Fréttablaðið - 30.10.2001, Side 12
12
FRÉTTABLAÐIÐ
30. október 2001 ÞRIÐJUDACUR
I
I
í
Grjótkastari í Gautaborg:
Abdul Haq kom skilaboðum til bandarískra ráðamanna:
Fyrst skotinn og
síðan dæmdur
CAUTABORC. AFTONBLADET TvítUgUr
piltur, Hannes Westberg var í
gær, dæmdur í átta mánaða fang-
elsi fyrir grjótkast í mótmælum í
Gautaborg síðastliðið sumar, þeg-
ar leiðtogafundur Evrópusam-
bandsins var haldinn. Hannes var
skotinn í kviðinn þegar hann hljóp
með stein í hendi í átt að lögreglu-
þjóni. Ungur aldur og það að hann
fékk skot í kviðinn var virt honum
til refsilækkunnar.
Lögfræðingur piltsins segir
dóminn koma á óvart. „Ég átti von
á að skjólstæðingur minn yrði
dæmdur til samfélagsþjónustu,
en ekki í fangelsi.“ ■
Innsiglaði aðstoð Bandaríkjanna dauðadóminn?
WASHINCTON. ap í gær var í Pakist-
an haldin minningarathöfn um
Abdul Haq, einn af leiðtogum
Norðurbandalagsins í Afganistan.
Haq hélt inn á yfirráðasvæði tali-
bana á fimmtudaginn í síðustu
viku. Talibanar handtóku hann og
tóku síðan af lífi, eins og fram
hefur komið í fréttum. Haq og fé-
lagar hans reyndu að hafa sam-
band við bandaríska ráðamenn
eftir að þeir tóku eftir hópi tali-
bana fyrir framan sig, og sömu-
leiðis fyrir aftan sig, þar sem þeir
voru fótgangandi í nágrenni borg-
arinnar Jalalabad.
Haq hringdi fyrst til kaupsýslu-
manns að nafni James Ritchie,
sem hringdi til bróður síns, Joseph
Ritchie. Bróðirinn kom skilaboð-
unum áfram til Roberts McFarla-
ne, fyrrverandi ráðgjafa Ronalds
Reagans Bandaríkjaforseta, en
Farlane hefur lengi stutt Haq. Frá
Farlane bárust boðin til banda-
rískra ráðamanna.
Bandarísk herþota gerði á end-
anum árás á lest talibana, en sú
árás kom of seint. Joseph Ritchie
telur hins vegar að árásin hafi
gefið talibönum tilefni til að halda
að Haq hafi farið á vegum Banda-
ríkjamanna inn fyrir víglínuna.
„Strax og Bandaríkjamenn létu til
sín taka, þá innsiglaði það senni-
lega dauðadóminn," sagði hann. ■
MINNINCARATHÖFN UM HAQ
Ættingjar og stuðningsmenn Abduls Haq, sem talibanar tóku af lífi fyrir helgi, héldu minn-
ingarathöfn um hann i borginni Peshawar í Pakistan í gær. Hann var grafinn í Afganistan.
M6NNTfíF6lflG QVGGINGflRIÐNRÐflRINS
NÁMSKEIÐ FYRIR
BYGGINGAMENN
Eftirtalin námskeið standa til boða fyrir
byggingamenn og verða haldin í
Reykjavík.
Námskeið Tími Verð*
Plastkubbahús 3. nóv. 3.000
Lagnaveggir 3. nóv. 3.000
Parketgólf 8. - 10. nóv. 5.000
Verkstjórnun 9. - 10. nóv. 8.000
Málun steinhúsa 15. - 17. nóv. 5.000
Vatnsúðakerfi - sprinkler 16. - 17. nóv. 5.000
Gipsveggir 17. nóv. 3.000
Marmaramálun 22. - 24. nóv. 5.000
Tilboð og verksamningar 22. - 24. nóv. 8.000
Þök og þakfrágangur 22. - 24. nóv. 5.000
‘Þetta verð er fyrir félagsmenn MFB
Upplýsingar um innihald námskeiðanna er hægt að
finna á heimasíðu okkar www.mfb.is
Skráning og upplýsingar
Sími 552-1040
Símbréf 552-1043
gudrun@mfb.is
Budduvæn búð
Fatnaður - Jólavörur - Gjafavara
Snyrtivörur - Ljós - Sælgæti o.fl. ofl.
