Fréttablaðið - 24.08.2001, Page 1
HELGIN
Leiðin
til bata
bls 18
FÓLK
Coldplay
troðfyllti
höllina
bls 22
ÚTLÖNP
Píanó
Lennons
komið á safnið
bls 6
=!=
ÖRYGGISMIÐSTÖÐ ÍSLANDS
HEIMAGÆSLA
Sfnrai S30 2400
s.
FRETTABLAÐIÐ
1 ' . ——
86. tölublað - 1. árgangur Þverholti 9, 105 Reykjavík — sími 515 7500 Föstudagurinn 24. ágúst 2001
FOSTSJDAGUR
Fyrsti skóla-
dagurinn
Bskólar Skólaár
grunnskólanna
hefst í dag og
mæta börnin í skól-
ann í fyrsta skipti.
Kennsla er einnig
að hef jast í flestum
S framhaldsskólum
og háskólum landsins.
HIV-meðferð frestað
vegna húsnæðisleysis
Bataráðstefna á
Grand Hótel
75% öryrki með um 50 þúsund í bætur. Lofað íbúð eftir að málsókn spurðist út en áður verið sagt
að bíða í 2 ár. Formaður félagsmálaráðs ræðir ekki málefni einstaklinga. Sjálfsagt að leita réttar síns.
alkóhólismi Þeir sem leita bata við
alkóhólisma með 12-sporakerfinu
hittast um helgina á ráðstefnu sem
hefst á Grand Hótel, síðdegis í dag.
Þrír þekktir bandarískir fyrirlesar-
ar leiða viðstadda í allan sannieik-
ann.
VEÐRID í DAG
REYKJAVÍK Norðlæg eða
breytileg átt, 5-8 m/s. Skýjað
með köflum og síðdegis-
skúrir. Hiti 10 til 15 stig.
ísafjörður VINDUR O s-'3 ÚRKOMA Skýjað HITI 0'2
Akureyri <5 3-6 Skýjað O"
Egilsstaðir Q 5-8 Rigning O"
Vestmannaeyjar Q 5-8 Skýjað 0«2
10 ár frá sjálfstæði
utanríkismAl Um þessar mundir eru
10 ár frá því Eystrasaltsríkin öðl-
uðust sjálfstæði. Til að minnast
þess koma utanríkisráðherrar Eist-
lands, Lettlands og Litháens til
landsins í dag en hátíðarhöld hef j-
ast á morgun.
Islensk útrás í Noregi
húscöcn Húsgagnaverslunin Exó
opnar í dag útibú í Osló undir nafn-
inu EXÓ möbelstudio á Parkveien,
steinsnar frá konungshöllinni.
Forseti hittir
kóngafólk
heimsókn Forseti íslands og heit-
kona hans ætla að verða við brúð-
kaup norska krónprinsins á morg-
un. í kvöld snæða þau kvöldverð í
boði norsku ríkisstjórnarinnar.
j KVÖLDIÐ í KVÖLD|
Tónlist 18 Bíó 16
Leikhús 18 íþróttir 14
Myndlist 18 Sjónvarp 20
Skemmtanir 18 Útvarp 21
NOKKRAR STAÐREYNDIR UM
FRÉTTABLAÐIÐ
Hvað les fólkið sem sér um
innkaup til heimilisins?
Meðal-
jlestur á
[virkum
Idögum.
70.000 einíök
70% töiks !es blaðið
' 72,5% (BÚA HÖFUÐBORGARSVÆÐISINS Á ALDRINUM
' 25 TIL 67 ÁRA LESA FRÉTTABLAÐIÐ AÐ MEÐALTALI SAMKVÆMTÍ
|j KÖNNUN PRICEWATERHOUSECOOPERS FRÁ JÚLÍ 2001. ||
■■■■■■■■■■■■■■«■■■■■■■■■■■ :
húsnæðismál Alexander Björn
Gíslason sem undirbýr málsókn
gegn félagsmálayfirvöldum borg-
arinnar vegna meints úrræðaleys-
is þeirra í húsnæðismálum heimil-
islausra segir að í samráði við
læknir sinn hefði verið ákveðið að
bíða með setja hann á lyfjameð-
ferð þar til úr rætist í húsnæðis-
málum hans, en hann er HlV-smit-
aður. Það sé m.a. vegna þeirra
aukaverkana sem séu samfara
slíkri lyfjameðferð og á meðan
heilsu hans hefur ekki hrakað.
Hann er jafnframt 75% öryrki og
hefur um 50 þúsund krónur á
mánuði í bætur. Helgi Hjörvar
formaður félagsmála-
ráðs segist ekki vilja
tjá sig um málefni ein-
staklinga né heldur um
hugsanlega málsókn.
Hann telur þó sjálfsagt
að fólk leiti réttar síns
ef það telur ástæðu til
þess.
Alexander segir að
hann hafi um all langt
skeið verið að leita
réttar sína innan fé-
lagsmálakerfisins en
hann er fráskilinn
tveggja barna faðir og hefur ekki
getað sinnt þeim eðlilega vegna
húsnæðisleysis. í fram-
haldi af því fór hann að
lesa sig til um starfsvið
og hlutverk Félagsþjón-
ustunnar þar sem fram
kemur að enginn skuli
þurfa að vera húsnæð-
islaus. Af þeim sökum
hefði hann ákveðið að
láta reyna á lagalega
hlið þessa máls og leit-
aði eftir aðstoð hjá Guð-
mundi St. Ragnarssyni
héraðsdómslögmanni.
