Fréttablaðið - 28.01.2002, Blaðsíða 2

Fréttablaðið - 28.01.2002, Blaðsíða 2
KJÖRKASSINN Ætlar þú að borða þorramat á þorranum sem nú gengur í garð? Niðurstöður gærdagsins á www.visir.is 71% ÁSÓKNí ÞORRAMATINN Landsmenn ætla að háma í sig þorramat á næstunni. Spurning dagsins í dag: Verða íslendingar Evrópumeistarar í handbolta? Fárðu inn á visi.is og segðu I þína skoðun J __________________csns JÓN STEINAR CUNNLAUGSSON Hann segir lögmanninn hafa kært án þess að hafa umboð allra þeirra sem hann sagði kærendur. Oddi skráður fyrir kæru án heimilaar: Grafalvar- legt mál kæra „Það er grafalvarlegur hlut- ur að starfandi hæstaréttarlög- maður skuli senda frá sér á opin- berum vettvangi ásakanir um refsiverða háttsemi manns í nafni einhverra sem hann hefur ekki umboð fyrir,“ segir Jón Steinar Gunnlaugsson lögmaður Sveins R. Eyjólfssonar. í Ijós hefur komið að Gunnar Sturluson hrl. hafði ekki heimild til að leggja fram kæru á Svein í nafni Prentsmiðj- unnar Odda. Oddi var meðal þeir- ra sem voru skráðir fyrir kæru á Svein í tengslum við Eignarhalds- félag Dagblaðsins. Jón Steinar segir grunsemdir vakna um að fleiri aðilar sem eru skráðir fyrir kærunni kunni að hafa verið skráðir að þeim forspurðum. Á aðalfundi DB vegna ársins 1999 fékk Gunnar umboð til að fara með atkvæði Odda. Forsvars- menn Odda fréttu hins vegar ekki af kærunni fyrr en Þorgeir Bald- ursson framkvæmdastjóri sá nafn fyrirtækisins á lista yfir kærend- ur í fjölmiðlum. í tölvupósti sem hann sendi lögmanni Sveins segist hann hafa fengið þær skýringar hjá Gunnari að Oddi hafi verið dreginn inn í málið fyrir mistök. Oddi eigi ekkert sökótt við Svein og vilji ekki tengjast málinu. ■ Fljúga oftar til Lundúna: Ekki fyrirséð með lækkun samgöngur Flugleiðir ætla aö auka sætaframboð til og frá íslandi næsta sumar. Einkum verður aukið við flug til Lundúna, um 14 ferðir á viku, og til Kaupmannahafnar, um 25 ferðir á viku. Að sögn Guðjóns Arngrímssonar, upplýsingafulltrúa Flugleiða, býður flugfélagið upp á allar tegundir fargjalda. „Við reynum að bjóða alla breiddina, þ.e. vera með lág far- gjöld, viðskiptafarrými (Saga- Class) og þar á milli. Það er erfitt að segja annað en já þegar spurt er um lágfargjöld." Aðspurður hvort Flugleiðir muni bjóða upp á fargjöld í líkingu við Go flugfélagið sagði Guðjón. „í vor erum við með lágfargjöld fyrir ungt fólk, 18.900, en það er ekki fyrirséð á þessu stigi að fara með verðið eitthvað neðar. Flugið þarf að bera sig.“ ■ 2 FRÉTTABLAÐIÐ 28. janúar 2002 MÁNUDAGUR Björn Bjamason: Grunnurinn er að vinna fyrir opnum tjöldum stjórnmál „Ég tel að megináhersl- an hljóti að vera að taka upp betri vinnubrögð en fylgt hefur verið í tíð R-listans“, segir Björn Bjarnason um áherslur í komandi kosningabaráttu. „Takist mönn- um að gera það og vinna skipu- legar og meira fyrir opnum tjöld- um og í nánari tengslum við borgarbúa þá sé lagður grunnur- inn að farsælli stjórn í Reykja- vík.