Fréttablaðið - 08.10.2001, Side 18
18
FRÉTTABLAÐIÐ
8. október 2001 MÁNUDAGUR
HVAÐA BÓK ERT ÞÚ AÐ LESA
Dagbjört Kjartansdóttir
verslunarstjóri Máls og menningar.
„Trésmíðí í eilífðinni eftir Gyrði
Elíasson. Þetta eru skemmtilegar
smásögur" |
Islenskar bamabækur á faraldsfæti:
Blái hnötturinn til Júgóslavíu
útcAfa Réttindastofa Eddu, sem
fer með samninga- og kynningar-
mál fyrir hönd þeirra höfunda
sem koma út á vegum Máls og
menningar, Vöku-Helgafells, For-
lagsins og Almenna bókafélags-
ins, hefur að undanförnu gengið
frá fjölda samninga um útgáfu á
íslenskum barnabókum erlendis.
Höfundarnir sem um ræðir eru
Andri Snær Magnason, Guðrún
Helgadóttir, Brian Pilkington,
Ingibjörg Sigurðardóttir og Ragn-
heiður Gestsdóttir. Búið er að
gera samninga um útgáfu i ýms-
um Evrópulöndum, meðal annars
á Norðurlöndunum, og í Austur
Asíu. Nýverið var gengið frá
samningi við júgóslavneska for-
lagið Izdavacka Kuca Draganic
um útgáfu á Sögunni af bláa hnett-
inum eftir Andra Snæ Magnason.
Þá hefur útgáfuréttur af Ástar-
sögu úr fjöllunum eftir Guðrúnu
Helgadóttur og Brian Pilkington
verið seldur til kóreska forlagsins
BIR en fyrr í sumar var greint frá
því að ítalska forlagið RSC
Libri/Fabbri Editori hefði tryggt
sér útgáfuréttinn á Ítalíu. Fyrr á
þessu ári var gengið frá samning-
um um danska útgáfu á bók Guð-
rúnar Helgadóttur, Ekkert að
marka!, við bókaforlagið Klim í
Danmörku. Fyrsta bókin í þessari
trílógíu Guðrúnar, Ekkert að
þakka!, er væntanleg á markað nú
fyrir jólin hjá Klim.
Réttindastofa Eddu verður
með stóran kynningarbás á bóka-
sýningunni í Frankfurt, sem hefst
á miðvikudaginn kemur, og hafa
nú þegar verið bókaðir fundir
með um níutíu forleggjurum frá
ýmsum heimshornum þar sem
þeim verða kynnt verk eftir meira
en sextíu íslenska höfunda. ■
GERA ÞAÐ GOTT
Andri Snær Magnason er í hópi íslenskra
barnabókahöfunda sem hafa fengið verk
sín gefin út erlendis.
Nýtt gallerí opnað -
Gallerí Skuggi:
Hver með
sínu nefi á
Hverfísgötu
mvnpust Nýtt sýningargallerí,
Gallerí Skuggi, Hverfisgötu 39,
hóf formlega starfsemi sína með
opnun myndlistarsýningar Birg-
is Andréssonar, Guðmundar
Odds Magnússonar, Lilju Bjark-
ar Egilsdóttur og AKUSA (Ás-
mundar Ásmundssonar og Justin
Blaustein). Sýningin ber yfir-
skriftina „Hver með sínu nefi“. í
tilkynningu frá Gallerí Skugga
segir að markmið gallerísins sé
að skapa lifandi og metnaðarfull-
an vettvang til sýningarhalds
innlendra og erlendra myndlist-
armanna. Baka til í húsnæði gall-
erísins er aðstaða til setu, lesturs
og kaffidrykkju og mun galleríið
standa fyrir ýmsum uppákomum
tengdum listum og umræðu um
listir í víðum skilningi. f hverj-
um mánuði munu aðstandendur
Skugga miðia áhugasömum gest-
um merkri skáldsögu/bók úr bók-
menntasögunni, eða samtímaum-
ræðunni (“Úr bókahillunni") og
áhugaverðri kvikmynd
(“Skuggasýningin"). Sýningin
„Hver með sínu nefi“ stendur til
21. október. Galleríið er opið
milli klukkan 13 og 17, frá þriðju-
degi til sunnudags. ■
MÁNUDAGURINN
8. OKTÓBER
BÍÓ____________________________
22.30 Fiimundur sýnir Blár, fyrstu
myndína í þríleik pólska leik-
stjórans Krzysztofs Ki-
ewslowski. Miðaverð kr. 500
fyrir Filmundarfélaga og kr. 800
fyrir aðra. Hægt er með einföld-
um hætti að gerast meðlimur í
Filmundi í miðasölu Háskóla-
bíós.
