Fréttablaðið - 30.10.2001, Blaðsíða 7
ÞRIÐJUDAGUR 30. október 2001
FRÉTTABLAÐIÐ
7
Mikil hálka á heiðum:
Nokkur óhöpp
vegna hálku
VARÚÐ VEGNA HÁLKU
Fólk er ráðlagt að gæta að sér og fara ekki á sumardekkjum yfir heiðar vegna hálku sem
þar er.
umferð Hálka var víðast hvar á
landinu í gær og urðu nokkur um-
ferðaróhöpp af völdum hennar.
Samkvæmt upplýsingum frá lög-
reglunni á Selfossi varð árekstur í
Kömbunum um hálfáttaleytið í
gærmorgun. Þá valt bíll á Þorláks-
hafnarvegi skömmu fyrir átta og
skömmu síðar valt bifreið á Hellis-
heiðinni. Rétt fyrir klukkan níu
snérist bíll í Kömbunum og lenti
utan í vegriði. Engin slys urðu á
fólki í þessum óhöppum en tjón
urðu á bílum. Töluverð hálka var á
Holtavörðuheiði en engin óhöpp
urðu að sögn lögreglunnar í Borg-
arfirði. Lögreglan á Akureyri sagði
tvö umferðaróhöpp hafa orðið
vegna hálku en engin slys á fólki.
Vildi lögreglan koma þeim ráðlegg-
ingum til fólks að fara ekki á sum-
ardekkjum á Öxnadalsheiði eða
Víkurskarðið yfir Vaðlaheiði. Á
Ólafsfirði missti maður stjórn á bif-
reið sinni og endaði ofan í
Torgdalsá. Hann sakaði ekki. Lög-
reglan á Egilsstöðum sagði mikla
hálku á heiðum og vegum utan við
bæinn en engin óhöpp orðið.
Samkvæmt upplýsingum frá
Vegagerðinni eru þjóðvegir lands-
ins færir en hálkubletti má finna
víðast hvar. Þá er hálka á heiðum og
þungfært er orðið á Fjarðarheiði,
Þorskafjarðarheiði og Axarfjarðar-
heiði. ■
Flugvél Flugmálastjórnar:
Afgreiðslu
frestað
Stjórnmál Beiðni Gísla S. Einars-
sonar, þingmanns Samfylkingar,
um upplýsingar um notkun á flug-
vél Flugmálastjórnar var tekin
fyrir á fundi fjárlaganefndar í
gær en afgreiðslu hennar frestað
til fundar sem boðaður hefur ver-
ið klukkan hálf níu í dag. Gísli
óskaði eftir upplýsingum um
hvernig flugvélin hefði verið not-
uð 24. júlí s.l. og sagðist vilja fá úr
því skorið hvort flugvélin hefði
verið notuð með öðrum hætti en
til er ætlast í kjölfar ábendinga
sem honum höfðu borist. ■
BRUNI
Slökkvilið, björgunarsveitir og fleiri notuðust áður við símboða til að kalla menn út til starfa en reiða sig nú á SMS-skilaboð í farsíma.
Bodin berast seint og illa
Vandkvæði hafa komið upp í útköllum slökkviliða á landsbyggðinni. Notast er við SMS-kerfi
Landssímans, en liðið hefur allt að klukkustund frá því að boð eru send frá Neyðarlínu þar til
þau bárust til slökkviliðsmanns.
