Fréttablaðið - 01.10.2001, Síða 8

Fréttablaðið - 01.10.2001, Síða 8
8 .ti FRÉTTABLAÐIÐ 1. október 2001 MANUDACUft • Debenhams í Smáralind: Stórar og smáar konur geta fundið fatnað við hæfi DEBENHAMS Starfstólk Debenhams sat á námskeiðum í tvær vikur og sagði Bryndís það vera skila sér núna. Starfsfólkið sé í óða önn að gera verslunina klára fyrir opnuna 10. október og sé það kappsfullt og fullt tilhlökkunar. Reykjavík: A slysadeild efitir slagsmál átök Talsverður erill var í miðbæ Reykjavíkur aðfaranótt sunnu- dags. Einn maður var fluttur á sjúkrahús með höfuðáverka eftir að til slagsmála kom fyrir framan skemmtistaðinn Glaumbar í Tryggvagötu. Sparkað var í höfuð mannsins og féll hann við það, lenti á hnakkanum og missti með- vitund. Tveir menn voru hand- teknir af lögreglu vegna atviks- ins. Öðrum þeirra var fljótlega sleppt að loknum yfirheyrslum en hinn maðurinn var vistaður í fangaklefa. ■ viðskipti Verslunin Debenhams er hluti af breskri verslunarkeðju og opnar nú í fyrsta sinn á íslandi í Smáralind 10. október nk. Að sögn Bryndísar Hrafnkelsdóttur, fram- kvæmdarstjóra Debenhams, ganga framkvæmdir mjög vel og sagði hún fulltrúa frá Bretlandi komna til landsins til að aðstoða og kenna starfsfólki að framstilla vörum og raða í hillur. Debenhams-verslunin skiptist í tvær hæðir. Að sögn Bryndísar verður efri hæðin eingöngu til- einkuð konum. Þar geti þær fundið sér fatnað, snyrtivörur, undirfatn- að og ýmiss konar fylgihluti. Að- spurð um hvort allar konur stórar jafnt sem smáar gætu fundið eitt- hvað við sitt hæfi sagði Bryndís svo vera. „Við erum með stærðir frá númer 8-20 í flestum merkjum og svo eru deildir fyrir stærri kon- ur þar sem númerin fara upp í 54.“ Bryndís sagði að á neðri hæðinni væri að finna fatnað á karlmenn og börn frá aldrinum 0-14 ára. Væri það sama upp á teningnum og fyr- ir konur hvað varðaði fatnað og fylgihluti. Þá verður einnig heimil- isdeild og verður m.a. hægt að finna ýmsar smávörur inn á baðið og rúmfatadeild. „Við leggjum áherslu á að fólki finnist gott að versla í Debenhams en lögð verður áhersla á þægilegar gönguleiðir innan verslunarinnar og greiðan aðgang að vörunum sjálfum." ■ Össur Skarphéðinsson: Skattalækk- anir aðeins á lítil og meðal- stór fyrirtæki skattamál „Ein leið til að smyrja gangvirki efnahagslífsins, við erf- iðar aðstæður eins og skapast hafa nú, er að skoða skattalækk- anir. Þó aðeins á lítil og meðalstór fyrirtæki" segir Össur Skarphéð- insson, formaður Samfylkingar- innar. Hann segir að til greina komi að veita tímabundnar skattaívilnanir, til atvinnugreina þar sem sprotafyrirtæki eru fjöl- menn. Líkt og þekkingariðnaðar- ins, sem á í vök að verjast um þessar mundir. Auk þess að af- nema óréttláta skatta, eins og stimpilgjald. Vissulega sé umdeil- anlegt að lækka skatta á fyrir- tæki. Samþykki Samfylkingarinn- ar við þeim aðgerðum, yrði að byggja á vissu um, að tímabundið tekjutap ríkisins vegna slíkra lækkana myndi vinnast margfalt upp vegna aukinna umsvifa þeir- ra