Fréttablaðið - 24.08.2001, Page 18
18
FRETTABLAÐIÐ
24. ágúst 2001 FÖSTUPAGUR
HVAÐ ÆTLAR PÚ AÐ
GERA UM HELGINA?
Sigrún Valbergsdóttir
kynningarstjóri í Borgarleikhúsinu
Ég ætla að njóta þess að vera komin til
byggða eftir fimm vikur á fjöllum.
Flugslysiö Skerjafiröi.
Söfnunarsímar
Ef hringt er í eftirtalin númer
gjaldfærist af reikningi símans,
sem hringt er úr, sem hér segir:
Sími 907 2007 - 1.000,- kr
Sími 907 2008 - 2.500,- kr
Sími 907 2009 - 5.000,- kr
Bankar. er no. 1175-05-409940
Er skammturinn búinn?
Haföu samband viö mig
ef þig vantar vörur.
Kjartan Sverrisson,
sjálfstæöur Herbalife
dreifingaraðili
simi 897 2099
MÖMMUR^
ATHUGIÐ
ef barnið pissar undir.
Undraverður árangur með
óhefðbundnum aðferðum.
Bókum fyrir 1. sept.
Upplýsingar og skráning
ísíma 587 1164
^ GSM 895 8972 j
Svœðam eðferð
Námskeið í Reykjavík
3.-21. september
Fullt nám sem
allir geta lœrt
Kennari: Sigurðitr Guðleifssort
Upplýsingar og skráning í síma
587 1164 GSM 895 8972
Fjölskylduhátíð í Garðabæ:
Vatnspóstur og leiktæki
HÁTiÐiR í dag hefst tveggja daga
fjölskylduhátíð í Garðabæ og er
hátíðin liður í dagskrá afmælisárs
Garðabæjar sem á 25 ára kaup-
staðarafmæli á þessu ári.
Dagurinn í dag er tileinkaður
eldri borgurum Garðabæjar og af
því tilefni efnir Félag eldri borg-
ara í Garðabæ til hátíðarsam-
komu í Kirkjuhvoli kl. 16. Á sam-
komunni verður margt gert bæði
til gamans og fróðleiks. Meðal
þess sem þar verður boðið upp á
er erindi um Kirkjur og klerka á
Görðum á Álftanesi á fyrri tíð,
söngatriði og skemmtiþáttur með
Erni Árnasyni leikara. Samkoman
er öllum opin og aðgangur ókeyp-
is.
Á morgun verður dagur allrar
fjölskyldunnar í Garðabæ. Dag-
skráin hefst kl. 11 með því að bæj-
arstjóri Garðabæjar veitir form-
lega viðtöku fyrsta vatnspóstin-
um í bænum. Gengið verður frá
Silfurtúni við Goðatún kl. 10.50 að
göngustígnum við ós Arnar-
neslækjar þar sem vatnspóstur-
inn verður afhjúpaður við nýja
vinsæla gönguleið. Vatnspóstur-
inn er gjöf frá Kvenfélagi Garða-
bæjar til bæjarins og í honum
sameinast notagildi og útilista-
verk.
Leiktækjum verður komið fyr-
ir við íþróttamiðstöðina Ásgarð,
þar á meðal risarennibraut, go
kart, lazer tag og hoppukastalar
og verður ókeypis í þau fyrir öll
börn frá klukkan 12 á hádegi.
Milli klukkan 14 og 16 verður
boðið upp á fjölbreytta barna- og
fjölskylduskemmtun í íþróttahús-
inu þar sem margir vinsælir
skemmtikraftar troða upp. Á með-
al þeirra verða Skari skrípó, trúð-
arnir Búri og Jens, Gunni og Felix
og íbúar Latabæjar.
SKARI SKRÍPÓ í GARÐABÆ
Mikil fjölskylduhátið verður í Garðabæ um
helgina, þar sem margir þjóðþekktir lista-
menn koma fram. Hinn óviðjafnanlegi
Skari skrípó mun að sjálfsögðu ekki láta
sitt eftir liggja til að gera helgina sem
skemmtilegasta.
