Fréttablaðið - 28.11.2001, Blaðsíða 6
6
FRETTABLAÐIÐ
28. nóvember 2001 MIÐVIKUDACUR
SPURNING DACSINS
Eiga íslendingar að njóta
sömu kjara og útlendingar
hjá Flugleiðum?
„Að sjálfsögðu. Það á ekki að skipta máli
hver er að kaupa flugmiða, allir eiga að
njóta sömu kjara."
Þórólfur Jónsson landslagsarkítekt
SJÓRÆNINGJAÚTGÁFA
Wlikið virðist vera um ólöglegar útgáfur af
Harry Potter vörum f umferð út um heim. I
Taivan lagði lögreglan hald á hundrað þús-
und eintök af nýju kvikmyndinni um Potter
á mynddiskum sem fundust f ólöglegri
verksmiðju í úthverfi borgarinnar Taipie.
Talið er að markaðsverð myndanna sé
metið á um 300 milljónir króna.
Breskir lögregluþjónar:
Seldu ólög-
legar Harry
Potter-vörur
londonap Tveimur breskum lög-
regluþjónum hefur verið vikið úr
starfi fyrir að hafa selt svokallað-
ar sjóræningjaútgáfur af Harry
Potter-vörum á Netinu, en þær
eru með öllu ólöglegar. Búist er
við mikilli eftirspurn eftir Harry
Potter-vörum víða um heim um
jólin, en nýlega var fyrsta kvik-
myndin um þessa vinsælu skáld-
sagnarpersónu frumsýnd í Banda-
ríkjunum og Bretlandi. ■
RANNSÓKN
Rannsókn stendur nú yfir á flaki flugvélar-
innar sem fórst í Sviss sl. laugardag. Vélin
var í aðflugi að flugvellinum í Zurich
þegar hún brotlenti.
Flugslysið í Sviss:
Flugritar í
rannsókn
zurich.svissap Flugritar farþega-
vélarinnar sem brotlenti í Sviss sl.
laugardag eru nú í rannsókn í Par-
ís í Frakklandi. Vonast flugmála-
fræðingar til að komast að því í
dag eða á morgun hvers vegna
vélin, sem var í eigu svissneska
flugfélagsins Crossair, brotlenti.
24 menn létust í slysinu, en vélin
hrapaði í aðflugi að flugvellinum í
Zurich. Ráðmenn hafa hingað til
neitað að geta sér til um hvað olli
slysinu. Vitað er að flugskilyrði
voru slæm, en frumrannsókn
benti líka til þess að flugmaðurinn
hefði flogið of lágt. ■
Byssumenn hófu skothríð í Israel:
Fjórir létust eftir
skothríð á strætóstöð
afula.ísraelap Tveir ísraelsmenn
létust og að minnsta kosti 19
særðust þegar palestínskir byssu-
menn hófu skothríð á strætis-
vagnastöð í miðborg bæjarins Af-
ula í norðurhluta Israels í gær-
morgun. Tveir byssumenn voru
skotnir til bana af lögreglunni
skömmu síðar. Óttaðist hún að
annar byssumaður hafi náð að
flýja og stóð leit að honum yfir í
gær. Tveir bandarískir samninga-
menn frá Bandaríkjunum eru nú
staddir í ísrael og í gær ræddu
þeir við Ariel Sharon, forsætis-
ráðherra landsins, um friðarhorf-
ur fyrir botni Miðjarðarhafs. í
dag ætla þeir að ræða við Yasser
Arafat, leiðtoga Palestínumanna.
Fyrr um daginn drógu ísraelar
hersveitir sínar burt frá bænum
Jenin á Vesturbakkanum. Bærinn
var sá síðasti sem hersveitirnar
áttu eftir að yfirgefa af þeim sex
bæjum sem herteknir höfðu ver-
ið. Réðust hersveitirnar inn í bæ-
ina í síðasta mánuði eftir morðið á
ísraelskum ráðherra. ■
Ariel Sharon, forsætisráðherra ísraels (til vinstri) ásamt Anthony Zinni, samningamanni
Bandaríkjanna, fyrir fund þeirra sem haldinn var á skrífstofu Sharon í Jerúsalem.
