Fréttablaðið - 28.09.2001, Page 2
KJÖRKASSINN
ENCIN SÁTT
Netverjar eru svartsýnir
á að nokkurn tíma ná-
ist sátt um stjórn fisk-
veiða. Taepur fjórðung-
ur telur að sátt muni
nást.
Næst einhvern tíma sátt um
stjóm fiskveiða?
Niðurstöður gærdagsins
á www.visir.is
------- 2
23%
Spurning dagsins í dag:
Ertu smeyk/ur við flugferðir eftir
hryðjuverkin í Bandaríkjunum?
Farðu inn á vísi.is og segðu
þina skoðun
Álfhólsvegur:
• •
Okumaður
féll í yfirlið
LðCRECLUMÁL Ökuraaður féll í yfirlið
þegar hann var að kom af hliðar-
götu inn á Álfhólsveg í Kópavogi í
gær. Við götuna var merki um
' stöðvunarskyldu og er talið að öku-
maður hafi þá ekki verið við með-
vitund. Árekstur orsakaðist af
þessu en enginn slasaðist að sögn
lögreglu. Ökumaðurinn hefur áður
fallið í yfirlið við akstur og segir
lögreglan það alvarlegt mál þegar
ökumenn, sem eiga það til að falla í
yfirlið, leggi samborgara sína í
hættu með þessum hætti. ■
Kynferðisbrotamál:
Vísað heim
dómsmál Hæstiréttur vísaði í gær
aftur í hérað kynferðisbrotamáli
þar sem karlmaður hafði verið
dæmdur í fimm mánuða fangelsi,
þar af f jóra mánuði skilorðsbundið,
fyrir að þukla á tíu ára stúlku og fá
hana til að snerta kynfæri sín.
Hæstiréttur hafnaði því að lýsing
málsatvika hefði verið óljós en taldi
að óskýrt væri hvers vegna aðal-
meðferð málsins hefði verið
frestað. Þá hafi röksemdafærslu
héraðsdóms Reykjaness verið
ábótavant þar sem ekki hefði verið
fjallað um mótmæli ákærða. ■
Fj árm álaráðuneytið:
Lægri skatta
á fyrirtæki
skattar Öll efnahagsleg rök mæla
með myndarlegri lækkun fyrir-
tækjaskatta, bæði tekju- og eign-
arskatta, segir í vefriti fjármála-
ráðuneytisins. Slíkt samrýmist
traustri hagstjórn.
„Slík aðgerð myndi virka sem
vítamínssprauta inn í íslenskt
efnahagslíf og verða til þess að
skapa jafnt fyrirtækjum sem ein-
staklingum starfsskilyrði sem
jörfnuðust á við það besta sem
gerist annars staðar,“ segir þar. Á
móti tekjulækkun vegi breiðari
skattstofnar. ■
gj FRÉ ITABLAÐlÐ
jÍÍjÍr-j. ' « • f. j
** - ' 28i. séptember 2001 FÖSTUDAGUR
Bush Bandaríkjaforseti:
Hert öryggisgæsla á flugvöllum
WASHINGTON. ap Georg W. Bush,
Bandaríkjaforseti, hvatti Banda-
ríkjamenn í gær til að fara að
fljúga á nýjan leik. Hann kynnti
auknar öryggisráðstafanir ríkis-
stjórnarinnar, henni verður falið
að sjá um öryggismál á banda-
rískum flugvöllum. Hann sagði
einnig að 500 milljónum dollara
yrði varið í aukinn öryggisbúnað
í flugvélum, í þeirri von að flug-
rán heyri sögunni til.
„Við munum ekki láta ferða-
frelsi okkar of hendi. Við mun-
um ekki láta frelsi okkar af
hendi,“ sagði Bush í ræðu sem
hann flutti fyrir 6.000 starfmenn
O’Hare flugvallarins í Chigago.
Flugvélum frá American Air-
lines og United Airlines, mynd-
uðu umgjörð um atburðinn en
vélarnar sem hryðjuverkamenn-
irnir rændu voru frá þeim flug-
félögum. Rúmlega tvær vikur er
síðan hryðjuverkin áttu sér stað.
