Fréttablaðið - 28.09.2001, Qupperneq 10
f f<f f f ABf.AÐff;
10
FRÉTTABLAÐIÐ
28. september 2001 FÖSTUDACUR
Hœttum að hugsa um Netið!
Útgáfufélag: Fréttablaðið ehf.
Útgáfustjóri: Eyjólfur Sveinsson
Ritstjóri: Einar Karl Haraldsson
Fréttastjóri: Pétur Gunnarsson
Ritstjórn, auglýsingar og dreifing:
Þverholti 9, 105 Reykjavík
Aðalsími: 515 75 00
Símbréf á fréttadeild: 515 75 06
Rafpóstur: ritstjom@frettabladid.is
Símbréf á auglýsingadeild: 515 75 16
Rafpóstur: auglysingar@frettabladíd.is
Setning og umbrot: Fréttablaðið ehf.
Plötugerð: ÍP-prentþjónustan ehf.
Prentun: ísafoldarprentsmiðja hf.
Dreifing: Póstflutningar ehf.
Fréttaþjónusta á Netinu: Vísir.is
Fréttablaðinu er dreift ókeypis til allra heimila á höf-
uðborgarsvæðinu. Fyrirtæki geta fengið blaðið gegn
greiðslu sendingarkostnaðar; kr. 1.100 á mánuði.
Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni
blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum
án endurgjalds.
Netið er rafmagn upplýsinga-
iðnaðarins. Allt sem þú veist
um rafmagn er að það fer ein-
hvernveginn þvers og kruss í
gegnum þráðinn og er framleitt í
—+— orkuverum. Við
„Nýja hagkerf- stingum bara í
ið var bull" samband, kveikj-
+__ um ljós og borg-
um reikninginn.
Flóknara er það ekki. Þannig
verður Netið í framtíðinni eftir
að það hefur slitið barnsskónum
og búið verður að koma því í al-
mennileg tæki, sem ekki eru
alltaf að bila og ekki kostar kýr-
verð að uppfæra. Öll internet-
fyrirtæki eru nú nánast verð-
laus, eða umbreytt í venjuleg
fyrirtæki, og hin venjulegu eru
orðin internetfyrirtæki á sama
hátt og þau nota rafmagn til
starfsemi sinnar. Hættum að
hugsa um Netið, notum það
bara! Þetta var boðskapur Þórð-
ar Víkings Friðgeirssonar verk-
fræðings í Hádegisháskólanum,
en hann er nýjung sem Háskól-
inn í Reykjavík bryddar upp á.
Sjaldan hafa eins margir ver-
ið rótplataðir á jafn stuttum
tíma og þegar netbólan blés út á
síðasta áratug. Upplýsingaiðnað-
urinn, Netið og hátæknin áttu
saman að vera stofninn í nýju
hagkerfi sem laut öðrum lögmál-
um en hið gamla. í nýja kerfinu
þurfti ekki að sanna sig með
reynslu, hagnaði, stefnu, við-
skiptavinum eða öruggum
Mál .manna
Einar Karl Haraldsson
fór í Hádegisháskólann
dreifileiðum. Það var nóg að
veifa þekkingu og frumkvæði,
sætu viðskiptaútliti, heimsókn-
um á Netið og væntingum um
viðskiptavini til þess að fá fullar
hendur fjár að leika sér með.
Sölutölur í netverslun reyndust
vera óáreiðanlegar vegna þess
að í raun var verið að efna til út-
sölu í nýjum miðli, birgjar kepp-
tust við að veita afslætti til þess
að fá að vera með í leiknum, og
hagnaðartölur voru skáldskapur
sem byggði á hlutabréfaskiptum
milli blöðrufyrirtækja.
Nýja hagkerfið var bull, en
getur enn malað gull, séu gamal-
reynd lögmál í rekstrarhagfræði
látin gilda um sprotafyrirtæki í
upplýsinga- og hátækniiðnaði
eins og annan rekstur. Það er
ekkert nýtt undir sólinni. ■
1 BRÉF TIL BLAÐSINS
Friðarvökur
við sendiráð
Samtökin Friður 2000 skrifa:
friður Samtökin Friður 2000
skora á íslensk stjórnvöld að sýna
þá skynsemi og kjark að andmæla
væntanlegri herför Bandaríkj-
anna í Mið Austurlöndum og rjúfa
samstöðu um hefndaraðgerðir hjá
NATO með neitunarvaldi. Ráðgert
er að beina sjónum heimsbyggð-
arinnar að íslandi sem einstöku
kraftaverki friðar á jörðunni, með
friðarvökum við íslensk sendiráð
á næstu vikum í samvinnu við
samstarfsaðila samtakanna víða
um heim.
Samtökin telja að Bandaríkin
sigli undir fölsku flaggi í yfirlýstu
stríði gegn hryðjuverkum og séu
að draga heimsbyggðina inn í
þriðju heimsstyrjöldina. Friður
2000 skorar á stjórnvöld að vera
vakandi yfir þróun herfarar Bush
forseta og skoða af nákvæmni
sönnunargögn sem Bandaríska al-
ríkislögreglan FBI og Leyniþjón-
usta Bandaríkjanna, CIA leggja
fram. Þegar eru komnar fram vís-
bendingar um að niðurstaða rann-
sóknar hafi verið fyrirfram
ákveðin og leitað „sönnunar-
gagna“ til stuðnings við fyrir-
framákveðna niðurstöðu. Rík
ástæða er til að krefjast óháðra
lögreglurannsókna áður en af-
tökusveitir eru sendar út í nafni
alþjóðasamfélagsins og eða NATO
til að myrða án dóms og laga.
