Fréttablaðið - 28.11.2001, Page 16
16
FRÉTTABLAÐIÐ
28. nóvember 2001 MIÐVIKUDACUR
MOULIN ROUCH
[LECflLLY BLONDE 3,40, 5.50, 8 og loTTo l iPÉTUR OG KÖTTURINN- H. 4 j
|CÆ5flPARTÍ
ÍTHE OTHERS
k80giai5|FT| ÍRUGflRlS 1NRflRÍSm/isl.tali kl4
jSKÓLflLÍF m/ísLtal kL345og550 | F1 ISHREK m/ísLtali kL4
kL6,8 og 101 |THE OTHERS
FRÉTTIR AF FÓLKI
SÍMI 564 0000 - www.smarabio.is
Trésvið sem Bítlarnir John
Lennon og Paul McCartney
kynnust á verður selt á uppboði.
Paul og John hitt-
ust þar fyrst er
þeir komu fram á
tónleikum við St
Peters Church £
Liverpool sem
táningar. Talið er
að það verði selt á
allt að 7,8 milljón-
ir króna.
Strákabandið Westlife og Mari-
ah Carey ætla aftur að taka
höndum saman og gefa út annað
lag. Þau unnu
saman að gamla
slagaranum Aga-
inst All Odds sem
Phil Collins gerði
frægt á árum
áður. Ekki er enn
búið að ákveða
hvaða lag verður
flutt en á föstu-
daginn kemur koma þau fram í
Top of The Pops og flytja lagið
Never Too Far sem Carey samdi.
Gillian Anderson ætlar sér að
setjast í leikstjórastólinn eft-
ir að síðustu seríu X-Files þátt-
anna lýkur. Hún
keypti kvik-
myndaréttinn af
bók sem heitir
Speed of Light.
Hún segist hafa
orðið það heilluð
af bókinni að hún
henni finnist það
skylda sín að gera
eftir henni kvikmynd.
Michael Jackson er víst orðinn
eitthvað leiður á því að vera
fölur. Þegar hann sá upptökur af
tónleikum sínum í
Madison Square
Garden í septem-
ber brá honum
svo að sjá hversu
fölur hann var
miðað við bræður
sína í Jackson 5 að
hann bað brellus-
sérfræðinga að
dekkja húð sína áður en tónleik-
arnir verða birtir á sjónvarpsstöð-
inni CBS. Það er semsagt byrjað
að skipta hann máli hvort hann sé
svartur eða hvítur.
-
FÓSTBRÆÐUR
„Það er lítið á döfinni hjá Fóstbræðrum núna. Ætli við höfum ekki unnið okkar síðustu verðlaun um daginn. Ég á ekki von á því að
við tökum upp I vetur, enda ástæðulaust að mjólka þetta konsept," segir Þorsteinn Guðmundsson.
Eru þeir fyndnir?
Uppistand hefur orðid vinsælt hér á landi undanfarin ár. Meðal þeir-
ra fremstu í þeim flokki eru meðlimir Fóstbræðraflokksins. Svo virð-
ist einnig, sem Sportkaffi sé staður uppistandsins, en þar koma Sigur-
jón Kjartansson og Þorsteinn Guðmundsson fram í kvöld.
SKEMMTUN „Ég veit ekki hvað Sig-
urjón ætlar að tala um, er
spenntur að heyra það,“ segir
Þorsteinn Guðmundsson. Hann
og Sigurjón Kjartansson koma
fram á Sportkaffi kl. 22 í kvöld
og ætla að fara á kostum. Uppi-
standið er að festa sig í sessi á
Sportkaffi. Jón Gnarr hefur að
undanförnu komið þarna fram
og Sigurjón og Þorsteinn munu
væntanlega einnig vera fasta-
gestir næstu vikur.
„Það er töluverður áhugi fyr-
ir þessu. Það sést best á keppn-
unum um fyndnasta manninn.
Það vildu 100 manns taka þátt £
henni í ár,“ segir Þorsteinn og
Sigurjón er honum sammála.
„Sportkaffi hentar vel fyrir
þetta. Það er búið að ganga vel
hjá Jóni og gæti myndast
skemmtileg hefð fyrir uppi-
standi."
