Fréttablaðið - 02.01.2002, Blaðsíða 2

Fréttablaðið - 02.01.2002, Blaðsíða 2
FRÉTTABLAÐIÐ KJÖRKASSINN 2. janúar 2002 MIPVIKUDACUR SKIPTAR SKOÐANIR Þeir sem svöruðu síð- ustu spurningu skiptust nánast í tvo jafnstóra hópa eftir því hvort þeir hafa trú á Manchester United eða ekki. Eiga Manchester United eftir að verja Englandsmeistaratit- ilinn? Niðurstöður gærdagsins á www.visir.is Nei Spurning dagsins í dag: Þótti þér Áramótaskaupið vel heppnað? Farðu inn á vísi.is og segðu þína skoðun —__J ____________ Líkamsárás í Breiðholti: Fjórtán ára stunginn með hnífi lögreglumál Fjórtán ára drengur var stunginn með hnífi í læri og brjóst, rétt fyrir klukkan þrjú á nýjársnótt. Atburðurinn átti sér stað við Hraunberg í Breiðholti, en þar höfðu hópar ungmenna safnast saman. Að sögn lögregl- unnar í Reykjavík leit í fyrstu út sem drengurinn hefði hlotið al- varlega áverka og var hann flutt- ur á slysadeild Landspítalans í Fossvogi. Að sögn yfirlæknis þar, voru stungusárin grunn og fékk drengurinn að fara heim að lok- inni skoðun og meðhöndlun. Ekki er vitað hvað olli því að árás- armaðurinn, sem er nítján ára, lagði til drengsins. Hann var handtekinn stuttu eftir árásina og situr í haldi lögreglu. Alls voru fimm líkamsárásir kærðar til lög- reglunnar á nýjársnótt. Að undan- skilinn hnífsstungunni, hlaut eng- inn alvarlega áverka. ■ [löcreclufréttirI Að sögn lögreglunnar í Keykjavík var töluverður óróleiki í austurbæ Reykjavíkur aðfaranótt nýjársdags. Hópar ungmenna höfðu safnast saman og mikið var um pústra og slags- mál. í miðbæ Reykjavíkur var hinsvegar, fremur rólegt. Hegð- un þeirra sem leið áttu um bæ- inn var til fyrirmyndar og menn greinilega þangað kominir í þeim tilgangi að skemmta sér og fagna nýju ári. Slökkviliðið í Reykjavík var kallað út sautján sinnum, að- faranótt nýjársdags. Að mestu var um smábruna að ræða í blaða- og ruslagámum á höfuð- borgarsvæðinu. Blautt var í veðri og hefur það eflaust átt sinn þátt í því að ekki var um fleiri og alvarlegri bruna að ræða af völdum flugelda. Maður handarbrotnaði er flugeldaterta sprakk í hönd- unum á honum. Gera þurfti að- gerð á manninum. Um tuttugu manns leituðu á slysadeild Land- spítalans í Fossvogi vegna slysa af völdum flugelda. Að sögn vakthafandi yfirlæknis á slysa- deildinni, var í flestum tilfellum um minniháttar bruna á höndum að ræða. Engir alvarlegir augnskaðar vegna flugelda urðu um þessi áramót. Eignaspjöll voru unnin á fjór- um skólum og tveimur leik- skólum í Kópavogi aðfaranótt nýjársdags. Rúður voru brotnar í Hjallaskóla, Digranesskóla, Kársnesskóla, Snælandsskóla og leikskólunum við Skólatröð og í Smárahverfi. Önnur minniháttar spjöll voru einnig unnin á húsun- um. Að sögn lögreglunnar í Kópavogi er skemmdarvarganna leitað. Ekkert lát á skógareldunum í Ástralíu: Sidney áfram í hættu SLUPPU MEÐ SKREKKINN Þessir íbúar í Macquarie Park í útjaðri Sidney fengu að snúa aftur heim í gær eftir að tek- ist hafði að stöðva eldinn einungis fáeinum metrum frá íbúðarhúsunum. sipney. ap Eldslogarnir í Ástralíu teygðu sig víða tuttugu metra í loft upp og stefndu sumir eldanna óðum í áttina að miðborginni í Sid- ney, þar spm fjórar milljónir manna búa. í gær voru 250 íbúðar- hús í Sidney í bráðri hættu, en slökkviliðsmönnum tókst að stöðva framgang eldanna á síðustu stundu. Eldarnir í nágrenni Sidney geisuðu þó áfram af fullum krafti, og kom krafturinn í þeim og hrað- inn reyndum slökkviliðsmönnum á óvart. íbúum í Sidney var