Hagkvæmustu Verslun
innkaupin hverju KAYS
sinni og alltaf Austurhrauni 3 Gbæ/Hfj.
eitthvað á útsölu (5 mín frá Smára) Sími 555 2866
Samfylkingarfundur
Kjördæmafélag Samfylkingarinnar í Reykjavík heldur félagsfund
laugardaginn 3. nóvember kl. 11:00 í Norræna húsinu.
Dagskrá
Kosning fulltrúa á landsfund Samfylkingarinnar.
Jóhanna Sigurðardóttir, alþingismaður, flytur ávarp.
Fjallað verður ennfremur um borgarmálin.
Stjórnin
Samfylkingin
b _ — — — — — — — — — — — . — — — — J
Barnaklám hótels
ofviða tölvum lög
Ríkislögreglustjóri hefur skoðað gríðarleg tölvugögn fyrrverandi hótelstjór
júní en þá réðu heimamenn ekki lengur við að yfirfara safn tugþúsunda klá
ræða barnaklám og upptökur af baðherbergi á gistiheimilinu r
löcreclumál Jónas Vilhelmsson, yf-
irlögregluþjónn á Eskifirði, segir að
tölvugögn hótelstjórans, sem kærð-
ur var í vor af þýskum stúlknakór
fyrir að hafa falið myndavél á gisti-
heimilinu Tærgesen á Reyðarfirði,
innihaldi saknæmt barnaklámefni.
s Gögnin voru send
tölvudeild ríkislög-
reglustjóra til skoð-
unar í júní.
„Þetta reyndist
vera svo viðamikið
dæmi að við þurft-
um að senda allan
pakkann til tölvu-
deildar ríkislög-
reglustjórans. Hann er ekki kominn
til baka ennþá en málið mun þó vera
að komast á lokastig hjá þeim,“ seg-
ir Jónas.
Að sögn Jónasar var m.a. lagt á
hald á þrjár eða fjórar tölvur hjá
hótelstjóranum og mikið magn af
lausum hörðum diskum, geisladisk-
um, floppydiskum og gömlum fimm
tommu tölvudiskum. „Þetta er svo
ofboðslega mikið að það trúir því
ekki nokkur maður. Þetta er óskilj-
anlegt magn; tugþúsundir mynda.
„Það tekur ör-
ugglega fleira
daga bara að
prenta þetta
út," segir yfir-
lögregluþjón-
inn á Eskifirði.
Við höfðum skoðað mikið og reynt
ná gögnum út en þetta er bara alltof
mikið fyrir okkar búnað,“ segir
hann.
Jónas segir ekki nægja að leggja
fram tölvudiskana eina og sér fyrir
dómi og því þurfi að prenta út þau
gögn sem lögreglan telur saknæm.
„Það tekur örugglega fleira daga
bara að prenta þetta út,“ segir hann.
Jónas segir hótelstjórann ekki
hafi komist í kast við lögin áður svo
neinu nemi og að engar vísbending-
ar hafi fundist um að hann hafi
reynt að hagnast á myndasafninu:
„Eitt af því sem rannsóknin bein-
ist að er hvort um einhvers konar
klámhring hafi verið að ræða eða
ekki. Þess vegna þarf að fara yfir
allar aðgerðarskrár búnaðarins og
komast inn á netþjóna. En það hefur
ekkert slíkt komið í ljós og við höf-
um ekki grun um það. Það er enginn
annar sem tengist málinu að svo
stöddu," segir yfirlögregluþjónn-
inn.