Hann segir að tilgangur
og markmið væntanlegrar lög-
sóknar sé til þess að það verði tek-
ALEXANDER BJÖRN
Ekki talinn vænlegur kost-
ur að fara í lyfjameðferð á
meðan grunnþörf eins og
húsnæði er ekki fyrir hendi
ið á þeim vanda sem heimilislaus-
ir einstaklingar í borginni eiga við
að glíma.
Hann segist hafa verið kallað-
ur á fund hjá Félagsþjónustunni
fljótlega eftir að það kvisaðist út
að hann ætlaði í mál. Á fundinum
hefði honum verið tjáð að hann
fengi íbúð við næstu úthlutun. Það
þótti honum skjóta skökku við því
tveimur vikum áður hefði hann
fengið skriflega staðfestingu frá
Félagsþjónustunni á því að hann
þyrfti að bíða í 2 ár eftir húsnæði.
Hann hefði verið meira og minna
húsnæðislaus í 6 ár.
-grh@frettabiadid.is
FÉKK ORÐU FRÁ FRÖNSKUM RÁÐHERRA. Jack Lang, menntamálaráðherra Frakklands, sæmdi Björk orðu og titlinum Chevalier de
l'Ordre National du Merite í París í gær. Björk hefur áður hitt ráðherrann en Sykurmolarnir héldu honum tónleika í Duus-húsi við
Fischerssund, þegar hann kom í opinbera heimsókn hingað til lands árið 1990. Lang sagðist hafa viljað veita Björk orðuna, sem vináttu-
og þakklætisvott, vegna sérstakra tengsla hennar við Frakkland.
Frosti G. Bergsson:
Vilja meira en 10%
hlut í Símanum
landssíminn „Það er rétt að einka-
væðingarnefndin hefur takmark-
að tilboðssölu til fjárfesta í sept-
ember við 10%,“ segir Frosti G.
Bergsson, forstjóri Opinna kerfa
og talsmaður hóps um fjárfestingu
í Símanum, en fram kom í Við-
skiptablaðinu að hópurinn ætlaði
sér allt að 15%. Hann bendir á að
ekki sé ljóst hvort eða hvenær
Landssíminn ætli að selja meira
en þau 49% sem einkavædd verða
að þessu sinni. „Það eru mismun-
andi sögusagnir í gangi hvað það
varðar og auðvitað skiptir verð-
lagningin meginmáli,“ segir
Frosti.
Samkvæmt tillögum nefndar-
innar er gert ráð fyrir að í septem-
ber verði 14% af heildarhlutafé
Símans selt til starfsmanna og al-
mennings í áskrift á föstu gengi.
Einnig verður í september óskað
eftir tilboðum í önnur 10% þar
sem hlutur hvers verður að há-
marki 2-3%. Skarphéðinn Stein-
arsson, starfsmaður einkavæðing-
arnefndar, segir að undir lok árs-
ins sé gert ráð fyrir að auglýst
verði eftir kjölfestufjárfestum
vegna þeirra 25% sem verða eftir,
en þeir sem hafa áhuga á vera með
í því verða að skila inn tilkynningu
fyrir miðjan september. ■
| ÞETTA HELST |
Foreldrar þeirra 120 barna sem
sækju munu Áslandsskóla í
Hafnafirði eru spurðir um fjár-
hagsstöðu og menntun í bréfi frá
íslensku menntasamtökunum.
Talsmaður samtakanna segir um
mistök að ræða og svörunum
verði eytt. bls. 2.
Landbúnaðarráðuneytið hefur
minnt Kjötumboðið á að því sé
skylt að flytja út um 1150 tonn af
kindakjöti en greiða ella um 39
m.kr. bls. 2.
Tap Islandssíma á fyrri helm-
ingi ársins var 445 m.kr., 140
m.kr. umfram áætlun. Þessar töl-
ur eru í samræmi við greinar-
gerð félagsins til Verðbi’éfaþings-
ins vegna umdeildrar afkomuvið-
vörunar.
bls. 2.
Upptökur úr flugturni:
Falla ekki að
áliti RNF
skerjafjardarslysid Fullyrðingar
flugumferðarstjóra sem koma
fram á óbirtum segulbandsupp-
tökum sem gerðar voru í flugturn-
inum í Reykjavík á mínútunum
eftir Skerjafjarðarslysið virðast
stangast á við niðurstöðu flug-
slysanefndar (RNF) um aðdrag-
anda þess að vélinni sem fórst,
var gert að hætta við lendingu á
síðustu stundu. Flugumferðar-
stjórinn segir flugvélina á undan
hafa valdið því að of stutt bil varð
á milli vélanna en ekki að vélin
sem síðar fórst hafi komið of
fljótt til lendingar.
Friðrik Þór Guðmundsson seg-
ir upptökurnar leiða til þess að
skýrsla RNF sé „hrunin“.
nánar bls. 8.
Allir egn oga siitir
á frábœru veröl
í öllum verslunum Pennans.