Fréttablaðið - 22.12.2001, Blaðsíða 2

Fréttablaðið - 22.12.2001, Blaðsíða 2
FRÉTTABLAÐIÐ KJÖRKASSINN 22. desember 2001 LAUGARDACUR KLOFIN ÞJÓÐ Netverjar skiptast því sem næst til helm- inga um hversu góð ákvörðun umhverfis- ráðherra var. Var rétt að heimila Kárahnjúkavirkjun? Niðurstöður gærdagsins á www.visir.is Nei 47% Spurning dagsins í dag: Eru jólin góður tími? Farðu inn á visi.is og segðu | þína skoðun — _______________ Bráðabirgðastjórn tekur við í Argentínu: De la Rua vildi mynda þjóðstjórn buenos AIRES. flp Fernando De la Rua gaf sig út fyrir að vera maður breyt- inga þegar hann var kosinn forseti Argentínu fyrir tveimur árum. Kannski ekki snöggra breytinga, en staðfastrar þróunar Argentínu út úr þeirri kreppu sem Peronistinn Car- los Menem hafði komið þjóðinni í þann áratug sem hann var við völd. Framan af virtist allt ætla að ganga upp, en vinsældir hans tóku fljótt að dala þegar í ljós kom að hann myndi ekki standa við stóru orðin. Hann átti erfitt með að taka ákvarðanir, tók ekki á spillingu í stjórnmálum og réð ekkert við skuldasúpuna sem Menem skildi eftir sig. Svo fór að De la Rua sagði af sér á fimmtudaginn eftir að mótmæl- endur höfðu setið um heimili hans í rúma klukkustund. Hann flúði síðan að heiman í þyrlu við mikinn fögnuð mannfjöldans. A.m.k. 22 manns hafa látist í óeirðum í landinu und- anfarna daga. Efnahagsvandinn fór samt hver- gi og nú kemur það í hlut bráða- birgðastjórnar Peronista að takast á við hann. Erlendar skuldir nema nærri 15.000 milljörðum íslenskra króna og atvinnuleysi er komið upp í 18 prósent. Ramon Puerta, leiðtogi Peronista og þingforseti öldungadeildar, tekur við forsetaembættinu þangað til MEIRA EN TVÖ ÞÚSUND HANDTEKNIR Lögregluþjónn dró mótmælanda á hárinu á torginu Plaza de Mayo í Buenos Aires á fimmtudaginn áður en hann var fluttur í fangelsi. Meira en tvö þúsund manns hafa verið handteknir í Argentínu og a.m.k. 22 hafa látið lífið í óeirðunum undanfarna daga. aukaþing hefur tekið ákvörðun um hvort efna skuli til kosninga á næstu mánuðum. ■ Félagsmálaráðuneyti: Upplýsing- um safnað stjórnsýsla Páll Pétursson félags- málaráðherra hefur skipað fjög- urra manna starfshóp til að koma á fót upplýsingaveitu um og fyrir sveitarfélögin í landinu. Þessi upp- lýsingaveita er hugsuð sem nokk- urs konar miðlægur gagnagrunnur fyrir hinar ýmsu upplýsingar sem gagnast geta sveitarfélögunum. Formaður starfshópsins er Her- mann Sæmundsson deildarstjóri í félagsmálaráðuneytinu. Aðrir í hópnum eru þau Garðar Jónsson viðskiptafræðingur í ráðuneytinu, Gunnlaugur Júlíusson sviðsstjóri hagdeildar Sambands ísl. sveitar- félaga og Helga Jónsdóttir borgar- ritari. Hugmyndin að baki þessari upplýsingaveitu er m.a. sótt til Norðurlanda. Rætt hefur verið um að í þessum gagnagrunni verði ýmsar grunnupplýsingar fyrir sveitarfélögin vegna gerðar fjár- hagsáætlana, einingaverð á ýms- um hlutum vegna framkvæmda og annað