Fréttablaðið - 24.08.2001, Page 15
FÖSTUPflCUR 24. ágúst 2001
FRÉTTABLADIÐ
15
Enski boltinn:
Cole til Newcastle
knattspyrna Newcastle United
hefur gert 9,5 milljón punda tilboð
í Andy Cole, framherja Manchest-
er United. Cole kom til Man. Utd.
frá Newcastle árið 1995 fyrir 6,3
milljónir punda árið og fylgdi
kantmaðurinn Keith Gillespie
með í kaupunum. Cole hefur ekki
verið í náðinni hjá Alex Ferguson,
stjóra United, eftir að liðið keypti
hollenska sóknarmanninn Ruud
van Nistelrooy. Hvorugt liðanna
hefur þó viljað tjá sig um málið.
Newcastle leitar nú sem óðast
að nýjum sóknarmanni við hliðina
á Alan Shearer eftir að í ljós kom
að Carl Cort getur ekki spilað fyrr
en í lok árs.
Cole kom til Newcastle árið
1993 frá Bristol City, fyrir 1,75
milljónir punda, og skoraði 34
mörk fyrir liðið á sínu fyrsta
tímabili.
Einnig er talið líklegt að
Dwight Yorke vilji yfirgefa her-
búðir ensku meistaranna en bæði
Newcastle og Chelsea hafa verið á
höttunum eftir honum. ■
í KULDANUM
Andy Cole hefur ekki verið í náðinni hjá
Alex Ferguson og ekki er talið ólíklegt að
hann fari til síns gamla félags.
Formúla 1:
Hakkinen áfram
hjá McLaren
KAPPAKSTUR Mika
Hakkinen verður áfram í
herbúðum McLaren á
næsta tímabili að sögn
Keke Rosberg, umboðs-
manns fyrrverandi
heimsmeistarans.
Hakkinen hefur gengið
afleitlega það sem af er
þessu tímabili, en hyggst
reyna að bæta það upp
fyrir McLaren á næsta
ári.
„Ég væri ekki í fríi
núna ef
það væri eitthvað óklárt
með framtíðina.“ Menn
töldu að Jarno Trulli,
ökumaður Jordan, væri
hugsanlega á leiðinni til
McLaren eftir kappaks-
turinn í Ungverjalandi.
„Sú staðreynd að McL-
aren hefur ekki staðfest
að Mika verði áfram hjá
liðinu hefur ekkert með
hann að gera. Liðið mun
gefa út yfirlýsingu þegar það tel-
ur það vera tímabært.“B
Ríkharður
undir hnífinn
Ríkharður Daðason þarf að gangast undir að-
gerð. Mikið áfall segir Atli Eðvaldsson, þjálfari.
knattspyrna Ríkharður Daðason,
leikmaður Stoke City og íslenska
landsliðsins, gæti verið frá knatt-
spyrnu i nokkra mánuði en hann
þarf að gangast undir aðgerð vegna
hnémeiðsla.
„Þetta er frekar stór aðgerð sem
verður gerð á aftanverðu hnénu og
hann verður líklega frá í nokkrar
vikur ef ekki mánuði." sagði Guð-
jón Þórðarson, þjálfari Stoke í sam-
tali við The Staffordshire. „Við vit-
um ekki nákvæmlega hvert vanda-
málið er fyrr en hann fer í aðgerð-
ina.“
Ríkharður meiddist á æfingu á
undirbúningstímabilinu og hefur
misst af fyrstu leikjum Stoke liðs-
ins. Hnéð á honum var síðan myri-
dað skömmu eftir að hann meidd-
ist, en eftir það var tekin sú
ákvörðun að bíða. Nú er hinsvegar
ljóst að hann þarf að gangast undir
aðgerðina.
„Okkur grunaði að það væri eitt-
hvað að og það virðist vera svona
meiðsla tímabil hjá okkur,“ sagði
Atli Eðvaldsson landsliðsþjálfari
þegar Fréttablaðið hafði samband
við hann í gær. „Rúnar [Kristins-
son] er úti og við vitum ekki með
Brynjar Björn [Gunnarsson] en við
ætlum að bíða fram að helgi og sjá
hvernig staðan er á honum.“ Atli
segir að þetta sé áfall fyrir lands-
liðið en fsland mætir Tékkum á
Laugardalsvelli þann 1. september.
„Auðvitað er þetta gífurlegt
áfall. Rúnar og Rikki hafa báðir
verið fastamenn í landsliðinu síð-
ustu fimm, sex ár. Þetta er mikill
missir og minnkar hópinn hjá okk-
ur. En við verðum að vera undir
það búnir að missa þá og verðum
bara að leysa það.“
Landsliðshópurinn verður til-
kynntur á mánudaginn næsta og
aðspurður segir Atli að það sé
aldrei að vita nema nýliðarnir fái
tækifæri. „Það er alltaf möguleiki
að þeir fái tækifæri, það kemur
alltaf maður í manns stað. Þessir
nýliðar sem komu í leikinn á móti
Póllandi og þeir sem hafa verið að
spila hafa allir staðið sig vel og það
er aldrei að vita nema þeir verði
inní hópnum."
kristjan@frettabladid.is
í kvöld:
Undanúrslit kvenna
knattspyrna í kvöld fei' frarn annar
undanúrslitaleikurinn í Coca Cola
bikarkeppni kvenna þegar FH tek-
ur á móti Valsstúlkum á
Kaplakrika. Leikurinn hefst klukk-
an 18.30. Tveir leikir fara fram í 1.
deild karla. Stjarnan tekur á móti
ÍR í Garðabæ og Tindastóll fær
Þór Akureyri í heimsókn. Báðir
leikirnir hefjast klukkan 19.00. ■
Fjármál Þróttar:
Landsbankinn endurgreiddi 300 þús.
knattspyrna Landsbanki íslands
er ábyrgur fyrir þeim fjármunum
sem David Anthony Griffith, fyrr-
verandi unglingaþjálfari Þróttar,
tók útaf reikningi í Landsbankan-
um áður en hann hélt af landi
brott fyrir skömmu, samkvæmt
upplýsingum frá stjórn Þróttar.
Stjórnin lagði 300 þúsund krón-
ur inn á bundinn reikning í útibúi
bankans á Langholtsvegi, en
Griffith átti ekki að geta leyst
peningana út fyrr en hann hafði
lokið störfum hjá félaginu.
Griffith tókst hins vegar að taka
peningana útaf reikningnum í úti-
búi Landsbankans á Keflavíkur-
flugvelli og í kjölfarið sleppti
hann því að fara með 3. flokk fé-
lagsins til Noregs, eins og honum
bar að gera samkvæmt starfs-
lokasamningi sem gerður hafði
verið við hann. Landsbankinn hef-
ur endurgreitt Þrótti féð. ■
ÍSLAND BEINT ER ÞJÓNUSTA SEM NÝTIST ÍSLENDINGUM Á FERÐALÖGUM ERLENDIS
• í flestum tilvikum mun ódýrara en að hringja til íslands á annan hátt, t.d. úr farsímum eða hótelsímum. Hægt að hringja frá yfir 20 löndum víðsvegar um heiminn. Leiðbeiningará íslensku. Gjaldfærist á símreikninginn heima.
. A
BimÍT5r..Í5 Ókeyþis ákrántng rijri t’júmtstuv.«i:i Stman: boc> ?odc.
KVÖLDSIGLING FYRIR SÆLKERA
www.whalewatching.is
Hvítvín & skel í Hvalfirði
Siglt frá Ægisgarði á laugardögum kl. 18.00
VALSTOÐIN sími 421 -2660