Klukkan 16 hefjast tónleikar í
íþróttahúsinu þar sem fram koma
hljómsveitirnar í svörtum fötum
og Sálin með Stefán Hilmarsson
við hljóðnemann.
Ókeypis er á alla viðburði fjöl-
skylduhátíðarinnar. ■
Ráðstefna
á Grand Hótel:
Leiðin
til bata
ráðstefnur Þeir eru margir hér á
landi sem hafa nýtt sér 12 spora
kerfið til að ná tökum á tilveru
sinni. Um helgina gengst hópur
fólks fyrir ráðstefnu þar sem
tala þrír fyrirlesarar frá Banda-
ríkjunum sem hafa allir áratuga
reynslu af því að vinna með
kerfið í eigin lífi og hjálpa alkó-
hólistum að ná bata. Þorleifur
Arnarsson er einn aðstandenda
ráðstefnunnar, en hann er óvirk-
ur alkóhólisti og vinnur með 12
spora kerfið í eigin lífi. „Það er
mikill misskilningur að tala um
þetta sem sjálfshjálp," segir
Þorleifur. „Minn vandi var að
allar athafnir mínar voru eigin-
gjarnar og ég vissi betur en all-
ir aðrir. Kjarninn í hugmyndun-
um er æðri máttur, eins og hver
og einn skilur hann.“ Þorleifur
segir að í þremur fyrstu sporun-
um felist engin framkvæmd,
heldur snúist þau um ákvarðan-
ir. „Mickey Bush sem mun fjal-
la um þrjú fyrstu sporin á ráð-
stefnunni orðar það þannig að í
þeim segi maður: Ég get ekki,
hann getur, best að leyfa honum
það.“
Mickey Bush á að baki 18 ára
edrúmennsku og rekur áfanga-
heimili í Kaliforníu sem sérhæf-
ir sig í langt leiddum alkóhólist-
um og fíkniefnaneytendum.
„Hann leggur lang mestu áhersl-
una á vanmáttinn," segir Þorleif-
ur „Manneskja sem ekki er alkó-
REYNSLUSPORIN 12
Milljónir manna um allan heim sem glíma við fiknir, nýta sér reynslusporin 12 til að ná
bata. Þorleifur Arnarsson er einn þeirra sem standa fyrir ráðstefnu um þessar merku
hugmyndir.
hólisti getur sagt nei meðan
alkóhólistinn getur ekki sagt
annað en já. Fyrsta skrefið er að
viðurkenna vanmátt sinn gagn-
vart fíkninni og stjórnleysi sitt í
lífinu." Sporin leiða hvert af
öðru og Þorleifur segir að útilok-
að sé að ná árangri í áframhald-
andi vinnu með sjálfan sig nema
að tileinka sér þau fyrstu.
Hann segir að þessi ráðstefna
sé þannig til komin að vinur hans
hafi komið með upptöku af
Mickey Bush, þar sem hann tal-
aði á ráðstefnu. Þorleifur hreifst
af fyrirlestri hans. „í lokin gaf
hann upp símanúmerið sitt og ég
hringdi seinna í hann.“ Þorleifur
segir hann hafa tekið vel í að
koma og sama gildi um Karl
Morris sem rekur meðferðar-
heimili og er af íslenskum ætt-
um og Michael Manning, en
heima hjá henni búa að jafnaði
sex nýliðar sem eru að feta bata-
veginn. „Þetta fólk er með mikla
reynslu úr eigin lífi og hjálp við
annað fólk. 12 spora kerfið snýst
um að rækta sjálfan sig til góðra
verka til að geta hjálpað öðrum.“
Ráðstefnan hefst í kvöld á Grand
Hótel og heldur áfram laugardag
og sunnudag.
haflidi@frettabladid.ís
FÖSTUDAGURINN
24. ÁGÚST
FUNPIR_____________________________
12.20 Málstofa efnafræðiskorar verður
haldin í stofu 158 í VR-II, Hjarðar-
haga 4-6. Heinz Oberhammer,
Institute fur Physikalische und
Theoretische Chemie Universitat
Tubingen f Þýskalandi, flytur er-
indið „Molecular Structures in the
Gas Phase: II. Results.
