Fréttablaðið - 28.09.2001, Side 4
FRÉTTABLAÐIÐ
SVONA ERUM VIÐ
28. september 2001 FÖSTUDAGUR
TÓNLISTARSMEKKUR LANDSMANNA
Klassísk tónlist og rokk virðast bera höfuð
og herðar yfir aðrar tónlistartegundir þegar
kemur að því að heilla landsmenn. Þó
virðist svo vera að fjórða hverjum lands-
manni sé nokk sama á hvað hann hlustar,
í það minnsta skilgreina flestir sig sem
alætur á tónlist.
Klassítt___________________13%
Rokk ______________________13%
Paegurlög_________________7,8%
Sígilt rokk_______________4.6%
Kántrý____________________3.1%
Jass______________________2.9%
Þungarokk_________________2,4%
Alaetur____________________26%
Heimild: Gallup, könnun 28. júní til 10. júlf.
FRIÐURINN ÚTI?
Skömmu eftir fund Arafat og Peres brutust
út átök milli ísraelskra hersveita og palest-
ínskra byssumanna.
Atök þrátt fyrir friðarum-
leitanir:
Þrír Palestínu-
menn létust
GAZA-BORG. CAIA-SVÆÐINU.AP Þrír
Palestínumenn létust og 22 særð-
ust í skotbardaga eftir að ísraelsk-
ar hersveitir lögðu í rúst þónokkr-
ar byggingar á svæði Palestínu-
manna í Gaza-borg. Átökin áttu
sér stað aðeins nokkrum klukku-
stundum eftir friðarviðræðurnar
á milli Yasser Arafat, leiðtoga
Palestínumanna, og Shimon Per-
es, utanríkisráðherra ísraels í
fyrradag. ísraelar höfðu lofað að
draga hersveitir sínar til baka frá
landsvæðum Palestínumanna auk
þess sem Palestínumenn höfðu
lofað að halda aftur af byssu-
mönnum sínum. Arafat og Peres
ætla, þrátt fyrir átökin, að hittast
aftur til friðarviðræðna eftir
u.þ.b. viku. ■
--$---
Þrjúr reykvísk knatt-
spyrnufélög:
Fá 30 milljónir
í stúkustyrki
sveitarstjórnir íþróttafélögin
Fylkir, Víkingur og ÍR fá hvert
um sig tíu milljóna króna styrk úr
borgarsjóði til að bæta aðstöðu
fyrir áhorfendur á félagssvæðum
sínum. Þetta var samþykkkt í
borgarráði í fyrradag.
Framkvæmdastjóra íþrótta og
tómstundaráðs (ÍTR) hefur verið
falið að ganga frá samningum
vegna styrkjanna. Að því er segir
í samþykkt ÍTR á þar að koma
skýrt fram að styrkirnir séu
vegna aðstöðu sem félögin séu
þegar að vinna við að koma upp og
að þeir séu ekki fyrirheit um frek-
ari framkvæmdir.
ÍTR segir að áhorfendafjöldi á
knattspyrnuleikjum fari vaxandi
og að með styrkjunum sé verið að
knma áhnrfpndasvmðnm í viðun-
andi horf. ■
| UTANRÍKISMÁL I
* --------------------1
Afundi varnarmáiaráðherra
NATO-ríkjanna á miðvikudag
áréttaði Halldór Ásgrímsson, ut-
anríkisráðherra, stuóning þjóðar-
innar við Bandaríkin og sagði ís-
land reiðubúið að leggja af mörk-
um eftir efnum og ástæðum í
baráttunni gegn hryðjuverkum.
Auk hryðjuverka var á fundinum
rætt ástandið á Balkanskaga, en
fastaráð NATO hefur samþykkt
að senda herlið til verndar eftir-
litsmönnum Evrópusambandsins
og Öryggissamvinnustofnunar
Evrópu í Makedóníu.
Helgi Laxdal:
Auðlindagjald út í hött
stjórn fiskveiða „Ég er ánægður
með að lagt sé til að áfram verði
byggt á því kerfi sem fyrir er en
ekki snúið sér að einhverju öðru“,
segir Helgi Laxdal, formaður Vél-
stjórafélags íslands, um tillögur
meirihluta endurskoðunarnefnd-
ar.
„Mér finnst það hins vegar út í
hött að ætla að fara að leggja auð-
lindagjald á sjávarútveg, sérstak-
lega í ljósi þess að hann er ríkis-
styrktur. Þar má til dæmis nefna
sjómannaafsláttinn sem skilar sjó-
mönnum 800 milljónum króna á ári
en myndi kosta útgerðina um 1.300
milljónir árlega ef hún væri látin
greiða hann eins og eðlilegt er.
