Fréttablaðið - 24.08.2001, Blaðsíða 7
FÖSTUPAGUR 24. ágúst 2001
FRETTABLAÐIÐ
7
E1 Grillo:
Sprengju-
leit lokið
LflNDHEiGiSGÆSLAN Sprengjuleit í
flaki E1 Grillo er lokið og því talið
óhætt fyrir verktaka að hefja olíu-
hreinsun úr flakinu. Við leitina
fundust sprengikúlur úr loftvarnar-
byssum skipsins, flugeldar til loft-
varna og hleðslur fyrir fallbyssur.
Samkvæmt upplýsingum frá Land-
helgisgæslunni var send út viðvör-
un um sprengjur í flaki E1 Grillo
þar sem sagði að þær gætu sprung-
ið við minnstu hreyfingu. Hafa
gæslunni borist tilkynningar frá
fólki sem haft hefur sprengjur í
fórum sínum og gerðar hafa verið
viðeigandi ráðstafanir. ■
Afkoma ríkissjóðs:
Versnar
um 12,7
milljarða
ríkisfjármál Handbært fé frá rek-
stri ríkissjóðs var neikvætt um
5,2 milljarða króna fyrstu sjö
mánuði ársins, en var jákvæð um
7,5 milljarða fyrir sama tímabil í
fyrra. Þetta er 4,9 milljörðum Iak-
ari niðurstaða en áætlanir gerðu
ráð fyrir. Tekjur ríkissjóðs eru ná-
lægt því sem áætlanir gerðu ráð
fyrir, en gjöldin eru 5,5 milljörð-
um hærri. Heildartekjur ríkis-
sjóðs hækka um 8,7 milljarða
króna frá í fyrra og munar þar
mestu um hækkun á tekjuskatti,
en tekjuskattur einstaklinga
hækkar um rúma þrjá milljarða.
Skattar á vöru og þjónustu standa
í stað í heildina, en tekjur ríkis-
sjóðs af bílainnflutningi lækka
um 1,3 milljarða. ■
EITT SINN SAMAN
Elizabeth Dole barðist fyrir endutkjöri
Jesse Helms 1996. Nú kemur í Ijós hvort
hún taki sæti hans á þingi.
Bandaríska öldunga-
deildin:
Dole íhug-
ar framboð
bandaríkin Elizabeth Dole, sem eitt
sinn íhugaði að berjast um tilnefn-
ingu Repúblikanaflokksins í banda-
rísku forsetakosningunum í fyrra,
íhugar nú vandlega hvort hún muni
sækjast eftir kjöri í öldungadeild
Bandaríkjaþings og feta þar með í
fótspor Jesse I-Ielms sem hefur lýst
því yfir að hann sækist ekki eftir
endurkjöri.
Dole greindi frá þessu í gær þar
sem hún var stödd í Salisbury í
Norður Karólínufylki að heim-
sækja 100 ára gamla móður sína.
Gagnrýnendur Dole segja að þrátt
fyrir að hún sé fædd og uppalin í
Norður Karólínu hafi hún vart sést
þar síðustu 30 árin og ekki sé sæm-
andi að kjósa slíka manneskju í öld-
ungadeildina til að berjast fyrir
hagsmunum fylkisins. Þessu hefur
Dole andmælt og segir að sú gagn-
rýni hverfi þegar fólk komist að því
hversu miklum tíma hún hefur var-
ið í fylkinu. Að auki búi nær öll fjöl-
skylda hennar í fylkinu að undan-
skildum eiginmanni sínum, Bob
Dole fyrrum öldungadeildarþing-
manni og forsetaframbjóðanda
Repúblikanaflokksins. Dole, sem
er 65 ára að aldri, gegndi stöðu
samgönguráðherra í ríkisstjórn
Ronalds Reagans og var atvinnu-
málaráðherra 1989 og 1990 þegar
George Bush eldri var forseti. ■
Lýðræðisumbætur í Pakistan:
Aðgerðir gegn skæruliðum
KARACHI. AP
Stjórnvöld í
Pakistan hafa
undanfarna
daga gripið til
harðra aðgerða
gegn íslömsk-
um skæruliða-
hópum og öðr-
um samtökum
herskárra mús-
lima, en fyrir
skömmu boðaði
Pervez Mus-
harraf forseti lýðræðisumbætur i
landinu og jafnframt sagðist hann
ætla að koma lögum yfir þessa
hópa.
SKÆRULIÐAR SÝNDIR FJÖLMIÐLUM
Hópur pakistanskra skæruliða sem barist
hafa gegn Indverjum í Kasmír fylgjast með
lögregluforingja sýna fjölmiðlum auglýs-
ingaspjöld og söfnunarkassa þeirra.
