Fréttablaðið - 14.06.2001, Síða 14
FRÉTTABLAÐIÐ
14. júní 2001 FIMMTUDACUR
HVERNIG FER?
14
Þróttur- KR í bikarnum?
INGI SIGURÐSSON
LEIKMAÐUR ÍBV
Ég býst við að KR vinni
þetta nokkuð örugglega
og leikurinn fari 5-1. Eg
hef að vísu ekki séð til
Þróttara en KR-ingar eiga
mikið inni og kannski
koma þeir sér af stað í
bikarnum.
DAVÍÐ VIÐARSSON
LEIKMAÐUR FH
Ætli leikurinn fari ekki 3-1
fyrir KR. Ég held að Guð-
mundur Benediktsson,
Einar Þór Daníelsson og
Gunnar Einarsson skori
fyrir KR en Sigmundur
Kristjánsson á eftir að
skora fyrir Þrótt. Þetta
verður ekki auðvelt hjá KR enda hafa þeir
ekki byrjað vel. Þeir hafa þetta samt
að lokum.
| MOLAR ~[
Stjórnendur landsliðs Trinidad og
Tobago eru óánægðir með mæt-
ingar hjá framherja Manchester
United, Dwight
Yorke. Þeir til-
kynntu í vikunni að
Yorke spilar ekki
með í næsta leik
liðsins, sem er á
móti Hondúras á
laugardaginn.
Ástæðan fyrir því
er talin vera sú að
Yorke mætti ekki í vináttulandsleik
á móti Panama á sunnudaginn. Um-
boðsmaður hans sagði hann hafa
misst af tengiflugi í Miami og haldið
aftur heim til Englands í stað þess
að ná næsta flugi. Hinsvegar sást til
hans um helgina í höfuðborg Trini-
dad og Tobago, Port of Spain, ásamt
Russell Latapy, fyrirliða landsliðs-
ins.
Arsenal er farið að reka á eftir
því að varnarmaður Tottenham,
Sol Campbell, ákveði sig hvort hann
vilji koma til liðsins
eða ekki. Liverpool
hefur einnig gert
hosur sínar grænar
fyrir Campbell,
sem er 26 ára, og
Arsenal segist ekki
vilja lenda í upp-
boði á honum.
Knattspyrnustjóri
Arsenal, Arsene Wenger, vill hafa
liðið klappað og klárt innan fjögurra
vikna og því hefur hann veitt Camp-
bell tveggja vikna umhugsunarfrest.
Campbell segist hinsvegar vera að
íhuga öll tilboð.
Brasilíubúar fagna nýjum land-
liðsþjálfara, Luiz Felipe Scolari.
Romario, Rivaldo, Roberto Carlos og
Cafu voru á listan-
um yfir þá 22 leik-
menn sem Scolari
vill hafa þegar
Brasilía mætir Úr-
úgvæ 1. júli í und-
ankeppni HM. Frá-
farandi þjálfari,
Emerson Leao, úti-
lokaði stjörnurnar
vegna þess að hann vildi samheldið
lið, sem spilaði þann lipra fótbolta
sem Brasilía er fræg fyrir. Scolari
er hinsvegar þekktur fyrir það að
leiða lið sín til sigurs, jafnvel þó það
kosti ofbeldi. Hann segist staðráðinn
í því að fara á HM.
Opna bandaríska:
Tiger sigurstranglegastur
Ekki inni í mynd-
inni að hætta
Sigurður Jónsson, leikmaður FH, hefur fullan hug á að leika með
liðinu í sumar. Hann segir að Islandsmótið hafi þróast svipað og
hann hafi búist við þó hafi hann ekki trú á að KR-ingar verði lengi
í neðri hluta deildarinnar.
knattspyrna Skagamaðurinn Sigurð-
ur Jónsson, sem gekk til liðs við FH
fyrir yfirstandandi tímabil, segist
smám saman vera að ná sér eftir
uppskurð sem hann gekkst undir á
hné. Aðspurður sagði hann að það
væri ekki inni í myndinni hjá sér
hætta vegna þeirra meiðsla sem
hann hefði átt í undanfarið. Hann
hefði fullan hug á að leika með FH í
sumar.
„Ég er ekki alveg orðin leikfær
eins og er,“ sagði Sigurður. „Þetta er
samt allt í rétta átt. Eftir aðgerðina
fór ég kannski aðeins of geyst af
stað og þá bólgnaði hnéð upp og kom
smá bakslag í þetta. En ég er remb-
ast á fullu núna við að lyfta og styrk-
ja hnéð og hef fundið dagamun á
mér síðustu vikuna.“
Sigurður sagði að ef batinn héldi
áfram færi að líða að því að hann
yrði leikfær. Hann væri því nokkuð
bjartsýnn á að hann myndi ná sér að
fullu og leika með FH-ingum í sum-
ar.
