Fréttablaðið - 01.10.2001, Side 6
SPURNING DAGSINS £
FRÉTTABLADIÐ
1. október 2001 MÁNUDAGUR
Ætlar þú að styðja Skjá 1 í
fjársöfnun þeirra?
„Nei. Út af því að við búum í hverfi sem við
getum hvort eð er ekkert horft á Skjá 1,
þannig að það þýðir lítið. Við eigum ekki
einu sinni sjónvarp!"
Elena Teuffer
Þýðandi
HUSNÆÐI ANZA
Fyrirtækið var til við samruna Álits, Netts,
Miðheima og Veftorgs snemma sumars.
Helstu eigendur fyrirtækisins eru Lands-
síminn og Talenta-Hátækni.
15 af 130 starfsmönnum
sagt upp:
Kristniboðsréttarhöldin í Afghanistan:
Réttlæti lofað
kabOl.ap Réttarhöld yfir 8 hjálpar-
starfsmönnum, sem sakaðir eru
um tilraunir til þess að turna mús-
límum til kristinnar trúar, hófust
að nýju í Kabúl, höfuðborg Af-
ghanistan, í gær, eftir hlé frá því
árás var gerð á Ameríku 11. sept-
ember. Þeim var lofað réttlátum
réttarhöldum og því að hótun
Bandaríkjastjórnar um árás á Af-
ghanistan myndi engin áhrif hafa
á þau. Sex hjálparstarfsmannanna
tilheyra þýskri hjálparstofnun,
Shelter Now International, en ein-
nig eru í haldi tvær bandarískar
konur. Sakborningarnir sam-
þykktu að Atif Ali Khan, lögmað-
ur frá Pakistan, yrði skipaður
verjandi þeirra, og hefur hann 15
daga til þess að undirbúa vörn
þeirra. Samkvæmt lögum talibana
getur refsingin orðið útvísun,
fangelsisvist eða dauðadómur. 16
Afghanar voru handteknir með
erlenda hjálparstarfsfólkinu og
verða réttarhöld haldin yfir þeim
sérstaklega, að sögn talibana. ■
LÖGMAÐUR HJÁLPAR-
STARFSMANNANNA
Atif Ali Khan verjandi hjálpar-
starfsmannanna fyrir framan
dómshúsið í gær þegar málið
var tekið fyrir á nýjan leik.
Keflavík:
Erill hjá
lögreglunni
LÖGREGLUMÁL Talsverður erill var
hjá lögreglunni í Keflavík aðfara-
nótt sunnudags vegna líkamsárás-
ar, umferðarlagabrota og eigna-
spjalla.
Karlmaður var tekinn fastur
vegna líkamsárásar í Grindavík
og tveir ökumenn voru stöðvaðir
grunaðir um ölvun við akstur.
Annar ökumannanna er aðeins 16
ára og því enn nokkuð í að hann
hampi ökuskírteini. Þá voru rúður
brotnar í húsi við Faxabraut í
Keflavík og bíl sem stóð fyrir
framan húsið. ■
Tillögur kalla á stjórn-
cirskrárbreytingar
Samfylkingin boðaði til fundar í Þjóðmenningarhúsinu við Hverfisgötu íReykjavík til að kynna
helstu áherslumál þingflokksins á Alþingi sem er að heQast í dag.
BLAÐAMANNAFUNDUR SAMFYLKINGAR
F.v. Jóhanna Sigurðardóttír, Bryndís Hlöðversdóttir og Jóhann Ársælsson. Fram kom að á þinginu verði lagt fram I sjöunda sinn frumvarp
um fjárreiður stjórnmálaflokkanna.
Uppsagnir
hjá Anza
uppsagnir 15 af um 130 starfs-
mönnum upplýsingafyrirtækisins
Anza var sagt upp störfum síðast
liðinn föstudag og voru nokkrir
þeirra látnir hætta störfum sam-
stundis. Uppsagnirnar komu á
óvart og hafa valdið nokkurri óá-
nægju en því hafði verið lýst yfir
eftir að Anza varð til við samruna
fjögurra fyrirtækja 1. júlí s.l. að
ekki yrði um neinar uppsagnir að
ræða.