Bandarískir ríkisstjórar
brugðu þegar við skipan forset-
ans og hófu að kalla saman þjóð-
varðliða sem sinna munu örygg-
isgæslu í flugvélum og á flug-
völlum að einhverju leyti. ■
ÞJÓÐVARÐLIÐAR á FLUGVELLINA
„Við munum ekki láta ferðafrelsi af hendi,"
sagði Bush í Chicago í gær.,
Talibanar:
Boð til bins
Ladens
islamabad. ap Stjórn Talibana í
Afganistan tilkynnti í gær að
hún hefði afhent Osama bin
Laden skilaboð þar sem hann er
beðinn um að yfirgefa landið af
fúsum og frjálsum vilja. Taliban-
ar hafa hingað til sagt að þeir
vissu ekki um dvalarstað bins
Ladens.
Þetta er í fyrsta skipti sem
stjórnin viðurkennir að hún viti
hvar bin Laden, sem er grunaður
um að bera ábyrgð á hryðjuverk-
unum í Bandaríkjunum, er nið-
urkominn. ■
Lagt að Þorgerði að
fara í Suðurkjördæmi
Forystumenn í Eyjum og Reykjanesi hafa rætt þennan möguleika við þingmanninn. Aðrir leita
eftir stuðningi við Arna Sigfússon til að leiða flokkinn í Suðurkjördæmi. Ottast að Guðni verði
fyrsti þingmaður kjördæmisins
SUÐURKJÖrpæmi Innan raða Sjálf-
stæðismanna í Suðurkjördæmi,
sem nær frá Reykjanesi að
Hornafirði er unnið hörðum
höndum við að
—♦—- finna frambjóð-
Sjálfstæðis- anda sem gæti
menn í Eyjum leitt flokkinn við
og Reykjanesi næstu þingkosn-
á fullu við að i.ngar eftir að
leita að sterk- Árni Johnsen
um leiðtoga sagðl af sér Þlng-
sem gæti leitt mennsku. Meðal
flokkinn við annars hafa for-
næstuþing- ystumenn flokks-
kosningar eftir ms. 1 Vestmanna-
að Árni John- eyjum og Reylya-
„„„ nesi rsett þann
iætt’ möguleika við
Þorgerði K.
Gunnarsdóttir þingmann flokks-
ins að hún flytji sig yfir í Suður-
kjördæmið til að leiða flokkinr.
þar. Þorgerður staðfestir við
Fréttablaðið að forystumenn
flokksins á þessum stöðum hafi
rætt þetta við sig. Hún segist
hins vegar ekki hafa tekið neina
ákvörðun um það, enda nægur
tími til stefnu. Sigmundur Sigur-
ÞORCERÐUR K. GUNNARSDÓTTIR AL-
ÞINGISMAÐUR
Staðfestir að rætt hafi verið við sig
geirsson fyrrverandi stjórnar-
maður í Sambandi ungra sjálf-
stæðismanna segir að hann og
fleiri séu að vinna að því að afla
fylgis meðal flokksmanna að fá
ÁRNI SIGFÚSSON FORSTJÓRI
TÆKNIVALS
Sagður vera álitlegur kostur
Árna Sigfússon forstjóra Tækni-
vals og fyrrverandi leiðtoga
flokksins í borgarstjórn til að
gefa kost á sér, en hann og Árni
Johnsen eru systkinabörn.
Þorgerður K. Gunnarsdóttir
vildi hins vegar ekki tjá sig frek-
ar um þær viðræður sem fram
hafa farið á milli hennar og
flokkssystkina hennar í Suður-
kjördæminu. Sigmundur Sigur-
geirsson segir að Árni sé mjög
álitlegur kostur en hann muni
ekki taka ákvörðun fyrr en séð
verður hvaða stuðning hann fær.