“ „Menn eiga eftir að setjast yfir að móta stefnuna í einstök- um útfærsluatriðum", sagði Björn í gær. Þeim áherslum sem hann vildi sjá hefði hann gert grein fyrir í ræðu sinni á kjör- dæmisþingi sjálfstæðismanna. Þar gagnrýndi Björn R-listann harkalega fyrir að stjórna fjár- málum borgarinnar ekki nógu vel. Hann gagnrýndi einnig að skólum væri ekki veitt það sjálf- stæði sem æskilegt væri og að borgin væri í samkeppnisrekstri í gegnum fjárfestingar sínar í Línu.Neti. Björn gagnrýndi ein- nig lengingu biðlista og stöðu skipulagsmála. ■ BJÖRN BJARNASON Taka verður upp betri vinnubrögð við stjórnun borgarinnar en verið hefur í tíð R- lista. Skipulegri vinna og nánari tengsl við borgarbúa grunnur að farsælli stjórn. Sj álfsmorðsárás konu í Jerúsalem Árásarmaður og aldraður maður létu lífið í sprengingu á fjölfarinni verslunargötu. Árásarmaðurinn talinn vera kona og er það í fyrsta skipti sem slíkt gerist. Israelar segja Arafat ábyrgan. jerÚsalem. ap Tveir létu lífið og á annan tug manna særðist í sjálfs- morðsárás í Jaffastræti, fjölfar- inni verslunargötu í Jerúsalem, um miðjan dag í gær. Annar þeir- ra sem lést var grunaður árás- armaður, kona sem hafði hlaðið sig sprengiefnum og sprengdi sig í loft upp. Auk hennar lét karlmað- ur á níræðisaldri lífið. Þrír slösuð- ust alvarlega í sprengjuárásinni og gera þurfti að minniháttar sár- um níu einstaklinga til viðbótar. Á annað hundrað manns voru fluttir á sjúkrahús eða fengu aðhlynn- ingu á vettvangi. Flestir þeirra fengu áfalíahjálp. Líbanska sjónvarpsstöðin Al- Manar, sem er stjórnað af Hez- bollah-hreyfingunni, greindi frá því í gær að árásarmaðurinn væri ung palestínsk kona sem stundar nám í al-Najah háskólanum í borg- inni Nablus á Vesturbakkanum. Þrátt fyrir að mikið hafi verið um sjálfsmorðsárásir á undanförnum mánuðum og árum er þetta í fyrs- ta skipti sem kona er árásarmað- urinn. Talsmenn palestínsku heima- stjórnarinnar fordæmdu sjálfs- morðsárásina harkalega og beindu þeim tilmælum til George W. Bush, Bandaríkjaforseta, að hann sendi Anthony Zinni aftur á svæð- ið til að miðla málum milli deiluað- ila. Á laugardag sendi heimastjórn Palestínu út ákall um að árásum á ísrael yrði hætt. ísraelar gáfu hins vegar lítið fyrir yfirlýsingar Palestínumanna. Talsmaður Ariels Sharons sagði að Arafat hvetti til hryðjuverka. „Hann sendir hryðjuverkamenn til Jerúsalem." Hryðjuverkaárásir hafa verið algengar í Jaffa stræti. Á þriðju- (sraelskir löj gær. TVÆR ÁRÁSIR Á TÆPRI VIKU lögreglumenn og sjúkraliðar bera særða konu á brott eftir sjálfsmorðsárásina í •. Arásin í gær var önnur árásin r árásin sem gerð er á Jaffastræti á innan við viku. dag í síðustu viku skaut hryðju- verkamaður tvær konur til bana og særði á annan tug manna áður en lögregla skaut hann til bana. í ágúst á síðasta ári sprengdi hryðjuverkamaður sig í loft upp í veitingastað handan götunnar við staðinn þar sem sprengjuárásin var gerði í dag. Þá létu 15 manns lífið.■ Ingibjörg Sólrún Gísladóttir Þjónustan mæti þörfum íbúanna STJÓrnmál Við eigum eftir að móta kosningastefnuskrá Reykjavíkur- listans en hún verður samin á grundvelli málefnasamnings þeir- ra flokka sem standa að Reykjavík- urlistanum. Þar mun framtíðarsýn okkar birtast og um hana verður kosið en ég legg líka mikla áherslu á það í komandi kosningabaráttu að leggja verk Reykjavíkurlistans á kjörtímabilinu í dóm kjósenda og það geri ég alveg óhrædd", segir Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borg- arstjóri. „Sú uppbygging sem við höfum staðið