Fréttablaðið - 24.08.2001, Page 12
12
FRÉTTABLAÐIÐ
24. ágúst 2001 FÖSTUPAGUR
ERLENTl
Fulltrúadeildarþingmaðurinn
Gary Condit batt í gær enda
á fjögurra mánaða opinbera
þögn sína um hvarf fyrrum að-
stoðarstúlku hans og ástkonu,
Chandra Levy, með bréfi sem
hann sendi kjósendum sínum.
Það gerðist skömmu áður en
sjónvarpsviðtal við hann var
sent út um gjörvöll Bandaríkin í
gærkvöldi. I bréfinu játar
Condit, sem er demókrati, að
sér hafi orðið á mistök en ber af
sér sakir um að eiga þátt í
hvarfi hinnar 24 ára gömlu
Levy. Talið var víst að sjón-
varpsviðtalið, sem sent var út á
ABC-sjónvarpsstöðinni í gær-
kvöldi, fengi meira áhorf en
nokkuð annað sjónvarpsefni
vestanhafs í sumar. ■
Bæjarráð Vestmannaeyja:
Vill munina í
vörslu Þjóð-
minjasafns
FORNMINJAR Bæjarráð Vest-
mannaeyja fjallaði um afdrif
fornminja úr Herjólfsdal á fundi
sínum á þriðjudag. Eins og áður
hefur komið fram í Fréttablaðinu
hefur mikill dráttur orðið á því
að mununum yrði komið fyrir í
vörslu Þjóðminjasafns eins og
lög gera ráð fyrir. Á fundi sínum
benti bæjarráð á nauðsyn þess
að Þjóðminjasafn taki umrædda
gripi og gögn til varðveislu í
samræmi við samkomulag bæj-
aryfirvalda og Þjóðminjasafns
þar um.
Guðjón Hjörleifsson, bæjar-
stjóri í Vestmannaeyjum, sagði í
gær að meðferð málsins væri al-
farið í höndum Margrétar Hall-
grímsdóttur þjóðminjavarðar
sem ynni að því í samræmi við
samkomulag bæjaryfirvalda og
Þjóðminjasafns. Hann sagði að
bæjaryfirvöld fylgdust með mál-
inu en taldi rétt að framkvæmd
þess væri í höndum Þjóðminja-
safns.
Gert er ráð fyrir að munirnir
sem um ræðir verði afhentir
Þjóðminjasafni á næstu tveimur
mánuðum. Þjóðminjavörður mun
hafa lagt áherslu á að fá munina
í vörslu Þjóðminjasafns sem
fyrst en Margrét Hermanns Auð-
ardóttir, fornleifafræðingur, sem
gróf munina upp á sínum tíma,
krafðist þess að fá rýmri tíma. ■
Kínverskir sérfræðingar:
Vilja ekki klóna pandabirni
pekinc. ap Það myndi litlum ár-
angri skila að klóna pandabirni
til að viðhalda fjölda þeirra og
það gæti gert illt verra þar sem
genafjölbreytni þeirra myndi
minnka segja kínverskir sér-
fræðingar.
Yu Jianqiu, aðstoðarfram-
kvæmdastjóri kínverskrar
stofnunar sem leitar leiða við að
fjölga pöndum, segir að klónun
sé einfaldlega endurgerð annars
dýr og slíkt muni ekki hjálpa til
við að viðhalda stofninum. Ann-
ar kínverskur sérfræðingur,
Feng Wenhe prófessor, lýsir efa-
semdum um klónanir og segir
þær ofmetnar vegna þekktra
PANDAUNGI
Annar tveggja pandabjarna sem komu í
heiminn fyrir skemmstu eftir að móður
þeirra var frjóvguð.
dæma svo sem kindarinnar
Dolly.
Nú eru aðeins um þúsund
pöndur lifandi í Kína og er stofn-
inn talinn í útrýmingarhættu.
