Fréttablaðið - 24.08.2001, Side 22
22
FRÉTTABLAÐIÐ
HRAÐSOÐIÐ
24. ágúst 2001 FÖSTUDAGUR
ÞORSTEINN NJÁLSSON
formaður Tóbaksvarnarnefndar
Ánægja
með viðbrögð
almennings
HVERNIG
finnst þér almenningur
hafa brugðist við nýju tóbaksvarnariögun-
um?
Við höfum verið sammála um það
ég og Þorgrímur Þráinsson að við-
brögð almennings séu mjög góð og
við erum yfir höfuð mjög ánægðir
með viðbrögð hjá flestum veitinga-
mönnum. Það kom okkur á óvart
hvað þeir hafa sýnt mikið frum-
kvæði að aðlaga sig að lögunum. Ég
hef spurt út í þetta á þeim veitinga-
stöðum sem ég hef farið á og þá
virðist það vera almenningur sem
hnippir í veitingamennina og bendir
þeim á lögin og spyr um reyklausa
rýmið.
HVAÐA vandkvæði hafa komið upp
að ykkar mati?
Engin sem ég hef orðið var við. En
ég hef orðið var við að það er þröng-
ur hópur af fólki sem hefur gaman
af lagatúlkunarþættinum á lögun-
um. Þessum löglærðu mönnum
verður tíðrætt um að verið sé að
skerða tjáningarfelsi manna að ekki
megi fjalla um tóbak nema í því
skyni að vara við skaðsemi reyking-
ar. En ástæðan fyrir því að þetta var
sett inn í lögin í byrjun er sú að tó-
baksfyrirtækin eru lagin við það að
koma skilaboðum sínum á framfæri.
Við vitum öll að góð umfjöllun um
tóbakstegundir í blaði er á við
margar auglýsingar og við sem
samfélag viljum ekki að þetta sé í
blöðunum til að ýta undir reykingar
hjá yngra fólki. Ég þekki engan sem
vill að ungt fólk byrji að reykja en
ég veit um nokkra sem vilja ekki
hætta að reykja - en það er líka
þeirra val. Þannig að það er ákveðin
hugsun á bak við það að takmarka
umfjöllun um tóbakið.
HVAÐ
er næsta skrefið hjá Tóbaks-
varnarnefnd?
Við setjum okkur fyrst og fremst í
þær stellingar að fá almenningsálit-
ið með okkur áfram en það hefur al-
deilis snúist á sveif með okkur á
undanförnum árum. Við viljum fá
almenning til að halda áfram að
taka afstöðu. Reykingar eru einka-
mál manna en við hin sem reykjum
ekki, um 80% af þjóðfélaginu, við
verðum að fá að ganga um án þess
að ganga í gegnum fýluna og ganga
í gegnum þessi eiturefni sem eru í
tóbakinu. Án þess að ég sé að reyna
að hljóma fanatískur þá er þetta
sneisafullt af óþverra.
HVAÐ finnst þér um gluggaútstillingu
Tóbaksverslunarinnar Bjarkar?
Mér finnst allt í lagi að fólk láti í sér
heyra og hafi álit á hlutunum. En ég
er bara ekki sammála rökfærslu
eiganda verslunarinnar að það sé
betra að krakkar í skólum taki í nef-
ið og vörina fremur en að reykja.
Við vitum að nikótín er mjög öflugt
ávanaefni og skammtur af nikótíni
sem kemur úr nef- og munntóbaki
er mjög mikill. Hann er það mikill
að ef þú tekur lítinn skammt í vör-
ina eða í nefið og ert óvanur þá
verður þú fárveikur.
Þorsteínn Njálsson hefur verið formaður
Tóbaksvarnarráðs slðan í nóvember
1996. Hann er læknir að mennt.
26 ára gamall maður
' fundinn sekur:
Hótaði
Bush
lífláti
taivipa.flórída.ap. 26 ára gamall karl-
maður hefur verið fundinn sekur
um að hafa hótað George W. Bush,
Bandaríkjaforseta, lífláti í maí síð-
astliðnum. Á hann yfir höfði sér allt
að 5 ára fangelsi og 25 milljón
króna sekt. 32 ára gamall maður frá
I FRÉTTIR AF FÓLKI
Það er talsverður titringur
innan Samfylkingarinnar
vegna væntanlegs kjörs nýs for-
manns fram-
kvæmdastjórnar
í stað Ágústs Ein-
arssonar á lands-
fundi í nóvember.
