Fréttablaðið - 28.01.2002, Blaðsíða 4

Fréttablaðið - 28.01.2002, Blaðsíða 4
FRÉTTABLAÐIÐ 28. janúar 2002 MÁNUDAGUR SVONA ERUM VIÐ STÆRÐ LANDSINS ísland er 103.000 ferkílómetrar að stærð. Landgrunnið að 200 metra dýpi er 111.000 fermkílómetrar, landgrunnið að 400 metra dýpi er 183.000 ferkílómetrar og efnahagslögsagan er 758.000 ferkíló- metrar að stærð. Island 103.000 Landgrunnið að 200 metra dýpi 111.000 Landgrunnið að 400 metra dýpi 183.000 Efnahagslögsagan 758.000 Allar tölur f km2 DALAI LAMA Var glaðlegur að sjá þrátt fyrir veikindin sem hafa hrjáð hann síðan í síðasta mán- uði. Indland: Dalai Lama lagður inn á spítala bombay ,ap Dalai Lama var lagður inn á spítala í Bombay á Indlandi í gær eftir að læknar fundu hnúð í maga hans. Dalai Lama er æðsti trúarleiðtogi búddista. Hann veif- aði brosmildur til blaðamanna á leið sinni á spítalann. „Dalai Lama er glaður og ræðir mikið við að- stoðamenn sína,“ sagði forstjóri spítalans. Hann sagði verða ljóst í dag, mánudag, hvað amaði að Dalai Lama. Hann var staddur í búddaklaustri í Bodhgaya á laug- ardag þegar læknar afréðu að best væri fyrir hann að komast undir læknishendur. Trúarleiðtog- inn neyddist til að aflýsa þátttöku sinni í einni helgustu trúarathöfn búddista vegna veikindanna, þeg- ar í síðustu viku. ■ Iris Björk valin „Queen of the World“: Bjóst ekki við að vinna FEGURÐARSAMKEPPNI írÍS Björk Árnadóttir var valin „Queen of the World“ í samnefndri fegurð- arsamkeppni í Dusseldorf Þýskalandi á föstudagskvöldið. Um 35 stúlkur frá jafn mörgum löndum kepptu um titilinn. Fegurðsamkeppni íslands hefur um árabil sent þátttak- anda í keppnina en þetta er í fyrsta skiptið sem íslensk stúlka hreppir titilinn. íris varð á sín- um tíma í öðru sæti keppninnar „Ungfrú ísland". Þetta er annar titilinn sem íris hreppir á fjór- um mánuðum en hún vann ein- nig titilinn „Ungfrú Skandinav- ía“ þann 6. október síðastliðinn. Einnig var hún á meðal þeirra 15 efstu í keppninni Miss Europe fyrr í þessum mánuði. „Það var talað um að ég fengi 2000 evrur og bíl sem styrktar- aðili keppninnar leggur til í verðlaun,“ sagði íris. „Ég bjóst ekkert við að vinna þannig að ég hafði ekkert spáð í verðlaunin. Svo eftir að keppninni var lokið var ég keyrð beint upp á flugvöll og ég hóf ferðalagið heim. Þannig að ég verð að kynna mér þetta.“ íris segir það hugsanlegt að verði hún bundin samtökunum næstu þrjú árin. Hún segist í kjölfarið vera komin með verk- efni fram í júní á þessu ári. íris segist frekar hafa áhuga á því að beita sér fyrir góðgerðamál- um en að græða sjálf á ævintýr- inu. ■ ÍRIS BJÖRK ÁRNADÓTTIR Hefur frekar áhuga á að beita sér fyrir góð- gerðamálum en að græða á ævintýrinu. Ekki áfall þó verð- bólga hafi verið langt umfram þolmörk Seðlabankastjóri segir það ekki áfellisdóm þó verðbólga hafi verið 9,4% á síðasta ári. Þegar ný gengisstefna var tekin upp var stefnt að því að verðbólga yrði ekki hærri en 6% Hugsanlegt að tiltrú manna hafi minnkað