Fréttablaðið - 08.11.2001, Síða 24

Fréttablaðið - 08.11.2001, Síða 24
FRETTABLAÐIÐ SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 515 75 00 Rítstjórn: 515 7515, símbréf: 515 75 06, rafpóstur: ritstjorn@frettabladid.is Auglýsinga- og markaðsdeild: 515 75 15 - símbréf 515 75 16 - rafpóstur auglysingar@frettabladid.is Dreifing: 515 75 20 VlÐ SEGJUM FRÉTTIR Fréttavefurinn á VÍSÍr.ÍS Fyrstur með fréttirnar SfficMcyMb € Aáde^cnu Kr. 1090 Grensásvegur10 Sími 553 88 33 Vatnsmýrarvegi 25 • Sími: 565 1055 Vantar bíla vegna gífulegrar sölu! Bakþankar STEINUNN STEFANSDÓTTIR Að veltast um á vaðmáls- fötum Mér finnst yfirleitt mjög gaman að fara í leikhús og skemmti- legast þegar sá galdur næst að mað- ur lifir sig algerlega inn í það sem fram fer á sviðinu. Einhvern veginn finnst mér þó mér takast æ sjaldnar að upplifa þetta algleymi í leikhús- inu og dettur svo sem ekki í hug að sakast við aðra en sjálfa mig í því efni. —#— ÞAÐ ER SAMT EITT MÁL sem mér finnst orðið mjög skrýtið í ís- lenskum leiksýningum. Það er ein- hæft gervi og túlkun þess hóps fólks sem kalla má íslenska alþýðu. Það er býsna algengt í íslenskum leikritum og leikgerðum skáldsagna að sjá hóp leikara fara með aukahlutverk al- þýðumanna (og -kvenna). Þetta fólk skakklappast iðulega um sviðið á brúnum eða gráum og oftast hólkvíðum vaðmálsfötum, sníkjandi brennivín og í nefið. Oft er þetta fólk mjög groddalegt og raddir þess eru skrækar eða afmyndaðar með einhverjum öðrum hætti. Ég verð að vióurkenna að ég er orðin hálfleið á þessu fólki og stundum líður mér eins og ég sé aftur og aftur að horfa á sömu sýninguna. Ég veit að þetta á ekki að skipta miklu máli, þetta eru jú aukahlutverk, og ég veit líka að í leikhúsi er fært í stílinn, það er eðli þess. Mér finnst samt eins og tími sé kominn til að stokka aðeins upp í gervi og túlkun þessa hóps sem var kannski bróðurpartur þjóðarinnar um aldir. OFT GEGNIR ALÞÝÐUFÓLKIÐ því hlutverki í leiksýningu að vera fyndið og stundum tekst það líka mjög vel. Þessi einhæfni í túlkun er þó farin að setja strik í reikninginn og mig er farið að lengja í fjöl- breyttari útfærslur á þessari fyndni. Það er til dæmis ekki óhugsandi að alþýðukona geti verið í vel sniðnum fötum og ein flík í sterkum lit gæti breytt miklu, það er jú fært í stílinn í leikhúsi. Ég trúi því ekki að allt al- þýðufólk hafi verið með beinkröm og því sé útilokað að það sé leikið beint í baki og er sannfærð um að það hefur oft verið með venjulegar raddir. Margt alþýðufólk hefur áreiðanlega verið stoltara en svo að það væru stöðugt að biðja um brennivín, auk þess sem margir hafa hreinlega ekki verið fyrir það. Fjöl- breytnin skiptir máli. ■ «*<* DANSKIR Kalkúnn Kjúklingur Til jölanna engin sjjurning Packard Bell V Alvöru fartölva 1GHz nrm nstvvtr 3100 flllll Örgjörvi Vinnsluminni Harður Diskur þyngd Skjár CD-Rom Faxmódem Tengi PCMCIA Pentium III 1GHz 256 Mb 20 GB 3,4 kg 14" XGATFT DVD 8x 56k. V.90 2 USB, 1 IR port, 1 TV út 2 Type II eða 1 Type III kr. 209.900 Lágmúla 8 • Sími 530 2800

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.