Þegar hafa verið
nefnd nöfn Ein-
ars Más Sigurð-
arsonar, Helga
Hjörvars, Marð-
ar Árnasonar og Ásu Richards-
dóttur. Nú heyrum við að Ágúst
Einarsson hafi hvatt Ásu til að
gefa kost á sér í embættið og
hún telji sig einnig eiga stuðn-
ing þingflokksformannsins,
Bryndísar Hlöðversdóttur.
Enn um Samfylkinguna.
Tryggvi Harðarson, bæjar-
fulltrúi í Hafnarfirði, sem er
ekki síst þekktur
fyrir að hafa
keppt við Össur
Skarphéðinsson
um formanns-
stólinn er sagður
ætla sér ný hlut-
verk innan
flokksins. Eins
og kunnugt er
ætlar Tryggvi ekki að sækjast
eftir áframhaldandi setu í bæj-
arstjórn. Fullvíst er talið að
hann sæki á ný mið - fari í
framboð til Alþingis.
Kántrýæðið á sér fá tak-
mörk. Það er ekki bara að
tólf þúsund hafi mætt á Kán-
trýhátíðina. Nú er verið að
kenna línudans víða og það
nýjasta er að dansinn hefur
haldið innreið í Breiðholtið. Eg-
ill Örn Jóhannesson danskenn-
ari verður með kennslu í ÍR-
heimilinu öll þriðjudagskvöld.
Byrjendur mæta í kennslu
klukkan hálf sjö og þeir sem
eru lengra komnir dansa síðar
um kvöldið.
ikill meirihluti lesenda
eyjafrétta í Vestmannaeyj-
um er þeirra skoðunar að póli-
tískum ferli Árna Johnsen sé
lokið. Þetta kom fram í könnun
sem gerð var. Alls tóku 338 þátt
og sögðu 247 eða 73,08% að
Árni ætti ekki afturkvæmt í
pólitík en 91 eða 26,92% höfðu
trú á því að hann væri ekki bú-
inn að segja sitt síðasta.
Mörgum Austfirðingum er
heitt í hamsi vegna úr-
skurðar Skipulagsstofnunar
vegna Kárahnjúkavirkjunar. Á
Fréttavefnum er að finan grein
eftir Elmu Guðmundsdóttur.
Pistill hennar endar á þessum
orðum: „Byggið upp vegina fyr-
ir austan svo fólksflutningarnir
þaðan gangi hraðar fyrir sig.
Og auglýsingarnar í Mogganum
gætu hljóðað eitthvað á þessa
leið: Harðduglegu fólki að aust-
an vantar sárlega vinnu. Allt
kemur til greina. Ekki er kraf-
ist hárra launa. Upplýsingar í
tjaldi 7 í flóttamannabúðunum
við Suðurlandsveg."
FRIÐUR
Ceorge W. Bush þarf að vara sig á ýmsum brjálæðingum sem hafa uppi hugmyndir sem
koma hvergi nærri friðarhugsjóninni.
Tampa í Flórída var auk þess eph Lieberman, sem bauð sig fram
dæmdur í tæplega 5 mánaða stofu- til varaforseta Bandaríkjanna í síð-
fangelsi fyrir að hóta að myrða Jos- ustu forsetakosningum. ■
Körfubolti á Isafirði
Fjármagn-
aður með
klósettpappír
fjáröflun Körfuboltafólk á ísa-
firði er að safna peningum vegna
samnings við Kathryn Otwell, en
hún hefur gert samning við félag-
ið. Auk þess að leika með kvenna-
liði þeirra ísfirðinga mun hún
þjálfa yngri flokka. Kathryn ku
hafa mikla reynslu í þjálfun og
þess vegna er gert ráð fyrir að
hún gagnist vel í unglingastarfi
þeirra Vestfirðinga. Kathryn mun
koma til síns nýja heimabæjar
innan skamms. ■
AF HÁU BRETTI
íslenskar stúlkur þurfa víst ekki að bíða lengi eftir því að fá Coldplay-piltana aftur í heimsókn en þeir hafa víst áhuga á þvi að taka
hér upp nokkur lög fyrir næstu plötuna sína. Drengirnir féllu víst vel í kramið hjá kvenþjóðinni ef marka má öskrin í salnum þegar
Ijósin voru kveikt svo hægt væri að skima eftir kærustu fyrir gitarleikara hljómsveitarinnar, Jon Buckland.