Mér finnst að það ætti að byrja á
því að yfirfæra þennan kostnað á
0 m EKKI HRÖÐ HUGSUN
I Y . í Mér finnst um-
hugsunarvert að það skuli hafa tekið nefndina ár
að komast að því að hún næði ekki
samkomulagí.
útgerðina og byrjað á öfugum
enda.“
Helgi finnur einnig að því að nú
telji menn að útgerðin standi undir
auknum útgjöldum í formi auð-
lindagjalds, aðeins nokkrum mán-
uðum eftir að sjómönnum var sagt
að útgerðin bæri ekki að þeir
fengju greiddan lífeyrissparnað og
aðra þætti sem þeir börðust fyrir í
sjómannaverkfallinu. Þá segist
Helgi ekki sjá hvað menn ætli sér
með því að leyfa skráningu veiði-
heimilda á fiskvinnslur, eða hversu
langt það geti gengið. Slíkt geti
raskað mjög kjörum sjómanna.B
Lögreglan í Kópavogi:
Minnt á
stefnuljós
UMFERD. Lögreglan í Kópavogi
áminnti ökumenn sem ekki gáfu
stefnuljós út úr hringtorgum í
gær. Um miðjan dag höfðu 200
ökumenn verið áminntir og 100 á
sama stað á einni klukkustund.
Umferðalög kveða á um að það
eigi að gefa stefnuljós til að leið-
beina öðrum og gefa til kynna
hvað ökumenn ætli sér að gera.
Umferð mun aukast verulega
um Kópavog með tilkomu Smára-
lindar og hefur hringtorgum skot-
ið upp kollinum víða. Lögreglan
segir að þegar fram líða stundir
þá muni sekt fyrir að gefa ekki
stefnuljós nema 5000 krónum. ■
TRJÁRÆKT
Heyrst hefur að ýmis fyrirmenni hafi keypt jarðir við Skorradalsvatn í landí Hvamms, jafnvel nokkrar saman, þeir sem bolmagn hafa til. I
sveitinni hefur nafn dr. Kára Stefánssonar í íslenskri erfðagreiningu heyrst nefnt í þeim efnum.
Afram skógrækt
í Hvammi
Samningar hafa náðst milli nýs eiganda jarðarinnar Hvamms í Skorradal og
Skógræktar ríkisins. Um tíma var staða Skógræktarinnar óljós en hún taldi
sig eiga tilkall til ræktunar á jörðinni sem hún hefur staðið fyrir sl. 50 ár.
jarðakaup Jörðin Hvammur í
Skorradal þar sem Skógrækt rík-
isins hefur verið með starfsemi í
um hálfrar aldar skeið hefur ver-
ið seld. Nýr eig-
andi hefur gert
eignaskiptasamn-
ing við Skógrækt-
ina, en blaðið hef-
ur heimildir fyrir
að fyrri eigendur
hafi ekki viljað
bæta eða meta til
fjár ræktun á
landinu líkt og Skógræktin fór
fram á. Jörðin er um 330 hektarar
að stærð.
Kaupandi jarðarinnar heitir
Kristjón Benediktsson. Hann vildi
ekki gefa upp kaupverð jarðarinn-
ar en tiltók að hún hafi verið dýr,
enda væri landið sérlega glæsi-
legt. „Þetta verður rekið áfram
sem skógræktarjörð, en að hlutá
til verða seldar þarna sumarhúsa-
lóðir því verð jarðarinnar gefur
ekki tilefni til annars,“ sagði
hann.
Kristjón segir samninginn við
Skógræktina á þá leið að hún haldi
húsum á jörðinni og 35 hekturum
í kringum þau og norðaustur-horn
jarðarinnar. „Á móti afsalaði hún
sér ræktinni og girðingum. Þetta
er afar hagstæður samningur fyr-
ir Skógræktina, en mér þótti þetta
sanngjarnt því hún hefur verið
þarna í áratugi," sagði hann og til-
tók að vel hafi gengið að selja lóð-
ir, t.a.m. væru bara sjö lóðir eftir
við Skorradalsvatn en þær hafi
verið 26. „Þaö er svo sem ekki vit-
að hvað mikið land fer undir sum-
arhúsasvæði, en það verður reynt
að hafa það í algjöru lágmarki,"
bætti hann við.
Jón Loftsson, skógræktar-
stjóri, staðfesti að samningur hafi
verið gerður og einungis sé beðið
staðfestingar jarðanefndar og
samþykkis ráðuneytisins.
