Fréttablaðið - 28.11.2001, Page 8
aiaAJ8Arn;n
IOOS 'isUintívðn M 3*J3MÍÚ)ll#blM
/f
■'
’w ff&Wm WW
*****
'i-Vi'WwWi
BPfFffffffl
FRÉTTABLAÐIÐ
28. nóvember 2001 MIÐVIKUDAGUR
Mikið tap hjá Þróunarfé-
laginu:
Gengislækkun
bréfa veruleg
uppgjör Mikið tap varð af rekstri
Þróunarfélagsins, en tapið er til-
komið vegna lækkunar á verð-
bréfaeign félagsins. Gengistapið
er því óinnleyst. Tap félagsins var
rúmur einn og hálfur milljarður.
Lækkun á verði skráðra bréfa Að-
allista Verðbréfaþings var 43,4%,
en heildar verðlækkun bréfa fyr-
irtækisins var 35,7%. Þetta er
mikil breyting frá fyrra ári, en þá
nam hagnaður rúmum milljarði
fyrir sama tímabil. Meðal stórra
eigna félagsins má nefna Opin
kerfi, en gengi þeirra bréfa hefur
lækkað mikið á árinu. ■
Stiórnarformaður segir
ekkert óeðlilegt við sér-
pantaða úttekt:
Fleiri lands-
hlutar verða
skoðaðir
byggðamál Kristinn H. Gunnars-
son, stjórnarformaður Byggða-
stofnunar, segir ekki óeðlilegt að
hann hafi sem stjórnarformaður
beðið Byggðastofnun um að
vinna úttekt á
k j ö r d æ m i
sínu. „Það er
eitt verkefna
Byggðastofn-
unar að fylgj-
ast með áhrif-
um lagabreyt-
inga á
byggðaþróun.
Það eru sér-
fræðingarnir
sem vinna
þetta og ég
ræð ekki þeir-
ra niðurstöð-
um.“
Kristinn
segist sjálfur
hafa beðið
forstjóra Byggðastofnunar um
skýrsluna í vor og að þá hafi ver-
ið ákveðið að kanna Vestfirðina
fyrst enda sé um helmingurinn
af smábátaveiðum þar. Stjórn
Byggðastofnunar hafi svo þegar
skýrslan var kynnt henni 2. nóv-
ember sl. ákveðið að vinna álíka
úttekt um önnur landsvæði.
Að sögn Kristins telja starfs-
menn Byggðastofnunar að mót-
vægisaðgerðir stjórnvalda gegn
áhrifum kvótasetningar á króka-
báta þýði að aflasamdráttur á
Vestfjörðum verði um þriðjungi
minni en ella. Stofnunin hafði
talið að aflinn í landshlutanum
myndi minnka um 6200 tonn sem
hefði í för með sér hátt í 300
færri störf í útgerð og fisk-
vinnslu og eins milljarðs króna
minna aflaverðmæti.
KRISTINN H.
GUNNARSSON
„Það er eitt verkefna
Byggðastofnunar að
fylgjast með áhrifum
lagabreytinga á
byggðaþróun," segir
stjórnarformaður
Byggðastofnunar.
Vegna mistaka var sagt í
Fréttablaðinu í gœr að Kristinn
H. Gunnarsson hefði ekki svarað
skilboðum blaðsins. Það gerði
Kristinn síðdegis í gær en fyrir
mistök í vinnslu blaðsins birtist
röng útgáfa af frétt um úttekt
Bggðastofnunar. Kristinn er beð-
inn velvirðingar. ■
Viðræður um bráðabirgðastjórn Afganistans:
Sameinast um gamla kónginn
königswinter. ap Viðræðurnar í
Þýskalandi milli fjögurra af-
ganskra hópa um bráðabirgða-
stjórn fóru vel af stað í gær.
Virtust allir fulltrúarnir geta
komið sér saman um, a.m.k. til
að byrja með, að Mohammed Za-
her Shah verði á ný konungur
Afganistans, en hann var kon-
ungur þar í landi áratugum sam-
an um og eftir miðja síðustu öld.
Viðræðurnar eru haldnar á
vegum Sameinuðu þjóðanna,
sem hafa lagt fram hugmyndir
um tveggja ára bráðabirgða-
stjórn til grundvallar viðræðun-
um. Til viðræðnanna eru mættir
fulltrúar Norðurbandalagsins,
sem barist hefur gegn talibönum
með stuðningi Bandaríkjanna,
stuðningsmenn gamla konungs-
ins sem býr í útlegð á Ítalíu
ásamt fulltrúum tveggja smærri
útlagahópa.
Bandaríkin, Rússland, Pakist-
an og fleiri ríki reyna hvert á
sinn hátt að hafa áhrif á niður-
stöðu viðræðnanna. Bandaríkin
hafa heitið milljörðum dala í
fjárhagsaðstoð til uppbyggingar
Afganistan, en sett það skilyrði
að niðurstaða fáist af viðræðun-
um sem þau geta sætt sig við.