Coldplay troðfyllti Höllina
Coldplay fyllti Laugardalshöllina á miðvikudagskvöldið. Kunnu Is-
lendingum sérstakar þakkir fyrir hversu vel þeim var tekið. Vildu fá
að sjá upprunastað Emilíönu Torrini og Sigur Rósar.
tónleikar Gríðarlega stemmning
var í Laugardalshöllinni á mið-
vikudagskvöldið þegar breska
popp/rokk hljómsveitin Coldplay
spilaði fyrir fullu húsi. Yfir fimm
þúsund miðar voru seldir þegar
hljómsveitirnar Sálin og Maus
voru að ljúka sér af og þá voru
fjölmargir sem biðu eftir því að
kaupa miða. Forsvarsmenn tón-
leikanna sögðu um það leyti þegar
Coldplay var að stíga á stokk að
líklegast yrði uppselt á tónleikana.
Óhætt er að segja að þeir fóru því
ansi nærri.
Allt ætlaði um koll að keyra
þegar hljómsveitin sagðist ætla að
taka lagið Yellow. Sagt hefur verið
að lagið sé óður til íslensku söng-
konunnar Elísu Geirsdóttir sem
sungið hefur fyrir hljómsveitina
Bellatrix.
„Sumir segja að þetta lag sé
um íslenska söngkonu, sumir
segja að þetta lag sé um ást. Hvað
svo sem lagið er um þá fílum við
það öll,“ sagði Chris Martin,
söngvari Coldplay, um leið og
kveikt var á gríðarsterkum gulum
ljóskösturum og ungar stúlkur
féllu í yfirlið á meðan hljómsveitin
gerði allt vitlaust með laginu góða.
Coldplay-piltarnir kunnu ís-
lendingum sérstakar þakkir fyrir
það að taka jafn vel á móti sér og
raun bar vitni um og sögðu að slík-
ar móttökur hefðu þeir ekki fengið
frá því að þeir komu fyrst í heim-
inn.
„Sumir hafa gagnrýnt okkur
fyrir að koma hingað eftir að hafa
verið á löngu tónleikaferðalagi, en
við viljum að þið vitið að sú gagn-
rýni er ekki á rökum reist. Við
erum ykkur rosalega þakklátir
fyrir að taka á móti okkur því okk-
ur hefur alltaf langað til þess að
koma hingað - hingað á staðinn þar
sem hin frábæra Emilíana Torrini
og Sigur Rós eru frá,“ sagði Mart-
in við gríðarlegan fögnuð um
fimm þúsund manns.
Kári Sturluson hjá fyrirtækinu
Hr. Örlygur, sem stóð fyrir tón-
leikunum, sagði að ólíklegt væri að
Coldplay-menn myndu taka upp
myndbönd fyrir lög sín á næst-
unni.
„En á meðan dvöl þeirra stóð
skoðuðu þeir nokkur hljóðver með
upptökur í huga. Ef af því verður
munu þeir taka hér upp fyrir
næstu plötuna sína,“ sagði Kári og
var síðan rokinn til þess að sinna
stjörnunum.
Ómar R. Valdimarsson
Þá æsist leikurinn fyrir borg-
arstjórnarkosningarnar.
Væntanlegt framboð Frjál-
slynda flokksins, með Margréti
Sverrisdóttur í fyrsta sæti hef-
ur valdið áhyggjum víða. Talið
er að hún hafi nokkra möguleika
á að ná kjöri og þess vegna ekki
útilokað að næsti meirihluti í
Reykjavík verði skipaður fólki
af tveimur framboðslistum. Þau
sem standa að Reykjavíkurlist-
anum hafa leitt hugann að því
að bjóða Margréti sjöunda sætið
á sínum lista og tryggja þar
með að þau atkvæði sem Mar-
grét og aðrir frjálslyndir fá -
skili sér til Reykjavíkurlistann.
Ef rétt er, er ekki útilokað að
keppni verði um liðstyrk minns-
ta flokksins - þar sem öruggt
má telja að sjálfstæðismenn
muni ekki sitja auðum höndum
meðan keppinautarnir sjanghæa
Margréti.