Nú er 4. umferð íslandsmótsins
nýlokið og sagði Sigurður að mótið
hefði þróast svipað og hann hefði bú-
ist við. Það virtist eins og allir gætu
unnið alla. Hann sagðist samt ekki
hafa trú á því að KR-ingarnir yrðu í
neðri hluta deildarinnar lengi. Þeir
ættu mikið inni og hefðu ekki sýnt
það sem þeir gætu.
Aðspurður sagði hann að það
væri ekki sérstakt markmið FH að
vinna titilinn í ár heldur miklu frek-
ar að tryggja liðinu áframhaldandi
sæti í deildinni. Liðið væri á heildina
litið ungt og tiltölulega reynslulítið,
þó inni á milli væru menn með mikla
reynslu.
Sigurður sagði að honum litist vel
á sína gömlu félaga uppi á Skaga,
sem nú sitja í öðru sæti deildarinnar.
Þeir væru að spila vel og gaman
væri að sjá til liðsins. Ólafur Þórðar-
son væri greinilega í fantaformi og
greinilegt að baráttuandinn í honum
smitaði út frá sér til annarra leik-
manna liðsins. Þá sagði Sigurður að
sérstaklega væri gaman að sjá til
Grétars Steinssonar, sem hefði spil-
að feikilega vel og tekið miklum
framförum frá því i fyrra, þó hann
hefði einnig leikið vel þá. ■
GOLf Tiger Woods mun í dag reyna
að gera það sem engum öðrum í
hans íþrótt hefur tekist, þ.e. að
vinna fimm golfstórmót í röð, en
Opna bandaríska meistaramótið í
golfi hefst á Southern Hills golf-
vellinum í Tlilsa í Oklahoma í dag.
Woods, sem vann mótið með 15
högga mun í fyrra, er af golfsér-
fræðingum talinn langsigurstrang-
legastur og í raun telja menn að
eitthvað mikið þurfi að koma upp á
til þess að hann vinni ekki.
Woods hefur yfirburði á
flestum ef ekki öllum
sviðum íþróttarinnar. j
Hann er högglengstur, þó hann nýti
sér það sjaldan. Hann er góður í
glompum, sérstaklega undir pressu
og hefur tekið miklum framförum í
flötunum.
Einn af helstu kostum Woods er
samt án efa hæfileikinn til að stand-
ast mikið álag. Það er alltaf búist
við því að hann vinni eða að hann
framkvæmi eitthvað högg og í
hverju mótinu á fætur öðru stenst
hann væntingar. Nú er svo komið að
hann er orðinn þekktari íþrótta-
maður en Michael Jordan.
Þegar golfsérfræðingar eru
spurðir að því hverjir gætu hugsan-
lega veitt Woods keppni verður yf-
irleitt fátt um svör. Woods er nefn-
inlega í sérflokki. En ef nefna á ein-
hverja sem gætu komið á óvart má
nefna menn eins og Sergio Garcia,
Tom Lehman, Vijay Singh, Hal
Sutton, Nick Price, Ernie Els, David
Duval, Phil Mickelson og Davis
Love III. ■
í SÉRFLOKKI
Tiger Woods vann Opna bandaríska meist-
aramótið í golfi með 15 högga mun í fyrra
og þykir langsigurstranglegastur í ár.
Anna Kournikova:
Litlar líkur á
Wimbledon
tennis Rússneska tennisstjarnan Anna
Kournikova hefur tilkynnt að hún
muni ekki taka þátt á tennismóti, sem
verður haldið á grasvellinum í East-
bourne í næstu viku. Hún hafði áður
sagt sig úr öðru móti á grasvelli, DFS
Classic í Birmingham. „Mér þykir
það leiðinlegt að geta ekki spilað í
Eastbourne. Ég hef jafnan gaman að
mótinu. Það er leiðinlegt að fóturinn
skuli ekki vera kominn í lag,“ sagði
Kournikova. Hún þurfti einnig að
fresta myndatöku fyrir brjóstahald-
araauglýsingu sem átti að vera í East-
bourne á föstudag.
