Fréttablaðið - 24.08.2001, Qupperneq 4
FRETTABLAÐIÐ
24. ágúst 2001 FÖSTUPACUR
SVONA ERUIVI VIÐ
SKULDIR HEIMILANNA Í LANDINU
1993 TIL 2000
Míkil aukning hefur orðið á skuldum heim-
ilanna á liðnum áratug. Nokkuð hægði á
aukningunni frá 1996-1998, en síðan þá
hafa skuldirnar aukist hratt bæði að heild-
arupphæð og sem hlutfall af ráðstöfunar-
tekjum. Aukning heildarskulda heimilanna
nam 17% milli áranna 1999 og 2000.
SKULDIR HEIMILANNA
■ í milijörðum króna
■ Sem % af ráðstöfunar-
tekjum
'93 '94 '95 '96 '97 '98 '99 '00
SLÁANDI NIÐURSTÖÐUR
Tveir alnæmissjúklingar hvíla sig á sjúkra-
húsi í Peking. Opinberar tölur sýna að HIV-
smituðum hefur fjölgað gífurlega í Kína.
Opinberar tölur í Kína:
HIV-smituðum
íjölgar um 67%
PEKINC.AP. Á fyrstu sex mánuðum
þessa árs hefur HlV-smituðum
fjölgað um 67% í Kína frá því á
sama tíma í fyrra. Flest smitin
voru á meðal eiturlyfjaneytenda
og vændiskvenna. Alls höfðu
26.058 HlV-smit verið skráð í lok
júnímánaðar en sérfræðingar í
Kína telja hins vegar að raunveru-
legur fjöldi þeirra sem hafa smit-
ast sé mun hærri, eða um 600 þús-
und. Samkvæmt skoðanakönnun
sem gerð var í landinu skipta 37%
eiturlyfjaneytenda með sér nálum
til að sprauta sig. ■
♦
í RÚST
Bíllinn sem lenti í eldflaugaárásinni í borg-
inni Nablus fór í rúst, en sá sem ísraels-
menn ætluðu að myrða slapp hins vegar
naumlega með skrámur.
Átök við Vesturbakkann:
Efnahagsmál:
Atvinnuleysi
aldrei meira í
Japan
TÓKÝÓ.AP. Talið er að atvinnuleysi í
Japan í júlímánuði muni fara upp
í 5% , sem yrði það mesta frá því
mælingar hófust árið 1953. Á bak-
við aukið atvinnuleysi er sú stað-
reynd að dregið hefur úr sölu í
upplýsingatækniiðnaði og hefur
það aukið þrýsting á fyrirtækjum
um hagræðingu í rekstri, að því er
japanskir fjölmiðlar segja. I júní
var atvinnuleysi í landinu 4,9%,
sem er það mesta til þessa og voru
þá alls 3,38 milljónir manna at-
vinnulausar í landinu. ■
Ferill íjárveitingar úr
ríkiskassanum
Kostnaðaráætlun 1.500 fm samgöngusafns sagður 36 milljónir þegar menntamálaráðherra var
beðinn um 18 milljóna styrk sumarið 1998. Eftir bréfaskriftir fram og tilbaka er bygging safnsins
langt komin í dag og kostnaður heggur nærri 100 milljónum. Beðið eftir viðbrögðum um frekari
íjárveitingu. Þór Magnússon, þáverandi þjóðminjavörður, varaði ráðuneytið við.
Ermasundsgöngin:
Deilt um flóttamannabúðir
parís. ap Eurotunnel, fyrirtækið
sem rekur farþegalestir og vöru-
flutningaþjónustu um Erma-
sundsgöngin milli Bretlands og
Frakklands, hefur krafist þess að
flóttamannabúðum Rauða kross-
ins í Sangette verði lokað, en búð-
irnar eru skammt frá Coquelle,
þar sem göngin opnast Frakk-
landsmegin.
Á hverri nóttu reyna hundruð
innflytjenda að komast með ólög-
legum hætti inn í Bretland í gegn-
um göngin. Þeir sem nást eru yfir-
leitt látnir gista í flóttamannabúð-
unum í Sangette.