fyrirtækja sem fengju að njóta skattalækkana. „Við teljum að samhliða lækkun skatta, þyrfti einnig, að lækka tekjuskatta þeir- ra sem allra verst eru staddir. Af- nema þyrfti skatta á fjárhagsað- stoð sveitarfélaga og húsaleigu- bætur,“ segir Össur. ■ STUTT andbúnaðarráðherra hefur ákveðið að heimila skotveiði- mönnum aðgang að nokkrum jörðum í eigu ríkisins á komandi rjúpnaveiðitímabili 2001. Um er að ræða 11 jarðir í umsjá jarða- deildar landbúnaðarráðuneytisins og Skógræktar ríkisins sem allar eru eyðijarðir.. Upplýsingar um einstakar jarðir fást í afgreiðslu landbúnaðarráðuneytisins og á heimasíðu þess www.landbunad- arraduneyti.is. —♦— OPEC-ríki féllust á það á fundi í Vín á föstudag að halda framleiðslu ríkjanna óbreyttri, þrátt fyrir mikið verðfall á olíu í kjölfar árása hryðjuverkamanna á Bandaríkin. Vegna minnkandi eftirspurnar og óvissu um hvaða áhrifa væntanlegar aðgerðir gegn hryðjuverkamönnum munu hafa, verður framleiðslan endur- skoðuð 14. nóvember. Þá verður dregið úr framleiðslunni ef það verður talið nauðsynlegt. —♦— Seðlabankinn greip inn í gjald- eyrismarkað á föstudagsmorg- un og keypti dollara fyrir einn milljarð króna. Við þetta styrktist krónan um 2%, en þegar leið á daginn veiktist hún aftur og end- aði með 1,2% styrkingu. Seðla- bankinn hefur gengið frá erlendu láni upp á 25 milljarða sem ákvörðun var tekin um í júní. Við lokun markaða á föstudag hafði krónan lækkað um rúm 17% frá áramótum. Skölabní VEITINGAHÚS Brot af matseðíi: Höfrunga carpaccio Grafín gæsabringa Pönnusteiktur túnfískur Koníaksbætt humarsúpa Stokkandarseyði með andasoufflé Eldsteiktur humar Ristuð risa hörfmskel, tígrisrækjur og humarhalar Svartfugls- og skarfabringur i pörtvíns-súkkulaðisósu Kryddlegitttt Íatttbahryggjarvöðvi , n .v ^ í M.: > Stokkandar- og atiandarbringa með kókos og engifer (gæsabringdktteð karmellubökuðu cfdi og gráðostasósu ...„a .‘Tru..... 'di.A_. Súlubringameð villtum skógarberjum IV,] 'reíMBÍr* og fteirri frábærir réttir! V.' Borðapantanir S k ó I a b r ú 1 , síma: 562-4455 vió Austurvöll HORFT TIL MÖÐRUVALLA Á myndinni sést húsa- þyrpingin eins og hún er hugsuð I tillögum Cuð- rúnar Jónsdóttur arkitekts að deiliskipulagi. Eina húsið sem þarf að byggja frá grunni er Friðriksgáfa sem stendur eilítið utan við þyrpinguna. Miklar breytingar og lagfæringar þarf að gera við Leikhúsið og Stefánsfjós. Stórhuga hugmynd- ir um uppbyggingu Nú eru uppi hugmyndir um að byggja upp fræðasetur á Möðruvöllum í Hörgárdal. Búið er að gera deiliskipulag fyrir svæðið. Þar er gert ráð fyrir uppbyggingu og endurbótum á húsum og margháttaðri þverfag- legri starfsemi í fjölnota húsakynnum. fræðasetur Á undanförnum árum hefur átt sér stað uppbygging á hinu forna frægðarsetri á Möðru- völlum í Hörgárdal. Sú uppbygg- ing hefur verið á vegum Rann- sóknarstofnunar land- búnaðarins sem rekur búið á Möðruvöllum og Prestsetrasjóðs en staðurinn er prestset- ur. Nú er hugur í mönnum að halda upp- byggingu áfram og hyggjast sóknarprest- ur