R í k i s b a n k i
Pakistans frysti í
gær reikningsinni-
stæður tveggja
slíkra hópa, Lashk-
ar-e-Jhangvi og
Sipah-e-Mo-
hammed, sem báð-
ir hafa í nafni trú-
arinnar ráðist með
of-
á einstak-
opinberar
samkomur og
helga staði. Lögreglan innsiglaði
einnig 24 skrifstofur skæruliða-
sveita sem háð hafa stríð gegn ind-
verskum hermönnum í Kasmír. ■
Byggðastofnun gert að veita bakábyrgð:
45 milljónum
veitt í verkefnið
BÆNDUM HJÁLPAÐ
Stjórn Byggðastofnunar mun taka afstöðu til óskar ríkisstjórnarinnar um að stofnunin veiti
bakábyrgð til viðskiptabanka sláturleyfishafa er veita afurðarlán þann 30. ágúst. Fullvist er
að stjórnin samþykki beiðnina og mun rikisstjórnin veita 45 milljónum inn í stofnunina til
þess að hún geti tekist farsællega á við verkefnið.
landbúnaður Ríkisstjórn íslands
hefur falið Byggðastofnun að
veita bakábyrgð til þeirra við-
skiptabanka sláturleyfishafa er
veita afurðarlán. Landbúnaðar-
ráðherra, Guðni Ágústsson, sagði
í viðtali við Morgunblaðið að
gripið væri til þessarra vegna
þeirra erfiðu stöðu og óvissu sem
hefur verið varðandi slátrun bú-
fjár á komandi hausti.
„Til þess að Byggðastofnun
geti gert þetta þarf stjórn stofn-
unarinnar að verða við þessum
tilmælum sem að koma frá ríkis:
stjórninni að sinna hlutverkinu. f
öðru lagi þarf að tryggja forsend-
ur til þess að þetta sé framkvæm-
anlegt tæknilega og þær forsend-
ur eru peningai’," sagði Theodór
Bjarnason, forstjóri Byggða-
stofnunar í viðtali við Fréttablað-
ið í gær. Hann bætti því við að nú
þurfi að setja um 30 milljónir í
vai'asjóð til þess að tryggja það
að Byggðarstofnun verði óhög-
guð. Þessa peninga fær stofnunin
úr ríkissjóð.
„Til viðbótar er reiknað með
að Byggðastofnun taki ábyrgðar-
þóknun fyrir að gefa út ábyrgð-
irnar og það er áætlað 15 milljón-
ir í það heila. Þannig koma inn í
Byggðarstofnun í það heila 45
milljónir í sambandi verkefnið,"
sagði Theodór. Hann telur að úti-
lokað að peningarnir muni tapast
þar sem ekki hafa verið töp á þes-
sari starfssemi hjá bönkunum og
bendir hann á að hér sé ekki um
100 prósent veðsetning heldur
upp í 75 prósent.
„Þetta er líka lokað kerfi.
Þannig er framleitt ákveðið
magn af kjöti eftir leyfi frá
stjórnvöldum á ári og það er not-
að til þess að fullnægja innan-
landsmarkaði og öll umfram-
framleiðsla fer í útflutning,"
sagði Theodór.
omarr@frettabladid.is
Telur lögreglu ekki eiga að
gegna félagslegu hlutverki
Heimilislausum fer sennilega Qölgandi. Engar tölur um hvort
fjölgun hafi orðið á heimilislausum.
útigangsfólk „Lögreglan á ekki að
gegna félagslegu hlutverki í samfé-
laginu þó að hún hafi vissulega oft
gert það. Það eiga að vera önnur úr-
ræði til,“ sagði Sigurður Guð-
mundsson, landlæknir, um yfirlýs-
ingar Félagsmálaráðs Reykjavíkur
sem gagnrýnt hefur lögregluna fyr-
ir að fækka fangaklefum og sagt að
með því sé lögreglan að úthýsa
heimilislausum úr fangageymslun-
um. Sigurður sagði enga formlega
úttekt hafa farið fram á því hvort
heimilislausum hafi fjölgað á ís-
landi en taldi það samt ekki ólíklegt
miðað við reynslu annarra landa.
Sagði hann jafnfi'amt það aldrei
hafa gerst hér á landi að geðsjúkra-
hús hafi beinlínis lokað dyrum á
heimilislausa og sagði starfsfólk
geðdeildar almennt meðvitað um
vandamálið. „Hins vegar er fólk á
götunum og við vitum það að rnikið
af því á við geðraskanir að stríða
sem aftur þýðir að meðferð þein’a
getur verið erfið ef þau eru ekki
svipt sjálfræði sem er í fæstum til-
fellum. Það er ferill sem ekki er
alltaf auðveldur eða beinlínis nauð-
synlegur."