Á fyrri helmingi þessa árs voru
alls 18.500 manns stöðvaðir
Frakklandsmegin, en fólkið reyn-
ir ýmist að laumast inn í lestirnar
eða á vörubifreiðir sem fluttir eru
með lestunum. Þessar tilraunir til
að komast yfir til Bretlands eru
ekki hættulausar, því á þessu ári
hafa a.m.k. fjórir flóttamenn týnt
lífinu við að reyna að stökkva um
borð í lest í Coquelle. ■
í NÆSTA NÁGRENNI
Flóttamenn í hinum um-
deildu búðum Rauða kross-
ins á Norður-Frakklandi.
almannafé Þann 20. ágúst 1998
skrifar byggingarnefnd Sam-
göngusafnsins að Skógum bréf til
menntamálaráðherra og biður um
18 milljóna króna fjárveitingu
vegna fyrirhugaðs safns. Sagt er
frá því að hagstæðasta tilboðið í
áformaða 1.500 fm. byggingu upp
á 36 milljónir hafi komið frá Lím-
tré hf. á Flúðum.
Minnisblað innan ráðuneytis-
ins frá 5. nóvember greinir frá
þeim vandkvæðum á styrkveit-
ingu að aðeins sé heimilt að fram-
lag ríkisins nemi þriðjungi kostn-
aðar við byggingar af þessu tagi
samkvæmt 13. gr. Þjóðminjalaga.
Einnig kemur fram að styrkveit-
ingin velti á ákvörðun þjóðminja-
ráðs.
Fimm dögum síðar, eða 10. nóv-
ember, sendi byggingarnefndin
endurskoðaða kostnaðaráætlun til
ráðherra og var heildarkostnaður
þar kominn í 54 milljónir, en þriðj-
ungur þess eru réttar 18 milljónir.
Af minnisblaði innan ráðuneytis,
skráð mánuði síðar, má skilja að
fallist hafi verið á nýja tilhögun
mála: „Það virðist vera misskiln-
ingur að ráðuneytið hafi verið
beðið um að leggja fram helming
alls kostnaðar við framkvæmd-
ina, heldur er beðið um 18 milljón-
ir, sem er ca helmingur kostnaðar
að frádregnum vsk. og kostnaði
við sökkul og jarðvinnu, en u.þ.b.
þriðjungur heildarkostnaðar."
Vilyrði fæst frá þjóðminjaráði
þann 25. nóvember. í kjölfar þess
sendir Þór Magnússon, þáverandi
þjóðminjavörður, bréf til ráð-
herra þar sem hann ræðir umfang
framkvæmdarinnar og lýsir yfir
efasemdum um að kostnaðaráætl-
anir geti staðist. Hann varar ein-
nig við því að tilgangur safnsins
skarist á við tilgang bútæknisafns
Bændaskólans á Hvanneyri og að
fjárhæð styrkveitingarinnar geti
komið niður á smærri söfnum.
Þann 17. desember 1998 skrifa
Björn Bjarnason og Geir H.
SAMGÖNGUSAFNIÐ, SKÓGUM
Samkvæmt upphaflegri styrkbeiðni átti
byggingin að vera 1500 fm og kosta 36
milljónir. í dag er húsið 1910 fm og hefur
kostnaður margfaldast frá upphaflegri
áætlun.
Haarde, ráðherrar ríkisstjórnar-
innar, undir fjárveitingu að upp-
hæð 18 milljónum á þremur árum
sem sögð er „háð því að fyrir liggi
greinargerðir um framvindu
verksins og byggingarkostnað."
Þann 22. febrúar 2001 skrifar
Sverrir Magnússon, formaður
byggingarnefndarinnar bréf til
Björns Bjarnasonar þar sem beð-
ið er um viðbótarstyrk að upphæð
8 milljónum sökum þess að
kostanaðaráætlun sé komin í 78
milljónir. Límtré hf. á Flúðum
vinnur nú að lokafrágangi bygg-
ingarinnar í samvinnu við verk-
takafyrirtækið ístak.
matti@frettabladíd.is
SAMSKIPTI FRAMKVÆMDAVALDSINS VIÐ BYGGINGARNEFND
SAMGÖNGUSAFNSINS í SKÓGUM.
■ 20. ágú. '98 Kostnaðaráætlun sögð 36 milljónir, samkvæmt besta tilboði, og
menntamálaráðuneytið beðið um helmingsstyrk, eða 18 milljónir.
