Fréttablaðið - 08.11.2001, Qupperneq 6
6
FRÉTTABLAÐIÐ
8. nóvember 2001 FIMMTUDAGUR
SPURNING DAGSINS
Keyptir þú pöntunarlista
Costgo?
„Að sjálfsögðu ekki! Ég veit ekki hvað þetta
er og þess vegna keypti ég hann ekki."
Cuðbjörg Ragnarsdóttir
sjúkraliði
Forseti Pakistans:
Vill að stríð-
inu Ijúki
islamabad, ap Þegar Bill Clinton,
þáverandi Bandaríkjaforseti, kom
til Pakistans á síðasta ári, þá and-
aði svo köldu á milli stjórnvalda
landanna tveggja að Clinton lagði
blátt bann við því að birtar yrðu
myndir af honum með Pervez
Musharraf, for-
seta Pakistans.
Nú er Mus-
harraf hins veg-
ar einn mikil-
vægasti banda-
maður Banda-
ríkjanna í stríð-
inu gegn hryðju-
verkamönnum í
Afganistan.
Hann getur því
átt von á kon-
unglegum mót-
tökum í ferð
sinni til Frakk-
lands, Bretlands
og Bandaríkj-
anna sem hófst í
gær.
Nú þegar
hafa Bandaríkin
aflétt efnahags-
legum refsiað-
gerðum á Pakistan og hafa heitið
fjárhagsaðstoð til þess að hressa
upp á efnahagslífið í Pakistan. í
viðræðum sínum við þá Jacques
Chirac Frakklandsforseta, Tony
Blair forsætisráðherra Bretlands
og George W. Bush Bandaríkja-
forseta fer hann væntanlega fram
á enn frekari stuðning, bæði póli-
tískan og efnahagslegan.
Megin markmið Musharrafs í
ferðinni mun hins vegar vera að
brýna fyrir leiðtogunum þremur
að sem stríðinu í Afganistan ljúki
sem allra fyrst. Það sé nauðsyn-
legt til þess að koma í veg fyrir
frekari spennu milli íslamskra
ríkja ef stríðinu verður ekki lokið
þegar föstumánuðurinn ramadan
hefst. ■
A LEIÐ TIL
VESTURLANDA
Pervez Musharraf,
hershöfðingi og for-
seti Pakistans kom
til Istanbúl í Tyrk-
landi i gær á leið
sinni til Frakklands,
Bretlands
Perlan:
Tilboð eða
samið við fast-
eignasölur
ORKUVEITAN Alfreð Þorsteinsson
stjórnarformaður Orkuveitu
Reykjavíkur segir að síminn hafi
nánast ekki stoppað hjá sér eftir
að ákvörðun var tekin um að selja
Perluna. Þar hafa verið á ferðinni
innlendir sem erlendir fjárfestar
sem sýnt hafa þessu máli áhuga.
Hann gerir ráð fyrir því að á
fundi Innkaupastofnunar Reykja-
víkurborgar n.k. mánudag verði
tekin ákvörðun um það hvort ósk-
að verði eftir tilboðum í Perluna
eða hvort samið verði við 3-4 fast-
eignasölur um að taka söluna að
sér. Hann segir að á þeim áratug
sem liðin er frá því að Orkuveitan
tók við Perlunni hefur veitan
þurft að greiða einn milljarð með
henni, eða um 100 milljónir á ári.
Hann segir að það sé of mikið fyr-
ir skattgreiðendur í borginni. ■
Borgarstjórakosningar í NewYork:
Bloomberg tekur
við af Giuliani
new york. ap Milljarðamæringurinn
Michael Bloomberg verður næsti
borgarstjóri í New York. Hann tek-
ur við af Rudolph Giuliani, sem
gegnt hefur embættinu í tvö kjör-
tímabil og notið mikilla vinsælda,
en lög banna honum að bjóða sig
fram í þriðja sinn. Merkilegt er að
bæði Bloomberg og Giuliani eru
repúblikanar, enda þótt demókratar
í New York séu taldir fimm sinnum
fleiri en repúblikanar.