Kínversk yfirvöld hafa gripið til
ýmissa ráðstafana til að tryggja
viðgang stofnsins og meðal ann-
ars hafa kvenkyns pöndur verið
frjóvgaðar til að minnka líkur á
að eitt vinalegasta tákn Kína
deyi út. Tveir pandabirnir komu
í heiminn í júlí eftir að móðir
þeirra hafði verið frjóvguð. 13
pöndur til viðbótar eru ófrískar
eftir gervifrjóvgun og munu
fæða afkvæmi sín á komandi
mánuðum. ■
'mmmssssisss&fmaœc^wittímfííSímtSiís^wœíiv:x:;mmivr);HMm'A'í::a:M(íiiimsf&>mmMttSíssmx>acmm&m>^ým&iíiiSítæmsmsiSiasí#im
Gaza:
11 ára féll
jerusaleivi.ap 11 ára palestínskur
drengur, Mahmoud Zourab, féll í
gær fyrir skotum ísraelskra her-
manna í Gaza. Herinn hleypti af
skotum þegar veist var að land-
nemabyggð á Gaza eftir útför eins
þeirra sjö Palestínumanna, sem
féllu fyrir ísraelsmönnum í fyrra-
dag.
Vitni sögðu að drengurinn
hefði fengið skot í brjóstið þegar
hann var í hópi barna sem köstuðu
steinum að landnemabyggðinni.
ísraelsmenn sögðust enn vera
að rannsaka framburð vitna um
að drengurinn hefði fallið fyrir
kúlum hermanna en játuðu að
hleypt hefði verið skotum á fætur
þeirra sem köstuðu grjóti. ■
Hriktir í stoðum fyrirtækja
og spáð auknu atvinnuleysi
Afkoma fyrirtækja að versna og vanskil að aukast. Samdráttur. Lækka þarf vexti um 2-3%, lækka
tekjuskatt fyrirtækja úr 30% í 15% og afnema stimpilgjald og eignaskatt.
ARI EDWALD FRAMKVÆMDASTJÓRI SAMTAKA ATVINNULÍFSINS
Segir að vaxtalækkun muni milda áhrif gengislækkunarinnar á kjör almennings.
EFNAHACSLÍF Dökkt útlit er
framundan í atvinnulífi og rekstr-
arumhverfi fyrirtækja ef fram
fer sem horfir að mati Samtaka
atvinnulífsins. Ari Edwald fram-
kvæmdastjóri þeirra spáir því að
atvinnuleysi muni aukast á næstu
mánuðum að öllu óbreyttu. Hann
rökstyður það með því að afkoma
fyrirtækja sé að versna og eftir-
spurn sé að minnka sem dregur úr
veltu margra fyrirtækja. Þá séu
vanskil á milli fyrirtækja að
aukast og því sé hætta á að mörg
þeirra verði gjaldþrota eða hætti
starfsemi. f því sambandi bendir
hann m.a. á að fjöldi fjárnáma sé
fleiri en nokkru sinni fyrr það
sem af er árinu. í þessari stöðu sé
því brýnt að lækka vexti um 2 -
3%, lækka tekjuskatt fyrirtækja
úr 30% í 15% og afnema stimpil-
gjald og eignaskatt.
Framkvæmdastjóri Samtaka
atvinnulífsins segir að menn verði
varir við það allt í kringum sig að
það sé farið að hægja á allri starf-
semi í efnahagslífinu. í mörgum
fyrirtækjum séu menn að upplifa
ástandið þannig að það sé hrein-
lega stöðvun í þeirri starfsemi
sem þeir stunda. Það sé einfald-
lega vegna þess að fólk hefur
minni peninga á milli handa en
áður vegna þeirrar þróunar sem
verið hefur í efnahagslífinu.
Hann bendir m.a. á að þótt t.d.
íbúðaverð hafi lækkað mikið þá
sé mjög lítið að gerast í sölu á
nýjum íbúðum. Hann telur því að
það sé löngu orðið tímabært fyrir
Seðlabanka að lækka vexti miðað
við núverandi stöðu efnahags-
mála til að auka samkeppnis-
hæfni fyrirtækja og draga úr
kostnaði þeirra, enda telur hann
að það sé ekki jarðvegur fyrir
aukna verðbólgu á haustmánuð-
um heldur þvert á móti vegna
aukins samdráttar á mörgum
sviðum. Sem dæmi nefnir hann
að vaxtalækkun mundi draga úr
þrýstingi til að velta kostnaði út í
verðlagið, milda áhrif þeirra 20 -
30% gengislækkunar sem orðið
hefur á kjör almennings og síðast
en ekki síst stuðla að ró á vinnu-
markaði.
-grh@frettabladid.is