segir forstöðumaður Hagfræðistofnunar. gengisstefna Verðbólga á síðasta ári fór langt umfram þau mörk sem sett voru þegar verðbólgu- markmið voru tekin upp sem megin viðmið peningastefnunn- ar í mars á síðasta ári. Birgir ísleif- ur Gunnarsson, Seðlabankastjóri, segir að þrátt fyr- ir þetta sé ekki hægt að tala um að það hefðu verið mistök að taka hana upp þrátt fyrir að það hefði gerast við betri að- BIRGIR ÍSLEIFUR GUNNARSSON Telur það ekki grafa undan tiltrú þó þolmörk hafi ekki haldið. SEÐLABANKINN Ný gengisstefna tók gildi 28. mars. Verðbólga mátti verða 6% á árinu. 13. júní voru þol- mörkin rofin og Ijóst að verðbólga yrði meiri. e.t.v. mátt stæður. Peningastefnan gerir ráð fyrir að stefnt sé að 2,5% verðbólgu á ári. Þolmörkin eru 1,5%. Verð- bólga má því vera l%-4%. Ákveðið var þó að hafa þol- mörkin víðari tvö fyrstu árin. Ástæðurnar voru tvennar. Annars vegar mikil verð- bólga sem var ljós þegar í mars. Hins vegar var óttast að ef Seðla- TRYGGVI ÞÓR HERBERTSSON Tekur peninga- stefnu 6-18 mán- uði að skila ár- angri. banka tækist ekki að halda verð- bólgu innan þolmarka fyrst um Stórútsala! Prjónagarn 30-45% afsláttur Hannyrdavörur 35% afsláttur sinn kynni trúverðugleiki að tap- ast. Þolmörkin voru því ákveðin 3,5% á síðasta ári. Verðbólga mátti því vera 6%. Verðbólga varð hins vegar 9,4%, rösklega helmingi meiri en stefnt hafði verið að. Birgir ísleifur segist ekki óttast að verðbólga langt umfram þolmörk hafi orðið til þess að grafa undan trú manna á gengisstefnunni. Helstu ástæður fyrir mikilli verðbólgu væri þensla sem skýrðist af þáttum sem bankinn hefði ekki stjórn á. S.s. launahækkunum langt um- fram framleiðniaukningu. Að- spurður hvort tímasetningin á gildistöku gengisstefnunnar væri röng sagði Birgir að vissulega hefði verið betra að taka hana upp í eðlilegra árferði. Fyrri stef- na hafi hins vegar verið gengin sér til húðar og óvíst hversu lengi Seðlabankinn gæti varið gengið. Birgir kvaðst ekki geta sagt til um hvort gengisstefnan væri að skila árangri. Seðlabankinn birtir nýja verðbólguspá í vikunni og fyrr geti hann ekki tjáð sig um ár- angurinn. „Ég held að það sé alveg hugs- anlegt að tiltrú manna hafi verið jafn mikil og vonir stóðu til“, seg- ir Tryggvi Þór Herbertsson, for- stöðumaður Hagfræðistofnunar Háskólans aðspurður um hvort mikil verðbólga kunni að grafa undan trúverðugleika stefnunnar. Frávik frá verðbólgumarkmiðum á síðasta ári stafi þó einfaldlega af mikilli þenslu á vinnu- og vöru- markaði. I ár sé hins vegar útlit fyrir að gengismarkmiðin náist. brynjolfur@frettabladid.is | ERLENT | 30 manns létust í flugslysi í Angóla í gær. Flugvélin, sem var í eigu flughers Angóla, brot- lenti í suðausturhluta landsins. Hún var af gerðinni Antonov. Flugmenn munu hafa tilkynnt um vélarbilun rétt áður vélin hrap- aði. Ef marka má fréttir angólska útvarpsins þá komust einhverjir farþegar lífs af og voru fluttir á spítala þar sem gert var að sár- um