Guðni B. Guðnason, fram-
kvæmdastjóri Anza, segir að upp-
sagnirnar tengist ekki samrunan-
um í sumar og að væntanlega
hefðu öll fyrirtækin sem runnu
saman í Anza orðið að skera niður
þó svo ekki hefði orðið af samrun-
anum. Hann segir að milliuppgjör
hafi sýnt verri afkomu en áætluð
hefði verið og hefði því þurft að
bæta rekstrarstöðu fyrirtækisins,
meðal annars með því að fækka
starfsfólki. Að auki yrði reynt að
draga úr öðrum rekstrarkostnaði
og hagræða eftir megni en einn
liður í því er að sameina starfsem-
ina undir eitt þak. Aðspurður
hvers vegna sumir starfsmenn
hefðu verið látnir hætta sam-
stundis sagði Guðni að fyrirtækið
ynni eftir ákveðnum öryggisstaðli
og menn hefðu talið best fyrir alla
að menn sem hefðu aðgang að
tölvukerfum og viðkvæmum upp-
lýsingum hættu strax. ■
stjórnmál Nokkur mál sem Sam-
fylkingin ætlar að leggja fram á
þingi kalla á breytingar á stjórn-
arskrá. Það eru breytingar á lög-
um um Landsdóm,
um ráðherraá-
byrgð og að bætt
verði við Stjórnar-
skránna ákvæði
um auðlindir í
þjóðareigu. Sam-
fylkingin kynnti
helstu áherslumál
þingflokks síns á
blaðamannafundi í
Þjóðmenningar-
húsinu í gæi’, en
fram kom að meg-
in áherslan yrði
lögð á þrjá málaflokka: Umhverf-
ismál, stjórnsýslu, og sjávarút-
vegsmál.
Bryndís Illöðversdóttir kynnti
umhverfismálin og sagði að til
stæði að leggja fram þingsálykt-
unartillögu um kortlagningu á
náttúru íslands, en það væri
grunnurinn til að meta þau verð-
mæti sem í náttúrunni fælust og
fá viðmið sem fara mætti eftir við
mat á umhverfisáhrifum. Verk-
efnið sagði hún að gæti tekið upp
undir 10 ár. Þá verði lögð frarn
þingsályktunartillaga um að hóp-
ur sem vinnur að rammaáætlun
um mat á virkjanakostum skili
bráðabirgðaskýrslu, en vinnu
hópsins lýkur ekki fyrr en næsta
haust. Þetta verði gert til að meta
megi sem fyrst þá virkjanakosti
sem í umræðunni eru.
Jóhanna Sigurðardóttir fjallaði
um og lagði fram fyrirætlanir um
breytingar á lögum um skipan op-
inberra framkvæmda, heildar-
endurskoðun á lögum um ráð-
herraábyrgð og um Landsdóm,
sem hún telur úrelt. „Við viljum
athuga hvort ekki beri að leggja
Landsdóm af og koma hlutverki
hans yfir á almenna dómsstóla,"
sagði hún, en tiltók að málshöfð-
unarrétturinn yrði áfram í hönd-
um þingsins. Þó vildi hún auka
rétt minnihlutans til málshöfðun-
ar frá því sem nú er. Þá kom fram
að fram verði lagðar tillögur að
þingsályktunum um siðareglur
fyrir þingmenn og einnig í stjórn-
sýslunni.
Jóhann Ársælsson fjallaði um
sjávarútvegsmál undir yfirskrift-
inni: réttlæti eða gjafakvóti. Hann
sagði að Samfylkingin legði fram
heildarstefnu í sjávarútvegsmál-
um þar sem miðað væri að afnámi
gjafakvóta með fyrningarleið
veiðiréttinda. Jafnframt yrðu
lagðar til breytingar á stjórnar-
skrá þar sem bætt yrði við ákvæði
um auðlindir í þjóðareign. Þá kom
fram í máli hans að kallað verði
eftir skýrslu um hvað hin ýmsu
byggðarlög hafa verið að greiða
fyrir aðgang að fiskveiðiheimild-
um sl. fimm ár. Jóhann sagði það
gert til að bregðast við skýrslu
LÍÚ um mögulegan kostnað auð-
lindagjalds fyrir byggðir lands-
ins. „Til að menn sitji ekki uppi
með fáránlega skekkta mynd sem
LÍÚ hefur verið að reikna fram í
tírnann," sagði hann.
oli@frettabladid.is
Talsmenn
Samfylkingar-
innar búast
við hörðum
umræðum á
þinginu um
sjávarútvegs-
málin og ein-
nig um siða-
reglur og fjár-
mál stjórn-
málaflokka.
