Fréttablaðið - 28.09.2001, Qupperneq 9
FÖSTUPAGUR 28. september 2001
FRÉTTABLAÐIÐ
9
Átök á Norður-írlandi:
33 lög-
reglumenn
særðust
BELFAST. NORÐUR-ÍRLANDI.AP 33 lög-
reglumenn særðust í átökum við
mótmælendur á götum Belfast í
gær. Að sögn lögreglunnar skutu
byssumenn úr röðum mótmælenda
yfir 50 skothylkjum að þeim, þar á
meðal tveimur úr sjálfvirkum rif-
fli. Enginn lögreglumaður varð fyr-
ir skotunum. Þeir sem særðust
hlutu hins vegar brunasár, sködd-
uðust á heyrn eða hlutu skrámur,
eftir að sex heimatilbúnum hand-
sprengjum og 125 bensínsprengj-
Á LEIÐ f SKÓLANN
Lítil stúlka úr röðum mótmælenda gengur
í skólann. Allt í kring eru bílar sem
brennndir voru nóttina áður ( átökum á
milli herskárra mótmælenda og lögregl-
unnar.
um var varpað að þeim. Talið er að
mótmælendurnir hafi verið með-
limir í Varnarbandalagi Ulster. ■
íslensk lögregla tekur þátt í starfi vegna hryðjuverka:
Athugar hryðjuverkamenn
hryðiuverk Lögregla á Islandi
hefur tekið þátt í samstarfi
lögregluyfirvalda í Banda-
ríkjunum og Evrópu við að
hafa upp á mönnum sem tald-
ir eru tengjast hryðjuverkun-
um í Bandaríkjunum og fjár-
mögnun þeirra. Jón H. B.
Snorrason, yfirmaður efna-
hagsbrotadeildar Ríkislög-
reglustjóra, segir að deildin hafi
fengið senda alþjóðlega lista með
nöfnum yfir eftirlýsta menn, sem
talið er að hafi ferðast um Norður-
lönd. Fram er komið að einn nánasti
samstarfsmaður Osama bin Ladens
bjó um hríð í Danmörku. „Það er
engin ástæða til að ætla að einhver
þessara manna hafi komið hingað
til lands eða sé hér á landi,“
sagði Jón. „En það þarf að
kanna það og það er verið að
kanna það.“ Einnig fylgist
embættið með þeirri stefnu-
mótun, sem fram fer um
þessar mundir, um aukið ör-
yggi í millilandaflugi.
Bandaríkjamenn hafa þegar
ákveðið að vopnaðir lög-
reglumenn verði í þarlendum flug-
vélum. Jón sagði að ekki væri á döf-
inni að íslendingar lýstu einhliða
yfir slíkum öryggisráðstöfunum.
Hins vegar réðum við þessu ekki
einir og sjálfir og vera kynni að
lönd, sem íslensk flugfélög fljúga
til, ættu eftir að setja slík skilyrði
fyrir lendingu á sínu landi. ■
JÓN H.B.
SNORRASON
Reykjanes:
Forseti
kennir
frönsku
nám Vigdís Finnbogadóttir, forseti
Islands frá 1980 til 1996, er í hópi
þeirra sem munu kenna grunn-
skólabörnum á Suðurnesjum frön-
sku á tveggja daga námskeiði sem
haldið verður í Rcykjanesbæ.
Námskeiðið er haldið á vegum
Háskóla íslands í samstarfi við
Miðstöð símenntunar á Suður-
nesjum og er hluti af átaki skólans
til að efla tengsl sín við lands-
byggðina í tilefni aldarafmælis
skólans fyrr á þessu ári. ■
Sævar Gestsson:
Átta mig
ekki á þessu
stjórn fiskveiða „Ég verð að viður-
kenna að ég átta mig ekki á þessu.
Það er eins og mennirnir hafi ver-
ið í annarlegu ástandi þegar þeir
ákváðu þetta“, segir Sævar Gests-
son, formaður Sjómannafélags
ísafjarðar. „Ég veit ekki hvernig
mönnum dettur í hug að leggja til
að setja auðlindagjald á sjávarút-
veginn til að bjarga landsbyggð-
inni. Hvert eru þessir menn eigin-
lega að fara? Svo er auðvitað
spurningin um hverjir eigi að
greiða gjaldið. Á að draga þetta af
óskiptu óg láta þannig sjómennina
greiða gjaldið?"
„Það er verið að rústa smábáta-
flotanum", segir Sævar og sér
ekki að tillögur endurskoðunar-
nefndar breyti nokkru þar um.