Samkvæmt heimildum innan
Sjálfstæðisflokksins í Suður-
kjördæmi óttast menn að ef ekki
fæst sterkur frambjóðandi til að
leiða flokkinn í næstu þingkosn-
ingum sé hætt á því að Guðni
Ágústsson landbúnaðarráðherra
verði fyrsti þingmaður kjör-
dæmisins í stað þingmanns
Sjálfstæðisflokksins. Sömu
heimildir telja að ekki séu mikl-
ar líkur á því að þingmennirnir
Drífa Hjartardóttir og Kristján
Pálsson séu það sterkir fram-
bjóðendur að þeir geti komið í
veg fyrir það. Sérstaklega þegar
haft sé í huga að mikil sigling sé
á Guðna í kjördæminu eftir að
hann varð landbúnaðarráðherra.
grhafrettabladid.is
Viðskiptahallinn:
Súpum seyðið af lántökum
EFNAHAC5MÁL „Það er erfitt að ná
niður halla sem er tilkominn
vegna skuldasöfnunar fyrri ára.
Til að mæta honum þyrfti að vera
afgangur af vöruskiptum við út-
lönd,“ segir Þórður Friðjónsson,
forstjóri Þjóðhagsstofnunar, og
T0LVUSTYRÐ
LYFJASKÖMMTUN
-ÓDÝR, ÖRUGG 0G ÞÆGILEG-
mm
9C-.JW*,
MmxmsmBimaímusui
dregur ekki úr því að töluvert
langt sé í land með að svo verði.
„Það er til að mynda enn veruleg-
ur halli á vöruskiptum þrátt fyrir
að hann hafi minnkað nokkuð á
milli ára.“ Með öðrum orðum, á
meðan lánin sem fjármögnuðu
viðskiptahalla undanfarinna ára
hafa aukist vegna
—♦-— gengisfalls krón-
„Vegna þessa unnar hafa útflutn-
verður óhjá- ingstekjur ekki
kvæmilegt að aukist til samræm-
ganga í gegn- ls- Það er áætlað í
um tímabil lít- mánaðarriti Bún-
ils hagvaxtar aðarbankans að
þar sem þjóð- skuldsetning þjóð-
arútgjöld að- arbúsins vegna
lagast þjóðar- Þessa é árinu fari
tekjunum" yfir 30 milljarða.
Það yrði meira en
samanlagður halli
vöruskipta og þjónustujafnaðar.
Edda Rós Karlsdóttir, forstöðu-
maður greiningardeildar bankans,
segir þróunina alvarlega, mun erf-
iðara sé að vinna á viðskiptahall-
anum en áður. Þannig megi minn-
ka vöruskiptahalla með því að
draga úr neyslu, en halli vegna
vaxtagreiðslna geti reynst viðvar-
andi.
ÞÓRÐUR
FRIÐJÓNSSON
Þurfum að draga
saman (þjóðarút-
gjöldum.
BIRGIR
fSLEIFUR
Erfið samsetning
viðskiptahallans.
EDDA RÓS
KARLSDÓTTIR
Áframhaldandi
þrýstingur á krón-
una til lækkunar.
Þórður bendir á að slæmt
ástand megi rekja til þess að fjár-
festingar í útflutningstælcifærum
hafi ekki verið í samræmi við
skuldsetninguna. Fjárfesting í
framtíðartækifærum ætti að vera
forsenda hallareksturs, en slíkt
hafi ekki alltaf verið uppi á teng-
ingum hér. „Vegna þessa verður
óhjákvæmilegt að ganga í gegnum
tímabil lítils hagvaxtar þar sem
þjóðarútgjöld aðlagast þjóðartekj-
unum.“ Stóriðja sé ein leið til að
auka við tekjuhliðina, en til fram-
búðar sé æskilegt að auka jafn-
vægi á markaðinum.
Birgir ísleifur Gunnarsson,
Seðlabankastjóri, tekur undir að
mun erfiðara sé að eiga við við-
skiptahalla sem tilkominn er vegna
aukningar á lánum og vaxta-
greiðslum sem þeim eru samfara.
Hann telur þó að blikur séu á lofti
um að þenslustig þjóðfélagsins fari
minnkandi og leyfi jafnvel vaxta-
lækkun á næstunni. Aðspurður
segir hann að hugsanlega hefði
verið mögulegt að skila meiri af-
gangi undanfarin ár til að mæta
samdráttarskeiðinu, en það sé hins-
vegar auðvelt að vera vitur eftir á.
mattiafrettabladid.is