Fréttablaðið - 28.09.2001, Side 14
14
FRÉTTABLAÐIÐ
28. september 2001 FÖSTUPAGUR
KNATTSPYRNA
Hvernig fer bikarleikur
KA og Fylkis?
„Fylkir vinnur bikarinn. Árbæingar sigra
leikinn með tveimur mörkum gegn einu.
Sævar Gíslason skorar bæði mörkin fyrir
þá. Annars eru bikarleikir oft leiðinlegir,
það eru allir í vörn."
Mikael Torfason rithöfundur
HM í S-Kóreu og Japan 2002:
Flugumferð yfír knattspyrnuleikvanga bönnuð
knattspyrna Öll flugumferð yfir
kanttspyrnuleikvanga í Suður-
Kóreu og Japan verður bönnuð á
meðan Heimsmeistarakeppninni
í knattspyrnu stendur, en hún
hefst 31. maí á næsta ári og líkur
30. júní. Bannið er tilkomið
vegna hryðjuverkanna í Banda-
ríkjunum þann 11. september
síðastliðinn.
Menn hafa haft nokkrar
áhyggjur af knattspyrnubullum
og hugsanlegum ólátum á meðal
áhorfenda og hafa því verið uppi
hugmyndir um að banna bjórsölu
á leikjum. Forráðamenn knatt-
spyrnuyfirvalda í S-Kóreu virð-
ast samt ekki tengja bjórdrykkju
JAPAN
öll flugumferð yfir þennan völl verður bönnuð frá 31. maí til 30. júní á næsta ári.
við ólæti og sagði Chung Mong-
joon, sem situr í skipulagsnefnd
keppninnar í S-Kóreu, að hann
væri hlynntur bjórsölu. Forráða-
menn knattspyrnuyfirvalda í
Japan hafa hins vegar ekki gert
upp hug sinn. Budweiser er einn
helsti styrktaraðili keppninnar.
Alþjóðaknattspyrnusamband-
ið hefur rétt á að taka fram fyrir
hendurnar á knattspyrnuyfir-
völdum í S-Kóreu og Japan varð-
andi áfengissölu á leikjum. Bjór
var leyfður í Heimsmeistara-
keppninni á Ítalíu 1990 og Frakk-
landi 1998, en einhverjar tak-
markanir voru á bjórsölu í
Bandaríkjunum 1994. ■
Model 6333DWBE
14.4 v Rafhlöðuborvél Aukarafhlaða / taska
ÞÖR HF
RnykjrtviW: Artmilrt 11 • 8iml WJ8-1B0C
Akutrtyrl: Lonrtbrtkkrt « Slml 401.1070
LEID LIÐANNA í ÚRSLIT
Fylkir:
KFS- Fylkir 2-4
KR- Fylkir 0-1
Gindavík- Fylkir 1-3
lA- Fylkir 0-2
KA:
Keflavík U23- KS 0-3
Víðir- KA 0-2
KA- Keflavík 2-1
FH- KA 0-3
skautJ^Thölun
i i m h I i
Opnunartímar almennings
Mánudaga og þriðjudaga
kl. 12.00 - 15.00
Miðvikudaga og fimmtudaga
kl. 12.00 - 15.00 og
kl. 17.00 - 19.30
Föstudaga
kl. 13.00 - 22.00
Laugardaga og sunnudaga
kl. 13.00-18.00
SJÓVETTLINGAR 320
MITTISJAKKI 3.900
SMÍÐAVESTI 2.600
VESTISBUXUR 2.400
VINNUBUXUR 1.200
VINNUSKÓR 2.900
VINNUFATALAGERINN
SMIÐJUVEGI 4
0PIÐ MÁNUD -FÖSTUDAG KL10-18
LAUGARD 12-16
Þroski • Gleði • Hreyfing • Samhæfing • Félagsstarf
Skemmtilegt
og spennandi!
Skautaæfíngar
fyrir börn og
unglinga
Skautafélagið Björninn
listskautadeild
Skráning og upplýsingar:
Laugard. kl.1000 - I230 og mánud. kl: 15'
og í síma 588-8700.
, ,Vallaraðstæður
sterkasta vopn KA “
Urslitaleikur bikarkeppni karla fer fram á morgun. KA og Fylkir munu
eigast við. Guðmundur Torfason og Milan Stefán Jankovic spá báðir
Abæjarliðinu sigri. Fylkir gæti samt lent í vandræðum.
knattspyrna Á morgun mætast
KA og Fylkir í úrslitum Coca-
Cola bikarkeppni karla á Laugar-
dalsvelli og hefst leikurinn
klukkan 14.00. Fréttablaðið fékk
Guðmund Torfason, þjálfara ÍR,
og Milan Stefán Jankovic, þjálf-
ara Grindavíkur, til að spá í leik-
inn.
