Fréttablaðið - 03.12.2001, Page 4

Fréttablaðið - 03.12.2001, Page 4
Heimilisblaðið 3. til 10. desember 2001 Líf á níu heimilum Nánast allir sem komnir eru á fullorðinsár hafa flutt búferl- um, að minnsta kosti einu sinni, þegar þeir fóru að heiman. Flest- ir hafa þó flutt mun oftar og sum- ir hafa átt fleiri tugi heimila. Halldór Reynisson verkefnis- stjóri fræðslu- og upplýsinga- mála á Biskupsstofu fyllir ekki síðast nefnda flokkinn þótt hann hafi átt allmörg heimili, eða níu alls. Flest þeirra, eða sex, eru í Reykjavík enda er Halldór Reykjavíkurstrákur. ■ Halldór Reynisson hefur átt heima á níu stöðum frá fæðingu. Nú er hann sestur að í Vesturbæ Reykja- víkur og hyggur ekki á flutninga í nánustu framtíð. Laugateigur 16 Halldór er fæddur á Laugateig 16 árið 1953 og átti þar heima ásamt foreidrum og þremur systkinum en hann er yngstur fjög- urra alsystkina. Halldór var ekki nema fimm ára þegar fjölskyldan flutti í Álfheimana. Álfheimar 32 Halldór flutti í Álf- heima 32 árið 1958. „Þetta var svona stór og mikil blokk. Það var þetta eftirstríðsára baby-boom sem ein- kenndi þetta hverfi mjög," segir Halldór. „Þetta var dálítið hrátt um- hverfi, stórar blokkir, barnaskari og enginn umbúnaður utan um líf barnanna. Við lékum okkur á götunni og við lékum okkur í drullu- pollum og niðri í móa og úti í mýri." Granaskjól 9 frá 1995 Haustið 1995 gerðist Halldór prestur í Neskirkju og þá flutti fjölskyldan aftur í bæinn og settist að í Grana- skjóli 9 í Vesturbænum. „Þetta er svona „do it yourself" hús," segir Halldór en húsið í Granaskjóli er timb- urhús á steyptum grunni, byggt fyrir miðja síðustu öld. Halldór er ekki tilbúinn til að segja til um hvort hann sé lentur og hættur að flytja. „Kannski enda ég bara í sumarhúsi uppi í sveit," segir hann. Hruni í Hrunamannahreppi 1986-1995 Halldór varð prestur í Hruna í árslok 1986 en íbúðina á Birkimel áttu þau hjónin fram á næsta ár enda vann Guðrún í bænum fram á vorið. í Hruna bjó fjölskyldan til haustsins 1995. Á Hruna- árunum bættist þriðja barn þeirra Guðrúnar í hópinn. Hruni er einn af þessum stöðum þar sem segja má að sagan sé í hverju holti og greinilegt er að það hefur haft áhrif á Halldór. „Þárna hefur verið kirkja frá því á tólftu öld og allir þekkja söguna um dansinn í Hruna. Svo er náttúrulega kirkjugarður þarna við hliðina á húsinu. Einhvern tíma þegar við vor- um nýflutt fór elsti sonur minn með afa sinn þarna út í glugga til að sýna hinum. „Og svo erum við með fullt af dauðu fólki hérna," sagði hann mjög stoltur af því að búa við hliðina á kirkjugarði." Halldór segist hafa upplifað það sterkt að detta inn í einhverja söguvídd þegar hann flutti austur í Hruna og segir það hafa verið mikil viðbrigði að flytja af Birkimelnum í Hruna. Halldór stundaði einnig smávegis búskap, var með 50 ær og upp undir 10 hross. „Ég komst þó aldrei í þann hóp að vera talinn hestamaður." Bárugata 19 Halldór hóf búskap þegar hann var 22 ára í kjallaranum á þriggja hæða húsi á Bárugötu 19. „Á hinum hæðunum bjó ein virðuleg eldri frú." Á Bárugötunni byrjaði Halldór búskapinn með konu sinni Guðrúnu Björnsdóttur og Guðrún bjó áfram í íbúðinni fyrsta vetur- inn sem Halldór var í framhaldsnámi sínu í Bandaríkjunum en hann hélt vestur um haf árið 1980. Eigenmann garðurinn í Bloomington 1980-1981 Fyrri veturinn í Bandaríkjunum, meðan Halldór var einn, átti hann heimili á feiknamiklum stúdentagarði á háskólasvæði Indiana University í Bloom- ington. „Þetta var svona dormitory fyrir framhaldsnemendur við há- skólann. Þarna var maður bara eins og munkur í einu herbergi." Halldór segir að þarna hafi vistin verið heldur daufleg og einum íbúanum hafi þótt hún svo óbærileg þennan að hann lét sig vaða út um gluggann og greinilegt er að minningar Halldórs frá þessum stað eru fremur nöturlegar. exó húsgagnaverslun Fákafeni 9 108 Reykjavík sími 568 2866 fax 568 2866 www.exo.is exo@exo.is Opid mánudaga - föstudaga fra 10:00 til 18:00 frá 10a«90Q0 sunnudaga frá 13:00 til 17.00 REYKJAVIK - OSLO Fountain Park í Bloomington 1981-1982 Síðari vetur Halldórs í Bandarríkjun- um fór Guðrún út með Halldóri og einnig elsti sonur þeirra hjóna. Þau áttu þá heima í nokkurs konar rað- húsi sem leigt var stúdentum með fjölskyldum. „Þetta var miklu skemmtilegra umhverfi. Þarna var til dæmis sundlaug sem maður gat nýtt sér þegar fór að hlýna." Halldór segir að búskapur þeirra hjóna hafi verið fremur frumstæður þarna. „Við vor- um með garðhúsgögn fyrir húsgögn en þetta var allt í lagi. Birkimelur 8b 1983-1987 íbúðin á Birkimelnum var þriggja herbergja endaíbúð á annarri hæð. Á Birkimeln- um bættist annað barn í fjölskylduna. Halldór segir að sér hafi þótt afar gott að búa á Birkimelnum. „Þarna gekk ég alltaf í vinnuna og svo gat maður gengið með barnið í leikskólann á Tjarn- arborg," segir Halldór sem á þessum árum var forsetarit- ari og vann í Stjórnarráðs- húsinu niðri í bæ. iP Lynghagi 16 1982-1983 Eftir heimkomuna frá Bandaríkjunum leigðu þau hjón kjallaraíbúð á Lyng- haga 16 og bjuggu þar með synínum þar til þau réðust í íbúðakaup árið 1983

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.