sagt að halda sig innan dyra, ástandið væri of hættulegt til þess að hægt væri að koma fjölda fólks burt frá heim- ilum sínum. Margir íbúa gripu til þess ráðs að sprauta vatni á hús sín og garða með vatnsslöngum. Ekk- ert manntjón hafði orðið í gær. Fimmtán þúsund slökkviliðs- menn, flestir þeirra sjálfboðaliðar, unnu í gær hörðum höndum að slökkva eldana, sem geisa á um það bil hundrað stöðum í fylkinu Nýja-Suður-Wales. Fyrstu skógar- eldarnir kviknuðu á aðfangadag, og er talið fullvíst að um helming- ur þeirra hafi kviknað af manna völdum, þar á meðal eldarnir sem ógna miðborginni í Sidney. Hafa átta manns verið handteknir, og eiga þeir yfir höfði sér allt að fjórt- án ára fangelsi. Allt að 38 stiga hiti var á þess- um slóðum í gær með hlýjum vindi, sem gerir mönnum ákaf- lega erfitt að hemja eldana. Búist er við svipuðu veðri áfram þannig að líklega verður ekkert lát á bar- áttunni við eldinn alveg á næst- unni. ■ T veir eldsvoðar á þremur vikum Eldur kom upp í húsi við Alfhólsveg. Einn fluttur á slysadeild. Eldur- inn blossaði aftur upp um nóttina. Aðeins þrjár vikur eru síðan kviknaði í húsinu. Fyrri bruninn var vegna rafmagns. Rekstrarstjóri telur ekki að um íkveikju hafi verið að ræða. Lögreglan útilokar það þó ekki. elpsvoði Einn var fluttur á slysa- deild vegna gruns um reykeitr- un, þegar eldur kom upp í húsi við Álfhólsveg. Lögreglunni í Kópavogi var tilkynnt um eldinn á tíunda tfmanum á gamlárs- kvöld. Þegar slökkviliðið kom á staðinn var töluverður eldur í myndbandaleigunni Þrumugrilli, sem er í húsinu, en þar áttu elds- upptök sér stað. Rýma þurfti húsið, en á efri hæð þess er gisti- heimili. Slökkviliðinu gekk vel að slökkva eldinn. Síðar um nóttina blossaði eldur upp að nýju og brugð- ust slökkviliðs- menn þá skjótt við, enda voru þeir á vakt við húsið. Töluverðar skemmdir urðu á myndbandaleig- unni vegna elds og reyks. Einnig varð innrömmun- arþjónustu í sama húsi, fyrir töluverðum skemmdum, að mestu vegna reyks og sóts. Gisti- heimilið á efri hæð hússins, slapp að mestu við skemmdir, en þar voru sex manns þegar eldur- inn kom upp. „Öll herbergin eru í langtímaleigu. Einhverjir voru ekki heima þegar eldurinn kom upp. Hjá okkur búa nær ein- göngu austurlandabúar, en eig- endur gistiheimilisins eiga ein- nig veitingastaðinn Nings. Við teljum ekki að neinn hafi verið í hættu vegna eldsins,“ segir Odd- steinn Gíslason, sem sér um rekstur gistiheimilisins, en það —4.— Það kemur okkur þó verulega á óvart þar sem búið var að gera við það sem olli eld- inum fyrr í þessum mán- uði —♦— I '4 BRUNI Einn var fluttur á slysadeild vegna gruns um reyk- eitrun. Forráðamenn hússins deildu hart meðan slökkvilið vann að að því að slökkva eldana. er í eigu sömu aðila og húsið við Álfhólsveg. Ekki eru liðnar nema rétt um þrjár vikur síðan eldur kom upp í sama húsi. Þá kviknaði í út frá rafmagni, samkvæmt niðurstöð- um rannsóknarmanna. „Senni- lega hefur einnig kviknað í út frá rafmagni núna,“ segir Odd- steinn. „Það kemur okkur þó verulega á óvart þar sem búið var að gera við það sem olli eld- inum fyrr í þessum mánuði. Ég tel að það sé útilokað, að kveikt hafi verið í.