—♦—
Arnbjörg Sveinsdóttir um
stefnumörkun í skatta-
málum:
Minni álögur
efla efnahagslíf
skattamál Arnbjörg Sveinsdóttir,
einn þingmanna Sjálfstæðisflokks
í fjárlaganefnd, segir stefnu-
mörkun í skattamálum nokkuð
sem þurfi að ræða fyrst í þing-
flokki og ríkisstjórn. „Það sem við
höfum verið að ræða um er að
skatttekjur hafa aukist þrátt fyrir
lækkað skatthlutfall og við viljum
halda áfram á þeirri braut.“ Arn-
björg segir lækkaðar álögur
verða til þess að bæði fyrirtæki
og einstaklingar noti peningana til
að efla efnahagslífið á annan hátt.
Hún en taldi að síður kæmi til
greina að breyta persónuafslætti.
„Hann hefur auðvitað setið eftir,
en hreyfingarnar í honum hafa
svo lítil stór áhrif. Þar gerir hver
króna svo lítið fyrir einstakling-
inn en kostar mikið í öllu kerfinu,"
sagði Arnbjörg. ■
Nýtt úrræði hjá Félagsþjónustu Reykjavíkur:
Ungt fólk fær námsstyrki
FÉLAGSMÓNUSTAN Hjá Félagsþjón-
ustunni í Reykjavík og Miðgarði -
fjölskylduþjónustunni í Grafar-
vogi hefur ungu fólki staðið til
boða að fá námsaðstoð til að ljúka
annað hvort stúdentsprófi eða
starfsnámi. Að sögn Láru Björns-
dóttur, félagsmálastjóra Reykja-
víkurborgar, eiga þeir kost á að-
stoð sem eru einstaklingar 18-24
sem ekki hafa lokið grunnskóla
eða menntaskóla vegna félags-
legra erfiðleika, einstæðir foreldr-
ar 18-24 ára með árstekjur undir
720.000 kr. og einstaklingar sem
hafa verið atvinnulausir eða þegið
fjárhagsaðstoð í 6 mánuði eða
lengur. Þá geta unglingar 16 og 17
ára í foreldrahúsum sótt um að-
stoð ef tekjur foreldra eru undir
viðmiðunarmörkum.
Félagsþjónustan lét gera könn-
un á því hvernig námsaðstoðin
hefur nýst þeim 424 einstakling-
um sem hana þáðu á árunum 1999
til 2000. Reyndar var brottfallið
nokkuð mikið í könnuninni en
svarhlutfall var 28% eða 99
manns. Markmiðið með könnun-
inni var að afla ýmissa nýrra upp-
lýsinga t.d. um gengi í námi, hver-
su margir séu í námi núna o.fl. f
ljós kom að meirihluti þátttakenda
eru konur eða 78% á aldrinum 18-
24 ára. Um 78% eru ógiftir eða
ekki í sambúð. Nær allir þátttak-
endur eða 99% hafa lokið grunn-
skólaprófi, 97% hafa lokið ein-
hverju námi í framhaldsskóla og
23% hafa lokið stúdentsprófi. 15%
svarenda hafa farið í háskólanám,
67% þeirra eða um 10 manns eru í
námi núna.
Lára sagði námsaðstoðina fel-
ast í því að menn fái fjárhagsað-
stoð í kringum 63.000 ki’ónur á
mánuði auk þess sem innritunai’-
gjöld eru greidd og kostnaður fyr-
ir skólabókum. Á þessurn tímabili
þurfi menn ekki að stimpla sig
vikulega heldur sýna árangurs-
skýrslu í lok annar. Fram kemur
hjá svarendum að námið hafi veitt
þeim ánægju með sjálfa sig eða
82% og 75% svarenda segja að
námið hafi gefið þeim aukin tæki-
færi í lífinu. Flestir þátttakendur
eru með ákveðin framtíðaráform
hvað varðar frekara nám. Um 81%
eru einnig með ákveðin áform
hvað varðar vinnu. Lára sagði
þessa námsaðstoð vera hina sann-
kölluðu sjálfshjálp. „Við erum
mjög stolt af ákvörðun Reykjavík-
urborgar og félagsmálaráðs að
samþykkja þessa námsaðstoð því
við teljum að mennt sé rnáttur."
kolbrun@frettabladid.is
MENNT ER MÁTTUR
I könnunni komu fram athugasemdir
notenda þar segir m.a.: „Ég er mjög
þakklát fyrir að fá þessa námsaðstoð
því ég hef séð um mig sjálf frá 17 ára
aldri og sá ekki fram á að ná stúd-
entsprófi fyrr en ég heyrði af þessu."