Fréttablaðið - 01.10.2001, Side 14
14
FRÉTTABLAÐIÐ
1. október 2001 MÁNUDAGUR
THIERRY HENRY
MARKAHÆSTU LEIKMENN
Leikmaður Lið Mörk
Thierry Henry Arsenal 6
Jimmy F. Hasselbaink Chelsea 6
Christian Ziege Tottenham 4
Ruud van Nistelrooy Man. Utd. 4
David Beckham Man. Utd. 4
Kevin Campbell Everton 4
Michael Ricketts Bolton 4
Kevin Phillips Sunderland 4
Teddy Sheringham Tottenham 3
Nial Quinn_________Sunderland 3
Undankeppni HM 2003:
Island tapaði illa fyrir Spánverjum
knattspyrna Eftir sigurleik gegn
ítölum og jafntefli við Rússa tap-
aði íslenska kvennalandsliðið í gær
illa fyrir Spánverjum. Leiknum,
sem fór fram í Teurel skammt frá
Madrid, lauk með 6-1 sigri Spánar,
en staðan í hálfleik var 3-0.
Margrét Ólafsdóttir skoraði
mark Islands á 63. mínútu og
minnkaði þá muninn í 4-1, en
Spánverjarnir bættu bara í og
UNPANKEPPNI HM 2003
Félag L U J T Mörk Stig
fsland 3 1 1 1 4:8 4
Spánn 1 1 0 0 6:1 3
Rússland 1 O 1 0 1:1 1
Ítalía 1 O 0 1 1:2 O
bættu við tveimur mörkum á
lokamínútum leiksins. Næsti leik-
ur í riðlinum verður þann 10. októ-
ber, þegar Ítalía og Rússland
mætast, en næsti leikur íslands
verður ekki fyrr en þann 18. maí á
næsta ári, en þá heldur liðið til
Rússlands. Síðustu tveir leikir ís-
lands verða síðan gegn Spánverj-
um á heimavelli 30. maí og ítölum
á útivelli þann 8. júní. ■
ENGINNFÖGNUÐUR
(slensku stúlkurnar, sem fögnuðu
innilega jafnteflinu á móti Russ-
um fyrir skömmu, höfðu litla
ástaeðu til að fagna frammistöðu
sinni gegn Spánverjum, þar sem
liðið tapaði 6-1.
Nissandeildin:
Haukar
unnu IBV
HANDKNATTLEIKUR íslandsmeistarar
Hauka burstuðu ÍBV 36-27 í gær-
kvöld en þá fóru fram síðustu þrír
leikirnir í annarri umferð íslands-
mótsins í handbolta. Haukar, Valur,
Grótta KR og Þór eru í efsta sæti
deildarinnar með 4 stig, en Fram,
FH og Víkingur eru enn án stiga. ■
2. UMFERP
Stjarnan - Víkingur 32-22
Haukar - ÍBV 36-27
UMFA - Grótta KR 22-25
Selfoss - Fram 30-28
Pór - FH 28-26
HK - KA 23-23
fR - Valur 22-26
San Francisco Giants:
„Löngu tímabært að
vinna einhverja dollu“
Fylkir sigraði KA í vítaspyrnukeppni í bikarúrslitunum á laugardaginn. Finnur Kolbeinsson,
fyrirliðið Fylkis, sagðist vera ánægður með sumarið og að líklega yrði stefnan sett á Islandsmeist-
aratitilinn á næsta ári.
knattspyrna Fylkir krækti í sinn
fyrsta stóra titil á laugardaginn,
þegar liðið sigraði KA í hörku-
spennandi bikarúrslitaleik á
Laugardalsvellinum. Finnur Kol-
beinsson, fyrirliði Fylkis, sagði að
KA-mennirnir hefðu kannski ver-
ið aðeins sprækari en hann hefði
búist við þó þeir hefðu ekki komið
honum á óvart. Þeir hefðu bakkað
og beitt skyndisóknum og það
hefði gefið góðan árangur. Finnur
var að vonum ánægður með ár-
angurinn,
„Þetta er frábært," sagði Finn-
ur. „Það var löngu orðið tímabært
að vinna einhverja dollu enda
erum við margir búnir að vera í
þessu lengi með Fylki. Leiðin hef-
ur legið upp á við undanfarið og
þetta er náttúrlega toppurinn og
nú held ég að menn vilji bara
halda þessu áfram og koma með
fleiri titla í Árbæinn."