ANDERS FOGH RASMUSSEN BERTEL HAARDER
Forsætisráðherra. Innflytjendaráðherra
og Evrópuráðherra.
THOR PEDERSEN
Fjármálaráðherra.
PER STIG M0LLER,
utanríkisráðherra
LENE ESPERSEN,
dómsmálaráðherra
„Nú verða loforðin efnd' ‘
Anders Fogh Rasmussen, nýr forsætisráðherra Danmerkur, kynnti ráðherralista sinn í
gær. Málefnasamningur um „vöxt, velferð og endurnýjun“. Tólf ráðherranna koma frá
Venstre en sex frá Ihaldssama þjóðarflokknum. Þrír þeirra eru eiga ekki sæti á þingi.
Bertel Haarder verður innflytjendaráðherra.
RÁÐHERRAR VINSTRIFLOKKSINS:
Anders Fogh Rasmussen, forsætisráðherra
Thor Pedersen, fjármálaráðherra
Claus Hjort Frederiksen, atvinnuráðherra
Bertel Haarder, ráðherra flóttamanna,
innflytjenda og aðlögunar, Evrópuráðherra
Svend Erik Hovmand, skattaráðherra
Helge Sander, ráðherra vísinda, tækni og þróunar
Mariann Fischer Boel, matvælaráðherra
Svend Aage Jensby, landvarnaráðherra
Hans Christian Schmidt, umhverfisráðherra
Lars Lokke Rasmussen, innanríkis- og heilbrigðisráðherra
Tove Fergo, kirkjuráðherra
Ulla Tornæs, menntamálaráðherra
RÁÐHERRAR ÍHALDSSAMA ÞJÓÐARFLOKKSINS:
Bendt Bendtsen, efnahags- og iðnaðarráðherra,
ráðherra norrænnar samvinnu
Per Stig Moller, utanríkisráðherra
Lene Espersen, dómsmálaráðherra
Brian Mikkelsen, menningarráðherra
Flemming Hansen, umferðarráðherra
Henriette Kjær, félagsmála- og jafnréttisráðherra
dönsk stjórnmál Átján ráðherrar
verða í ríkisstjórn borgaraflokk-
anna í Danmörku, sem tekur við
af ríkisstjórn Pouls Nyrups
Rasmussens. Tólf ráðherranna
koma frá Venstre, sem er
stærsti flokkur danskra hægri-
manna, en hinir sex frá íhalds-
sama þjóðarflokknum. Fimm
ráðherranna eru konur, þeirra á
meðal Lene Espersen dómsmála-
ráðherra.
Anders Fogh Rasmussen, sem
verður forsætisi’áðherra, kynnti
í gær stjórnina og málefnasátt-
mála hennar, sem ber yfirskrift-
ina „Vöxtur, velferð - endurnýj-
un“. Þar er því meðal annars lof-
að að skattar verði ekki hækkað-
ir frekar en orðið er, og skatta-
lækkanir boðaðar síðar. Þá ætlar
stjórnin að binda gengi dönsku
krónunnar evrunni.
Þrír ráðherranna eru utan-
þingsmenn, þar á meðal Bertel
Haarder, sem situr á Evrópuþing-
inu og er mikill Evrópusinni. í
hans hlut kemur hið nýja ráðu-
neyti sem fer með málefni flótta-
manna, innflytjenda og aðlögun-
ar þeirra að dönsku samfélagi.
Auk þess verður hann Evrópu-
ráðherra nýju stjórnarinnar.
Hann var menntamálaráðherra í
þremur hægristjórnum Pauls
Schlúters á árunum 1982-93.
