Fréttablaðið - 08.11.2001, Síða 15

Fréttablaðið - 08.11.2001, Síða 15
FIMMTUDAGUR 8. nóvember 2001 FRÉTTABLAÐIÐ 15 HM 2002: Rautt fyrir leikaraskap knattspyrna Alþjóðaknattspyrnu- sambandið (FIFA) hefur ákveðið að taka harkalega á leikaraskap leikmanna í Heimsmeistara- keppninni í Japan og Suður-Kóreu á næsta ári. Leikmenn sem verða uppvísir að því að láta sig falla eða gera sér upp meiðsli geta átt von á að fá rautt spjald. Fram að þessu hafa dómarar einungis gefið leikmönnum gult spjald fyrir leikaraskap. Sepp Blatter, forseti FIFA, sagði að rætt hefði verið um þessi mál inn- an sambandsins í síðustu viku og að niðurstaðan hefði verið sú að ef leikmenn sýndu leiknum óvirð- ingu með leikaraskap ættu dóm- arar að senda þá af leikvelli. Blatter sagði að einnig kæmi til greina að nota upptökur af leikjum til að ákvarða hvort leik- mönnum yrði refsað fyrir leik- araskap. Ef leikmenn vissu að sjónvarpsmyndavél fylgdist með þeim allan leikinn myndu þeir haga sér betur. ■ PAOLO Dl CANIO Leikmenn geta átt von að verða sendir af velli ef þeir verða uppvísir að leikaraskap. Óvissa með framtíð Arsene Wenger: Tekur van Gaal við Arsenal? HOLLENDINGUR Van Gaal er undir smásjánni hjá Arsenal vegna góðs árangurs hans í að byggja upp unga leikmenn. knattspyrna Enskir fjölmiðlar greindu frá því í gær að Arsenal hygðist ráða hollenska landsliðs- þjálfarann Louis van Gaal, sem framkvæmdastjóra ef Arsene Wenger myndi ekki undirrita nýj- an samning fljótlega, en núver- andi samningur hans rennur út næsta sumar. „Ég sagði í lok síðasta tímabils að ég myndi skrifa undir áður en þetta tímabil hæfist, en ég hefði ekki átt að segja það,“ sagði Wen- ger. „Fríið sem er framundan vegna landsleikja er tilvalið til að setjast niður og ræða nýjan samn- ing. Vonandi getum við, komist að einhverri niðurstöðu. Ég held að við göngum frá þessu fljótlega." Eftir 1. janúar getur Wenger rætt við önnur félög og munu for- ráðamenn Arsenal vera uggandi yfir því að hann verði ekki búinn að skrifa undir fyrir þann tíma. Sumir halda því jafnvel fram að Wenger telji sig ekki geta náð meira út úr Arsenal liðinu og því muni hann hætta fljótlega. Benda þeir á að tímabilið frá 17. til 26. nóvember muni skera úr um framtíð hans hjá liðinu, en þá mun Arsenal leika gegn Tottenham og Man. Utd. í Urvalsdeildinni og Deportivo La Coruna í Meistara- deildinni. Þann 26. nóvember munu síðan bæjaryfirvöld í Isl- ington ákveða hvort Arsenal fái leyfi til að byggja nýjan völl við Ashburton Grove. Van Gaal er undir smásjánni hjá Arsenal vegna góðs árangurs hans 1 að byggja upp unga leikmenn hjá Ajax á sínum tíma. Ungmennalið Arsenal, bæði undir 17 ára og undir 19 ára, hafa haft yfirburði í Englandi, en Wenger hefur hins vegar ekki verið mikið fyrir að gefa þeim tækifæri með aðalliðinu. ■ ALLT í GÓÐU Lewis hefur rekið Maloney eftir 12 ára samstarf. Lennox Lewis: Rak umboðs- manninn hnefaleikar Lennox Lewis hefur rekið Frank Maloney umboðs- mann sinn til 12 ára, en aðeins 10 dagar eru þangað til hann berst við Hasim Rahman í Las Vegas. í viðtali við enska slúðurblaðið The Sun sakaði Maloney, sem átti stóran þátt í að koma Lewis á toppinn í hnefaleikaheiminum, hann um að koma fram við sig eins og þræl. Hann sagði augljóst að Lewis vildi ekki umboðsmann og það hefur komið á daginn því Lewis sagði eftir að hann rak Maloney að hann hygðist sjá um sín mál sjálfur. ■ Landsleikur: Jafnt hjá ítölum °g Japönum knattspyrna ítalska landsliðið gerði 1-1 jafntefli við Japan í æf- ingaleik á Saitama leikvanginum í Tókíó í gær. Atsushi Yanagisawa, leikmaður Kashima Antlers, skor- aði fyrsta mark leiksins snemma í fyrri hálfleik eftir góða sendingu frá Junichi Inamoto, leikmanni Arsenal, en Cristiano Doni jafnaði metin skömmu eftir leikhlé og þar við sat. Philippe Troussier, þjálfari Japans, sagði að ítalir væru með mjög sterkt lið og því væri hann mjög ánægður með úrslitin. Hann sagði að þau myndu auka sjálfs- traust liðsins, sem tekur þátt í lokakeppni HM á næsta ári sem gestgjafi. ítalir, sem léku án markvarðarins Francesco Toldo og miðvallarleikmannsins Dami- ano Tomassi, voru slakir í fyrri hálfleik og heppnir að vera ekki meira en einu marki undir. í síðari hálfleik voru þeir hins vegar mun betri aðilinn og hefðu getað skor- aði meira en eitt mark. ■ DEL PIERO Alessandro Del Piero sendir boltann fram- hjá japanska varnarmanninum Yasuhiro Hato. afsláttur af öllum skóm OkonomiSko -meira fyrír peningana Glæsibæ - sími 568 6062 Kuldagalli kr. 7.900 Mittisjakki kr. 3.900 VINNUFATALAGERINN SMIÐJUVEGI 4 0PIÐ MÁNUD -FÖSTUDAG KL10-18 LAUGARD 12-16

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.