brunavarnir Mikil óánægja er
meðal slökkviliðsstjóra á lands-
byggðinni með út-
kallskerfi gegnum
Alltaðþví SMS-kerfi Lands-
klukkustund símans. Áður voru
leið frá því símboðar notaðir
Neyðarlínan til útkalla. „í ljós
sendi frá sér hafa komið miklar
boðin þar til brotalamir og
þau bárust í menn eru að fá
síma slökkvi- boðin seint og
liðsmanns. illa,“ sagði Krist-
—4— ján Einarsson,
slökkviliðsstjóri á
Selfossi. Hann hefur haft á sinni
könnu fjarskiptamál fyrir Félag
slökkviliðsstjóra en þau voru til
umræðu á árlegum fundi félags-
ins sl. laugardag. Kristján segir
að víða á landinu sé ástandið
mjög slæmt. „Gamla boðkerfið,
sem okkur var sagt að væri fram-
tíðin þegar við fórum í það, var
lagt niður og menn urðu bara að
leggja tækjunum sínum.“ Hann
tiltók að kostað hefði um 50 millj-
ónir að endurnýja símboðasend-
inn sem fyrir var. „Það hefði ver-
ið lítið mál fyrir sveitarfélög og
ríki, miðað við að fara út í þetta
kerfi sem bæði er mjög dýrt og
viðhaldsfrekt. Þetta voru lítil og
þægileg boðtæki sem dugðu alls
staðar, en í dag erum við með
GSM síma sem ná nánast ekki
nema í helmingi tilfella." Krist-
ján segir að upp hafi komið vand-
ræði vegna þess að SMS-kerfið
hafi brugðist og nefndi bæði
Húsavík og Dalvík í því sam-
bandi. Jón Ásberg Salómonsson,
slökkviliðsstjóri á Húsavík, stað-
festi að skilaboð hefðu borist
seint í útkalli hjá þeim. í fram-
haldi af því hafi hann boðað til
æfingar í haust þar sem skráð
var niður hvenær útkall barst.
„Ég tók þetta saman og sendi
brunamálastjóra afrit af niður-
stöðunum, en í ljós kom að allt
upp í klukkutími leið frá því
Neyðarlínan sendi boðin frá sér,
þar til þau bárust í símann."
Björn Karlsson, brunamála-
stjóri, sagði að sér virtist sem
vandamálið væri bundið við
nokkra smærri staði og þá helst
þar sem væri bara einn GSM-
sendir. Hann segir að á næstu vik-
um verið reynt að einangra vand-
ann með æfingum og viðtölum við
Neyðarlínu. „Ef ástandið lagast
ekki við það höldum við fund með
Landssímanum og Neyðarlínunni
og reynum að komast fyrir vand-
ann,“ sagði hann.
oli@frettabladid.is
Hafravatnsvegur:
Annar
mannanna 1
öndunarvél
umferðarslys Mennirnir tveir sem
voru fluttur á slysadeild Landspít-
alans í Fossvogi með alvarlega
höfuðáverka eftir umferðarslys á
Hafravatnsvegi síðastliðinn föstu-
dag, eru á misjöfnum batavegi.
Liggur annar þeirra á gjörgæslu-
deild þar sem hann nýtur aðstoðar
öndunarvélar. Hinn fékk að fara
af deildinni í gær. Tvær konur
sem voru með mönnunum í bíln-
um létust.
Mennirnir tveir sátu báðir í
framsæti fólksbifreiðarinnar þeg-
ar pallbíll skall á henni að aftan-
verðu með þeim afleiðingum að
bifreiðarnar enduðu báðir utan
vegar. ■
LÖGREGLUFRÉTTIR
Lögreglan í Reykjavík hafði af-
skipti af ökumanni bifreiðar
við Smiðshöfða í Reykjavík um
þrjúleytið í fyrrinótt. Var öku-
maðurinn, kona á tvítugsaldri,
grunuð um ölvun við akstur.
Sinnti hún í engu tilmælum lög-
reglu um að stöðva bifreiðina og
upphófst því eftirför sem endaði
í Bíldshöfða þegar konan missti
stjórn á bifreiðinni og hafnaði á
umferðarskilti. Konan snaraði
sér úr bifreiðinni og reyndi að
forða sér á hlaupum en lögreglan
hljóp hana fljótlega uppi.
■ ......
Tveir menn, 18 og 21 árs, voru
handteknir um eittleytið í
fyrrinótt grunaðir um innbrot í
bifreið í Breiðholti. Féll grunur á
mennina þegar samskonar þýfi
og tekið var úr bifreiðinni fannst
í bifreið þeirra um hálfri klukku-
stund eftir að innbrotið var
framið. Mennirnir voru færðir í
fangageymslur lögreglunnar og
yfirheyrðir í gær.