Fréttablaðið - 24.08.2001, Side 16
FRÉTTABLAÐIÐ
BEST í BÍÓ
24. ágúst 2001 FÖSTUPAGUR
DANÍEL ÞORSTEINSSON
trommari í Maus
Sæt og skemmtileg
leikkona
„Ég held ég hafi síðast séð Bridget Jo-
nes Diary eða hvað hún nú heitir. Það
var bara fín mynd, góð leikkona, sæt
og skemmtileg. Annars hlakka ég til
að sjá Apaplánetuna . Ég sá fyrri
myndina fyrir nokkrum árum síðan
og hún var nokkuð góð, en þessi er
víst eitthvað breytt." ■
Tónleikar:
Hljómar á
Broadway
tónlist Hljómar frá Keflavík halda
tónleika á Broadway á lau-
gardaginn. ,,“De er sgu meget
gode,“ sagði annar Olsen bræðra
við mig þegar Hljómar spiluðu með
þeim á Broadway um síðustu
helgi,“ sagði Óttar Felix Hauksson,
umboðsmaður hljómsveitarinnar.
Mikil stemmning myndaðist á tón-
leikunum og ákváðu forráðamenn
Broadway því að efna til dans-
leikjar á morgun, laugardag. „Þetta
var alveg svakaleg flott stemmn-
ing. Um leið og Hljómarnir byrj-
uðu, fylltist dansgólfið og var fullt
til klukkan þrjú,“ segir Óttar.
Hljómar tókur öll sín bestu lög.
„Það var svo gaman að sjá unga
fólkið, fólk svona um tvítugt, sem
kunni alla textana og söng hástöf-
um með,“ sagði Óttar að lokum. ■
MIKIÐ URVAL
HAGSTÆTT VERÐ
OR MF
Rovlw*. AimuU 11 - Swil 668-1600
Akur^.1; tóinbnMai • 3imi 46111070
HÁSKÓLABÍÓ
Sýnd kl. 3.30, 5.45, 8, 10.15 og 12.15
jBRIDGET JONES'S DIARY kl. E, 8.10 og 12
JURASSIC PARK III kl. 4,6,8.10 og 12
jBLINKANDE LYGTER kl. 10.15
1SUTTMYNDAHÁTÍÐ 1^^
|THE VIRGIN SUICÍDE kL8|
ÍTILL SAMMANS kl.ej
Gamall danshundur
spilar í Hollywood Bowl
FRÉTTIR AF FÓLKI
Atli Örvarsson, tónskáld, spilar í einni sögufrægustu tónleikahöll
heims. Hann hefur s.l. ár unnið með Mike Post einu frægasta tón-
skáldi Hollywood og spilaði m.a. með Jessicu Simpson.
Mamma Eminems, rapparans
reiða, segir að sonur sinn sé
háður eiturlyfjum. Hún segir að
afkvæmi sitt sé að
reyna að draga úr
fíkn sinni en hann
tekur ecstasy töfl-
ur á hverjum
degi. „Það eru all-
ir að segja mér að
hann sé að reyna
að minnka
skammtinn niður í
tvær til þrjár töflur á dag. Það
eina sem ég get gert er að biðja
og vona,“ sagði hin áhyggjufulla
móðir en eins og flestir vita er
Eminem ekki í miklu uppáhaldi
hjá mæðrum unglinga þess dag-
ana.
Angelina Jolie er strax byrjuð
að sinna starfi sínu sem góð-
gerðasendiherra Sameinuðu þjóð-
anna en hún tók
við embættinu
fyrir stuttu. Jolie
heimsótti flótta-
mannabúðir þar
sem tugir þúsunda
Afghanista búa.
Flóttamennirnir
flúðu til Jalozai í
Pakistan vegna
ófremdarástandsins í heimaland-
inu. Stjarnan gekk um búðirnar og
heilsaði fólkinu og skoðaði sig um
í hrörlegum tjöldum þeirra. Hún
er einnig búin að heimsækja Kam-
bódíu, Fílabeinsströndina, Tanzan-
íu og var gestur á flóttamannaráð-
stefnu Sameinuðu þjóðanna.
