Fréttablaðið - 22.12.2001, Blaðsíða 1
%
FRETTABLAÐIÐ
174. tölublað - 1. árgangur
Þverholti 9, 105 Reykjavík - sími 515 7500
Laugardagurinn 22. desember 2001
■
Útgáfufélag DV:
Jónasi Kristjánssyni sagt upp
blaðamennska Jónasi Kristjáns-
syni, ritstjóra DV, hefur verið
sagt upp störfum. Jónas hefur
verið ritstjóri
,, ... blaðsins frá
„Hann sagði i stofnun þess
ospurðum i981j var ritstjóri
frettum, að ekki fnrvpm Bpqq
yrði um neinn Dagblaðsins frá
starfslokasamn- 1975, og þar áður
ing að ræða." ritstjóri Vísis frá
1966. Jónas hefur
því verið ritstjóri DV og forvera
þess í 35 ár.
„Ágúst Einarsson, stjórnarfor-
maður DV, kom til mín um daginn
og tilkynnti að mér yrði sagt upp
störfum ritstjóra fyrir áramót
með fjögurra mánaða uppsagnar-
fresti nema ég segði upp sjálfur.
Bauð hann mér tvo
mánuði í viðbót við
mánuðina fjóra ef
ég veldi síðari kost-
inn. Hann sagði í
óspurðum fréttum
að ekki yrði um
neinn starfsloka-
samning að ræða.
Ágúst óskaði ekki
að ég liti á samtal
okkar sem trúnað-
armál." sagði Jónas
í samtali við Frétta-
blaðið í gærkvöldi.
Getgátur um
uppsögn Jónasar
hafa birst á netinu
undanfarið og hafa
menn getið sér til
JÓNAS KRISTJÁNSSON
RITSTJÓRI DV:
Segir eigendurna telja sig tak-
marka svigrúm sitt.
um ástæðu hennar; m.a.
að blaðamannasjónar-
mið Jónasar stæðu í
vegi fyrir fyrirætlun-
um nýrra eigenda.
En var Jónasi ekki
tilgreind ástæða upp-
sagnarinnar?
„Mér sýnist tilkynn-
ingin sýna, að Ágúst
telji mig takmarka
svigrúm nýrra eigenda
DV og að hann hafi þar
á ofan þurft að fá útrás
fyrir bælda gremju. Ég
sá raunar tillögu hans
frá 8. október um
starfslok mín, svo að
áhugi hans á málinu er
ekki nýr,“ segir Jónas.
Að sögn Jónasar reiknar hann
með formlegu uppsagnarbréfi
fyrir áramót. Hann segist vera í
fríi milli jóla og nýárs.
En hvað ætlar Jónas að taka
sér fyrir hendur?
„Eftir nýár fer ég að skoða
stöðuna enda er ég í fullu fjöri og
á besta aldri.“
Jónas Kristjánsson hefur haft
mikil áhrif á íslenska blaða-
mennsku. Hann var í forystu
þeirra sem slitu blöðin frá valdi
stjórnmálaflokkanna og mótaði
frjálsa blaðamennsku á íslandi.
Margir af dugmestu blaða- og
fréttamönnum landsins hafa haf-
ið störf og náð þroska í starfi
undir handarjaðri Jónasar Krist-
jánssonar. ■
lagar til jóla
Yfir
fyrirtæki
KrÍKaLc^