sem að gagni getur komið fyrir starfsemi þeirra, eins og t.d. um skattamál, lífeyrismál og kjarasamninga. ■ —♦— Fréttablaðið: Kemur næst 27. desember útgáfa Fréttablaðið kemur næst út 27. desember, þriðja dag jóla. Gleðileg jól. 1 TILKYNNINGAR 1 Mikil geta vonsvikin orðið þeg- ar uppgötvast að jólatrésserí- an er ónýt. Þeir sem einhverju gleymdu í matarinnkaupunum síð- ustu daga geta enn náð því en opið er á aðfangadag til klukkan tólf í verslunum Bónus, til klukkan eitt í Hagkaup og Nýkaup og til klukkan tvö í Nóatún. Ljóðabókin í ár - fyrír þá sem lesa islensku og ensku ijóöaperluf Áslaug Perla Kristjónsdóttir Myndskreytt vendibók með íslenskum og enskum Ijóðum "Einhenni þessara Ijóóa er léttleiki og lifsgleði, stundum óheislaður gáski. en umframallt skjr hugsun " (Eri. Jónsson, Mbl. 2001) Fæst i Eymundsson. Mál og menningu, bókab. Mjódd og Úlfarsfelli G. Bemdsen AÐALSTEINN Á. BALDURSSON Segir að mjög brýnt sé að hafa virkt eftirlít með gjaldskrárhækkunum hins opinbera. Verkalýðsfélag Húsavíkur: Sveitarfélög undir eftirliti verðlag Verkalýðsfélagið á Húsa- vík ætlar að hafa virkt eftirlit með hækkunum sveitarfélaga í Þingeyjarsýslum á þjónustugjöld- um og mun gera alvarlegar at- hugasemdir ef þau fara út fyrir eðlilegan ramma í þeim efnum, eins og það er orðað í ályktun stjórnarinnar. Viðbúið er að fleiri stéttarfélög muni gera slíkt hið sama. Aðalsteinn A. Baldursson formaður Verkalýðsfélagsins seg- ir að dæmi sé um að gagnrýni fé- lagsins hafi leitt til þess að ákvarðanir um gjaldskrárhækk-—- anir í bæjarstjórn Húsavíkur hafi verið endurskoðaðar eftir að fé- lagið hefur mótmælt þeim. Hann segir að sveitarfélög jafnt sem aðrir verði að gæta að- halds í hækkunum á þjónustu- gjöldum á komandi mánuðum til að hægt verði að ná niður verð- bólgu og treysta kaupmátt launa verkafólks. í því sambandi bendir hann m.a. á að gríðarlega háir vextir, hækkandi verðlag og hækkanir á skattbyrði og þjón- ustugjöldum hjá ríki og sveitarfé- lögum séu á góðri leið með að sliga heimilin í landinu. ■ Viljum fá allan afla að landi Sjávarútvegsráðherra hækkar heildarafla í Qórum fiskitegundum. Utflutningstekjur sjávarafurða verða því 128 milljarðar króna. fiskveiðar Sjávarútvegsráðherra hefur aukið við aflaheimildir á fiskveiðiárinu 2001/2002 í leyfileg- um heildarafla í ýsu, ufsa, skar- kola og steinbít. Aflaheimildir í ýsu hækka úr 30 þúsund tonnum í 41 þúsund tonn og ufsi úr 30 þús- und tonnum í 37 þúsund tonn. Skarkolakvóti hækkar um fjórð- ung og er nú 5000 tonn. Þá hækka aflaheimildir í steinbít úr 13 þús- und tonnum í 16.100 tonn. Að sögn sjávarútvegsráðuneyt- isins er gert ráð fyrir að útflutn- 4 i n g s v e r ð m æ t i sjávarafurða auk- ist um 3 milljarða með breytingunum eða 6 milljarða alls ef tekið er tillit til hækkunar á leyfi- legum heildaraíla í úthafsrækju sem Við virðumst véra að sjá já- kvæð við- brögð við þessum tak- mörkunum. —«— tilkynnt var