Fréttablaðið - 28.09.2001, Page 22
HRAÐSOÐIÐ
PÉTUR KNÚTSSON
lektor
Tala betri
ensku en
þeir skrifa
HEFUR enskukunnátta íslendinga
aukíst síðari ár?
„Enskukunnátta ungs fólks er mun
meiri nú en fyrir nokkrum árum.
Við verðum ekki mikið vör við þessa
breytingu hjá enskunemum í Há-
skólanum en ég held samt að þeir
séu yfirleitt tunguliprari og færari
um að tjá sig á ensku nú en áður. Þó
held ég að ritfærni nýnema sé minni
nú en hún var. Fyrir um 20 árum var
enskukunnátta nýnema að miklu
leyti bundin við ritmálið. Þetta hefur
að miklu leyti snúist við. Nemendur
eru yfirleitt vel talandi og standa sig
vel í samræðum, en þegar þeir
senda frá sér skrifaðan texta líkist
hann oft talmáli og það er langur
#gur frá því að þeir geti skrifað
viðskiptabréf eða umsókn um at-
vinnu.“
HVERSU góð er enskukunnátt-
an samanborið við jafnaldra þessara
nemenda í öðrum löndum sem ekki
eru enskumælandi?
Það er Ijóst að Norðurlöndin, Þýska-
land og Holland, skera sig úr hvað
enskukunnáttu varðar og ensku-
kunnátta nemenda frá rómönsku
þjóðunum og þeim þjóðum sem voru
í áhrifasvæði Sóvetríkjanna er mun
lakari. Þetta finnum hjá þeim vax-
andi fjölda útlendinga sem sækja
nám til okkar. íslendingar standa því
framarlega í flokki á alþjóðavett-
vangi en Bretum og Bandaríkja-
mönnum langt að baki þegar að rit-
færni kemur.“
ER markmið enskudeildar Háskól-
ans að nemendur hafi enskufærni á
við þá sem hafa ensku að móður-
máli?
„BA námið hjá okkur er að mörgu
leyti svipað og í enskudeildum í
enskumælandi löndum. Meginhluti
námsins er þjálfun í akademískri
hugsun og framsetningu, málvísind-
um og bókmenntafræði. Það er alltaf
slangur af enskumælandi nemum
hjá okkur og þeir þurfa að leggja
eins hart að sér og íslendingarnir.
Pétur Knútsson er lektor í ensku máii
við heimspekideild Háskóla fslands.
11 Raflagnir íslands
Sími 511 1122
22
FRETTABLAÐIÐ
28. september 2001 FÖSTUDAGUR
Akeyreyringar gera innrás:
Fótbolti, bítlar og kórlög
helgin Akureyringar gera innrás
í höfuðborgina um helgina. Auk
fótboltaliðs KA sem mætir Fylki
í bikarúrslitaleik á Laugardals-
velli þá sjá Akureyringar um
bítladagsskrá á Broadway í
kvöld og söngskemmtun í Graf-
arvogi á morgun.
Það er karlakór Akureyrar-
Geysis sem mun flytja Bítladag-
skrána undir stjórn Erlu Þórólfs-
dóttur við undirleik hljómsveit-
arinnar „Einn og sjötíu“. Auk
þess verða fluttir þættir úr reví-
unni „Allra meina bót“ eftir þá
bræður Jónas og Jón Múla Árna-
syni en til stendur að setja hana
FRÉTTIR AF FÓLKI
Mörgum brá í brún þegar
SkjárEinn biðlaði til áhorf-
enda um styrk, sem nemur sömu
upphæð og hækkuð áskriftar-
gjöld Stöðvar 2. Margir hefðu
talið heppilegra að ráðast að Rík-
issjónvarpinu en hinum einka-
rekna samkeppnisaðila. Stjórn-
endur Skjás eins segja að fjár-
hagsvandræði hafi ekki rekið þá í
söfnunina heldur sé þetta gert til
að vekja fólk til umhugsunar
hvað það sé að fá fyrir ekki neitt.
Lítill peningur í kassann skemm-
ir heldur ekki til að gera góða
dagskrá betri.
Guðmundur Franklín Jónsson
er vinsæll viðmælandi blaða-
manna vegna sölu Landssímann.
Saga hans í viðskiptalífi íslend-
inga er nokkur.
Meðal annars stóð
hann fyrir því að
íslenskir fjárfest-
ar, þar á meðal
lífeyrissjóðir
landsmanna,
keyptu í banda-
rískri fiskréttar-
keðju árið 1996. Fóru þessir aðil-
ar með um 85% eignarhlut. Litlar
fréttir hafa verið af fyrirtækinu
síðan. Guðmundur átti líka hlut í
Rauðsíðu, fiskvinnslufyrirtæki
fyrir vestan. Reksturinn gekk
ekki að óskum og var frystihús
fyrirtækisins selt á uppboði til
Sparisjóðs Bolungarvíkur. Rauð-
síða var eitt af fyrirtækjum
„Rauða hersins" fyrir vestan sem
fór fram á fyrirgreiðslu frá
Byggðastofnun. Rauði herinn var
á endanum tekinn til gjaldþrota-
skipta.
Matthías Halldórsson, aðstoð-
arlandlæknir, er í leyfi frá
störfum frá 15. september 2001.
Meðan á leyfinu stendur mun
Matthías starfa hjá Evrópusam-
bandinu í Luxemburg þar sem
hann mun sinna lýðheilsumálum.