fyrir, þjónustan við fjölskyldurnar í borginni, leggur grunn til framtíðar sem við mun- um byggja á. Við höfum lagt aðalá- herslu á að mæta því fólki sem býr í borginni með þá þjónustu sem það þarf á að halda fyrir sig og börn sín. „Hér hefur verið lagður grunn- ur að lífsgæðum og framtíðarþró- un borgarinnar til næstu áratuga. Borgin hefur aldrei stækkað meira en í okkar tíð. Við höfum sameinað Reykjavík og Kjalarnes og eignast land í suðurhlíðum Úlfarsfells. Allt þetta munum við leggja í dóm kjós- enda.“ Sjálf sér Ingibjörg Sólrún Reykjavík fyrir sér samkeppnis- færa við útlönd um ungt og atorku- samt fólk vegna þeirrar þjónustu sem er verið að byggja upp. ■ MÖRG VERKEFNI FRAMUNDAN Haldið áfram að vinna að ýmsum verkefnum s.s. uppbyggingu og skipu- lagi í Vatnsmýri og blandaðri byggð í slippnum við Mýrargötu. Fugladauðinn á Norður- landi: Fuglar urðu hungurmorða fuglar Náttúrufræðistofnun ís- lands áætlar að tæplega 4000 fuglshræ, af tíu fuglategundum, hafi rekið upp á land á Norðurlandi og Vestfjörðum. Algengustu teg- undirnar eru stuttnefja og langví- ur. Að sögn Kristjáns Lilliendahl, hjá Hafrannsóknarstofnuninni, sem hefur skoðað nokkur sýni, dvelur fuglinn yfirleitt við ísrönd sem liggur við Grænlandssund. Svo virðist sem hann hafi villst af leið þegar ísröndin færðist mjög hratt austur til Kolbeinseyjar. „Stuttnefjan á, í venjulegu ár- ferði, að vera við ísröndina en þeg- ar hún fauk fór stuttnefjan með. Síðan fauk ísröndin til baka og stuttnefjan varð eftir. Yfirleitt eru ekki fuglar svo djúpt út af norður- landi og því má ætla að rekja til or- sökin til þessa.“ Kristján segir nóg æti sé fyrir stuttnefjuna við ísröndina, s.s. marflær, loðnu og átu. „Þegar ísröndin fer og ætið með, leitar fuglinn til lands. Þó nóg æti sé að finna við grunnslóðirnar er fuglinn orðinn of veikburða til að éta þegar þangað er komið.“ B —♦— Keflavík: Húsbrot og líkamsárás líkamsárás Tveir menn ruddust inn í íbúð í Keflavík á laugardags- kvöldið og börðu húsráðanda og brutu leirtau. Gleðskapur hafði verið í gangi þegar mennirnir réð- ust inn óboðnir. Maðurinn kærði líkamsárasina og var töluvert um áverka í andliti hans, þá mest í auga sem var blátt og marið. Mennirnir voru fjarlægðir af lögreglu sem þekkti vel til þeirra. Ekki var um meiriháttar spjöll að ræða samkvæmt talsmanni lög- reglunnar. Talið er að málið fari fyrir rétt. Auk húsbrotsins og líkams- árásarinnar var einn tekinn fyrir ölvunarakstur og annar ökumaður tekinn í þriðja sinn eftir að hafa verið sviptur ökuleyfi. Sá gæti átt fangelsisvist yfir höfði sér. ■ I INNLENT I Flugvél frá SAS-flugfélaginu með 151 farþega innanborðs til- kynnti um bilun í hreyfli til flug- stjórnarmiðstöðvarinnar í Reykja- vík aðfaranótt laugardags. Þegar var ákveðið að lýsa yfir viðbúnað- arstöðu samkvæmt flugslysaáætl- un Keflavíkurflugvallar og allir viðbragðaðilar boðaðir samkvæmt því. Vélin lenti heilu og höldnu rétt fyrir klukkan 5.00 og var þá við- búnaðarstöðu aflétt. Tæplega 107 þúsund tonn af loðnu hefur verið landað á vetrarvertíð samkvæmt tölum frá Samtökum fiskvinnslustöðva. Eft- irstöðvar úthlutaðs fiskikvóta frá Fiskistofu er því um 186 þúsund tonn.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.