FYRIRLESTRAR___________________
12.30 Anna Lfndal myndlístarmaður
heldur opinn fyrirlestur í Lista-
háskóla íslands, Laugarnesvegi
91, stofu 024. Fyrirlesturinn fjall-
ar um Tvíæringinn í Istanbul í
Tyrklandi 1997 og Kwangju
Bienalinn í S-Kóreu árið 2000.
SAMKOMUR_______________________
20.30 Fyrsta dagskrá Listaklúbbsins á
þessum vetri verður i Leikhús-
kjallaranum í kvöld og er hún
helguð breska leikskáldinu Dav-
id Hare. Meðal annars mun
Melkorka Tekla Ólafsdóttir
fjallar um David Hare og ferii
hans. Arnar Jónsson Ijær skáld-
inu rödd og flytur valin brot úr
viðtölum sem varpa lósi á per-
sónu hans og skoðanir. Eftir hlé
verða pallborðsumræður. Húsið
opnar 19.30. Öllum er heimill
aðgangur meðan húsrúm leyfir.
SÝNINGAR_______________________
Á ferð um landið með Toyota er yfir-
skrift sýningar Fókuss, Ijósmynda-
klúbbs áhugamanna. Sýningin er í sal-
arkynnum nýrra bíla Toyota við Nýbýla-
veg í Kópavogi. Ljósmyndir á sýning-
unni voru teknar á ferð klúbbsins um
Suðurlandshálendið, í Þjórsárdal, Veiði-
vötnum, Dómadal, Landmannalaugum,
Fjallabaksleið og viðar. Sýningin er
opin á opnunartírna söludeildar
Toyota.
Tilfinningar okkar
breytast aldrei
Þjóðleikhúsið sýnir þessa dagana á Litla sviðinu leikritið „Hver er
hræddur við Virginiu Wolf?“ eftir Edward Albee. Lilja Guðrún Þor-
valdsdóttir hefur fengið mikið lof fyrir leik sinn í hlutverki Mörthu,
konu í hjónabandi sem hefði ef til vill betur endað fyrir mörgum árum.
leikhús „Það eru margar Mörthur
til,“ segir Lilja Guðrún hálfsak-
leysislega. „Þegar fólk er orðið
svona fast í eigin eymd þá er svo
erfitt að slíta sig lausan. Þau
gætu vafalaust ekki verið án
hvors annarrs. Hún myndi
ábyggilega bara leita að nýjum
George (Pálmi Gestsson) og
hann að annarri Mörthu til þess
að kljást við. Þau eru náttúrulega
að stinga á kýlin og vekja upp
gömul sár. Um leið eru þau líka
að bera smyrsl á önnur sár. Þetta
er líka leikur hjá þeim. En ég er
alveg handviss að Martha hefur
aldrei gengið svona langt áður,
eins og þessa nótt.“
Þar á Lilja við atburði sem
gerast eftir að hjónin bjóða heim
til sín í eftirpartí, ungum hjón-
um, Nick (Rúnar Freyr Gíslason)
og Lillu (Inga María Valdimars-
dóttir), sem þau hittu fyrr um
kvöldið. Leikritið var frumflutt á
Broadway árið 1960, hneykslaði
suma, heillaði fleiri og tryggði
höfundinum Edward Albee sín
fyrstu Pulitzer verðlaun af
þremur.
„Ég var dálítið hrædd um að
þetta væri kannski orðið of gam-
alt til þess að snerta áhorfendur.