Frá sama tíma hefur Haukur
Valdimarsson verið ráðinn að-
stoðarlandlæknir. Haukur er sér-
fræðingur í heimilislækningum
og embættislækningum. Hann
hefur starfað sem heilsugæslu-
læknir síðan 1986, síðustu ár sem
yfirlæknir á heilsugæslustöðinni
Hvammi í Kópavogi.
upp á Akureyri. Sérstakir gestir
verða þau Þorvaldur Halldórs-
son og Helena Eyjólfsdóttir.
Markmiðið er að ná upp Sjalla-
stemmingunni einu og sönnu.
Kynnir verður Gestur Einar Jón-
asson, útvarpsmaðurinn óborg-
anlegi.
Tónleikarnir í Grafarvogs-
kirkju eru hefðbundnir karla-
kórstónleikar þar sem íslensk
karlakórslög eru í öndvegi. Þó
verða sungin sýnishorn af ann-
ars konar tónlist, meðal annars í
negrasálma- og Barbershop-stíl.
Undirleikari á þeim tónleikum
verður Richard Sim. ■
AKUREYSK
Erla Þórólfsdóttir söngstjóri Karlakórs Akureyrar-Geysis með kórinn sér að baki.
ALDREI FLEIRI í ÁSGARÐI
Það er mikill listaáhugi í leikfangasmiðum Ásgarðs, eins og þeir sem bregða sér á opið hús á morgun munu komast að.
Lesið í tré
Handverkstæðið Asgarður í Lækjarbotnum er með opið hús á morg-
un. Þar verða leikfangalínur til sýnis en Asgarður fagnar um þessar
mundir átta ára afmæli sínu.
ásgarður „í fyrra bjuggumst við
við hundrað manns en þá mættu
á þriðja hundrað," segir Óskar
Bergmann, formaður nefndar
um opið hús í Ásgarði. Þar vinna
21 við smíði tréleikfanga. „Við
erum með alls kyns leikföng,
bændalínu sem inniheldur t.d.
traktor, bóndabæ og dýr, sjávar-
útvegslínu sem inniheldur t.d.
togara, krana og vörubíl og ævin-
týralínu með ævintýrapersónum,
fuglum og trjám.“
Helstu viðskiptavinir Ásgarðs
eru leikskólar en fólk hringir ein-
nig og pantar leikföng. Hand-
verkstæðið verður átta ára 1.
október. Starfsmennirnir hafa
aldrei verið fleiri en Óskar var
einn af þeim fyrstu. Þegar hann
byrjaði var vinnustofan ennþá í
gömlu Simmasjoppu, sem var
flutt af Suðurgötunni upp í Lækj-
arbotna. Nú er komin ný sjoppa,
úr Grafarvogi, og búið að byggja
við hana.
„Þegar þetta byrjaði var Þór
Ingi Daníelsson, umsjónarmaður
handverkstæðisins, einn. Hann
sat á litlu gólfinu með rauðan
síma við hliðina á sér. Núna erum
við komin í rúmlega 230 fer-
metra húsnæði."
Mörg leikfanganna eru smíð-
uð úr trjám, sem starfsmenn Ás-
garðs höggva niður í görðum.
„Fólk er byrjað að hringja nokk-
uð oft í okkur og biðja okkur um
að höggva niður tré. Þegar við
erum búin að þurrka þau í
nokkra rnánuði kljúfum við þau
og lesum í æðarnar. Þegar við
vitum hvað þær segja þá hefst
sköpunarferlið. Það eru engin
tvö leikföng eins.“
Óskar segir hópinn ekki stun-
da leikfangaverslanir bæjarins
til að athuga samkeppnina. Hann
er ekki hrifinn af verksmiðju-
framleiðslu.
„Við erum lítið að spá í öðrum
leikföngum. Við nýtum sköpun-
arkraftinn beint. Maður má ekki
vera í járnum um að gera eitt-
hvað ákveðið. Það er ekkert gam-
an að búa til sömu brúður í millj-
ónum stykkja."
Það verður líf og fjör í Ás-
garði á morgun. Sönghópurinn
Blikandi stjörnur, sem er nýkom-
inn úr frægðarför til Þýskalands,
flytur lög af væntanlegri plötu
sinni. Einnig verður boðið upp á
kaffi og kökur, harmonikkuspil,
leiklist og ljóðalestur. „Ég ætla
að lesa upp úr ljóðabók, sem ég
var að gefa út. Bókin heitir Ósk-
ar Albertsson og inniheldur sjö
Ijóð. Það er mikill listaáhugi í
okkur hérna. Við erum með leik-
hóp en okkur var boðið að fara til
Helsinki og sýna leikrit í október.
Við ætlum að sýna Hamlet á
hraðferð, tökum hálftíma í helstu
senurnar," segir Óskar og bætir
við að það sé ekki ennþá komið
nafn á hópinn, það sé í nefnd.
Húsið verður opið milli kl. 14
og 17. Hægt er að komast til Ás-
garðs. með því að taka hægri
beygju fyrir ofan Lögbergs-
brekku, rétt fyrir utan Reykja-
vík.
haiidor@frettabladid.is
GRACE
HAUST-
VÖRURNAR
KOMNAR
Suðurlandsbraut 50 (Bláu húsin við Fákafen)
sími 553 0100 -
„Eg er með þrjó jjóðjn brandara
sem bú getur eyoiÍaþY fyrir mér
veisiunm. Viiiu neyrö þá?"
fT
sjj) oS3*.