Fréttablaðið - 14.06.2001, Side 7
FIMIVtTUPAGtJR 14. júní 2001
FRETTABLAÐIÐ
7
ERLENT
Þýska flugfélagið Lufthansa sendi
frá sér afkomuviðvörun í gær.
Áætlaður hagnaður ársins verður
um 60 milljarðar ísl. kr. í stað 100
eins og áður hafði verið gert ráð fyr-
ir. Skýringin er fyrst og fremst nið-
urstaða samningaviðræðna við flug-
menn félagsins. Samið var um 28%
launahækkun við þá. Hlutabréf í fé-
laginu féllu um 4,75% í kjölfarið.
—♦—
Forstjóri stærsta tryggingafyrir-
tæki Frakklands, Axa SA, og for-
veri hans í starfi hafa verið yfir-
heyrðir í tengslum við umfangsmik-
ið peningaþvættismál. Báðum var
haldið í gæsluvarðhaldi yfir nótt.
Málið sem lögreglan rannsakar eru
meint skattsvik líftryggingafélags-
ins PanEuroLife.
Vopnahlé í Israel:
Óvíst hvernig gengur
að fylgja eftir
jerúsalem. flp. ísraelar og Palestínu-
menn forðuðust miklar yfirlýsing-
ar um fyrirhugað vopnahlé í gær.
George Tenet, yfirmaður banda-
rísku leyniþjónustunnar, CIA, leid-
di saman fulltrúa þeirra í gær en á
stefnuskránni var vinna að út-
færslu vopnahlés sem báðir aðilar
féllust á í fyrrakvöld, með miklum
fyrirvara þó.
Fundurinn var haldinn með
leynd einhvers staðar í Tel Aviv. Að
sögn palestínsks embættismanns
stóð hann í þrjá tíma en það fékkst
ekki staðfest. Samningurinn hefur
endurvakið vonir um að það takist
að binda enda á átakatímabil sem
staðið hefur í síðan í septemberlok.
Um 600 manns hafa failtö í þeim,
500 Palestínumenn og 100 ísraelar.
Deiluaðilar vöruðust of mikla
bjartsýni en allar tillögur til að leg-
gja vopnum hafa farið út um þúfur.
Meðal Palestínumanna gætir ein-
nig mikillar andstöðu við vopna-
hléð en mörgum þykir þeirra hlut-
ur borinn fyrir borð í tillögum
Tenets. ■
Á VESTURBAKKANUM
Palestínskir krakkar að leik í útjaðri Vesturbakkans.
ÁRBÆJARSAFN.
Hátíðardagskrá verður í safninu 17. júní
Þjóðhátíðardagurinn:
Hátíðardagskrá
í Arbæjarsafni
i7. júní Hátíðardagskrá verður í Ár-
bæjarsafni 17. júní. Dagskráin er
fjölbreytt og meðal annars sýna fé-
lagar í Þjóðdansafélagi Reykjavíkur
þjóðdansa, leikið verður á harmoníku
og fólki boðið að líta á störf hand-
verkafólks. í Dillonshúsi verður boð-
ið upp á þjóðhátíðarkaffi. Gestir eru
hvattir til að mæta í þjóðbúningi í til-
efni dagsins og fólk af erlendum upp-
runa er boðið sérstaklega velkomið
og hvatt til að mæta í þjóðbúningum
síns heimalands. ■
Fundur SUS um gjaldeyrismál:
Umræðan fráleit
myntsamstarf „Ég hallast frekar að
því að við tökum upp dollar svo lengi
sem Bretar taki ekki upp Evruna,“
sagði Einar Örn Ólafsson, sérfræð-
ingur íslandsbanka, á fundi sem
Samband ungra sjálfstæðismanna
hélt í gær um gjaldeyrismál íslend-
inga. Hann sagði gjaldmiðlum í heim-
inum væri að fækka og sífellt stærri
myntsvæði yrðu til.
Einar benti á að íslendingum væri
aðrar leiðir færar í myntsamstarfi en
eingöngu samstarf við Evrópusam-
bandið. Auk þess að ganga inn í ESB
gætum við tengst fríverslunarsvæði
Ameríkuríkja og tekið upp dollar.
Tvíhliða samningar um notkun gjald-
miðils væri líka möguleiki eða að
taka upp erlenda mynt einhliða.
Þetta kallaði á kerfisbreytingu í
hagkerfinu sökum þess að nafnlaun
yrðu að vera sveigjanleg, sem hann
þekkti ekki dæmi til á íslandi hingað
til. Það ásamt því að við misstum hag-
stjórnartæki gjaldmiðilsins úr hendi
okkar væri stærsti þröskuldurinn
sem við þyrftum að yfirstíga.
Einar Óddur Kristjánsson, alþing-
ismaður, sagði þessa umræðu frá-
leita. Við værum ekki í ESB, aðildar-
umræður tækju fjögur til fimm ár og
svo þyrfti tíma til að aðlagast nýjum
gjaldmiðli. Þetta væri því ekki val-
kostur fyrr en eftir í fyrsta lagi 8 ár.
Hann sagði engan ábata af því að
taka upp aðra mynt. Við værum með
bestu mögulega fríverslunarsamn-
inga við Bandaríkin, værum í EES og
ættum að verja og standa vörð um
sjálfstæði okkar og íslensku krón-
una. Þannig tryggðum við að hag-
stjórn væri í okkar höndum. ■
EINAR ODDUR KRISTJÁNSSON
Umræðan um að taka upp aðra gjald-
miðla, dollar eða Evru, er fráleit.
iexas:
Vannærð
stúlka finnst
í skáp
hutchin. texas. ap. 8 ára gömul stúlka
frá Texas fannst nýlega i dimmum og
lúsugum skáp eftir að hafa verið
geymd þar í fjóra mánuði af móður
sinni og stjúpföður. Stúlkan var að-
eins rúmlega 11 kíló og fundust við
hlið hennar brauðmolar og vatn.
Móðir stúlkunnar og stúpfaðir hafa
verið kærð fyrir athæfið, en stúlkan
er nú í endurhæfingu. Ekki virðist
sem systkini hennar, fimm talsins, á
aldrinum 22 mánaða til 11 ára, hafi
verið vannærð, en þau voru umsvifa-
laust send til barnaverndaryfirvalda.
Að sögn lögreglunnar var heimili
þeirra fullt af skítugum fötum, rusli
og gæludýraúrgangi. ■
Merkjavara og tískufatnaður á
lægraverði
Verðdæmi:
Éj|| Levis gallabuxur
Diesel gallabuxur
Amazing gallabuxur
Morgan skyrtur
Kookai toppar
Kookai bolir
In Wear jakkar
.! Matinique bolir
DKNY skór
Bull Boxer sandalar
Bassotto skór
Cat strigaskór
Nike strigaskór
Fila strigaskór
Puma strigaskór
Þí; Jakkaföt
m Draktir
3.500
3.500
1.900
1.900
990
1.900
5.900
990
2.900
990
500
1.900
3.900
2.900
2.900
12.500
5.800
OUTLET
Nýtt
kortatímabil
í dag
Opið
mán. - fös. 12-18
laugardag 11-17
+ + + + merki fyrir minna + + + +
FAXAFENI 10 - SÍMI 533 1710