Fréttablaðið - 02.01.2002, Síða 4

Fréttablaðið - 02.01.2002, Síða 4
SVONA ERUM VIÐ KJónun manna Aðeins fjögur prósent aðspurðra víldu leyfa klónun manna og eingöngu eitt prósent höfðu enga skoðun. Karlar vilja fremur leyfa klónun heldur en konur. Þeir sem hafa meiri menntun vilja einnig fremur leyfa klónun heldur en þeir sem minni menntun hafa. Hvorki né 1% Hlynnt(ur) Andvig(ur) 4% mmm, ííiigg Wj . UMHVERFISMÁL Á ODDINUM Hlustendur Rásar tvö völdu Ólaf F. Magn- ússon mann ársins en hann sagði sig úr Sjálfstæðisflokknum fyrir skömmu. Maður ársins á Rás tvö: Hlustendur völdu Ólaf MAÐUR ÁRSINS Ólafur F. Magnús- son, borgarfulltrúi, var valinn maður ársins á Rás tvö í dag. Val- ið byggja hlustendur á þeirri ákvörðun Ólafs að segja sig úr Sjálfstæðisflokknum þar sem hann átti ekki lengur samleið með stefnu flokksins. Ólafur hefur lagt áherslu á umhverfismál í pólitísku starfi sínu og meðal ann- ars barist gegn virkjunaráform- um á Austurlandi. í öðru sæti var sigmaður þyrlu varnarliðsins, Jay Lane, sem lagði sig í mikla hættu við björgun Eyþórs Garðarssonar skipsbrotsmanns á Svanborgu. Fimmtán stig skildu þá að en Ey- þór var sjálfur í þriðja sæti. n I SMÁTT I Atvinnuleysisbætur hafa verið hækkaðar úr 3.137 krónum á dag í 3.404. Sjómannafélag Reykjavíkur vill ekki að Lífeyrissjóður sjó- manna taki þátt í fjármögnun ál- vers í Reyðarfirði. Sjómennirnir segja að lífeyrir þeirra hafi lækk- að nóg á liðnum tímum og ekki sé verjandi að leggja fé í álverið af þeim sökum. Heigi Laxdal var endurkjörinn formaður Vélstjórafélags ís- lands - en þrír voru í framboði til formanns. FRÉTTABLAÐIÐ 2. janúar 2002 MIÐVIKUPAGUR Aramótaávarp forseta íslands: Sparnaður verði gerður að leiðarljósi áramót Ólafur Ragnar Grímsson forseti íslands gerði hryðjuverkin 11. september og afleiðingar þeir- ra að umræðuefni í upphafi ára- mótaávarps sem hann flutti þjóð- inni kl. 13 á nýjársdag. Hann benti á að komið hefði á daginn að Bandaríkin hefðu með liðsinni Breta glímt við leitina að for- sprökkum hryðjuverkanna án þess að NATO eða Evrópusam- bandið væru beinir þátttakendur í þeim aðgerðum. „Það er umhugs- unarvert að hvorki Atlantshafs- bandalagið né Evrópusambandið er sá vettvangur sem áhrifarík- ustu ríki heims kusu að gera að samnefnara aðgerðanna sem grip- ið var til,“ sagði Ólafur Ragnar Grímsson. „Sú heimsskipan þar sem þjóðríkið er grundvallarþátt- ur er enn í fullu gildi en það er einmitt hún sem reynst hefur okk- ar unga lýðveldi affarasæl og heilladrjúg." Forsetinn fjallaði einnig um efnahagsmál í ávarpi sínu og sagði hættumerki frá gömlum verðbólgutímum hafa birst þjóð- inni á ný með fallandi gengi og óvissu í efnahagslífi. „Hluti vand- ans kann að liggi í því að okkur hefur hvorki sem einstaklingum né þjóð, tekist að festa í sessi al- mennan sparnað," sagði forsetinn. „Árangursrík efnahagsstjórn, vaxandi hagsæld og jafnvægi í þjóðarbúskap eru forsendur þess að sjálfstæðishugsjón okkar haldi velli í umrótinu sem áfram mun ríkja í