Fréttablaðið - 08.11.2001, Síða 18

Fréttablaðið - 08.11.2001, Síða 18
HVAÐA PLÖTU ERTU AÐ HLUSTA Á Ómar kemur á óvart „Ég er að hlusta mest á „Ómar Ragnason syngur fyrir börnin". Hann er langfiottastur, kemur á óvart Næstum því jafn flottur og Laddi. Hann er ekkert að reyna að finna upp hjólið, því hann veit að það er ekkert nýtt undir sólinni." Daníel Þorsteinsson, trommuleikari Maus Hann var kallaður þetta eftir D. Pelzer: Baráttusaga drengs fyrir lífi sínu NÝjflR bækur JPV útgáfa hefur sent frá sér bókina Hann var kallaður þetta eftir Dave Pelzer. Hann var kallaður þetta er ógleymanleg frásögn af hrottalegum mis- þyrmingum á barni - sögð af barninu sjálfu. Með ótrúlegu hugrekki og styrk tókst Dave Pelzer að lifa af andlegt og líkam- legt ofbeldi móður sinnar. Til að bjarga lífi sínu lærði Dave að bregðast við óútreiknanlegum uppátækjum hennar því að hún leit ekki lengur á hann sem af- kvæmi sitt heldur þræl; hann var ekki lengur barn, heldur bara „þetta“. Dave Pelzer er einn af áhrifamestu og virtustu mönnum Bandaríkjanna á sviði almanna- tengsla og árið 1994 var hann eini Bandaríkjamaðurinn sem hlaut þann heiður að teljast í hópi fremstu æskumanna heimsins. Höfundur hefur helgað líf sitt því að hjálpa öðrum til að hjálpa sér sjálfir. Bókin var tilnefnd til hinna virtu Pulitzer-verðlauna og hefur selst í milljónaupplögum um all- an heim. Sigrún Árnadóttir þýddi. ■ Söludeildin er opin alla virka daga frá kl. 8:00 -17:00 nema á föstudögur þá er lokað kl 16:00. MÚLALUNDUR Vinnustofa SÍBS Sími 5628500 - 5628501 Heimasíða: www.mulalundur.is BORGARLEIKHUSIÐ 8. nóvember 2001 FIMMTUDACUR STORA SVIDIÐ FJANDMAÐUR FÓLKSINS e. Henrik Ibsen_________ I leikgerð Arthurs Miller Frumsýning Fös. 9. nóv. kl. 20 UPPSELT Uu.17. nóv. kl. 20 LAUS SÆTI BLÍÐFINNUR e. Þorvald Þorsteinsson Lau.10. nóv.kl. 14:00 ÖRFASÆTI Sun. 11,nóv. kl. 14:00 ÖRFÁSÆTI Lau. 17. nðv. kl. 14:00 NOKKUR SÆTI Sun. 18. nóv. kl. 14:00 N0KKUR SÆTI KRISTNIHALD UNDIR JÖKLI e. Halldór Laxness Uu10.nov.kl. 20 - UPPSELT Sun. 18. nóv. kl. 20 - N0KKUR SÆTI Lau. 24. nóv. kl. 20-LAUSSÆTI MEÐ VÍFIÐILOKUNUM e. Rav Coonev Sun. 11. nóv. kl. 20 - N0KKUR SÆTI Fim. 15. nóv. kl. 20 - ÖRFÁ SÆTI Fös. 16. nóv. kl. 20 - LAUS SÆTI Fös. 23. nóv. kl. 20 - LAIIS SÆTI___________ Miðasalan er opin kl. 13 -18 alla virka daga og fram að sýningu sýningardaga. Sími miðasölu opnar kl. 10 virka dag, Fax 5680383 midasala@borgarleiktius.is www.borgarleikhus.is NYJA SVIÐIÐ ISLENSKI DANSFLOKKURINN Haust 2001, þr/u ny verk. ,ua-, em iiw stetánsuim „Milli tieima", ettirKatrínu Hall. „Ptan B", ettir Ólöfu Ingólfsríóttur Fös. 9. nóv. kl. 20-LAUSSÆTI Sun. 11. nóv. kl. 20.00- LAUS SÆTI BEÐIÐ EFTIR G0D0T e. Samuel Beckett__________ LaulO.nóv.kl. 20LAUSSÆTI Sun. 18. nóv. kl. 20 LAUS SÆTI ÞRIÐJA HÆÐIN PlKUSðGUR e. Eva Ensler Lau. 10. nóv. kl. 20 UPPSELT Sun. 11. nóv. kl. 20 UPPSELT Fim. 15. nóv. kl. 20 UPPSELT Fös. 16. nóv. kl. 20 ÖRFÁ SÆTI Fös. 23. nóv. kl, 20 ÖRFÁSÆTI LITLA SVIÐIÐ DAUÐADANSINN eftir August Strindberq I samvirmu