Fréttablaðið - 01.10.2001, Page 16
FRÉTTABLAÐIÐ
YFIR CEISLANUM
16
1. október 2001 MÁNUDACUR
„Ég er að hlusta sonettur Beethovens.
Ég keypti nótumar lika til þess að spila
með. Helvíti góð sonetta. Ég fékk æði
aftur fyrir Beethoven í sumar."
r filtubes a
FULLKOMIÐ ÚTLIT
Ben Stiller skrifar, leikstýrir og leikur aðal-
hlutverkið í Zoolander.
Zoolander:
Bannaður
í Malasíu
kvikmyndir Kvikmyndadreifinga-
fyrirtæki í Malasíu varaði við því
fyrir helgi að myndin Zoolander
eftir Ben Stiller eigi ekki eftir að
komast í sýningu í kvikmyndahús-
um landsins. Ástæðan fyrir því er
sú að í myndinni er reynt að
myrða forsætisráðherra landsins.
Ben Stiller leikstýrir og leikur
aðalhlutverkið í Zoolander, sem
var frumsýnd í Bandaríkjunum
um helgina. Hann leikur vitgr-
anna fyrirsætu, sem er heilaþveg-
in til að fremja morðið á forsætis-
ráðherranum. Forráðamenn
Golden Screen Cinemas, stærsta
dreifingafyrirtækis landsins,
segja gamanmyndina ekki vera á
lista yfir frumsýndar erlendar
myndir á árinu, þrátt fyrir líkleg-
ar vinsældir.
„Við vitum allt um þessa mynd
og ætlum ekki að sýna hana. Við
kaupum ekki sýningarréttinn á
henni,“ sagði talsmaður fyrirtæk-
isins en vildi ekki greina frá hvort
það væri vegna söguþráðarins. ■
A
Ryðfrí stálrör
og press-
fittings
Stærðir: 12,18,22,28 og 35mm
Hagstætt verð!
vATH»vmmmm m»u»
mé Ármúla 21, Sími: 533-2020
__________'_________/
DOWNTO EARTH kl. 6 og 8 { Þyna ki. 3.13, o og iu FILIVIUNPUR
RUGARTS IN PARIS kl. e| |BRAGGABÚAR kl. 6 ]
i BRIDGÉT JONES’S DÍÁRY kL s| | M.H.Vacation kl. 10.301
|ISN T SHE GREAT kl. 6, 8og 10|jv,T| jCATS & DOGS m/ íslensku tali kl.6|(",T|
SWORDFISH kL8ogl0.10|f?ITJ IGffS & DOGS m/ ensku tali u.a\m
[tHE FAST & THE FURIOUS klloQ jSHREK m/ islensku tali kLein
Tískuvika í Mílanó:
Dimmt, listrænt
og friðsamlegt
FRÉTTIR AF FÓLKI
tíska Þær voru ekki kappklædd-
ar sýningarstúlkurnar í Milanó í
síðustu viku. Þar fór fram tísku-
vika þar sem margir þekktir
hönnuðir og tískuhús sýndu vor
og sumarlínur ársins 2002. Talað
er um það í tískufréttavefsíðum
að áhrif 20.aldar lista og ló.ald-
ar bókmennta
hafi einkennt
sýningarnar.
Dolce &
Gabbana vott-
uðu Bandaríkja-
mönnum og öll-
um fórnarlömb-
um hryðju-
verkaárásarinn-
ar virðingu sína
með því að
dreifa til sýningargesta bolum
sem á var letrað „I Love NY“.
Hönnuðir Gattinoni tískuhússins
leituðu á náðir Picasso. Hönnuð-
urinn Gai Mattiolo sem er þekkt-
ur fyrir að hanna kvenlega, of-
urslétta og mjúka kjóla kom
flestum á óvart með afar dimm-
ri sýningu. Kjólarnir hans þóttu
frumlegir þrátt fyrir að fá
lánað frá goth-tískunni.
Einnig vöktu sýningar
tískuhússins Exte, Ines
Valentinisch, Antonio
Fusco og japanska
Izumi Ogino verðskuld-
aða athygli. ■
Strákarnir í Five hafa ákveðið
að leggja árar í bát og stökkva
hver og einn frá borði í sína átt.
Orðrómar um yf-
irvofandi sam-
starfsslit hafa leg-
ið í loftinu nokkra
mánuði, eða alveg
síðan Sean Conlon
vantaði í mynd-
bandið „Let’s
Dance“. í hans
stað var stuðst við
útprentað pappaspjald. Engar sér-
stakar ástæður eru gefnar fyrir
samstarfsslitunum en í tilkynn-
ingunni kom fram að „meðlimir
sæu sér ekki lengur fært að stan-
da undir væntingum sínum eða
aðdáenda".
Hljómsveitin The Cure er við
það að gefa út safnskífu. í til-
efni þess verður gefið út nýtt
smáskífulag „Cut
Here“ þann 29.
október. Safnplat-
an ber hið frum-
lega heiti Greatest
Hits, inniheldur
alla helstu slagara
sveitarinnar á
tæpum 24 ára
starfsferli þeirra
og kemur í búðir 12. nóvember.
Woody Allen spáir því að
Hollywood muni forðast það í
langan tíma að gera kvikmyndir
um hryðjuverk í Bandaríkjunum.
Hann segir ástæðuna vera að í
Hollywood geri
menn aðeins kvik-
myndir til þess að
græða peninga og
því sé ekki einu
sinni líklegt að
orðið „flugrán" fái
að hljóma í mynd-
um þaðan í lengri
tíma í ótta við að
fæla áhorfendur í burt. Hann seg-
ir það þó ekki ólíklegt að sjálf-
stæðir kvikmyndageróamenn taki
á hryðjuverkaárásunum. Þessa
daganna er hann í London að
kynna nýjustu mynd sína, The
Curse of the Jade Scorpion. Ekki
má búast við henni í bíó á næst-
unni þar sem kvikmyndahús hér-
lendis hafa ekki verið dugleg að
sýna myndir kappans. Kvikmynd
hans Small Time Crooks verður
frumsýnd hér í vikunni, en hún
kom út fyrir rúmu ári síðan í
Bandaríkjunum.