heimsviðskiptunum." g EFNAHACSSTJÓRNIN SKIPTIR MÁLI Ólafur Ragnar Grimsson sagði í áramótaávarpi sínu að árangursrík efnahags- stjórn og jafnvægi í þjóðar- búskap væru forsendur þess að sjálfstæðishugsjón héldi velli í umróti heims- viðskipta. Fyrsti dagur evrunn- ar gekk að óskum Nýr gjaldmiðill tók gildi um áramótin í tólf Evrópusambandsríkjum. Þýska markið og franski frankinn heyra brátt sögunni til. Nýja myntin tók þó fyrst gildi á eyjunni Reunion á Indlandshafi. frankfurt. ap Tólf Evrópusam- bandsríki tóku um áramótin upp nýjan gjaldmiðil, evruna, og búa sig jafnframt undir að kveðja gömlu gjaldmiðlana. Gjaldmiðils- breytingin hefur gengið vel, en ekki reynir fyrir alvöru á hana fyrr en í dag, fyrsta virka dag árs- ins, þegar fjárstreymið eykst um allan helming. Fyrstu mánuðina verða reynd- ar tveir gjaldmiðlar í gangi í öll- um löndunum tólf, evran og gamli gjaldmiðillinn. Óðum styttist hins vegar í að þýsku mörkin, frönsku frankarnir og aðrar ævagamlar myntir Evrópuríkja heyri sögunni til. Seðlabanki Evrópu hefur hins vegar einsett sér að koma nýju seðlunum og myntunum eins fljótt og hægt er til fólks til þess að stytta þetta tímabil tveggja gjaldmiðla sem allra mest. Til þess að hraða dreifingunni verða langflestir hraðbankar í ríkjunum tólf eingöngu með evrur og kaupmönnum er gert að gefa fólki til baka í evrum, ekki gamla gjaldmiðli hvers lands. Engar breytingar urðu þó á gjaldmiðlinum í þremur Evrópu- sambandsríkjanna, þ.e. Bretlandi, Danmörku og Svíþjóð, sem vildu halda pundinu og krónunum frek- ar en að taka upp evruna. Romano Prodi, forseti fram- kvæmdastjórnar Evrópusam- bandsins, segist þó sannfærður um að evran gangi það vel að Bretar muni brátt hugsa sitt ráð upp á nýtt. Eina Norðurlandaþjóðin sem ætlar að fórna gömlu myntinni sinni fyrir evruna í þessari um- ferð eru Finnar. Sauli Niinisto, fjármálaráðherra Finnlands, seg- ir þetta vera stórt stökk sem muni gera efnahagslífið í Finnlandi stöðugra. „Við munum þó áfram eiga ánægjulegar minningar um markið,“ sagði hann. í Evrópu tók evran reyndar EVRAN ER KOMIN í NOTKUN Þarna sést þegar pylsa var keypt í Frankfurt i Þýskalandi í gær. fyrst gildi í Finnlandi og Grikk- landi, vegna þess að klukkan þar er klukkustund á undan tímanum í öðrum Evrópusambandsríkjum. Örlögin höguðu því þó þannig, að tveimur klukkustundum áður en nýi gjaldmiðillinn tók gildi í Finnlandi og Grikklandi var evran orðin löglegur gjaldmiðill á lítilli eyju í Indlandshafi. Skýringin er sú, að eyjan er frönsk nýlenda. Rene-Paul Victoria, borgarstjór- inn í St. Denis, sem er höfuðborg Reunion, varð því fyrstur manna til þess að nota nýju myntina þeg- ar hann keypti sér nokkra ávexti á 76 evrur rétt eftir miðnætti að þarlendum tíma. ■ BJARTSÝNISTÓNN Davíð Oddsson forsætisráðherra flutti ára- mótamótaávarp á bjartsýnisnótum en minntist ekki á þrengingar í efnahagslífi. Aramótaávarp forsætis- ráðherra: Ekki orð um efna- hagsmál áramót Forsætisráðherra, Davíð Oddsson, ávarpaði þjóðina