Sigurður sagði umræðu hafa
fai'ið fram um nauðsyn þess að
bæta við félagslegum úrræðum og
sagðist geta staðfest að ábendingar
þess efnis hefði borist landlæknis-
embættinu. „Það eru að vísu nokk-
ur úrræði í gangi sem gegna mjög
mikilvægu hlutverki og má þar
nefna áhugahópa sem tekið hafa við
heimilislausu fólki og má þar nefna
Veginn og Byrgið. Þeir hópar gegna
mjög mikilvægu hlutverki í þessum
málum og tel ég að fólk geri sér
ekki almennt grein fyrir því.“ Sig-
urður sagði starfsfólk í heilbrigðis-
geiranum mjög þakklátt fyrir þessa
vinnu.
„Heimilislausum mun væntan-
lega fjölga ef að líkum lætur bæði
vegna fólksfjölgunar og svo vax-
andi fíkniefnaneyslu sem er að
verða okkar stærsta vandamál,"
sagði Sigurður að lokum.
koibrun@frettabiadid.is
SIGURÐUR GUÐMUNDSSON
Heimilislausum mun væntanlega fjölga ef
að líkum lætur bæði vegna fólksfjölgunar
og svo vaxandi fíkniefnaneyslu sem er að
verða okkar stærsta vandamál.
Aldrei minna í
Kleifarvatni:
Skjálftar
juku leka
úr vatninu
jarðfræði Vatnsborð Kleifar-
vatns er nú lægra en mælst hef-
ur allt frá aldamótum 1900 eða í
rúm 100 ár. Samkvæmt upplýs-
ingum frá Orkustofnun nægir
þurrkatíð ekki til að útskýra
lækkun vatnsborðsins en talið er
líklegt að sprungur í vatnsbotn-
inum hafi opnast í Suðurlands-
skjálftanum síðastliðið sumar og
valdi auknum leka úr vatninu. ■
borinn úr fjörunni
llla fór fyrir þessum manni sem reyndi að
leita gæfunnar á Spáni en drukknaði við
strendur Kanarieyja.
Olöglegir innflytjendur
streyma til Spánar:
Níu drukkn-
uðu við
Kanaríeyjar
madrid. ap f gær fundust lík Afríku-
manna við strendur eyjunnar
Lobos, sem er ein Kanaríeyja. Full-
víst þykir að mennirnir hafi ætlað
að komast með ólöglegum hætti til
Spánar á gúmmíbát. Átta aðrir Afr-
íkumenn voru handteknir þegar
þeir komu syndandi að landi, en
þeir sögðu að alls hefðu þeir verið
sautján saman á gúmmíbátnum.
Þeir hefðu hins vegar neyðst til
þess að yfirgefa bátinn, en ekki hafi
þeir allir verið syndir og því fór
sem fór. Á miðvikudag fundust lík
fjögurra manna á suðausturströnd
Spánar, en þeir höfðu verið á fiski-
bát frá Marokkó ásamt 60 öðrum
ólöglegum innflytjendum þegar
báturinn strandaði nálægt Almeria
á Spáni. Ellefu manns af þessum
hópi voru handteknir, en hinir hafa
væntanlega komist óséðir í land.
Þúsundir ólöglega innflytjenda
reyna á hverju ári að komast til
Spánar frá Afríku, og virðist sem
straumurinn sé heldur að aukast
þrátt fyrir ný og ströng lög á Spáni
sem ætlað er að vinna gegn honum.
Flestir koma þeir frá Marokkó og
reyna að komast í vinnu á Spáni eða
annars staðar í Evrópu. Á þessu ári
hafa sjö þúsund þeirra verið hand-
teknir. ■
ERLENT
Jose Eduardo dos Santos, sem
verið hefur forseti í Angóla
fi’á því 1979, sagðist í gær ekki
ætla að bjóða sig fram í forseta-
kosningunum sem haldnar verða
á næsta ári. Borgarastyrjöld hef-
ur geisað nær stanslaust í land-
inu allt frá árinu 1975, en þá
hlaut Angóla sjálfstæði frá Portú-
gal.
Ríkisstjórn Þýskalands sam-
þykkti í gær að senda 500
hermenn til Makedóníu á vegum
Nató, en margir þingmenn sögð-
ust lítt hrifnir af því að senda
þýska hermenn til þess að taka
þátt í afvopnunarverkefninu.
Þýska þingið þarf að veita sam-
þykki sitt, og kernur saman af því
tilefni í næstu viku.
Bandaríska moi'ðingjans Niko-
lay Zoltys var enn leitað í
gær. Hann hefur myrt sex nána
ættingja sína, og fjórtán ættingj-
ar hans voru í gær settir undir
lögregluvernd. Sálfræðingar telja
hegðun hans benda til þess að
hann sé haldinn ranghugmyndum
og hver sem er gæti orðið næstur
fyrir barðinu á honum.