„Það er búið að stúta 40 daga
körlunum sem máttu veiða 40
daga á ári. Ég sagði áður að ef
kvóti yrði settur á smábátana yrði
það til þess að um 400 manns á
Vestfjörðum misstu vinnuna. Ef
FURÐULEGT
Ég skil ekki hvernig svona tillögur geta
komið frá jafn vel menntuðum mönnum.
við miðum við fjóra í fjölskyldu
snertir það um 1.600 manns. Það
er ansi stór hluti af 9.000 Vestfirð-
ingurn." ■
Menntaskólinn á ísafirði:
Deilaum
íbúð Ólínu
skólamál Deilur hafa risið innan
skólanefndar Menntaskólans á ísa-
firði um þá samþykkt skólanefnd-
arfundar í ágúst að leigja íbúðar-
húsnæði til afnota fyrir skólameist-
ara, Ólínu Þorvarðardóttur. Ólafur
Helgi Kjartansson, sýslumaður ís-
fii'ðinga og formaður skólanefndar,
hefur ritað menntamálaráðherra
bréf þar sem hann lýsir því að hann
telji fundinn þar sem leigan var
samþykkt hafa verið ólöglega boð-
aðan og að skólanefnd hafi að auki
ekki haft heimild til að leigja hús-
næðið. ■
Verð sem
þú mátt
ekki
missa af!
SKÁLHOLTSSTÍGUR - ATVINNUHHÚSNÆÐI Á TVEIMUR HÆÐUM
í EINU GLÆSILEGASTA TIMBURHÚSI LANDSINS ÁSAMT 7 SÉR
ER 902 FM.
Eignin skiptist í 124,5 fm kjallara og 101,5
fm á 1. hæð. Gengið er inn á 1. hæð um
sameiginlegan inngang með efri hæð /
Sameiginleg forstofa með kókosteppi á
gólfi. Innri forstofa/hol með kókosteppi á
gólfi. / Gangur með furugólfborðum /
Gesta wc með furugólfborðum, gluggi.
Eldhús með furugólfborðum - gamlar inn-
réttingar, borðaðstaða. 3 samliggjandi
skiptanlegar stofur með furugólfborðum /
Stórt herbergi með furugólfborðum. Kjail-
ari: 1 stórt vinnurými með lökkuðu stein-
gólfi / Wc. með lökkuðu steingólfi / 2
geymslur / 2 nokkuð stór herbergi með
lökkuðu steingólfi / Hús að utan er í góðu
ásigkomulagi að sögn seljanda / 7 sér
merkt bílastæði á lóðinni fylgja með / Hiti
í tröppum upp á 1. hæðina / Nýtt rafmagn
og rafmagnstafla, nýjar lagnir/ATH. Hérá
eftir fylgir brot af sögu hússins en nánari
upplýsingar er hægt að nálgast á vefnum
með því að slá inn eftirfarandi slóða:
http://www.mad.is/naepan.html
Eftir að starfsemi Me'nningarsjóðs og
Menntamálaráðs var lögð niður í byrjun tí-
unda áratugar ákvað menntamálaráðu-
neytið að Listasafn (slands fengi afnot af
húsinu fyrir skrifstofuhald sitt. Um leið var ákveðið að færa húsið í upprunalegt horf. Landshöfðingja-
húsið hafði áður verið friðað að ytra byrði „enda hafi húsið bæði sögulegt og listrænt gildi auk þess sem
útlit þess eigi verulegan þátt i að móta yfirbragð staðarins" eins og sagði í umsögn húsafriðunarnefnd-
ar til menntamálaráðherra þann 14. júní 1990.
Umfangsmiklar úttektir á vegum. húsafriðunarnefndar og framkvæmdasýslu ríkisins fóru fram á árunum
1993-1994. Að þeim loknum var síðan ráðist í lagfæringar á ytra byrði hússins á árunum 1995 og 1996.
Síðar var horfið frá því að setja skrifstofur Listasafnsins í húsið og ákveðið að selja húsið.
ATH. SAGA HÚSSINS ER Á VEFNUM Á: http://www.mad.is/naepan.html
LYICII.L. AÐ aÓÐRI CIQN
Totli grafík
Veró
Tiíbcð 11 „9G(
i UVofsláttur of
i *J/0 imnrsimm
innrommun
Afsláttartilboó af spegium og plakötum
Gíldistími 26. sept. 6. okt.
Súper gler.
Glampa frítt
glært gler
Komíð og sjáíð
munin
Opió 900-1800og laugardaga 1100-16‘
IWIIÐSTOÐIN
Síóumitla 34 ® Sími: 533 3331