Staðan að loknum hefðbundn-
um leiktíma var 2-2, en KA komst
tvisvar sinnum yfir í leiknum.
«íþróttaskóli Hauka
-Leikjaskóli barnanna
Laugardaginn 29. september hófst vetrarstarf íþrótta-
skóla Hauka á Ásvöllum fyrir börn á aldrinum 2-5 ára.
Lögð er áhersla á eflingu hreyfiþroska barnanna og að
kynna þeim á lifandi og skemmtilegan hátt gildi leikja
og íþrótta.
Yfirkennari er Guðbjörg Norðfjörð íþróttakennari
Kennt verður í tveimur hópum - yngri og eldri.
Yngri hópurinn mæti kl 9:30 og sá eldri kl. 10:15.
Skráning er hafin á Ásvöllum í síma 525 8700
og á netinu haukar@haukar.is
• Menntaðir reynslumiklir þjálfarar leiða starfið !
• Enn er pláss fyrir nokkur börn !
• Foreldrar munið: Lengi býr að fyrstu gerð !
10 vikna námskeið kostar kr. 3500.-
Aðalstyrktaraðili skólans er Sjóvá-Almennar í Hafnarfirði
Skólastjórn
sjóvá^Ialmennar
Akstur og áfengi fara alc
Nýttmet
í uppsiglingu
hafnabolti Hafnaboltamaðurinn
Barry Bonds, sem leikur fyrir San
Francisco Giants, er um það bil að
skrifa nafn sitt í íþróttasögu
Bandaríkjanna. Hann er aðeins
einu heimahafnarhlaupi frá því að
bæta met sem Mark McGwire
setti fyrir þremur árum.
Bonds hefur slegið boltann 69
sinnum út fyrir endamörk vallar-
ins, en McGwire, sem á sínum
tíma bætti 37 ára gamalt met
Roger Maris, sló boltann 70 sinn-
um út fyrir endamörkin. Maris
gerði það hins vegar 61 sinni.
Bonds náði 69. heimahafnar-
hlaupinu í leik gegn San Diego Pa-
dres um helgina, en Giants eiga
eftir að leika fjóra leiki á þessari
leiktíð og því verður að teljast lík-
legt að Bonds nái að jafna metið
eða jafnvel bæta það. ■
Fyrsta markið kom á 34. mínútu
en þá skallaði Hreinn Hringsson
boltann í markið eftir góða fyrir-
gjöf frá Dean Martin. Sverrir
Sverrisson jafnaði metin á 49.
mínútu með skallamarki eftir
aukaspyrnu Ólafs Stígssonar, en
KA komst aftur yfir á 57. mínútu,
þégar Hreinn skoraði úr víta-
spyrnu, eftir að Kjartan Sturlu-
son, markvörður Fylkis, hafði
brotið klaufalega á Þorvaldi Mak-
an Sigbiörnssyni. Á 71. mínútu
jafnaði Ölafur Stígsson metin fyr-
ir Fylki, þegar hann skallaði
knöttinn í netið eftir hornspyrnu.
í framlengingunni gerðist fátt
markvert og því þurfti að grípa til
vítspyrnukeppni. Leikmenn lið-
anna skoruðu úr 9 fyrstu spyrnun-
um og var því staðan 7-6 fyrir
Fylki þegar Dean Martin, leik-
maður KA, tók 10. spyrnuna.
Kjartan gerði sér lítið fyrir og
varði spyrnu Martin og tryggði
Árbæjarliðinu þar með fyrsta
stóra titilinn í sögu félagsins.
Aðspurður sagðist Finnur vera
mjög ánægður með árangur Fylk-
is í sumar.
„Þettar hefur verið besta tíma-
bilið í sögu félagsins. Við
komumst áfram í evrópukeppn-
inni og urðum bikarmeistarar.
