Fréttablaðið - 03.12.2001, Qupperneq 12
12
Heimilisblaðið
3. til 10. desember 2001
lillltHlli » UtlMslM I UllUlll
mitmn imi • uaufw m tm
www.Msthus.is
GULLSMIÐJAN
^éjiiázúít c??)/miuuíúU{ t
LÆKJARGATA 34C
HAFNARFIRÐI
J ólaundir búningur-
inn skemmtilegastur
Kolbrún Allansdóttir verður ekki heima.
Hv
best víð
Kolbrún Allansdóttir er förum
til Bandaríkjanna fyrir jólin.
Það kemur þó ekki í veg fyrir að
hún taki að fullu þátt í jólaundir-
búningnum." Ég er heima hjá
mömmu núna og mér finnst æðis-
lega gaman að skreyta og undir-
búa jólin með henni og fjölskyld-
unni.“ Hún segist ekki vera í vafa
um að hún muni sakna jólanna
heima í ár en því miður hafi ekki
verið um það að ræða að fresta
ferðinni fram yfir jól. „Það stóð til
að ég færi í september en árásin á
Bandaríkin kom í veg fyrir það.
Ég er viss um að jólin verða skrýt-
in hjá mér og erfitt verður að
kveðja alla fjölskylduna aðeins
nokkrum dögum fyrir jól. Því
meiri áherslu legg ég á að undir-
búninginn og reyni að njóta des-
VERÐUR f FLÓRÍDA UM JÓLIN
Kolbrún fer út viku fyrir jól.
embermánaðar þar til ég fer. Ég
hlakka líka til að halda jól í Flór-
ída og þau verða örugglega öðru-
vísi en ég á að venjast. Það er líka
skemmtilegt að breyta út af venj-
unni.“ ■
Verðsjáin:
Hittir í mark
Viðbrögð við verðsjánni á vef-
síðu Fasteignamats ríkisins,
hafa verið mjög góð og hafa um
7000 manns skoðað hana frá því
hún opnaði," segir Haukur Ingi-
bergsson, forstjóri Fasteigna-
matsins. Verðsjáin var tekin í
notkun um síðustu helgi og segir
Haukur að jöfn og stöðug umferð
hafi verið á síðunni. „Við höfum
heyrt í mörgum og fólk er mjög
ánægt með þessa viðbót við þjón-
ustu okkar og finnst um verulega
framför að ræða, hvað varðar
upplýsingar til þeirra sem eru í
fasteignahugleiðingum," segir
Haukur. ■
Einfcddur og sannur stíll
Uopáhalds
Eg hitti oft Stefán frá Möðrudal
niðri í bæ þegar hann var að
spila á nikkuna sína og líka í kaffi
í Morkinskinnu hjá Hilmari og
Ríkarði Hördal sem dó fyrir ekki
löngu síðan langt fyrir aldur
fram,“ segir Anna Sigga eða
Anna Sigríður Helgadóttir söng-
kona. „Svo var ég einhvern tíma
að syngja í við opnun í Gallerí
Nýhöfn sem var í Hafnarstræti,
hjá Svölu og Svövu. Ég man að ég
söng Gilsbakkaþulu, þó ekki alla,
og það var mjög gaman og ég átti
að fá borgað í mynd. Þær sýndu
mér myndir eftir ungar listakon-
ur sem þá voru að ryðja sér braut
en það var ekkert sem höfðaði til
mín. Hins vegar kom ég auga á,
þarna á bak við, eina mynd í
gylltum ramma sem dálítið var
MYNDIN GÓÐA EKKI KOMIN Á VEGG
Anna Sigga er ekki enn búin að ákveða hvar hún ætlar að hengja myndina hans Stórvals
sem hefur fylgt henni um árabil gegnum nærri óteljandi flutninga innan lands og utan.
farið að láta á sjá og ég bara heill-
aðist af þessari mynd og ég fékk
hana. Hún er ein sinnar tegundar.