„Ég á von á því að þetta verði
mjög jafn leikur og verði bara
nokkuð skemmtilegur," sagði
Guðmundur en lið hans mætti KA
mönnum í 1. deildinni í sumar.
Akureyrarliðið sló úrvalsdeildar-
lið FH út í undanúrslitum bikar-
keppninnar og tryggði sér sæti í
úrvalsdeild að ári. Guðmundur
telur það ekki
eiga eftir að hafa
áhrif á leikinn að
liðið sé komið í
úrvalsdeild.
„Ég held að
Fylkismenn eigi
eftir að vinna
þetta. Þegar við
spiluðum við KA
á heimavelli' í
deildinni sögðu
þeir að það væri
ekkert að marka úrslitin vegna
ástands vallarins. Það virðist
bara hafa verið lélegur völlur hjá
þeim en ekki okkur. Við unnum
samt leikinn sannfærandi 3-2. Ég
hugsa því að ef vallaraðstæður
séu KA mönnum að skapi í Laug-
ardalnum geti þeir alveg veitt
Fylkismönnum keppni," segir
Guðmundur hlæjandi, minnugur
þeirra orða sem Þorvaldur Ór-
lygsson þjálfari KA lét falla í
fjölmiðlum eftir leikinn.
„Þeirra helsta vopn er að völl-
urinn verði jafngóður og á Akur-
eyri.“
„Ég ætla að spá 3-1 fyrir Fylki.
Þorvaldur á eftir að skora mark
KA. Bjarni Jóhannsson [þjálfari
Fylkis] kemur líklega ekki við
GUÐMUNDUR
TORFASON
Spáir Fylki örugg-
um sigri.
SIGURSÆLIR
KA menn hafa verið sigursælir í ár. Þeir tryggðu sæti sitt í ún/alsdeild og slógu FH út í
bikarnum. Þeir mæta Fylki á Laugardalsvelli í úrslitum bikarkeppninnar.
sögu í leiknum þannig að Sævar
Þór Gíslason á eftir að skora öll
mörk Fylkis."
Milan Stefán
býst einnig við
hörkuleik. Hann
segir KA menn
eiga eftir að stan-
da sig þótt þeir
hafi spilað deild
neðar en Fylkir.
MILAN STEFÁN , ”BæðÍ Hð “íj®
JANKOVIC Ser S18Ur en Þetta
Segir Fylki geta ^t síðasti séns
lent í sömu vand- Fylkis að koma
ræðum og FH sér í Evi’Ópu-
|enti i- keppnina og þeir
munu leggja allt undir.“
Hann telur að samt að Fylkir
geti lent í vandræðum.
„Þeir eru ekM vanir að sækja,
heldur verjast og beita síðan
skyndisóknum með þessum fljó-
tu leikmönnum frammi. Þeir
verða hinsvegar að sækja á
morgun og eiga eftir að reyna að
skora sem fyrst. Þeir geta lent í
sömu vandræðum og FH lenti í
undanúrslitum."
Hann segir enga stjörnu vera í
KA liðinu, allir leikmenn séu
frekar jafnir.
„Það eru reynslumiklir menn í
vörninni, fljótir framherjar og
miðjan er einnig ágæt. Ég held
samt að Fylkir vinni með eins
marks mun, 1-0 eða 2-1.“
kristjan@frettabladid.is
Owen semur við Liverpool:
Með 16 milljónir í vikulaun
knattspyrna Michael Owen hefur
skrifað undir fjögurra ára samn-
ing við Liverpool, sem færir hon-
um 8,5 til 11 milljónir króna í
vikulaun frá félaginu, en auk þess
er talið að auglýsingatekjur hans
nemi um 5 milljónum á viku.
Owen er því með um 13,5 til 16
milljónir í vikulaun.
„Ég hef aldrei hugsað um neitt
annað en að leika fyrir Liverpool,"
sagði Owen. „Ég er því himinlif-
andi með samninginn. Ég er að-
eins 21 árs gamall og þetta er
fjórði samningurinn éem ég geri
við Liverpool."
Owen átti 18 mánuði eftir af
sínum eldri samning við liðið, en
verður nú hjá því til a.m.k. ársins
2005. Gerard Houllier, fram-
kvæmdastjóri Liverpool, er mjög
ánægður með þá hollustu sem
Owen hefur sýnt liðinu.
„Michael verður lykilmaður í
þessu liði á næstu árum,“ sagði
Houllier. „Það eru margir ungir
og efnilegir leikmenn í Liverpool
og því á liðið aðeins eftir að eflast
á næstu árum." ■
MICHAEL OWEN
„Ég hef aldrei hugsað um
neitt annað en að leika fyr-
ir Liverpool."