„Hvammur er þar með kominn á
tryggari grunn því eytt hefur ver-
ið ákveðinni óvissu sem upp var
komin um framhald starfseminn-
ar þar, en þetta er okkar aðal að-
setur í Skorradal," sagði hann.
Davíð Pétursson, oddviti í
Skorradalshreppi, segir að Krist-
jón eigi eftir að leggja formlega
fyrir hreppinn hugmyndir um
fleiri sumarbústaðalóðir á jörð-
inni, en sú afgreiðsla geti tekið
nokkurn tíma. „Ef hann fer strax
af stað þá gæti þetta verið tilbúið
í vor,“ sagði hann. Þá taldi hann
að kaupverð jarðarinnar gæti
varla talist leyndarmál lengur
þar sem kaupunum hafi verið
þinglýst en það hafi verió um 120
milljónir.
oli@frettabladid.is
REYKUR
Reykur stígur upp frá sendiráðinu í Kabúl,
en það hefur verið mannlaust í um 13 ár.
Þúsundir afganskra mót-
mælenda:
Kveiktu í við
fyrrum sendiráð
KABÚL.AFGANISTAN.AP ÞÚSUndÍl' af-
ganskra fylgismanna Talibana
kveiktu í bílum sem staðsettir
voru við fyrrum sendiráð Banda-
ríkjanna í Kabúl höfuðborg
Afganistan. Auk þess kveiktu þeir
í byggingum sem liggja við húsið.
Þetta eru mestu mótmæli sem
haldin hafa verið í borginni frá
því Bandaríkjamenn hótuðu að
ráðast inn í landið. Sendiráðið hef-
ur verið mannlaust síðan árið
1988. Áður en mannfjöldinn fylkt-
ist í átt að sendiráðinu gekk hann
um göturnar hrópandi: „lengi lifi
Osama,“ og „niður með Ameríku."
í norðurhluta Afganistan héldu
bardagar áfram á milli Talibana
og Norðurbandalagsins. ■
LÖGREGLUFRÉTTIRj
ögreglan í Stykkishólmi tók
tvo ökumenn fyrir of hraðan
akstur á þjóðveginum á miðviku-
dag. Annar mældist á 109 km
hraða og hinn á 122 km hraða. Þá
voru fimm ökumenn, að sögn lög-
reglu, teknir fyrir of hraðan akst-
ur í fyrradag. Lögregla vill benda
ökumönnum á að virða hraða-
mörk.
—«—
Skógræktar-
stjóri segir
óvissu um
framtíð Skóg-
ræktar ríkisins
í Hvammi fyrir
bí.
Undirskriftalisti til varnar fornleifum:
Mikil andstaða meðal íbúa í nágrenninu
fornminjar Til stendur að reisa
hótel á fornleifunum sem fundust
við Aðalstræti í suniar. Ekki eru
allir á eitt sáttir um framkvæmd-
ina og hafa nokkrir íbúar hverfis-
ins efnt til undirskriftasöfnunar
þar sem skorað er á borgarstjórn
Reykjavíkur að vísa á bug áform-
um um byggingar eða annað um-
rót í suóausturhorni Grjótaþorps
sem þrengi að Ingólfsbæ og þróun
svæðisins sem menningar- og
söguseturs.
Einar Bragi rithöfundur og
íbúi við Suðurgötu segir undir-
skriftasöfnunina nýlega hafna og
að henni muni senn ljúka. „Við
ætlum ekki að fara í allsherja-
rundirskriftasöfnun í bænum
VIÐ BÆ INGÓLFS OG HALLGERÐAR
Rithöfundurinn Einar Bragi er einn forsvarsmanna undirskriftalistans til varnar leifunum
sem líklega eru af bæ Ingólfs Arnarsonar og fundust við Aðalstræti á liðnu sumri.
heldur einbeita ókkur aö næsta
nágrenni.“
Einar Bragi segir því hafa ver-
ið haldið fram að sátt sé um fram-
kvæmdirnar í Aðalstrætinu. „Við
höfum ekki fundið nema einn ein-
asta mann sem hefur lýst því yfir
að hann sé mjög ánægður með
þetta en allir aðrir virðast vera á
öndverðum eiði við þann góða
mann.“
Undirskriftalistinn liggur
frammi á nokkrum stöðum í
hverfinu, meðal annars í Bóka-
vörðunni og Kirsuberjatrénu við
Vesturgötu. Einnig hafa aðstand-
endur undirskriftalistans gengið í
hús í hverfinu og safnað undir-
skriftum. ■