LEIKHÚS____________________________
20.00 Einleikhúsið sýnir leikritið Fröken
Júlía - enn og aftur alveg ó í
Smiðjunni Sölvhólsgötu 13.
20.00 Leikritið Diskópakk eftir írska
leikskáldið Enda Walsh er sýnt í
hinu nýja leikhúsi Vesturport við
Vesturgötu. Karl Ágúst Úlfsson
þýðir verkið, leikstjóri er Egill
Heiðar Anton Pálsson og leikarar
eru Nanna Kristín Magnúsdóttir
og Víkingur Kristjánsson.
20.00 Stórsöngleikurinn Wake IWe Up
eftir Hallgrím Helgason er sýndur
í Borgarleikhúsinu í kvöld.
TÓNLEIKAR__________________________
22.30 Jet Black Joe leikur á Gauki á
Stöng í kvöld.
SÍÐASTA SÝNINGARHELGI
Handritasýning í Stofnun Árna Magn-
ússonar stendur í Árnagarði við Suður-
götu. Sýningunni er ætlað að minna á
þann hlut sem sagnalist og bókagerð
fyrri alda á í vitneskju okkar um helstu
merkisatburði þjóðarsögunnar og beina
athygli sérstaklega að handritum og sög-
um um fólk og viðburði sem fyrir rúm-
um þúsund árum ollu aldahvörfum, þ.e.
kristnitökunni og landafundunum. Sýn-
ingin er opin kl. 11 til 16 mánudaga til
laugardaga og stendur til 25. ágúst Vetr-
arsýningin verður opnuð 1. september.
i Hafnarborg, menningar- og listastofn-
un Hafnarfjarðar, stendur yfir sýning á
Ijósmyndum sænska Ijósmyndarans
Hans Malmberg, en hann var á sinni tíð
í hópi fremstu blaðaljósmyndara Svía.
Ljósmyndasýningin fsland 1951 sýnir is-
lendinga víð leik og störf jafnt í sveit
sem í borg á árunum 1947-1951. Sýn-
ingin er í samvinnu Hafnarborgar og
Þjóðminjasafns (slands og er opin alla
daga nema þriðjudaga frá kl. 11 til 17.
Sýningin stendur til 27. ágúst.
Myndlistarmaðurinn Díana Hrafns-
dóttir hefur opnað sýningu á verkum
sínum i Selinu, Galleri Reykjavik, Óð-
insgötumegin. Díana sýnir tréristur
sem unnar eru á þessu ári og ber sýn-
ingin yfirskriftina Undir niðri. Sýningin
er opin frá kl. 13 til 18 virka daga og
kl. 13 til 16 laugardaga. Sýningin
stendur til 25. ágúst 2001.
Margrét Reykdal sýnir málverk í
Sverrissal Hafnarborgar, menningar-
og listastofnunar Hafnarfjarðar, sýning á
málverkum Margrétar Reykdal. Sýningin
er opin alla daga nema þriðjudaga og
hún stendur til 27. ágúst.
Kristín Sigfríður Garðarsdóttir sýnir
leirverk í Listhúsi Ófeigs, Skólavörðustíg
5, Reykjavik. Verkin á sýningunni eru úr
postulíni steyptu í gifsmót, einnig hand-
mótuð form úr postulíni og grófum
steinleir. Opið virka daga frá 10 til 18 og
laugardaga 11 til 16. Sýningin stendur til
29. ágúst.
i Stöðlakoti, Bókhlöðustíg 6 standa
Ljósálfar fyrir Ijósmyndasýningunni
Ljós og skuggar. Myndimar á sýning-
unni voru allar teknar í sumar í
Skuggahverfinu í Reykjavik. Ljósálfar
eru Einar Óli Einarsson, Friðrik Þor-
steinsson, Lars Björk, Svavar G. Jóns-
son og Vilmundur Kristjánsson. Sýning-
unni lýkur 26. ágúst.