viö Strindberghópinn I kvöld kl. 20 N0KKUR SÆTI Lau.10. nóv. kl 20 LAUS SÆTI MIÐASALA 568 8000 Vwj illll/ ISLENSKA OPERAN eftir Mozart 15. sýn. fös 9. nóv. kl. 20.00-LAUS SÆTI 16. sýn. sun 11. nóv. kl. 17.00-ðRFÁSÆTI 17. sýn. fös 16. nóv. kl. 20.00-LAUS SÆTI 18. sýn. lau 17. nóv. kl. 19.00 - LAUS SÆTI SÍÐUSTU SÝNINGAR Ath. breytilegan sýningartíma Miöasala opin kl. 15-19 alla daga nema sunnudaga og fram að sýningu sýningardaga. Símasala kl. 10-19 virka daga. Sími miðasölu:51l 4200 Súfistinn: Ungir höf- undar á ferð bókakaffi Ungir höfundar troða upp á bókakaffi í verslun Máls og menningar við Laugaveg í kvöld. Þeir sem verða á ferð eru Jón Atli Jónasson, en hann les úr bók sinni Brotinn takur, Stefán Máni sem les úr bók sinni Hótel Kaliforníu og Magnús Guð- mundsson sem les úr bók sinni Sigur- vegaranum. Bæk- urnar koma allar út hjá Forlaginu fyrir jólin. Dagskráin hefst klukk- an 20:00 og aðgangur er ókeypis. ■ JÓN ATLI JÓNASSON Les upp úr bók sinni Brotinn taktur í kvöld. FIMMTUDAGURINN 8. NÓVEMBER FUNDIR 08.30 Þróunar- og fjölskyldusvið Reykjavíkurborgar og Borgar- fræðasetur efnir til morgunverð- arfundar um skipulagsmál á Grand Hóteli. Fundurinn er liður í fundaröðinni Borgin í bitið. Klukkan 16.15 hefst opið „semin- ar" í borgarfræðum í Tjarnarsal Ráðhúss Reykjavíkur. FYRIRLESTRAR 12.30 Birkir Þór Bragason, líffræðingur Keldum, flytur erindið Rannsókn- ir á prótein samskiptum príon- próteina á bókasafni Keldna. Allir velkomnir 16.00 Páll Biering, sérfræðingur við Rannsóknarstofnun í hjúkrunar- fræðí, flytur fyrirlestur sem ber heitið: Skýringarlíkön unglinga- ofbeldis í hátíðarsal, Aðalbygg- ingu Háskóla íslands. 21.00 Blús-tónleikar á Ásvölium i Hafn- arfirði. Fram koma KK, Maggi Ei- ríks og Þorleifur ásamt Blúsþrjót- unum. Verð kr. 1.500. 21.00 Útgáfutónleikar Sálarinnar í Loft- kastalanum. Leikin verða lög af Logandi Ijósi. Sérstakur gestur kvöldsins verður Wtargrét Kristín /Fabúla. Miðaverð kr. 1800. NÁMSKEIÐ 10.00 Ungt fólk með ungana sína. Námskeið á digital myndavél og vinnslu mynda verður haldið í Hinu Húsinu v/lngólfstorg fyrir ungt fólk með ungana sína. Ungir foreldrar hvattir til að mæta með börnin sin á Geysi Kakóbar. Börn- in fá sitt frelsi, leikföng og barna- teppi á staðnum. SYNINCAR Þrjár fyrrum skólasystur minnast skóla- daga sinna í Myndlista- og handíða- skóla fslands 1964-1966 með sýningu, "Those where the Days", í Listhúsi Ófeigs að Skólavörðustíg 5, Reykjavík. Sýnd eru grafíkverk, glerlist og skart. Sýningin stendur til 21. nóv og er opin á verslunartíma. Vettvangsrannsókn Kristinar Loftsdótt- ur mannfræðings meðal WoDaaBe fólksins í Níger til sýnis í Þjóðarbók- hlöðu. Yfirskrift sýningarinnar er: „Horn- in íþyngja ekki kúnni" og stendur hún til 9. nóvember. Handritasýning í Stofnun Árna Magnús- sonar, Árnagarði við Suðurgötu. Sýningin er opin kl. 14 til 16 þriðjudaga til föstu- daga til 15. maí. Eisenstein og Shosta- kovítsj í eina sæng Beitiskipið Pótemkin eftir Sergei Eisenstein verður sýnd í Háskóla- bíói