Fréttablaðið


Fréttablaðið - 02.01.2002, Qupperneq 14

Fréttablaðið - 02.01.2002, Qupperneq 14
14 FRÉTTABLAÐIÐ 2. janúar 2002 MIÐVIKUDACUR ÍÞRÓTTIR Hver er innlenda íþróttafrétt ársins? „3-1 sígur íslenska landsliðsins í knattspyrnu á Tékkum á Laugardals- velli í sumar." Bjarni Felixson, íþróttafréttamaður. li Heklusport kl. 22.30 ffl sun Fulham - Man. Utd. Enskl boltinn kl. 13.40 1 Sacramento - Boston NBA ki. 02.00 þri Leicester - Arsenal Enski boltinn kl. 17.20 Leeds - West Ham Enski boltinn kl. 19.50 miö Man. Utd. - Newcastle ú Enskiboitinnkl. 19.50 ~/C lau Spænski boltinn kl. 19.50 sun ítalski boltinn kl. 13.45 Carditf - Leeds Enski boltinn kl. 15.50 Aston Villa - Man. Utd. Enskl boltinn kl. 18.50 M. Grizzfies - S. SuperSonics NBA kl. 21.00 U13>15 38)42) 44) BÓNUSTÖLUR Alltafá * /J miðvikudögum Jókertölur mlðvlkudags 5 0 7 1 1 Fjórar evrópskar hæðir: Virtasta skíðastökkskeppnin SKíði Á sunnudaginn fór fram í Oberstdorf fyrsta keppni af fjór- um í hinni árlegu Fjögurra hæða skíðastökkskeppni í Þýskalandi og Austurríki. Keppnin var fyrst haldin þegar síðari heimstyrjöld- inn var nýlega lokið en hún er nú haldin fimmtugasta árið í röð. Hún hefur aldrei fallið niður, að- eins verið frestað lítillega vegna slæms veðurs. Fjögurra hæða keppnin er sú virtasta í skíðastökksheiminum. Hún er haldin fyrstu daga hvers árs þannig að allir bestu stökkvar- ar heims geti tekið þátt, bæði at- vinnu- og áhugamenn. Upphaf- lega var hugsað sem svo að þeir Norðurlandabúar, sem voru í öðr- um vinnum, gætu notað jólafríið til að koma sér á keppnisstað. Rúmlega þrjátíu þúsund manns mæta til að horfa á hverja keppni en nú er þeim einnig sjónvarpað út um alla Evrópu. Fyrstu tvær keppnirnar fara fram í Þýskalandi, Oberstdorf og Garmisch-Partenkirchen, en hin- ar í Austurríki, Innsbruck og Bis- hofshofen. Þjóðverjinn Sven Hannawald vann bæði í Oberstdorf á sunnu- daginn og Garmisch-Parten- kirchen í gær. Hann vann einnig fyrstu verðlaun á Heimsmeist- aramótinu í Noregi árið 2000 en segir miklu betra að vinna í Fjög- urra hæða keppninni. Þar þurfa stökkvararnir að vera upp á sitt besta marga daga í röð við mis- munandi aðstæður. „Ég trúði þessu ekki,“ sagði Hannawald eft- ir sigurstökkið í gær. „Ég stopp- aði neðst í brekkunni, sá áhorf- endur ærast og hugsaði með mér að þetta væri of gott til að vera satt.“ ■ ÍOO METRA STÖKK Einn keppendanna í Fjögurra hæða skíða- stökkskeppninni svífur hér yfir þýska þorp- ið Carmisch-Partenkirchen í gær. MARKASKORARI Gíneubúinn Souleymane Oulare var markahæsti leikmaður Genk þrjú ári i röð. Hann kom ekki við sögu í sigri Stoke á Blackpool í gær. Guðjón Þórðarson semur við Gíneubúa: Fjölgar í leik- mannahópi Stoke fótbolti Souleymane Oulare, frá Gíneu, er genginn til liðs við Stoke City. Hann var þó ekki á vara- mannabekknum þegar Stoke vann Blackpool 2-0 í gær. Oulares fékk frjálsa sölu frá Las Palmas vegna fjárhagskragga spænska liðsins. Það þýðir að Guðjón Þórðarson þarf ekki að greiða liðinu krónu fyrir Gíneubú- ann. Oulares er 29 ára og skrifaði undir átján mánaða samning. Hjá Stoke hittir hann fyrir Bjarna Guðjónsson en þeir spiluðu saman með Genk í Belgíu. Hann varð markahæstur leikmanna Genk þrjú ár í röð og spilaði einnig fyr- ir tyrkneska liðið Fenerbahce. „Oulare er leikmaður sem ég hef verið á eftir í lengi. Hann er frábær markaskorari, sterkur í loftinu og jafnvígur á báða fæt- ur,“ sagði Guðjón Þórðarson, þeg- ar samningurinn var í höfn. „Hann hikaði ekki andartak þegar við buðum honum saming og hlakkar til að spila aftur með Bjarna. Ég hef fulla trú á því að hann aðlaðist enskri knattspyrnu og ég er ánægður með að fá hann.