Það er ekki til önnur svona
mynd,“ segir Anna Sigga. Hún
segist vera mjög hrifin af naí-
visma því hann sé bæði einfaldur
og sannur. „Þetta er líklega það
sem ég held mest upp á af öllu
sem ég á.“
Uppáhaldsmyndin
hennar Onnu Siggu
söngkonu er eftir Stef-
án frá Möðrudal sem
kallaði sig Stórval.
Anna Sigga hefur flutt hátt í 30
sinnum á síðustu 17 árum, innan
bæjar, milli landshluta og landa.
„Ég er búin að búa í þremur út-
löndum en ég tók ekki myndina
með mér til þeirra allra." Anna
Sigga er ekki búin að ákveða hvar
hún kemur myndinni góðu fyrir á
nýju heimili. Hún segist ætla að
hafa sófann úti á miðju gólfi
þannig að myndin verði ekki yfir
honum. Hins vegar kemur sterk-
lega til greina að hafa hana yfir
píanóinu sem er eldgamalt og fínt
með kertastjökum á örmum. Eitt
er að minnsta kosti víst að sögn
Önnu Siggu: „Þetta verður mynd
á mjög áberandi stað, besta stað í
húsinu." ■
VELÐU BESTU MYNDINA STRAX
Nú getur þú skoðað og vulið bestu myndina á tötvuskjá um leið
og myndatakan fer fram hjá okkur. Með hjátp nýrrar stafrænnar
Ijósmyndatækni er engin biö eftir framköllun og stækkun.
Engar aukaferðir. Bara besta myndin.
Stafrænar myndatökur, verð frá 12.000 kr.
TILBOÐ:
jólakortamyndataka og
20 sérprentuð jólakort
innifalin 10.000 kr.
jólakortin eru með
fallegri mynd eftir
Puríði Siguróardóttur.
GÓÐ LjÖSMYND ER F K K i DVR.
HÚN E R ÓMETANLEG
SmPRÆtt LLÚS-WYWO’ASTÐ'l'A
. rsra Ijósmyndfwtofso i«m st8fr®na myndvmnsiu ddUumstiiíum. NarmymJ-
h«fur twdaó Sosaa t»kni í mair* an artt-ár ma»fréba«im ártmorr og hlauc viðúrtianmnaji
Liównyndarafétafts íafBnda fýrtr ad söq* atór» stoaf mn- i mynthmwsiu framtiðwmnar
Maturinn og að vera
með fjölskyldunni
Hermann Birgisson hefur enn lúmskt
gaman af að taka upp pakkana
Hvað if
best við jólin
Maturinn og að fá að vera með
fjölskyldunni finnst mér það
besta við jólin. Ég er vanalega hjá
afa mínum og ömmu á aðfanga-
dagskvöld og þar borðum við,“
segir Hermann Birgisson. Hann
segist eiga kærustu en engin börn
ennþá. „Maturinn hjá ömmu er
engu líkur og ég býst við að það
verði hamborgarhryggur í ár. Ég
er fyllilega sáttur við það því fátt
þykir mér betra.“ Hermann viður-
kennir að hafa gaman af að taka
upp pakkana en það sé vitaskuld
ekki sami spenningurinn yfir
HAMBORGARAHRYGGURINN BESTUR
Hermann Birgisson segir engan elda hann
betur en ömmu sína
þeim eins og þegar hann var
krakki. Samveran með fjölskyld-
unni segir hann vera það sem gefi
jólunum gildi. ■
BeoCom 2
BeoCom 6000
www.bang-olufsen.com
BeoCom 2 kemur á
sambandi við vini,
vandamenn og vinnufélaga.
Síminn er hannaður úr áli
og eins og skapaður fyrir
mannshöndina.
BeoCom 6000 er ekki eingöngu
þráðlaus sími. Hann sýnir þér hver
er að reyna að ná í þig og þú
ákveður hvort þú svarar. Einnig
geturðu tengt allt að 5 önnur
símtæki við sömu línuna og haft
þína eigin símstöð á heimilinu.
Með BeoCom 6000 fær fjöiskyldan
eitthvað til að tala um.
BANG & OLUFSEN
Síðumúla 21. Reykjavík. Sími 581 1100.