Kvikmyndafyrirtækið Film
Four er að hefja framleiðslu á
kvikmynd tengda hip-hop kúltúrn-
um í Los Angeles. Myndin er
byggð á sögunni Labyrinth, eftir
Randall Sullivan þar sem lögregl-
an, klíkurnar og menningin sem
ríkti á tíunda áratugnum er tekin
fyrir. Þar er m.a. fjallað um morð-
in á Túpac Shakur og Biggie
Smalls og tengsl Suge Knight, for-
stjóra Detah Row plötufyrirtækis-
ins, við málin. „Markmiðið er að
skapa rétta mynd af ástandinu,
með ljóðrænni og félagslegri
dramatík. Ekki ólíkt því sem
Martin Scorsese gerði í ítölsku
glæpamyndum á borð við Good-
Fellas og eins og Sergio Leone
gerði í Once Upon a Time in
America."
tónskálp Atli Örvarsson kvik-
myndatónskáld og hljómborðs-
leikari mun spila með stórhljóm-
sveit bandaríska kvikmyndatón-
skáldsins Mike Post í Hollywood
Bowl, einni þekktustu tónleika-
höll heims á sunnudaginn kemur.
„Á sumrin er Fílharmóníu-
sveit Los Angeles með tónleika
þarna og þá kallast þetta
Hollywood Bowl Orchestra. Það
verður hátíð þetta kvöld til-
einkuð kvikmyndatónlist. Mike
Post var boðið að setja saman
syrpu af sínum frægustu stefj-
um og bað mig að spila hljóm-
borðspartinn í syrpunni sem tek-
ur um tíu mínútur eða svo,“
sagði Atli í samtali við Frétta-
blaðið í gær.
„Ég sá Radiohead á tónleikum
þar í síðustu viku og það var svo-
lítið gaman að hugsa til þess að
ég ætti sjálfur að spila á tónleik-
um þarna á sunnudaginn,"
Atli hefur undanfarin ár
starfað með Post og samið tónlist
og leikhljóð fyrir nokkrar af vin-
sælustu framhaldssyrpum í
sjónvarpi þar í landi. Hann
stundaði nám í Berkley College
of Music í Boston þar sem hann
lagði stund á kvikmyndatónlist
og tók djasspíanóleik sem
aukafag.
„Þar byrjaði ég að fikta við
kvikmyndatónlist og fann mig
eiginlega í því. Þetta er rosa
skemmtilegur miðill, taka mynd-
ir og búa til músik við þær,“ seg-
ir Atli sem tók meistaragráðu
frá School of the Arts í Norður
Karólínu.
Mike Post hefur samið tónlist
við marga sjónvarpsþætti sem
eru íslendingum vel kunnugir
s.s. NYPD Blues, LA Law, Magn-
um P.I. og Hill Street Blues. Á
hverju ári býður Post tveimur til
þremur ungum tónskáldum til
TÓNSKÁLDIÐ
Atli Örvarsson hefur spilað með öllum helstu hljómsveitum landsins s.s. Sálinni hans
Jóns míns og Todmobile. Hann laerði kvikmyndatónlist í Bandaríkjunum og segist feta
hægt upp stigann.
sín í nokkurskonar starfsnám og
þannig kynntust þeir félagar.
„Hann gerir þetta í minningu
félaga síns sem hét Pete
Carpenter. Þetta er á vegum
samtaka sem heita BMI, sem eru
svona svipuð STEF á íslandi.
Ung tónskáld senda síðan inn
upptökur sem ég og gerði og
komst inn. Ég var bara að út-
skrifast úr skóla og vissi ekki
hvað ég ætlaði að gera og ákvað
að senda bara inn,“ segir Atli.
Hann hefur m.a. verið að spila
með hinni ungu og efnilegu
Jessicu Simpson síðustu mánuði.
„Ég hef verið að spila með
henni á stórum leikvöngum fyrir
50.000 manns og mér finnst þetta
eiginlega miklu sérstakara að fá
að spila í Hollywood Bowl, því
höllin er sögufræg," segir Átli
hógværðin uppmáluð.
„Það er samt mjög sérstakt að
spila á svona stórum tónleikum.
Maður er eitthvað svo langt í
burtu frá öllum. Þetta er eigin-
lega hálf súrealískt. Maður er
bara í bakgrunni við hana sem
hluti af bandinu.“
En þurfti hann ekki að læra
neina dansa þegar hann spilaði
með Jessicu líkt og oft gerist
með tónlistarmenn sem spila
með slíkum stjörnum?
„Nei, en það leynist nú samt í
manni danshundur gamall."
krístjan@frettabladid.is