Hún hefur ekki spilað á tennismóti
síðan hún meiddist á fæti í mars. Nú
þegar öll leirvallamótin eru að baki,
þ.á.m. hið sterka Opna franska stór-
mót, eru ekki miklar líkur á því að
ALDREI UNNIÐ STÓRMÓT
Kournikova er ein skærasta stjarna tennisí-
þróttarinnar í dag, þrátt fyrir misjafnt gengi
undanfarin ár.
hún nái að koma sér í form fyrir
Wimbledon. Hún komst í undanúrslit
árið 1997 en tapaði í annarri umferð í
fyrra. Stórmótið hefst 25. júní. ■
Everton komið í vandræði:
Jeffers vill
fara til Arsenal
knattspyrna Francis Jeffers,
framherjinn ungi hjá Everton,
hefur neitað að ræða við
Newcastle United um hugsan-
legan samning. Everton var
búið að samþykkja 8 milljón
punda tilboð frá Newcastle og
átti Jeffers, sem er landsliðs-
maður Englands 21 árs og
yngri, að hitta Bobby Robson,
stjóra Newcastle, að máli þegar
hann kemur heim úr fríi. Nú
hefur hann hinsvegar alfarið
neitað að ræða við þá og segist
vilja ganga til liðs við Arsenal.
Eini hugsanlegi möguleikinn
í RAUÐA TREYJU?
Tottenham og
Sunderland virðast
hafa misst
áhugann á Jeffers
utan Lundúnaliðið er Midd-
lesbrough en Sunderland og
Tottenham virðast hafa
misst áhugann á kappanum.
Everton er því komið í
vandræði þar sem fjárhags-
staða liðsins er slæm og
Arsenal er einungis tilbúið
að greiða fyrir kappann
með afborgunum en
Newcastle hugðist stað-
greiða. Jeffers hefur þann
möguleika að spila út gild-
andi samning sem þýðir að
honum er frjálst að fara hvert sem er
fyrir þegar sá samningur rennur út. ■
32-liða bikarúrslit:
Grindavík tók
Leikni létt
knattspyrna Leiknir R. tók á móti
Grindavík í fyrsta leik 32-liða úrslita
Coca Cola bikarkeppni karla í gær.
Leikurinn fór fram á Leiknisvelli.
Grindavík sigraði 4-1.
Átta leikir fara fram í bikar-
keppninni í kvöld. Þróttur R. tekur á
móti KR á Valbjarnarvelli, Haukar
taka á móti Val að Ásvöllum, Selfoss
tekur á móti Fram á Selfossvelli,
Reynir S. tekur á móti Keflavík á
Sandgerðisvelli, Víðir tekur á móti
ÍR á Garðsvelli, Fjarðabyggð tekur á
móti Breiðablik á Eskifjarðarvelli,
KFS tekur á móti Fylki á Helgafells-
velli og KS tekur á móti Tindastól á
Siglufjarðarvelli. ■
Spretthlauparinn Donovan Bailey:
Glanni og bílabani
frjálsar iPRóniR Kanadíski
spretthlauparinn Donovan
Bailey var dæmdur sekur í
rétti í Kanada á mánudag-
inn. Bailey keyrði Benzann
sinn framhjá lögregluþjón-
um á 200 km/klst hraða í
nóvember sl. þar sem
hraðamörkin Voru 100
km/klst. „Hann hleypur
hratt og hann keyrir hratt,“
sagði lögmaður Bailey. „Nu
ætlar hann að hægja á sér.“
Bailey, sem er fyrrum
heimsmethafi og Ólympíu-
meistari í 100 metra hlaupi,
tilkynnti nýlega að hann ætlar að
hætta keppni. Bailey klárar þau úti-
mót sem eftir eru á árinu
og leggur síðan hlaupa-
skóna á hilluna. Þetta er
ekki í fyrsta skipti sem
hann kemst í kast við lög-
in vegna ökuleikni sinn-
ar. Árið 1997 var Bailey
kærður fyrir að tilkynna
ekki óhapp sem hann
lenti í. Þá eyðilagði hann
fimm milljón króna Benz
þegar hann klessti á
staur, sem olli því að bíll-
inn valt og það kviknaði í
honum. Bailey mætti
ekki í réttinn með lög-
manni sínum til að heyra úrskurð
dómarans á mánudaginn. ■
KEYRIR BENZ
Donovan Bailey er tek-
inn reglulega af lög-
reglunni í Kanada.
Á LEIÐ Á
VILLA PARK
Mörg lið eru á eftir
Mustapha Hadji,
landsliðsmanni Mar-
rókkó. Hann vill helst
spila í Englandi.
Leikmannakaup í ensku
úrvalsdeilainni:
Hadji til
Aston Villa?
knattspyrna Coventry City tók 4,5
milljóna punda boði frá Aston Villa
í miðvallarleikmannin Mustapha
Hadji. John Gregory vill fá Hadji
fljótt til liðs við Villa eftir að hafa
misst af Frank Lampard og Hassan
Það er undir Hadji komið
hvort hann gengur til liðs við Villa en
fleiri félög hafa sýnt honum áhuga,
þ.á.m. frönsku liðin Nantes og Bor-
deaux og portúgölsku liðin Porto og
Sporting Lissabon. Hadji hefur
sagst vilja spila á Englandi og seg-
ir það ekki verra að spila á Villa
Park en Highfield Road. ■