér til að leyfa
hvalveiðar á ný. ■
Schroeder, kanslari Þýskalands, að
ekki væri víst að eldflaugavarnar-
kerfi yrði til þess að auka öryggi í
heiminum að einhverju ráði, en bætti
því hins vegar við að hann byggist
ekki við að Bandaríkjamenn myndu
taka ákvörðun um málið algjörlega
upp á eigin spýtur og sagði að Rússar
og Kínverjar þyrftu m.a. að vera með
í ráðum.
Jacques Chirac, Frakklandsfor-
KONRÁÐ EGGERTSSON
Allt annað en sáttur við
Alþjóðahvalveiðiráðið.
seti, sagði mikilvægt að hrófla ekki
við því jafnvægi sem myndaðist við
ABM samninginn frá 1972 á milli
Bandaríkjamanna og Rússa sem
kveður á um bann við eldflaugavörn-
um, en Bush hefur haldið því fram að
sá samningur sé orðinn úreltur sök-
um breyttra tíma í heiminum. Ekki
eru þó allir á móti varnarkerfinu, því
Vaclav Havel, forseti Tékklands, seg-
ir að slíkt kerfi myndi bæta öryggi í
Strýta:
Tjónið ekki
metið
ELDSvoÐi Ekki hefur enn tekist að leg-
gja mat á hversu mikill hluti þeirra
afurða sem geymdar voru í rækju-
vinnslu Strýtu þegar eldur kom upp í
húsnæðinu á laugardag er ónýtur. Að-
alsteinn Helgason, framkvæmda-
stjóri landvinnslu hjá Samherja, seg-
ir að menn hafi verið að vinna í að
finna aðstöðu svo hægt væri að meta
skaðann. Taka þyrfti hvert bretti fyr-
ir sig til athugunar og gæta þess að
engin hætta væri á því að fnykur
bærist með vindum af öðrum brett-
um að því sem verið væri að skoða
hverju sinni. ■
MÁLIN RÆDD
Bush ræðir við Blair, forsætisráðherra Bret-
lands og Colin Powell, utanrlkisráðherra
Bandaríkjanna. Bush er mikið í mun að
styrkja samband Bandaríkjanna við Evrópu.
heiminum. „Heimurinn hefur
breyst,“ sagði Havel við komu sína tii
Brussel.
Á morgun mun Bush halda til
Gautaborgar í Svíþjóð þar sem mál
Evrópusambandsins verða rædd. ■
Bush vill halda dyrum
NATO opnum
Áætlanir um eldflaugavarnarkerfi mæta andstöðu. „Þurfum að undirbúa okkur undir ógnir
úr nýjum áttum,“ segir Bush.
ERLENT
Annar hver Dani hefur vantrú á
því að heilbrigðisþjónustan bjóði
upp á nægilega góða krabbameins-
meðferð. Þetta kemur fram í nýrri
rannsókn danska krabbameinsfé-
lagsins. Formaður þess, Anne Thom-
assen læknir, segir niðurstöðurnar
alvarlegar. Þær bendi til þess að æ
fleiri mæti mjög neikvæðir í krabba-
meinsmeðferð.
Nýjustu tölur dönsku heilbrigðis-
stofnunarinnar sýna að krabba-
mein heldur áfram að breiðast út
meðal Dana. Árið 1997 greindust
tæplega 30.000 Danir með krabba-
mein en árið 1988 voru þeir rúmlega
17.000.
Lungnakrabbamein verður sífellt
algengara meðal danskra kvenna
en tilfellum meðal karla hefur fækk-
að. Karlar eru þó helmingi fleiri en
konur á meðal sjúklinga með lungna-
krabbamein. 1988 voru þeir tvöfalt
fleiri.
Kjaradeila þroskaþjálfa:
Skrýtin staða í
samningunum
þroskaþjálfar Þroskaþjálfar hjá
Reykjavíkurborg lögðu fram tilboð
um kjarasamninga til samninga-
nefndarinnar í fyrradag, sem þeir
gera ráð fyrir að fá svör við eftir há-
degi í dag. Að sögn Guðnýjar Stef-
ánsdóttur talsmanns þroskaþjálfafé-
lagsins binda þroskaþjálfar nú mikl-
ar vonir við að gengið verði að til-
boðinu svo hægt verði að ljúka
kjaramálum.
„Staðan er orðin mjög skrýtin",
sagði Guðný en þroskaþjálfar eru í
samningaviðræðum við þrjár samn-
inganefndir auk sjálfseignastofn-
ana. Þroskaþjálfar hjá ríkinu sam-
þykktu með 106 atkvæðum af 107 að
boða til verkfalls 28. júní.
Þroskaþjálfar hjá sveitarfélögum
aflýstu verkfalli 1. júní eftir undir-
ritun kjarasamnings sem síðar var
felldur hjá félagsmönnum. Þeir hafa
ákveðið að hitta launanefnd sveitar-
félaganna að máli, áður en ákvörðun
verður tekin um framhaldið. Fundur
er ráðgerður í dag.
Þroskaþjálfar hjá sjálfseignar-
stofnunum hafa boðað verkfall 15.
júní og þeir funda með samninga-
nefndum í dag. ■
GUÐNÝ STEFÁNSDÓTTIR TALSMAÐUR ÞROSKAÞJÁLFA.
Þeir vænta niðurstaðna í dag.