Bloomberg hlaut 50 prósent at-
kvæða í borgarstjórnarkosningun-
um sem fram fóru á þriðjudaginn,
en demókratinn Mark Green hlaut
47 prósent.
Bloomberg hefur aldrei gegnt
opinberu embætti, en hann er talinn
hafa varið meira fé í kosningabar-
áttu sína en áður hefur þekkst í
Bandaríkjunum. Hann sagði kjós-
endum að hann væri hinn rétti arf-
taki Giulianis vegna reynslu sinnar
úr viðskiptalífinu, þar sem hann hef-
ur byggt upp mikið fjármálaveldi.
Víst er að Bloomberg tekur ekki
við auðveldu verkefni, því New
RÁÐAMENN FAGNA
Michael Bloomberg, fyrir miðju myndarinnar, fagnar kjöri ásamt þeim Rudolph Giuliani t.v.
og George Pataki, rlkisstjóra New York, Lh.
York varð fyrir gríðarlegu áfalli
þann 11. september síðastliðinn
þegar World Trade Center hrundi til
grunna. 'I'alið er að 100.000 manns
hafi misst vinnuna vegna samdrátt-
ar í efnahagslífinu í kjölfar þeirra
atburða. Fjárlagahalli borgarinnar
verður talinn í milljörðum dala. ■
Rannsókn á listaverkum í
eigu Reykjavíkurborgar:
Tíu verk enn
í rannsókn
FOLSUÐ LISTAVERK
Ríkislögreglustjóri rannsakar enn verk í
eigu Reykjavíkurborgar með tilliti til þess
hvort þau eru fölsuð.
listaverkafalsanir Opinber rann-
sókn fer nú fram á ellefu mál-
verkum í eigu Reykjavíkurborg-
ar vegna gruns um falsanir.
Fimm verkanna eru eftir Jó-
hannes S. Kjarval, þrjú eftir
Þórarin B. Þorláksson og eitt eft-
ir hvern, Jón Stefánsson, Guð-
mund Thorsteinsson (Mugg) og
Svavar Guðnason. Þetta kom
fram í svari Eiríks Þorlákssonar
forstöðumanns Listasafns
Reykjavíkur við fyrirspurn
Helgá Hjörvars í borgarráði um
hvort farið hefði verið með
skipulögðum hætti yfir lista-
verkaeign borgarinnar með til-
liti til falsana.
í svari Eiríks kom fram að á
árunum 1996 til 1997 hefði farið
fram könnun á þeim verkum
sem borgin hefði keypt frá árinu
1990. Ólafur Ing Jónsson for-
vörður annaðist verkið og í júní
1997 var ákveðið að senda verk:
in ellefu til frekari rannsóknar. í
desember sama ár óskaði borg-
arlögmaður eftir því í bréfi til
ríkislögreglustjóra að fram færi
opinber rannsókn á listaverkun-
um. Áskilin var réttur til að setja
fram skaðabótakröfu ef rann-
sóknin gæfi tilefni til.
Einu verkanna, litlu málverki
á pappír eftir Kjarval, hefur
verið skilað og leikur því ekki
grunur á að það sé falsað. Hinn
tíu eru enn til rannsóknar hjá
ríkislögreglustjóra að sögn Ei-
ríks Þorlákssonar. ■
A LOFT
Concorde-farþegaþota flugfélagsins Air France tekur á loft frá Charles de Gaulle flugvellinum í París á leið til New York í Bandaríkjunum.
Concorde aftur í loftið
15 mánaða farbanni flugvélanna lokið. Giuliani býður þær velkomnar
aftur til New York.
paris.ap Fyrsta Concorde-farþega-
þotan fór í loftið í gær eftir rúm-
lega 15 mánaða farbann sem sett
var á vélarnar eftir að farþega-
þota af Concorde-gerð fórst sköm-
mu eftir flugtak frá Charles de
Gaulle flugvellinum í París þann
25. júlí sl. með 113 manns um
borð. Til að sýna fram á aukið ör-
yggi þotnanna voru Jean-Claude
Gayssot, samgönguráðherra
Frakklands, og Jean-Cyril
Spinetta, formaður Air France-
flugfélagsins á meðal þeirra 92
farþega sem fóru með þessu fyrs-
ta flugi frá París til New York.