sem endranær í sjónvarpinu kl. 20 á gamlárskvöld. Ávarpið var á þjóð- ernislegum nótum en hvorki var minnst á efnhagsmál né gengi krónunnar. Forsætisráðherra flutti þau tíðindi að eftirlifandi ættingjar Halldórs Laxness hefðu ljáð máls á því að ríkið eignaðist hús skálds- ins, Gljúfrastein í Mosfellsbæ og þar og annars staðar í Mosfells- bænum yrði í samstarfi við bæj- aryfirvöld, leitast við að sýna minningu skáldsins sóma. Davíð þakkaði Björk Guð- mundsdóttur áhrif í þágu þjóðar- innar og sagði hana vafalítið frægasta íslending sem uppi hefði verið. „Áhrif Bjarkar í okk- ar þágu eru ómæld og er mikið þakkarefni, hvernig hún tengir ætíð líf sitt og list landinu kalda sem fóstraði hana,“ sagði Davíð. Að lokum sagði Davíð að við ís- lendingar heimtuðum ekki for- ystusæti á alþjóðavettvangi í mál- efnum sem varða margar þjóðir, heilar álfur eða jafnvel alla heimsbyggðina. „En við þurfum heldur ekki að búa við neina minnimáttarkennd af því tilefni. Og við höfum alla burði til að koma okkar sjónarmiðum að og jafnvel vera öðrum fordæmi á þeim sviðum, sem okkur hefur vel vegnað. Við teljum að sú þjóð ein sé stór þjóð, sem stendur sig vel. Við skulum sannarlega öll stefna að slíkum titli á nýju ári.“ ■ Gleðilegt ár - Þökkum viðskiptin JF Utsalan í fullum gangi Full búð af góðum vörum Tískuverslunin Smort Þrír íslendingar hafa unnið yfir 100 milljónir á fáum dögum: Viðbrögðin eru misjöfn 30-ouvo afsláttur sia Orinwfcœ v/ hiui&W'eg, »W $18 HAHH vinningar „Það þarf nú nokkuð sterk bein til að þola svona miklar breyt- ingar á högum sínum,“ sagði Þórkatla Aðalsteins- dóttir, sálfræðingur, þegar hún var spurð að því hvaða áhrif það gæti haft ef ein- staklingur vinnur tugi milljóna í happdrætti. íslendingur vann rúmlega 44 milljónir króna í vík- 2# EF ÉG VÆRI RlKUR Þórkatla Aðalsteins- dóttír og Már Wolf- gang Mixa ráðleggja vinningshöfum að gefa sér tíma til að „Vinningshafarnir verða að spyrja sjálfa sig hvort þeir vilji lifa öðru- vísi lífi en fyrst þurfa þeir að líta á líf sitt fram að þessu en það hefur jafnvel mótast af fjárhagslegri stöðu þeirra.“ Þórkatla segir vinningshafann mega búast við ólíkum við- brögðum fólks þ.á.m. öf- und. Því verði vinnings- aðlagast breyttu lífi. ingalottói, annar 28 milljónir í get- hafinn að vanda sig hverjum hann raunum og enn annar 35 milljónir í segir frá og hvernig hann segir frá. lottói. Þegar einstaklingur vinnur stór- ar fjárupphæðir er grundvallarat- riði að leita til fjárhagsráðgjafa er álit Más Wolfgang Mixa hjá eigna- stýringu Sparisjóðs Hafnarfjarðar. Hann segir að búast megi við því að vinningshafinn vilji eyða dágóðri upphæð í að láta drauma sína ræt- ast en ráðleggur honum að leggja stóran hluta inn á innlánsbók og hluta í skuldabréfasjóð sem veiti jafna og trygga ávöxtun. „Ég ráð- legg fólki að hinkra því þegar fjár- upphæðin er orðin hluti af lífinu verða ákvarðanirnar um hvernig verja á fénu vitrænni en ella.“ ■

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.