Reyndar tókum við smá feilspor í
deildinni en bætum vonandi fyfif
það á næsta ári. Þá verðum við
reynslunni ríkari og vitum að það
MARKVÖRÐURINN OG FYRIRLIÐINN
Kjartan Sturluson, markvörður Fylkis og Finnur Kolbeinsson fyrirliði fagna fyrsta stóra titli
Fylkis I knattspyrnu.
er ekki nóg að standa sig bara vel
hálft mótið.“
Finnur sagði að svo lengi sem
ekki yrðu miklar mannabreyting-
ar hjá Fylki í vetur myndi liðið
líklega setja stefnuna á íslands-
meistaratitillinn á næsta ári.
Hann sagði að það eina sem væri
öruggt núna væri að Ólafur Ingi
Skúlason færi til Arsenal.
„Maður veit síðan aldrei hvað
gerist með menn eins og Ólaf
Stígsson og Sævar Þór (Gíslason).
Þeir hafa staðið sig vel í sumar,
þannig að það er aldrei vita nema
þeir fái einhver tilboð að utan.“ ■
Formúla 1:
Enska Úrvalsdeildin:
Hakkinen fagnaði
sigri í Bandaríkjunum
KAPPAKSTUR Finninn Mika
Hakkinen, ökumaður McLaren,
sem tilkynnti fyrir skömmu að
hann hygðist hætta í Formúlu 1
eftir þetta tímabil, sigraði í Indi-
anapolis kappakstrinum í Banda-
ríkjunum í gær. Hakkinen, sem
átti að ræsa annar, var færður aft-
ur í fjórða sæti eftir að hafa ekið
yfir á rauðu ljósi á æfingu.
Kappaksturinn var æsispenn-
andi, en Rubens Barrichello, öku-
maður Ferrari, gerði harða atlögu
að Hakkinen og á síðustu hringj-
unum munaði ekki nema 3 sek-
úndum á þeim. En þegar skammt
var eftir í mark gaf Ferrari-vélin
sig og Barrichello þurfti að hætta
og þar með var 20. sigur Hakk-
inen á ferlinum staðreynd.
Michael Schumacher, hjá Ferr-
ari, lenti í öðru sæti og David
Coulthard, félagi Hakkinen hjá
McLaren í því þriðja. Báðir öku-
menn Williams þeir Ralf
Schumacher og Juan Pablo
FINNINN FUÚGANDI
Mika Hakkinen fagnaði slnum 20. sigri á
ferlinum I Bandarlkjunum f gær.
Montoya féllu úr keppni þegar
kappaksturinn var u.þ.b. hálfnað-
ur.
Lokakeppnin í Formúlu 1 verð-
ur í Japan þann 14. október ■
FQRMÚLA - £fSTil_M£NN
ökumenn Lið Stig
1. Michael Schumacher Ferrari 113
2. David Coulthard McLaren 61
3. Ruben Barrichello Ferrari 54
4. Ralf Schumacher BMW-Williams48
5. Mika Hakkinen McLaren 34
6. Juan Pablo Montoya BMW-Williams25
Ötrúlegur leikur
hjá Man. Utd.
knattspyrna Man. Utd. sannaði
það enn og aftur á laugardaginn
gegn Tottenham á útivelli að leik-
urinn er ekki búinn fyrr en flaut-
að hefur verið til leiksloka. Leik-
menn Tottenham mættu mjög
ákveðnir til leiks og komust í 3-0 í
fyrri hálfleik og virtist aðeins
formsatriði að ljúka leiknum.
Lærisveinar Alex Ferguson
komu hins vegar ákveðnir til leiks
í síðari hálfleik og eftir 22 mínút-
ur voru þeir búnir að skora 4
mörk og komnir með forystu í
leiknum. Fimm mínútum fyrir
leikslok bætti David Beckham
síðan fimmta markinu við og 5-3
sigur var því staðreynd. ■
ENSKA ÚRVALSPEILDIN
Bolton - Sunderland 0-2
Charlton - Leicester 2-0
Derby - Arsenal 0-2
Everton - West Ham 5-0
Middlesbro - Southampton 0-3
Tottenham - Man. Utd. 3-5
Aston Villa - Blackburn 2-0
Newcastle - Liverpool 0-2
Fulham - Chelsea i-i
Ipswich - Leeds 1-2