Jónas segir að fjöldi mynda úr
gagnabanka mannsins geti varðað
við þá grein hegningarlaga sem
kveður á um refsingu fyrir að hafa
REYÐARI
Vökul augu þýskra unglingsstúlkna sem gi
sporið af gegndarlausu klái
í vörslu sinni efni sem sýna börn á
kynferðislegan hátt. Han staðfestir
einnig að hótelstjórinn hafi átt upp-
tökur sem gerðar voru með földu
---------:-------£----------
SUNDURSKOTIÐ HÚS
Palestínumaður horfir niður af svölum
íbúðarhúss sem lentl í skothríð ísraelskra
skriðdreka í bænum Betlehem.
Israelskar hersveitir:
Drógu sig til
baka frá tveim-
ur bæjum
BETLEHEM.VESTURBAKKANUM.AP Að
sögn Binyamin Ben-Eliezer, varn-
armálaráðherra ísraels, munu
ísraelsmenn draga hersveitir sín-
ar til baka frá fjórum bæjum á
Vesturbakkanum til viðbótar ef
Palestínumenn lofa að hætta árás-
um sínum og stuðli að meira ör-
yggi á svæðinu. Þetta sagði hann
eftir að hersveitirnar drógu sig í
gær til baka frá bæjunum Bet-
lehem og Beit Jalla, þrátt fyrir
skotárás sem átti sér stað á sunnu-
daginn þegar Palestínumenn
skutu fimm Israela til bana. ■
Þurfa ad láta e
Tillögur útvarpsstjóra um niðurskurð hjá Rikisútvar
farið yrði með þær sem trúnaðarmál. Að óbreyttu st(
RÍkisÚtvarpið Tillögur útvarpsstjóra
um niðurskurð hjá Ríkisútvarpinu
verða ræddar nánar á fundi fram-
kvæmdastjórnar stofnunarinnar á
mánudaginn kemur. Bjarni Guð-
mundsson, framkvæmdastjóri Sjón-
varps og staðgengill útvarpsstjóra,
segir að á fyrri fundi
framkvæmdastjórn-
arinnar hafi verið
óskað eftir að farið
yrði með bókun út-
varpsstjóra sem
trúnaðarmál, en hún
hefur engu að síður
verið til umfjöllunar
í fjölmiðlum. Bjarni
segir sér þykja mið-
ur að starfsmenn
skuli hafa þurft að
frétta af tillögunum í
öðrum miðlum, en þær ganga í stór-
um dráttum út á styttri útsendingar-
tíma sjónvarps, fækkun dagskrár-
liða, niðurskurð í rekstri textavarps
og víðar, að ráðningarsamningar
verði ekki endurnýjaðir o.fl. þess
háttar.
Á þessu stigi, segir Bjarni, er
ómögulegt að segja til um hvort eða
Starfshópur
sem mennta-
málaráðherra
skipaði til að
fara yfir fjár-
hag og rekstur
Ríkisútvarps-
ins á að skila
niðurstöðum
15. næsta
mánaðar.
hverjar tillagna útvarpsstjóra ná
fram að ganga. „Það á eftir að fara
yfir þær og vonandi aðrar nýjar
sem lagðar verða fram,“ sagði hann
og bætti við að nokkuð flókið væri
að endurskipuleggja dagskrána auk
þess sem niðurskurður kynni að
hafa áhrif á auglýsingatekjur stofn-
unarinnar. „Við þurfum að átta okk-
ur á hvaða afleiðingar tillögurnar
kunna að hafa á reksturinn áður en
teknar verða ákvarðanir um aðgerð-
ir,“ sagði hann og tiltók að þessi
vinna væri í raun liður í fjárhagsá-
ætlunargerð stofnunarinnar fyrir
næsta ár, því miðað við óbreyttar
forsendur stefndi í 3-400 milljón
króna hallarekstur. „Þá taka menn
sig til og stilla líka upp áætlunum
þar sem við getum látið enda ná
saman," sagði hann.
Menntamálaráðherra hefur látið
hafa eftir sér að hann tjái sig ekki
um fjármál Ríkisútvarpsins fyrr en
niðurstöður starfshóps sem hann fól
að fara yfir fjárhag og rekstur
stofnunarinnar skili niðurstöðum
sínum. Auður Björg Árnadóttir,
deildarsérfræðingur í menntamála-
ráðuneytinu, er í forsvari fyrir