En þetta snart mig, tilfinningar
okkar breytast aldrei. Mannfólk-
ið gerir sömu mistökin aftur og
aftur. Þetta þótti svo mikið klám-
leikrit að þýðingin var ritskoðuð
þegar það var sett upp í fyrsta
sinn á hér á landi. Þá var haldinn
fundur þar sem formaður út-
varpsráðs, menntamálaráðherra,
nóbelskáldið og fleiri ákváðu að
það væri ekki við hæfi að þýða
það beint. En núna setti Jónas
[Kristjánsson þýðandij þetta allt
inn.“
Margir þeirra sem hafa séð
leikritið hafa ef til vill velt því
fyrir sér hver sé merkingin á
bak við það að bendla rithöfund-
inn Virginíu Wolf við verkið.
„Skýringin er ósköp hallærisleg.
Verkið hét „Who’s afraid of the
big bad wolf“ en Disney var búið
að kaupa einkaréttinn á titlinum
þar sem þeir gerðu teiknimynd
eftir ævintýrinu. Þeir bönnuðu
Albee að nota það. Þannig að
hann breytti þessu svona, og all-
ur heimurinn skyldi hvað lá að
baki. Það er því svolítið flott
hvernig hann reddaði málunum.”
biggi@freltabladid.is
Handritasýníng í Stofnun Árna Magn-
ússonar, Árnagarði við Suðurgötu. Sýn-
ingin er opin kl. 14 til 16 þriðjudaga til
föstudaga til 15. maí.
MYNDLIST________________________
Vera Sörensen listamaður opnaði síð-
astliðinn laugardag málverkasýningu í
sýningarsal Gallerí Reykjavík. Sýningin
er virka daga frá kl 13.00 til 18.00 og
laugardaga frá 11.00 til 16.00.
Krístín Reynisdóttir opnar sýningu á
verkum sfnum í Þjóðarbókhlöðunni i
dag kl. 13. Þetta er fjórða sýningin í
sýningaröðinni Fellingar sem er sam-
starfsverkefni Kvennasögusafnsins,
Landsbókasafns fslands - Háskólabóka-
safns og 13 starfandi myndlistarkvenna.
Sigurbjörn Jónsson hefur opnað sýn-
ingu á málverkum f Hafnarborg. Sýn-
ingin er opín alla daga nema þriðju-
daga frá Id 11 til 17 og stendur til 15.
okt
Sýningin Mynd og málstaður stendur
yfir í Tjarnarsal Ráðhússins. Sýningin
stiklar á stóru f sögu herstöðvaand-
stöðu frá stríðslokum með áherslu á
pólitískar teikningar. Sýningin er opin
alla daga og stendur til 7. október. Að-
gangur er ókeypis.
Jón Valgard Jörgensen opnaði á laugar-
dag sfna fimmtu myndlistarsýningu f Fé-
lagsstarfi Gerðubeigs. Sýndar em lands-
lagsmyndir, fantasíur, portrait teikningar og
dýramyndir. Sýningin stendur til 9. nóvem-
ber. Opnunartfmar sýningarinnar mán. -
fös. kl. 10-17 og um helgar kl. 13-16.
Linda Oddsdóttir hefur opnað sína fyrstu
einkasýningu á Cafe Presto Hlíðasmára
15. Á sýningunni em eingöngu olfumál-
verk sem em unnin á þessu ári. Opnunar-
tímar virka daga frá 10 til 23 og um helgar
frá 12 til 18.
Verði ykkur að góðu
í allun október
Októberfest í Sjörukránní
1L- 14, októbct
kemur fram meðal annars hin
„Ðie Stötthammer” frá Munchen.
þýskum krasum í veítingatjaklinu
daga Id. 18:00. Fjörið heldur áfram
í Fjörugarðinum með KOS og Stötthammer.
Hugleikur Dagsson listamaður:
Kröftug list fyrir augað
í Gallerí Nema Hvað
mvndust Hugleikur Dagsson, lista-
maður og kvikmyndagagnrýn-
andi, opnaði um helgina mynd-
listasýningu í Gallerí Nema Hvað,
Skólavörðustíg 22c. Listamaður-
inn er þekktur fyrir skemmtileg-
an og ögrandi stfl, og mega gestir
eiga von á kröftugri list fyrir aug-
að. Sýndar eru ljósmyndir, teikn-
ingar, ljóð, innsetningar og o.fl.
Sýningin er opin 14 -18 og stend-
ur dagana 6.-11. október. ■