Allir lögðu leiðtogar samn-
inganefndanna áherslu á að
sveigjanleiki sé mikilvægur auk
þess sem í bráðabirgðastjórn-
inni verði að vera fulltrúar allra
Afgana, líka kvenna. ■
FRÁ RÁÐSTEFNUNNI í
KÖNIGSWINTER
Tvær konur eru meðal þeirra 25 fulltrúa
sem sitja ráðstefnuna um framtíð Afganist-
ans í Þýskalandi. Fyrsti dagur viðræðnanna
var í gær.
Samið um 60% hækkun
launa tónlistarkennara
Verkfalli tónlistarkennara frestað til 14. desember n.k. Um 10% hækkun 1. nóvember og 3% ár-
lega 2003 og 2004. Ný launatafla í ársbyrjun 2002. Laun sögð verða sambærileg við grunnskóla-
kennara.
TÓNLISTARKENNARAR Samninga-
nefnd Félags tónlistarkennara
og Félags íslenskra hljómlistar-
manna skrifaði undir nýjan
kjarasamning við Launanefnd
sveitarfélaga á níunda tímanum
í gærmorgun með fyrirvara um
samþykki félagsmanna. Þá hafði
sáttafundur staðið yfir í um einn
sólarhring. Samhliða þessu var
verkfalli þeirra frestað til 14.
desember n.k. en það hafði stað-
ið yfir í rúman mánuð. Þá á að
liggja fyrir niðurstaða í allsherj-
aratkvæðagreiðslu um samning-
inn sem kynntur verður á næst-
unni. Samkvæmt heimildum
Fréttablaðsins hækka laun tón-
listarkennara um 60% en samn-
ingurinn gildir frá 1. nóvember
sl. til septemberloka árið 2004.
í samningnum er einnig kveð-
ið á um að tónlistarkennarar fái
strax um 10% launahækkun á
gildandi launatöflu en 1. janúar
n.k. á að taka gildi
ný launatafla. Þá
fá kennarar 3%
launahækkun í
ársbyrjun 2003 óg
2004. Þá er stað-
hæft að laun tón-
listarkennara
verði álíka og laun grunskóla-
kennara við lok samningstím-
ans. Reynist það rétt er þarna
um töluverða launahækkun að
ræða fyrir tónlistarkennara því
dagvinnulaun grunnskólakenn-
ara eru rúmlega 190 þúsund og
eiga að verða nálægt 220 þúsund
við lok samningstíma þeirra.
Grunnlaun tónlistarkennara
voru fyrir samninginn um 105
þúsund krónur á mánuði. í þess-
um samningi var samið um
ákveðnar kerfisbreytingar eins
og t.d. um að kaupa meiri vinnu
af tónlistarkennurum og ákvæði
um sveigjanleika við vinnutilhög-
Talið er að
samningurinn
kosti borgina
um 200-300
milljónir á ári
—+—
SKRIFAÐ UNDIR f KARPHÚSINU
Kennsla í tónlistarskólum landsins er að komast á fullt eftir um mánaðarverkfall.
un. f þeim efnum var grunnskóla-
samningurinn hafður til hliðsjón-
ar. Talið er að samningurinn kosti
Reykjavíkurborg um 200-300
milljónir króna á ári en óvíst er
hvað hann muni kosta sveitarfé-
lögin í heild.
Svo virðist sem almenn ánægja
sé með þennan nýja samning meðal
tónlistarkennara. Sömuleiðis segj-
ast sveitarstjórnarmenn vera nokk-
uð sáttir þótt þeir séu uggandi um
að samningurinn geti orðið íþyngj-
andi fyrir mörg sveitarfélög.
grh@frettabladid.is
inglunni
Uppreisnin í Mazar-e-Sharif brotin á bak aftur:
Allir fangarnir lágu í vabium
KABÚL. ap Liðsmenn Norðurbanda-
lagsins í Afganistan sögðust í gær
hafa brotið uppreisn í fangelsi í
Mazar-e-Sharif á bak aftur. Atökin
við fangana, sem voru flestir liðs-
menn A1 Kaída og höfðu barist með
talibönum í Kunduz, stóð í þrjá
daga. Þeim lauk ekki fyrr en allir
fangarnir lágu í valnum, en þeir
voru nokkur hundruð talsins.
Bandarískir sérsveitarmenn tóku
þátt í átökunum við fangana.
Landgönguliðar bandaríska
sjóhersins börðust einnig við tali-
bana í grennd við Kandahar í
gær, þar sem talið er að helstu
BANDARÍSKiR SÉRSVEITARMENN
Þessir Bandaríkjamenn tóku þátt ( bardög-
um við nokkur hundruð fanga sem börð-
ust við Norðurbandalagið í Wlazar-e-Sharif.
leiðtogar talibana séu ennþá.
íbúar í Kandahar, sem rætt var
við símleiðis í gær, segja baráttu-
þrek talibana þar í borg vera að
brotna niður. „Þeir eru ekki jafn
virkir og vakandi eins og þeir voru,
og þeir halda ekki uppi jafn ströngu
eftirliti," sagði Mohammed Asan,
sem kom frá Kandahar til
landamæraborgarinnar Chaman í
Pakistan í gær.
Margir virðast vera að komast á
þá skoðun að Osama bin Laden sé
staddur í Tora Bora, fjallavirki í ná-
grenni Jalalabad austantil í
Afganistan. ■