I Gula húsinu stendur myndlistarsýning
Maríu Pétursdóttur, Gula húsinu tjald-
að. Sýningin er innsetning með hljóði
en verkið byggir á viðtölum við þrjár
kynslóðir fólks sem þekkja sögu hússins
eða hafa dvalið þar. Sýningin er opin frá
kl. 14.00 til 18.00 og lýkur í dag.
MYNPLIST_____________________________
Gluggasýning Ingibjargar Þ. Guð-
mundsdóttur stendur í Gallerí Sneglu,
listhúsi á horni Klapparstígs og Grettis-
götu. Sýningin ber heitið Himinn og
jörð. Sýningin stendur til 7. september.
Sýning Bjarna H. Þórarinssonar sjón-
háttarfræðings stendur nú í Reykjavík-
urAkademíunni í JL-húsinu Hringbraut
121 Bjarni sýnir úrval af verkum sínum
undanfarin ár. Sýning Bjarna er opin 9 til
17 virka daga og stendur til 1. október.
Guðrún Vera Hjartardóttir sýnir fígúra-
tífa skúlptúra í galleri@hlemmur.is,
Þverholti 5. Sýningin ber yfirskriftina
Rætur og eru skúlptúrarnir gerðir eru út
frá löngun listamannsins til að skilja
tengsl manneskjunnar við náttúruna.
Sýningin stendur til 9. september og er
opin frá kl. 14.00 til 18.00, fimmtudaga
til sunnudaga.
Gunnar Gunnarsson sálfræðingur og
myndlistamaður sýnir í Lóuhreiðrinu í
Kjörgarði. Sýningin er opin virka daga frá
9 til 18 og stendur út september.
Stórdansleikur
með Gamel Dansk á CATALINU
Hamraborg 11, Kópavogi
Föstudags- og laugardagskvöld
25. og 26. ágúst
f
(patahna
Njáluþing á Hvolsvelli:
Á Njáluslóðum
NJÁLA ER ENDALAUS UPPSPRETTA
Arthúr Björgvin Bollason er einn þeirra
sem flytja munu erind á Njáluþingi á
Hvolsvelli. Ráðstefnan er samvinnuverkefni
Sögusetursins á Hvolsvelli og Stofnunar
Sigurðar Nordals.
ráðstefna Stofnun Sigurðar Nordals
og Sögusetrið á Hvolsvelli gangast
fyrir ráðstefnu um Njálssögu í fé-
Iagsheimilinu Hvoli, Hvolsvelli, nú
um helgina. Ráðstefnan hefst kl. 10 í
fyrramálið og lýkur síðdegis sunnu-
daginn. Á annað hundrað manns hafa
skráð sig til þátttöku.
Erindi á ráðstefnunni flytja Arth-
úr Björgvin Bollason, Helga Kress,
Jón Böðvarsson, Jón Karl Helgason,
Kristján Jóhann Jónsson, Kristrún
Heimisdóttir, Oddgeir Guðjónsson,
Pétur Gunnarsson og Robert Cook.
Þá kynnir Sverrir Tómasson nýja
fræðilega útgáfu af Njálssögu sem
Stofnun Árna Magnússonar á íslandi
vinnur að.
Farið verður á Njáluslóðir undir
leiðsögn heimamanna og karlakór og
einsöngvarar flytja ráðstefnugest-
um á söguslóð Ijóðaflokk Guðmund-
ar Guðmundssonar skólaskálds um
efni Njálssögu. Jón Laxdal gerði lög-
in. Einnig taka ráðstefnugestir þátt í
söguveislu í Sögusetrinu á Hvols-
velli á laugardagskvöld.
Nánar um dagskrána á heimasíðu
Stofnunar Sigurðar Nordals
http://www.nordals.hi.is ■