og sóknarnefnd Möðruvallaklausturs- prestakalls, Rann- sóknastofnun Land- búnaðarins og Mennta- skólinn á Akureyri, sem stofnaður var á Möðruvöllum, sækja um fé til Kristnihátíð- arsjóðs í verkefnið. Guðrún Jónsdóttir arkitekt hefur gert til- lögu að deiliskipulagi sem gerir ráð fyrir að Stefánsfjós, kennt við Stefán Stefánsson náttúrufræðing, verði safnahús með myndar- legu flórusafni, en Stefán ritaði fyrstu Flóru íslands á Möðru- völlum. Ráðsmanns- húsið verður gesta- móttaka og gistiað- staða og í Leikhúsinu gamla frá 1881 er gert ráð fyrir kaffistofu. Þessi hús þarf að end- urbæta og breyta. í Friðriksgáfu er gert ráð fyrir fræðasetri og safnaðarheimili. Þar yrði hægt að halda ráðstefnur um efni sem tengjast sögu staðar- ins, auk þess sem það getur nýst sem kyrrðarsetur. Einnig er þar gert ráð fyrir vinnustofum og fræðimannsíbúð. Endurbygging Friðriksgáfu er umfangsmesti lið- ur fyrirhugaðra fram- kvæmda. Húsið var byggt árið 1826 eftir bruna amtmannshússins. Friðrik VI. Danakonung- ur gaf tígulstein í húsið og dró það nafn sitt af því. Eftir að Friðriksgáfa brann var steinninn not- aður í skólahúsið á Möðruvöllum sem reist var 1880. Þegar það brann var hann notaður í Stefánsfjós og er hann þar enn. Séra Solveig Lára seg- ist mjög bjartsýn á fram- kvæmdirnar. „Allir hafa sýnt þessu mikinn áhuga og nú þegar er komin fjárveiting til að breyta vegi og aðkomu að staðn- um.“ Hún segir afar mik- ilvægt að hægt sé að nýta staðinn allan ársins hring og bendir á nálægðina við skólabæinn Akureyri. Á sumrin er mikill straum- ur ferðamanna til Möðru- valla og gert er ráð fyrir að hann muni aukast. „Staðurinn býður upp á þetta," segir séra Solveig. „Staðurinn og sagan finnst mér krefjast þess að hafa reisn.“ steinunn@frettabladid.is HÁPUNKTAR í SÖGU MÖÐRUVALLA í HÖRGÁRDAL Kirkjusaga Klaustur af Ágústfnusarreglu var stofnað árið 1296 og starfaði með hléum til siða- skipta. Talið er að kirkja hafi verið á staðnum allt frá kristnitöku en prestsetur hefur verið þar frá 1907 Stjórnmálasaga Frá upphafi bjuggu voldugir höfðingjar á Möðruvöllum. Klaustrið var einnig voldugt og átti mikla eignir. Amtmannssetur var á staðnum á árunum 1783 til 1874 og voru Möðruvellir þá höfuðstaður Norðurlands. Skólasaga Stofnaður var gagnfræðaskóli á Möðru- völlum árið 1880 og var sá skóli undan- fari Menntaskólans á Akureyri. Skólinn starfaði í 22 ár. Náttúrufraeði Á tfmum skólans störfuðu á Möðruvöllum merkir náttúrufræðingar svo sem Stefán Stefánsson sem skrifaði fyrstu Flóru [s- lands og Ólafur Davfðsson sem einnig var þjóðsagnasafnari. Eftir að Rannsóknar- stofnun Landbúnaðarins tók við búið á staðnum var þráðurinn f náttúrufræði- og landbúnaðarrannsóknum tekinn upp. Bókmenntasaga Ástsæl skáld hafa búið á Möðruvöllum og önnur tengjast staðnum. Bjarni Thoraren- sen var amtmaður á Möðruvöllum og orti þar mörg sín fegurstu Ijóð. Hannes Haf- stein er þar fæddur og sömuleiðis Jón Sveinson (Nonni).

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.