í kvöld við undirleik Sinfóníuhljómsveitar Islands. Myndin er án efa ein frægasta þögla mynd kvikmyndasögunnar og markar upphaf rússneskrar kvikmyndagerðar. kvikmynpasýning Kvikmynd- in Beitiskipið Pótemkin eftir rússneska leikstjór- ann Sergei Eisenstein verður sýnd í Háskólabíói í kvöld kl 19.30. Sinfóníu- hljómsveit íslands leikur undir tónlist eftir Dmítrí Shostakovítsj. Á laugar- dag verður mynd Chaplins, „Sirkusinn" sýnd í Hásólabíói við und- irleik Sinfóníuhljómsveit- arinnar. Sergei Míkhaílovítsj Eisenstein er talinn einn af frumkvöðlum þöglu myndanna. Eisenstein fæddist í borginni Ríga í Lett- landi og vann við leikhús áður en hann hóf að vinna við kvik- myndagerð. „Beitiskipið" ('25) er talið eitt af meistaraverkum UPPÞOTIÐ í ODESSA VIÐ SVARTAHAF Hið margrómaða tröppuatriði myndarinnar er löngu ódauðlegt. BEITISKIPIÐ PÓTEMKIN Borgararnir hvetja áhafnarmeðlimi á beitiskipinu Pótemkin til að berjast gegn flota keisarans svo úr verður mögnuð lokasena. kvikmyndasögunnar hvað varð- ar nákvæmni í formgerð og fag- urfræði og er þar í flokki mynda á borð við Fæðing þjóðar ('15) eftir Griffith og Borgari Kane ('41) eftir Orson Welles. Kveikj- an að verkinu var 20 ára afmæli byltingarinnar 1905 en þunga- miðjan er uppreisn borgara í hafnarborginni Odessa við Svartahaf og skipverja beiti- skipsins Pótemkin gegn ofríki Nikulásar II. Frægt er tröppuat- riðið margrómaða, sem marg- sinnis hefur verið notað í kvik- myndum síðan, m.a. í the Untouchables. í atriðinu birtast kósakkar keisara við marmara- tröppurnar, þar sem fjöldinn mótmælir, og hefja skotárás. Á milli myndskeiða, sem sýna al- menning liggja eftir í valnum, bregður fyrir barnavagni sem rúllar stjórnlaust niður tröpp- urnar. Borgararnir hvetja áhafnarmeðlimi Pótem- kín til að berjast gegn rússneska skipaflotanum og við tekur frábært loka- atriði myndarinnar sem löngu er orðið ódauðlegt. Meðal annarra verka Eisensteins má nefna kvikmyndina Október, sem gerð var árið 1927 í tilefni af tíu ára afmæli ciktóberbyltingarinnar og ívan grimma, sem dregur upp mynd af tortryggnum leiðtoga og baráttu hins unga rússneska keisara- dæmis við mongóla á sextándu öld. I RINGULREIÐ Kveikjan að myndinni voru mótmæli borgara í Odessa gegn ofríki Rússakeisara. MYNDLIST SIE, 15 myndlistanemendur frá íslandi, Eistiandi og Finnlandi, sýna í verslunar- BÓK Léttur hryllingur Shades of Death er ein af mörgum breskum glæpasög- um sem gerast í dreifbýli. Að þessu sinni eru söguslóðir í Der- byshire. Aline Templeton hefur ritað nokkrar bækur af svipuðu tagi og margir málsmetandi gagnrýnendur og rithöfundar lýst ánægju sinni með afurðirn- ar. Líkamsleifar ungrar stúlku finnast í helli einum og kemur í ljós að barnið hefur verið myrt fyrir um það bil sautján árum. Klíka nokkurra skólafélaga hennar virðist hafa komið þar við sögu. Óhugnaðurinn sem ætti að fylgja atburðum sem þessum er næsta lítill. Léttleik- andi og lipur stíll höfundar og þægilegt skopskyn gerir minna úr hryllingi viðburða en efni standa