Fréttablaðið - 02.01.2002, Page 11
MIÐViKUPACUR 2. janúar 2002
Árið 2001:
Minnistætt
ár hjá
Kinverjum
ÁRSUPPCiðR Árið 2001 verður Kín-
verjum eflaust afar minnistætt.
Þrír stórir áfangar skyggðu á fles-
ta aðra atburði í landinu á árinu.
Kínverjar fengu inngöngu í
Heimsviðskiptastofnunina (WTO)
þann 11. desember eftir áralangar
samningaviðræður, og Peking,
höfuðborg Kína, fékk réttinn til að
halda Ólympíuleikana árið 2008
og sigraði þar borgirnar Toronto
og París í kapphlaupinu. Auk þess
öðlaðist landsliðið í knattspyrnu í
fyrsta sinn rétt til að leika í
FÖGNUÐUR
Kínverskir stúdentar fagna fregnunum
þann 13. júlí um að Kína verði gestgjafi
Ólympíuleikanna árið 2008.
Heimsmeistarakeppninni í knatt-
spyrnu, sem haldin verður á
næsta ári af nágrönnunum í Japan
og Suður-Kóreu.
„Allir þessir atburðir sýna að
Kína er að styrkjast og á skilið
aukna alþjóðlega virðingu,“ sagði
hinn 37 ára gamli Pekingbúi,
Wang Zhen, í viðtali við kínverskt
dagblað. ■
Erlent:
10 frægir sem
létust árið 2001
ársuppgjör Fjölmargar þekktar
persónur úti í hinum stóra heimi
önduðust á liðnu ári, þ.á.m. popp-
stjörnur, rithöfundar og leikarar.
Þó svo að andlát þeirra falli að
miklu leyti í skuggann af þeim
u.þ.b. þremur þúsundum manns
sem létust í hryðjuverkaárásun-
um á Bandaríkin þann 11. septem-
ber, ætlar Fréttablaðið að birta
lista yfir 10 af þeim þekktustu
sem létust, í réttri tímaröð:
Robert Ludlum,
spennusagnahöfundur (12. mars)
William Hannah,
teiknimyndahöfundur (22. mars)
David Rocastle,
knattspyrnumaður (30. mars)
Anthony Quinn, leikari (3.júní)
GEORGE
HARRISON
Fyrrverandi Bítill-
inn, George Harri-
son, var á meðal
þeirra sem létust
á árinu.
John Lee Hooker,
tónlistarmaður (21.júní)
Jack Lemmon, leikari (27. júní)
Aaliyah, söngkona (25. ágúst)
Isaac Stern,
fiðluleikari (22. september)
George Harrison,
Bítill (29. nóvember)
Nigel Hawthorne,
leikari (26. desember) m