Þorsteinn hefur meiri reynslu
en Sigurjón. „Ég hef komið af og
til fram i gegnum árin. Uppi-
stand er ansi merkilegt form
skemmtunar. Það getur verið
mjög taugastrekkjandi og það
munar öllu að lenda á góðu
fólki."
„Ég er nú ekki með þaulæft
prógram," segir Sigurjón. „Þetta
eru hugleiðingar, eitthvað sem
ég hef verið að velta fyrir mér i
gegnum tíðina. Ég er þannig séð
að byrja i uppistandinu. Sumum
kann að þykja það erfitt en ég
óttast ekki.“
Sigurjón hefur í nógu að snú-
ast þessa dagana þar sem Tví-
höfði er nýbúinn að gefa út plöt-
una Konungleg skemmtun og
hyggur á röð útgáfutónleika.
„Við ætlum að setjast niður eins
og Simon og Garfunkel, með
kassagítar í rólegri stemmningu,
og taka bestu lögin frá upphafi.
Þau eru fleiri en margir halda og
mörg orðin gömul.“ ■
Britney Spears er ákveðin í því
að gerast allra hliða stjarna á
borð við Madonnu og Jennifer
Lopez. Hún hefur nú stofnað sína
eigin kvikmyndaframleiðslu. Hún
segist gera sér fulla grein fyrir
því að poppið endist ekkert endi-
lega að eilífu og vill sína hæfi-
leika sína á leik-
listarsviðinu. Hún
hefur þegar leikið
í einni mynd,
Crossroads, sem
kemur í kvik-
myndahús á
næsta ári.
Emma Bunton segir að Spice
Girls hafi á prjónunum að fara
í aðra tónleikaferð, en hugsanlega
ekki fyrr en eftir 5 ár. Hún segir
stúlkurnar of uppteknar af eigin
tónlistarferlum. Tónleikaferðin
yrði hugsuð sem svanasöngur þeir-
ra og verður Geri ekki boðið með.
NABBI
HAGATORGI, SÍIVII 530 1919
Þar sem allir salir eru stórir
srrifífífíQ Bíá
«Þ.SÍ1ií*«U S4U»W*
ALFABAKKA 8, SIIVlI 587 8900
HÁSKÓLABÍÓ
Það er eitthvað skrýtið við þetta, en ég
veit ekki alveg hvao það er...
www.samfiltn.is
Lægsta verð
frá 985 kr.
HALLE BERRY
Hefur leikið í þó nokkrum myndum og þar
á meðal í Swordfish þar sem hún kom
fram ber að ofan. Bondstelpurnar hafa alls
verið 55 talsins, 27 brúnhærðar, 24 Ijóskur
og fjórar rauðhærðar.
Ráðið í eftirsótt hlutverk:
Berry næsta
Bondstelpa
fólk Ameríska leikkonan Halle
Berry mun leika á móti Pierce
Brosnan í næstu James Bond
mynd. Víst er að margar stúlkur
verða svekktar en hlutverk Bond
stelpunnar hefur alltaf verið eft-
irsótt. Berry skýtur stúlkum á
borð við Önnu Kournikovu, rúss-
nesku tennisstjörnunni, og Kelly
Brook ref fyrir rass en þær voru
meðal þeirra sem sóttu um hlut-
verkið. Meðal annarra sem koma
fram í myndinni eru Michelle
Yeoh, sem var valin ungfrú
Malasía árið 1997 og er sérhæfð í
bardagalistum, en hún kom fram í
síðustu mynd Tommorow Never
Dies auk John Cleese og Dame
Judi Dench.
Berry er þar með komin í hóp
með ekki ómerkari stúlkum en
Ursulu Anders, Grace Jones,
Terry Hachet, Jane Seymour,
Denise Richards, Sophie
Marceau, Eunice Gayson, Britt
Ekland og Akiko Wakabayashi. ■
2 ferr
Sýnd kl. 5.40, 8 og 10.20
|JEEPERS CREEPERS kL 6,8 og 10 [ p| Sýnd kl. 3.50, 5.55. 8 og 10.10 io»
jCORKY ROMflNO Id, 4,6,8081011^ | AMERICAN PIE 2 kL 8 og íqio | pT[
kL 5.45 og 81
Sýnd kl. 6, 8 og 10
Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10.10