til. Höfundur reynir að ALINETEMPLETON SHADES OF DEATH NEW ENGLISH LIBRARY 2001, 460 BLS. hafa frásögnina spennandi án þess að sjokkera lesendur. Ýjað er að ástarævintýri milli lög- reglumannsins sem lætur sig málið mestu varða og skólasyst- ur hinnar myrtu sem er náttúr- lega uppkomin sautján árum síðar. Sú er nýfráskilin við eig- inmanninn, foringja hinnar fornu klíku, en sá hélt henni eig- inlega fanginni á heimili þeirra. Slík uppákoma er dálítið óhugn- anleg en verður líka einhvern veginn tiltölulega átakalaus eins og svo margt annað í bókinni. Þó er hér um þokkalega afþreyingu að ræða ef frá er skilinn fremur vandræðalegur endir. Ingvi Þór Kormáksson gluggum á Laugaveginum. Unnið er út frá þemanu Ég-hlutur. Síðasti sýningar- dagur. Sara Björnsdóttir myndlistarmaður er með sýningu í Galleri Skugga. Sýningin ber heitið Fljúgandi diskar og önnur undursamleg verk. Til sýnis eru skúlpt- úrar, lágmyndir, myndbands- og hljóð- verk, og eru síðastnefndu verkin unnin sérstaklega út frá rými gallerísins. Sýn- ingin stendur til 25.nóvember. Galleríið er opið frá 13 til 17 alla daga nema mánudaga. Sýning á verkum Guðmundar Björg- vinssonar stendur yfir í Gallerí Reykja- vík, Skólavörðustíg 16. Guðmundur sýn- ir 17 akrílmálverk sem eru öll máluð í expressíonískum stíl á þessu ári. Myndefnið er maðurinn. Sýningin er opin mánudaga til föstudaga kl 13 til 18 og laugardaga 13 til 16 og henni lýkur 21. nóvember. Yfirlitssýning á verkum Gunnlaugs Scheving í öllum sýningarsölum Lista- safns íslands. Sýningin er opin alla daga nema mánudaga, 11-17 og stend- ur til 9. desember n.k. Megas í Nýlistasafninu. Til sýnis er sjaldséð myndlist Megasar í ýmsum miðlum og frá ýmsum tímum. Sýningin stendur til 30. nóvember. Guðbjörg Hákonardóttir - Gugga, hefur opnað myndlistarsýningu í Listasal Man, Skólavörðustíg 14. Sýningin stend- ur til 11. nóvember og er opin mán.-lau. 10-18 og sunnudaga kl. 14-18 Sýning á verkum Önnu Eyjólfsdóttur í báðum sölum Listasafns ASf. Safnið er opið alla daga nema mánudaga kl. 14.00 -18.00. Myndlistarsýning á vegum WHO, Evr- ópudeild Alþjóða Heilbrigðisstofnun- innar stendur yfir í Hafnarborg. 20 framsæknir listamenn í Evrópu hafa verið fengnir til starfa í þvi augnamiði að hvetja fólk til að leita sér aðstoðar við að hætta reykingum. Sýningin er opin alla daga nema þriðjudaga frá kl 11 til 17 og henni lýkur 12 nóvember. Kristín Reynisdóttir sýnir verk í Þjóðar- bókhlöðunni. Þetta er fjórða sýningin í sýningaröðinni Feilingar sem er sam- starfsverkefni Kvennasögusafnsins, Landsbókasafns íslands - Háskólabóka- safns og 13 starfandi myndlistarkvenna. Opnunartími Kvennasögusafnsins er milli klukkan 9 og 17 virka daga og eru allir velkomnir. Jón Valgard Jörgensen sýnir I Félags- starfi Gerðubergs. Sýndar eru landslags- myndir, fantasíur, portrait teikningar og dýramyndir. Sýningin stendur til 9. nóv- ember. Opnunartímar sýningarinnar: mán. - fös. kl. 10-17 og um helgar kl. 13-16. /

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.