“ Að sögn lögreglunnar í Kópa- vogi hófu rannsóknarmenn að kanna upptök eldsins, strax að morgni nýjársdags. Rannsókn málsins stendur enn yfir og elds- upptök eru enn ókunn. Ekki er, á þessu stigi málsins, hægt að útiloka að um íkveikju hafi verið að ræða. arndis@frettabladid Viðbótarlífeyrissparnaður: Kynningarefni oft misvísandi lífeyrir „Það er erfitt að nálgast þessar upplýsingar, en sam- kvæmt mínum heimildum var ávöxtun séreignalífeyrissjóða á síðasta ári að meðaltali neikvæð um 12%. Sumir eru með viðun- andi ávöxtun en aðrir ekki,“ seg- ir Guðmundur Ólafsson, hag- fræðingur, og bendir á að mikil- vægt sé að sparendur gæti að sér við val á mismunandi kost- um. Hann segir dæmi um að kynningarefni sjóðanna auð- veldi sparendum ekki slíkt. „Til dæmis ætti fólk sem er komið á efri ár ekki að taka þátt í sparnaði sem líkur eru á að verði neikvæður langtímum saman, en það eru dæmi um að lítið sé minnst á slíkt.“ Þá segir Guðmundur dæmi um að í aug- lýsingum sé lítið minnst á tekju- skatt sem líklegt er að komi til lækkunar á viðbótarlífeyrinum. „Meirihluti þeirra sem safna viðbótarleyfi eru úr hærri stig- um tekjudreifingar og því utan skattleysismarka og því er þetta ámælisvert. Það má vel vera að sjóðir sem tapa miklu nú muni hagnast síðar en staða þeirra er samt sem áður umhugsunarverð og einnig það að engar reglur gilda um lágmarksávöxtun.“ ■ GUÐMUNDUR ÓLAFSSON Veit um sjóðsfélaga sem hefur gengið erf- iðlega að fá upplýsingar um stöðu viðbót- arlífeyris síns. Eldsvoðar um áramót: Þrír á slysa- deild ELDSVOÐAR Um klukkan ellefu á gamlárskvöld kviknaði í íbúð við Grýtubakka. Ung hjón voru í íbúð- inni og í fyrstu var talið að börn þeirra væru þar einnig. Fljótlega kom þó í ljós að þau voru í pössun annarsstaðar í bænum. Nágranni fólksins kom þeim til hjálpar við að slökkva eldinn. Þau voru öll send á slysadeild vegna reykeitrunar og var einn lagður inn til frekari að- hlynningar. Talið er að kertaskreyt- ing ofaná sjónvarpi hafi valdið brunanum. Það er ekki eina kerta- skreytingin sem olli bruna á höfuð- borgarsvæðinu. Rétt fyrir klukkan sjö á nýjársmorgun var slökkvilið kallað að íbúð við írabakka. íbúðin var mannlaus, en tveir lögreglu- menn sem sinntu útkalli í sama húsi urðu eldsins varir. Nokkrar skemmdir urðu á báðum íbúðunum vegna sóts og reyks. Aðrar íbúðir í húsunum sluppu þó að mestu. ■ 4— Israelskir ráðamenn deila: Ætlaði að bjóða vopna- hlé jerúsalem. ap Mjög hefur dregið úr ofbeldisverkum Palestínu- manna gegn ísraelsmönnum frá því Jasser Arafat, leiðtogi Palest- ínumanna, hvatti til þess í ræðu sinni 16. desember að árásum á ísraelsmenn yrði hætt. Af þessum sökum hugðist Mos- he Katsav, forseti ísraels, í gær ávarpa þing Palestínumanna og bjóða þeim vopnahlé í eitt ár. Ariel Sharon, forsætisráðherra ísraels, lýsti sig hins vegar and- vígan því og kom í veg fyrir ávarpið. ísraelskir fjölmiðlar höfðu eftir heimildarmönnum sín- um á skrifstofu Sharons að hann hefði kallað þessa hugmynd Katsavs „heimskulega". Forsetaembættið í ísrael er ekki valdamikið og óvenjulegt að forsetinn blandi sér í pólitísk deilumál með virkum hætti. Katsav sagðist engu að síður hafa orðið fyrir vonbrigðum og gagn- rýndi „tóninn" í viðbrögðum Shar- ons, sem hann sagði vera „bæði ósæmandi og óviðeigandi." ■ I LÖGREGLUFRÉTT I Að sögn lögreglunnar í Kópa- vogi var nokkuð um minni- háttar eignaspjöll aðfaranótt nýj- ársdags. Áramótasprengju var kastað á svalir húss við Huldu- braut. Sprengjan olli ekki miklu tjóni á húsinu. Töluvert var um að ungmenni köstuðu flugeldum og sprengjum og ollu þannig eignaspjöllum. Sandkassi við Reynihvamm og rusladallur við Brekkuhjalla voru einnig meðal þess sem varð fyrir barðinu á hinum sprengiglöðu unglingum.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.