Friður 2000 beinir þeirri
áskorun til forseta íslands, að for-
setinn ferðast nú þegar um heim-
inn, og þá sérstaklega um Banda-
ríkin og Bretland, sem boðberi
friðar. Með því að koma fram í
sjónvarpi og öðrum fjölmiðlum á
erlendri grund, getur forseti ís-
lands gert kraftaverk til friðar
með því að vekja athygli á því að
Alþingi íslendinga, sem er elsta
Iýðræðisstofnun jarðarinnar, hafi
fyrir þúsund árum lært að leysa
úr hernaðar-og trúarvandamálum
með umburðarlyndi og friði. ■
Stöðug átök í eitt ár
Uppreisn Palestínumanna hófst 28. september árið 2000. Hefur kostað nærri 700 Palestínumenn
lífið og hátt á annað hundrað Israelsmanna. Ogrun Ariel Sharons fyrir ári er hann fór inn á hel-
gasta svæði múslima í Israel markaði upphaf átakanna fyrir réttu ári.
fli AQSfl uppreisnin í dag er ár liðið
frá því að seinni uppreisn (Intifada)
Palestínumanna gegn hernámi ísra-
elsmanna hófst. Fimmtudaginn 28.
september árið 2000 fór Ariel Shar-
on, sem þá var leiðtogi stjórnarand-
stöðunnar í ísrael, ásamt hópi ör-
yggisvarða inn í Jerúsalem, þar
sem al Aqsa moskan er. A1 Aqsa er
þriðji helgasti staður múslima í
heiminum, næst á eftir moskunum í
Mekka og Medínu í Sádi-Arabíu.
Palestínumenn hafa ekki gleymt
því að Sharon bar á sínum tíma
ábyrgð á fjöldamorðum á Palestínu-
mönnum og skipulagði innrásina í
Líbanon. Þeim þótti augljóst að
hann væri vísvitandi að ögra þeim
með því að fara inn á helgasta svæði
múslima í ísrael og viðbrögðin létu
ekki á sér standa. Þar með var upp-
reisnin hafin, sem Palestínumenn
kalla A1 Aqsa Intifada, eða uppreisn
til varnar al Aqsa.
Nærri daglega hefur komið til
einhvers konar átaka milli Palest-
ínumanna og ísraelskra hermanna á
þessu ári sem uppreisnin hefur
staðið. Hún hefur kostað hátt í sjö
hundruð Palestínumenn og vel á
annað hundrað ísraelsmenn lífið.
Vopnuð átök hafa flest verið á milli
ísraelska hersins og liðsmanna her-
skárra samtaka Palestínumanna á
borð við Hamas. ísraelski herinn
hefur hins vegar ekki hikað við að
ráðast á óbreytta borgara með
skriðdrekum og herþyrlum auk
þess að senda launmorðingja til
þess að taka grunaða hryðjuverka-
menn af lífi án dóms og laga. Palest-
ínumenn hafa fyrir sitt leyti ekki
bara beitt grjótkasti gegn ísraelska
hernum, heldur hafa sjálfs-
morðsárásir verið áberandi liður í
uppreisninni, oft með miklu mann-
falli óbreyttra borgara. ■
TVISKIPTIR
BARNASNJÓGALLAR
1.900
BARNAÚLPUR
1.000
VINNUFATALAGERINN
SMIÐJUVEGI 4
OPIÐ MÁNUD -FÖSTUDAG KL 10-18
LAUGARD 12-16
ÖGRUN SHARONS
Þegar Ariel Sharon lagði leið sína í Al Aqsa moskuna var hann ekki orðinn forsætisráðherra Israels, heldur var hann leiðtogi stjórnarand-
stöðunnar og notaði hvert tækifæri til þess að gagnrýna friðarsamninga við Palestínumenn.
Lokanir á hernumdu svæðunum:
Geigvœrtleg áhrif á
daglegt líf í Palestínu
AL AOSA uppreisnin Uppreisn
Palestínumanna með hótunum
um hryðjuverk og stríð hefur
aukið mjög ótta Israelsmanna
um líf sitt og öryggi, enda líta
þeir ekki á hana sem uppreisn
gegn hernámi heldur sem skipu-
lega herferð hryðjuverkamanna
gegn sér.
Israelsk stjórnvöld hafa
brugðist við með því að einangra
Palestínumenn. Flestum borgum
og þorpum á Vesturbakkanum
og Gazasvæðinu hefur verið lok-
að af með þeim afleiðingum að
íbúarnir eiga ekki heimangengt.
Þessar aðgerðir hafa haft mikil
og geigvænleg áhrif á daglegt líf
allra Palestínumanna.
Efnahagslegu áhrifin af þess-
um aðgerðum ísraelsmanna á
Palestínumenn hafa komið illa
niður á nánast öllum fjölskyldum
á hernumdu svæðunum. Fjöl-
margir Palestínumenn komast
ekki til vinnu sinnar vegna lokan-
anna. Atvinnuleysi meðal Palest-
ínumanna er komið upp í 40% og
talið er að allt að tvö af hverjum
þremur heimilum á Vesturbakk-
anum og Gazasvæðinu dragi fram
lífið undir fátæktarmörkum.
Áhrifa vannæringar gætir æ
meir og ungbarnadauði verður
algengari. Þeir sem ekki búa í
stærri borgum eiga erfitt með
að sækja læknisþjónustu og
komast jafnvel ekki á sjúkrahús
þegar veita þarf flókna meðferð.
Starfsfólk heilsugæslustöðva
hefur víða hefur ekki komist til
vinnu sinnar mánuðum saman. ■