„Þetta er mesti virðingavotturinn
sem hægt er að veita þeim 113
manns sem létust, og ég vil til-
einka þeim þetta flug,“ sagði
Spinetta skömmu fyrir flugtak.
Klukkutíma síðar fór Concorde-
þota flugfélagsins British Airways
á loft frá Lundúnum á leið til New
York. Um boðsflug var að ræða og
á meðal farþega var breska popp-
stjarnan Sting. Fyrstu almennu
flugin frá Lundúnum til New York
hefjast aftur á móti á morgun.
Rudolp Giuliani, borgarstjóri New
York, var ánægður með endur-
komu Concorde-þotnanna til borg-
arinnar. „New York hefur tekið á
móti Concorde í meira en 20 ár og
með miklu stolti vil ég bjóða þetta
tákn evrópskra og bandarískra
viðskipta velkomið aftur til New
York,“ sagði Giuliani.
Verkfræðingar segjast hafa
gert við alla þá galla sem talið er
að hafi leitt til flugslyssins á síð-
asta ári, sem var það fyrsta í 25
ára sögu Concorde-þotnanna.
Einnig hafa nokkur öryggisatriði
verið lagfærði í kjölfar hryðju-
verkaárásarinnar á Bandaríkin.
Mikil öryggisgæsla var á Charles
de Gaulle flugvellinum áður en
fyrsta Concorde-þotan tók á loft.
Starfsmenn flugvallarins, klædd-
ir hvítum plasthönskum, leituðu í
öllum farangri auk þess sem
vopnaðir verðir umkringdu svæð-
ið þar sem innritunin fór fram. ■
Fjárhagsvandi framhaldsskóla:
Reilmilíkan sniðið að
bóknámsskólum
alþingi Umræður urðu utan dag-
skrár á Alþingi í gær um f jármál
framhaldsskóla. Málshefjandi
var Kolbrún Halldórsdóttir þing-
maður VG sem sagðist áhyggju-
full vegna fjárhagsstöðu skól-
anna og vegna þess að reiknilík-
an sem notað er við útreikning á
fjárframlögum til framhalds-
skóla sé ekki í samræmi við
raunverulega fjárþörf skólanna.
Til dæmis sagði hún halla veru-
lega á litla framhaldsskóla í lík-
aninu.
Björn Bjarnason menntamála-
ráðherra hafnaði því að fram-
haldsskólar ættu í fjárhagsvanda
þrátt fyrir að hluti þeirra stæði
fjárhagslega illa og tveir eða
þrír stæðu afar illa. Hann benti á
að fjárveitingar til framhalds-
skóla hækkuðu um fjórðung á
næsta ári og næmi þá um 10
milljörðum króna. Hann sagði al-
menna ánægju ríkja meðal
stjórnenda frarnhaldsskóla með
reiknilíkanið. Ákveðnir þættir
þess hefðu verið endurskoðaðir
og endurskoðun annarra stæði
fyrir dyrum.
í umræðum benti Sigríður Jó-
hannsdóttir þingmaður Samfylk-
ingar á vanda verknámsskóla og
nefndi þar sérstaklega Mennta-
skólann í Kópavogi, og Jón
Bjarnason þingmaður VG sagði
að reiknilíkanið væri sniðið að
bóknámsskólum með lítið brott-
fall og hentaði því þess konar
skólum en ekki öðrum. ■
FRAMHALDSSKÓLAR f FJÁRHAGSVANDA
Menntamálaráðherra hafnar að framhaldsskólar eigi í fjárhagsvanda og bendir á aukningu
fjárveitinga um fjórðung. Stjórnarandstöðuþingmenn bentu hins vegar á að sú hækkun
gerði ekki betur en að halda í við launa- og verðlagsþróun.
A-'-J. !T f,'HÉÉIÉÉiirilÍ m t