■ 5. nóv. '98 Aðeins er heimilt að veita styrk upp að þriðjungi byggingarkostnaðar
samkvæmt minnisblaði í ráðuneytinu. Þjóðminjalög heimila aðeins 12
milljóna króna styrk.
■ 10- nóv. '98 Endurskoðuð kostnaðaráætlun upp á 54 milljónir berst ráðherra ásamt
ítrekaðri styrkbeiðni.
■ 26. nóv. '98 Þjóðminjaráð, undir formennsku Gunnars Jóhanns Birgissonar, gefur
vilyrði sitt fyrir styrk.
■ 10. des. '98 í minnisblaði ráðuneytis er fallist á 18 milljónir í samræmi við hækkaða
kostnaðaráætlun.
■ 11. des. '98 Þór Magnússon, þáverandi þjóðminjavörður, sér ástæðu til að rita bréf
til menntamálaráðherra þar sem hann ræðir umfang safnsins og lýsir
m.a. efasemdum um að kostnaðaráætlun geti staðist.
■ 17. des. '98 Björn Bjarnason, menntamálaráðherra, og Geir H. Haarde, fjármálaráð-
herra, skrifa undir 18 milljóna fjárveitingu sem á að greiðast á þremur
árum, 1999, 2000 og 2001. „Árleg greiðsla er háð því að fyrir liggi
greinargerð um framvindu verksins og byggingarkostnað," segir í skjal-
inu.
M 22. feb. rQ1 Kostnaðaráætlun sögð komin í 78 milljónir í bréfi byggingarnefndar-
innar til Björns Bjarnasonar. Ráðherra beðinn um að beita sér fyrir 8
milljóna styrk til viðbótar.
■ Sumar '01 Byggingin langt komin og óvíst hvort kostnaðaráætlun haldist undir 80
milljónum. ísólfur Gylfi Pálmason, byggingarnefndarmaður, segir málið
á viðkvæmu stigi, beðið sé eftir viðbrögðum frá ráðuneyti.
Leiðangur vegna söfnunar vopna uppreisnarmanna:
Hersveitir NATO
komnar til Makedóníu
Fjórir særðust
í eldflaugaárás
nablus.vesturbakkanum.ap. Fjórir
Palestínumenn særðust eftir að
ísraelskar herþyrlur skutu tveim-
ur eldflaugum á bíl í borginni
Nablus á Vesturbakkanum í gær.
Einn farþeganna í bílnum var Ji-
had al-Mussaimi, háttsettur með-
limur í Fatha-hreyfingu Yasser
Arafat, leiðtoga Palestínu og
særðist hann lítillega. Mikil átök
hafa átt sér stað undanfarið við
Vesturbakkann og hafa þau skyg-
gt á væntanlegan fund Arafat og
Shimon Peres, utanríkisráðherra
ísraels sem fara á fram í Berlín á
næstu dögum. ■
skopje.makedóníu.ap. Hersveitir
NATO komu í gær til Makedóníu í
þeim tilgangi að safna saman
vopnum albanskra uppreisnar-
manna, en í fyrradag ákvað NATO
að allir 3500 hermenn sínir yrðu
notaðir í leiðangrinum þrátt fyrir
að margoft hafi verið brotið gegn
friðarsamkomulaginu sem undir-
ritað var 17. ágúst. Þrátt fyrir að
albanskir uppreisnarmenn hafi
ekki undirritað samkomulagið
samþykktu þeir í samráði við
NATO að afvopnast.
Smávægileg átök áttu sér stað í
Makedóníu í fyrrakvöld, m.a. réð-
ust uppreisnarmenn á bækistöðvar
lögreglu í þorpinu Mlin í norður-
hluta landsins, en engin meiðsl
urðu á fólki. Einhver ágreiningur
hefur verið uppi um hversu mörg
vopn uppreisnarmenn ætli að láta
af hendi til hersveita NATO. Ríkis-
stjórn landsins sagði uppreisnar-
menn hafa 85 þúsund vopn undir
höndum en uppreisnarmenn hafa
hins vegar sagst ætla að láta 2000
vopn af hendi. Vonast er til að lausn
finnist á málinu innan skamms, en
að sögn Robertson lavarðar, fram-
MÆTTIR
Breskir hermenn á flugvellinum við kom-
una til Skopje í Makedóníu í gær.
kvæmdastjóra NATO, mun söfnun
vopnanna hefjast einhvern tímann í
næstu viku. ■