“ Þórður Guðjónsson, eldri bróðir Bjarna, spilaði með Oulare hjá Las Palmas og Genk. ■ Peking merkilegust Val Alþjóðlegu Ólympíunefndarinnar á Peking fyrir leikana 2008 al- þjóðleg íþróttafrétt ársins. Michael Schumacher í öðru sæti. ap. london íþróttablaðamenn AP- fréttastofunnar, sem eru staddir út um allan heim, töldu það að Kín- verjar skyldu fá að halda Ólympíu- leikana árið 2008 vera alþjóðlega frétt ársins í íþróttaheimum. í júní síðastliðnum hafði Peking betur en Toronto, París, Istanbul og Osaka þegar Alþjóðlega Ólympíu- nefndin gekk til atkvæða. Þetta var umdeilt val þar sem Kínverjar eru mjög umdeildir fyrir mannréttinda- brot. Frægt er þegar þeir sóttu um að halda Ölympíuleikana árið 2000 fyrir átta árum og töpuðu fyrir Ástralíu með aðeins tveimur at- kvæðum, sem þeir misstu einmitt vegna mannréttindabrota. En al- þjóðasamfélagið lítur nú Kína mild- ari augum og reyndist árið landinu vel á þeim vettvangi. Vonast er til þess að andi Ólympíuleikanna verði til þess að Kínverjar taki til í bak- garðinum hjá sér. í öðru sæti yfir merkilegustu íþróttafréttirnar var sigurmet þýska ökuþórsins Michael Schumacher í Éormúlu 1 kappakstr- inum. Hann vann bæði sinn fjórða heimsmeistaratitil og sló met Frakkans Alain Prost, sem sigraði 51 kappakstur á sínum ferli. Schumacher er nú sigursælasti öku- þór keppninnar með 53 sigra. í þriðja sæti voru jafnar fréttir um tvo heimsfræga Bandaríkja- menn, Michael Jordan og Tiger Woods. Jordan sneri aftur í NBA deildina með liðinu Washington Wizards en Woods varð í apríl fyrst- ur kylfinga til að vinna öll fjögur stærstu golfmót heimsins. í fimmta sæti varð síðan und- ankeppni HM í knattspyrnu 2002 og öll dramatíkin í kringum hana. Brasilíubúar og Þjóðverjar, sem hafa báðir unnið heimsmeistaratitil- inn þrisvar sinnum, rétt komust í úrslitakeppnina. Hollendingar komust ekki á meðan Kína, Slóven- ía, Senegal og Ekvador komust í fyrsta skipti. í sjötta sæti lenti sigur Goran Ivanisevic á Wimbledon. Ivan- isevic hefur þrisvar áður keppt til PEKING 2008 Það að Kínverjar skuli fá að halda Ólympíuleikana 2008 er alþjóðleg íþróttafrétt ársins. úrslita en aldrei unnið. Hann rétt komst í keppnina í ár og enginn bjóst við miklu af honum. í sjö- unda sæti lenti Bandaríkjamaður- inn Lance Armstrong, sem vann í Tour de France hjólreiðakeppn- inni. Þetta var hans þriðji sigur í röð en fyrir fimm árum var Arm- strong greindur með krabbamein. Zinedin Zidane var síðan næstur á lista en hin himinháa upphæð, sem Real Madrid greiddi fyrir færslu hans frá Juventus, sjö milljarðar króna, vakti gífurlega athygli. ■ 51 STIG Jordan stekkur upp að körfu Charlotte Hornets I leiknum á laugardaginn. Hann skoraði 24 stíg í fyrsta leikhluta en alls 51 stig I leiknum. NBA-deildin: Jordan sjóðandi heitur KöRFUBOiTi Michael Jordan tróð um helgina ofan í alla þá sem efuðust um ágæti endurkomu hans í NBA- deildina. Gagnrýnisraddir heyrðust eftir tapleik Washington Wizards á móti Indiana í síðustu viku. Þar skoraði Jordan, sem er 38 ára, að- eins sex stig. Þetta var annar tap- leikur Wizards í röð og Jordan sá ástæðu til að gefa út yfirlýsingu: „Léleg frammistaða mín í leiknum þýðir ekki að ég sé búinn að vera og að Wizards séu farnir í tapsiglingu.“ Þessi yfirlýsing átti rétt á sér. Á laugardaginn mætti liðið Charlotte Hornets og fór Jordan á kostum, skoraði 51 stig. Hann skoraði fyrstu 13 stigin í leiknum, en auk góðrar hittni gaf hann fjórar stoðsendingar og náði sjö fráköstum. Wizards unnu 107-90. „Mér líður betur. Hnéð er að komast í lag,“ sagði Jordan á sunnu- dag. Hann var þá að æfa sig fyrir leikinn á móti New Jersey Nets á mánudag. „Ég fer í leikinn vitandi að ég er búinn að finna skotið, ég er búinn að finna taktinn. Ég get ekki skorað 50 stig á hverju kvöldi en ég ætti að geta ógnað á vellinum." Jordan stóð við þessi orð. Litlu munaði að hann bætti eigið NBA- met þegar hann skoraði 22 stig í röð á móti Nets. Metið er sett 1987, 23 stig í röð. Jordan skoraði 45 stig á móti Nets, gaf sjö stoðsendingar og náði tíu fráköstum. Hann fór einnig á kostum í kúnstum og snúningum. Wizards vann leikinn með 98 stigum á móti 76 og hefur unnið 11 af síðus- tu 13 leikjum. ■

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.