um 17. desember s.l. Alls munu útflutningstekjur sjáv- arafurða á árinu 2002 því verða ná- lægt 128 milljörðum króna og hækka um 5% frá endurskoðaðri þjóðhagsspá sem birt var í upphafi desember. Áætlað hafði verið að 30 þúsund tonna niðurskurður á heildarafla þorsks, sem tilkynnt var um s.l. vor, fæli í sér fjögurra milljarða kr. samdrátt í útflutn- ingstekjum. Bendir sjávarútvegs- ráðuneytið á að sá mismunur verði að fullu veginn upp með hækkun- um á leyfilegum heildarafla. „Við gerum þetta núna til að forðast misræmi milli veiðanna og einstakra kvóta. Ef betri fiskgengd er á miðunum er hætta á að eitthvað fari fyrir borð. Við vilj- um fá aflann að landi, bæði verð- mætin og eins upplýsingar um raunverulega veiði,“ segir Árni M. Mathiesen sjávarútvegsráð- herra. Hann segir ákvörðunina tekna í tengslum við þær breyt- ÁRNI M. MATHIESEN Arni M. Mathiesen sjávarútvegsráðherra segir nauðsynlegt að afla upplýsinga um raunverulega veiði. ingar sem eru að verða í hafinu og byggi á upplýsingum, bæði frá sjómönnum og Hafrannsókna- stofnun. „Þetta eru tegundir sem við höfum verið að takmarka á undan- förnum árum; þ.e. ýsa, ufsinn og skarkolinn. Við virðumst vera að sjá jákvæð viðbrögð við þessum takmörkunum nú,“ segir sjávarút- vegsráðherra. kristjangeir@frettabladid.is Framboð frjálslyndra í Reykjavík í vor: Olafurværi hvalreki fyrir Frjálslynda flokkinn borgarstjórnmál „Það væri nátt- úrulega virkilega mikill hvalreki ef hann ræki nú á fjörur okkar,“ sagði Margrét Sverrisdóttir framkvæmdastjóri Frjálslynda flokksins um möguleikann á því að Ólafur F. Magnússon, borgai'- fulltrúi, sem nýverið sagði skilið við Sjálfstæðisflokkinn veitti þeim liðsinni sitt í borgarstjórn- arkosningunum í vor. „Mér finnst spennandi að vita hvort hann hafi eitthvað frumkvæði að slíku. Við höfum alltaf lagt áherslu á gömlu góðu sjálfstæðisstefnuna, eins og hann orðaði það: „Manngildi ofar auðgildi." Það er kannski þessi áherslubreyting sem orðið hefur á Sjálfstæðisflokknum seinni árin sem við höfum ekki fellt okkur við og hann virðist ekki fella sig við heldur. Mér finnst það mjög álitlegur kostur og mundi mjög fagna því ef hann vildi koma til samstarfs við okk- ur,“ sagði hún og bætti við að henni hafi þótt Ólafur trúr sínu störfum hans í borgarstjórn. „Hann hefur fylgt sinni sannfær- ingu og sýnt í verki í borgar- stjórn þessa manngildisstefnu sem hann er að lýsa og ég fagna þessari ákvörðun hans.“ Margrét sagði undirbúning framboðs í borginni vel á veg kominn, en gerði ráð fyrir því beðið yrði í lengstu lög með að koma fram með fullbúinn lista. „Við höfum ekki fjárhagslegt bolmagn í MARGRÉT SVERRISDÓTTIR Framkvæmdastjóri Frjálslynda flokksins segir undirbúning framboðs flokksins í borgarstjórnarkosningum í vor ganga vel. langa og dýra kosningabaráttu og því miklu betra að vera með styttri og snarpari baráttu." ■

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.