þeirra. Utanríkisráðherra Tyrklands, Ismail Cem, sagði í gær að Tyrkir væru reiðubúnir að hefja viðræður við Grikki til að reyna að finna lausn á deilum þeirra um yfirráð yfir Kýpur og loft- helgi yfir Eyjahafinu. Cem sagði að vel gæti komið til greina að leysa deiluna með aðstoð alþjóða- samfélagsins. Ríkin tvö hafa löngum eldað grátt silfur. Þau hafa þó bætt samskiptin undan- farin ár. Tyrkir hafa ávallt hafn- að aðstoð utanaðkomandi aðila við lausn deilanna. Fjórir japanskir unglingar hafa játað morð á 55 ára gömlum heimilislausum manni. Ungling- arnir sögðu eftir yfirheyrslur að morðið hefði verið hefnd vegna rifrildis við fórnarlambið. Ung- lingarnir eru of ungir til að verða sóttir til saka. Þeim er haldið föngnum á heimili fyrir vand- ræðabörn. Maðurinn fannst í blóði sínu á föstudagskvöld. Að sögn lögreglunnar hafa ungling- arnir ekki komið við sögu lög- reglunnar áður. Slæleg vinnubrögð við viðgerð á dómkirkjunni í Hróarskeldu á sjöunda áratugnum valda því að ráðast þarf í mjög kostnaðarsama viðgerð á kirkjunni. Setja þarf átta milljónir dkr. í verkefnið nú þegar til að laga tréverk sem heldur uppi hluta þaksins. Það var sett upp á sjöunda áratugn- um, í kjölfar bruna í kirkjunni. Alls mun viðgerð á kirkjunni, sem er tákn Hróarskeldu, kosta um 85 milljónir dkr. Ólafur Jóhann: Sakaður um ritstuld ( v ^óIavöraÖLuííft -- Á tva/ m, Smiðjuvegi 5, Kópavogi BÓKMENNTIR Rithöfundurinn Ólaf- ur Jóhann Ólafsson hefur verið sakaður um að nota nær orðréttar Fréttastofa AP bar setningar úr „The Journey Home" eftir Olaf Jó- hann saman við setningar úr bók Fishers „The Gastronomicai Me". Úr bók Ólafs: „I adore swimming," she declared. „Simply adore it..." She looked at David. „You remember what I wrote to you from San Sebastian, darling, don't you?" David hung his head. Úr bók Fishers: „Oh yes," she was saying in a high deliberate way to Chexbres, „I adore swimming." Then she turned to look full at David ... „Don't you remember my letters from San Sebastian, darl- ing? Don't you?" David lowered his head ... setningar úr bók bandaríska rit- höfundarins M.F.K. Fishers í bók sína Slóð fiðrildanna án þess að geta heimilda. Ólafur og útgefandi hans í Bandaríkjunum, Pantheon Books, gáfu út fréttatilkynningu þar sem Olafur segist hafa viljað heiðra höfund sem hann dái. Fisher lést árið 1992 en hann var einkum þekktur fyrir að skrifa mat- reiðslubækur. Einnig kemur fram í tilkynningunni að útgefandinn íhugi nú að setja tilkynningu á framan á bók Ólafs þess efnis að hún innihaldi skírskotanir í annað höfundaverk. Um er að ræða setn- ingar úr bókinni „The Gastronomical Me“. Bók Ólafs var gefin út í Banda- ríkjunum árið 2000 og hét þar „The Journey Home“. ■ ÓLAFUR JÓHANN ÓLAFSSON I fréttatilkynningunni kemur fram að hann og útgefandi hans telji sig ekki hafa brotið é höfundarrétti. Heldur hafi Ólafur aðeins verið að votta Fisher virðingu sína. r

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.