Fréttablaðið - 14.06.2001, Side 10

Fréttablaðið - 14.06.2001, Side 10
10 FRÉTTABLAÐIÐ 14. júní 2001 FIMMTUDACUR Kynning á mati á umhverfisáhrifum Reyöarál hf. kynnir skýrslu um mat á umhverfisáhrifum álvers viö Reyðarfjörð í opnu húsi í Sunnusal Hótels Sögu í Reykjavík í dag, fimmtudaginn 14. júní. (Athugiö breyttan fundarstaö i Reykjavik frá auglýsingu Skipulagsstofnunar) Opna húsiö hefst kl. 16:00 og stendurtil kl. 20:30. Fulltrúar verkefnisstjórnar og ráögjafarvið mat á umhverfisáhrifum álversins veröa á staðnum til að veita upplýsingar og svara spurningum. Hlutverk Skipulagsstofnunar og einstakir þættir matsvinnunnar verða kynntir sérstaklega i stuttum erindum báða dagana, kl. 17:15 og afturkl. 19:00. Skýrsla um mat á umhverfisáhrifum álversins er aðgengileg almenningi á heimasíðu Reyðaráls hf., www.revdaral.is. Þar er einnig að finna viðaukaskýrslur um einstaka þætti matsvinnunnar. Veriö velkomin á kynningarfund Reyðaráls hf. www.firmaskra.is BOSCH AEG AtlasCopco Úrvalið af handverkfærum hjá okkur, fyrir hinn handlagna heimilismann, jafnt sem lengra komna, er slíkt að líkja má við vopnabúr. Og það engin smá tæki, Bosch og Atlas Copco frá AEG, margreynd verkfæri í höndum íslenskra afreksmanna til sjávar og sveita. Nú höfum við tekið ærlega til á lagernum og bjóðum af því tilefni til verkfæraveislu. VOPNABUR AF HANDVERKFÆRUM BS2E12T 12w - hleðsluborvél 8.600 SBE 570R Bor- og skrúfvél m/höggi og hraðastilli (rofa 4.900 STEP 570X Stingsög - 570w 8.700 Gott úrval Vord frá Borvélar 8.600 Bandsllpivélar 9.900 Juðarar 6.785 Stingsagir 8.700 Slípirokkar 11.900 Borhamrar 16.900 Sverðsagir 17.900 Hjólsagir 15.985 Fræsarar 13.685 Kassann þarf að fylla daglega, því varan stoppar stutt vlð. Ástæðaner. 50-70% afsláttur HUSIÐ BRÆBURNIR ORMSSON Lágmúla 9, sími 530-2801 Efnahagssveiflur og sjávarútvegur: Eigið fé er að hverfa atvinnulíf Kristinn Björnsson, for- stjóri Skeljungs, sagði á hádegis- fundi Sambands ungra sjálfstæðis- manna í gær að sveiflur í gengi krón- unnar síðustu vikur sýni hve veik hún er. Það má lítið út af bregða til að allt hér fari á tjá og tundur. Ef fram heldur sem horfir hverfur eigið fé sjávarútvegsfyrirtækja. Kristinn tók ekki afstöðu til þess hvort hann vildi taka hér upp evru eða dollar en sagði að stöðugieikinn væri meiri ef við hefðum erlenda mynt. Þá væri þessi óheillaþróun ekki að dembast yfir okkur vegna slæmra frétta síðustu vikurnar. At- vinnulífið vilji fyrst og fremst búa við stöðugleika ■ KRISTINN BJÖRNSSON Krónan er veik fyrir ytri áföllum og slæmar fréttir veikja gengi hennar. VIÐURKENNINCAR fslensk fyrirtæki hafa aldrei verið meira áberandi á 500-listanum yfir framsæknustu fyrirtæki Evrópu en í ár. Þýska fyrirtækið Intershop Communications var í efsta sæti listans og náði íslenska fyrirtækið CoPro Landsteinar Croup í efsta sæti islensku fyrirtækjanna eða í 16. sæti. Islensk fyrirtæki framsækin: Aldrei fleiri á 500-listanum verðlaun Aldrei fyrr hafa íslensk fyr- irtæki verið jafnmörg á Europe 500- listanum yfir framsæknustu fyrir- tæki Evrópu, en þetta árið náðu sjö íslensk fyrirtæki inn á listann. Fyrir- tækið GoPro Landsteinar Group náði hæst á listann af íslensku fyrirtækj- unum eða í 16. sæti. Hin sex fyrir- tækin voru: hugbúnaðarfyrirtækin Oz.com í 116. sæti annars vegar og hugbúnaðarfyrirtækið Tölvumyndir í 123. sæti hins vegar, fiskvinnslufyr- irtækið Bakkavör í 127. sæti, tölvu- fyrirtækið Opin kerfi í 143. sæti, lyfjaframleiðandinn Delta í 418. sæti og loks hugbúnaðarfyrirtækið Kögun í 449. sæti. Haraldur Dean Nelson, upplýsingarstjóri Samtaka iðnaðar- ins, sagði að það væri mikill heiður fyrir íslensk fyrirtæki að komast inn á listann. Athygli vekur að fjögur af fyrirtækjunum eru hugbúnaðarfyrir- tæki og fullyrða hugbúnaðarfram- leiðendur að íslendingar séu í raun mjög leiðandi á þessu sviði. Aldrei hafa jafn mörg íslensk fyrirtæki ver- ið á listanum og er þetta í þriðja sinn sem fyrirtækið Tölvumyndir nær inn á listann. ■ Inga Jóna Þórðardóttir: Borgarstjóri fer með rangt mál revkjavIk Inga Jóna Þórð- ardóttir, oddviti sjálf- stæðismanna í borgar- stjórn Reykjavíkur, segir Ingibjörgu Sólrúnu Gísla- dóttur borgarstjóra hafa farið með rangt mál varð- andi skuldastöðu borgar- innar í Fréttablaðinu á mánudaginn. „Ingibjörg Sólrún seg- ir það blákalt að það sé rangt sem sjálfstæðis- menn segja að skuldir borgarinnar hafi verið að aukast. Á blaðamanna- fundi um daginn lögðum við hins vegar fram tölur beint upp úr ársreikning- um borgarinnar sem sýna að hreinar skuldir borg- arinar hafa sjöfaldast frá árslokum 1993 til ársloka ODDVITI SJÁLFSTÆÐISMANNA Tölur beint úr ársreikning- um borgarinnar sýna að hreinar skuldir borgarinar hafa sjöfaldast frá árslok- um 1993 til ársloka 2001, segir Inga Jóna Þórðar- dóttir. 2001, eins og gert er ráð fyrir í núverandi fjár- hagsáætlun. Tölur eru bara tölur og þær liggja fyrir. Ingibjörg Sólrún er því að bera okkur röngum sökum,“ segir Inga Jóna. Inga Jóna á við skuldir borgarinnar í krónutölu en ekki sem hlutfall af heildareignum borgarinn- ar. „Það hefur alltaf verið erfitt að reikna það út og sú tala er aldrei notuð í ársreikningum. Hvað eru til dæmis göturnar mikil eign? En auðvitað hafa eignir borgarinnar hækk- að á tímabilinu - þessum peningum var ekki hent út í loftið," segir Inga Jóna. ■

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.