Málefni innflytjenda settu
sterkan svip á kosningabarátt-
una. Loforð hægriflokkanna um
að taka hart á þeim málaflokki
féllu greinilega í góðan jarðveg
hjá kjósendum, og í gær hét
Fogh Rasmussen að þau loforð
verði efnd.
„Ríkisstjórnin telur alveg
nauðsynlegt að takmarka núver-
andi aðstreymi af útlendingum,
sem koma til Danmerkur," segir
í stjórnarsáttmála flokkanna.
Mikilvægt sé að veita fé til þess
að aðlaga innflytjendur að dön-
sku samfélagi: „Þeir eiga að
læra dönsku, og þeir eiga að fá
vinnu til þess að hjálpa þeim út
úr framfærslukerfi hins opin-
bera.“
Nýja stjórnin ætlar meðal
annars að sjá til þess að innflytj-
endur fái ekki varanlegt dvalar-
leyfi fyrr en eftir sjö ára búsetu
í Danmörku. Þá verða skilyrði
hert fyrir því að innflytjendur,
sem búsettir eru í Danmörku, fái
ættingja sína til landsins. Einnig
verður stjórnvöldum auðveldað
að vísa úr landi þeim innflytj-
endum, sem gerast brotlegir við
iög. Þróunariönd, sem ekki vilja
taka við eigin ríkisborgurum
sem Danir vísa úr landi, fá auk
þess ekki frekari fjárhagsaðstoð
frá Danmörku. Er þá einungis
nokkuð nefnt af þeim ráðstöfun-
um, sem nýja stjórnin ætlar að
grípa til varðandi innflytjendur.
gudsteinn@frettabladíd.is
^ Umboðsmaður Alþingis:
Olögleg leynd ríkisstofnunar
úrskurðir Umboðsmaður alþing-
is telur að ríkisstofnun ein hafi
margbrotið lög og reglur þegar
hún réði starfsmann í sérhæft
skrifstofustarf í fyrra.
Stofnunin, sem aðeins er
nefnd X í úrskurði umboðs-
manns, auglýsti eftir starfs-
manni í fyrrahaust án þess að
geta um hvað stofnun væri að
ræða og lofaði umsækjendum
trúnaði án þess að hafa til þess
heimild að mati umboðsmanns.
Einn umsækjendanna sem
ekki fékk starfið og heldur eng-
ar upplýsingar um meðumsækj-
endur sína kærði málið til um-
boðsmanns, sem segir þá leynd
sem hvíldi á því hvaða stjórn-
vald ætti hlut að máli á öllum
stigum málsins hafa verið and-
stæða lögum og torveldað því að
maðurinn fengi notið réttinda
sinna.
Stofnunin X hvorki varðveitti
né lét kærandanum í té upplýs-
ingar um nöfn og heimilisföng
alira umsækjenda eins og henni
ber að gera lögum samkvæmt.
Þá hafði stofnunin hafnað því að
maðurinn fengi aðgang að um-
sóknum þeirra tveggja sem
ráðnir voru tii starfans en um-
boðsmaður segir manninn eiga
rétt til að sjá allt það í umsókn-
um þeirra sem ekki teljist varða
beina einkahagsmuni þeirra.
Ríkisstofnun X hefur lofað
umboðsmanni bót og betrun og
segist hann með hliðsjón af því
treysti að framvegis verði staðið
betur að málum. ■
Stálu hjólbörðum:
Fótspor réikin
í snjónum
óveður Menn bjuggu sig með ýmsu
móti undir vonskuveðrið sem gekk
yfir í gær. Lögreglan í Reykjavík
fékk tilkynningu um grunsamleg-
ar mannaferðir og voru þeir að
eiga eitthvað við bíl. Þegar lögregl-
an aðgætti málið höfðu mennirnir
tekið fjóra hjólbarða undan jeppa
auk varadekks og hvíldi bíllinn á
undirvagninum. Vel gekk að finna
hverjir voru að verki því fótspor
mannanna voru rakin í snjónum og
fundust þeir skammt frá í felum
með 38 tommu dekkin. ■