Fréttablaðið - 28.01.2002, Síða 8

Fréttablaðið - 28.01.2002, Síða 8
8 FRETTABLAÐIÐ 28. janúar 2002 MÁNUPAGUR Sóknargjöld: Lítill sómi að innheimta skatt af fólki utan trúfélaga Gó<5 sala í hlutabréfum: Lífeyrissjóðir fariðmikinn hiutabréf Miklar hækkanir á bréf- um ýmissa félaga á Verðbréfaþingi íslands það sem af er árinu skýrast nokkuð af mikilli eftirspurn frá líf- eyrissjóðunum. Nokkrir verðbréfa- miðlarar sem blaðið ræddi við gáfu þessar upplýsingar. Þeir sögðu að desembermánuður skilaði jafnan auknu fjárstreymi til lífeyrissjóð- anna, enda hafi launþegar þá al- mennt hærri tekjur. Það væri auk þess áhrifavaldur að lífeyrissjóð- irnir hefðu þurft að huga að vægi einstakra fjárfestingaþátta hjá sér fyrir áramót og af þeim sökum haldið að sér höndum þar til janúar gekk í garð. ■ frumvarp „Þetta er ekki stórt mál í peningum eða stjórnskipun. Hins vegar er þetta réttlætismál. íslandi er lítill sómi að því að inn- heimta skatt af mönnum vegna fé- lagsaðildar sem þeim kemur ekk- ert við“, segir Mörður Árnason um lagafrumvarp sem hann hefur lagt fram. Þar er kveðið á um að ekki skuli innheimta sóknargjald af þeim sem standa utan trúfé- laga. í dag renna sóknargjöld þeirra sem standa utan trúfélaga til Háskóla íslands. „Ég flutti þetta frumvarp á næst síðasta þingi. Það vakti tölu- verða athygli utan þings og fékk mjög jákvæðar umsagnir, þar á meðal frá Mannréttindastofu og Siðfræðistofnun Háskólans en frekar þurrlega frá Guðfræði- deild Háskólans." Málið náði ekki fram að ganga þá. Andstæðingar þess að hætt verði að innheimta sóknargjöld af fólki utan trúfélaga hafa borið því við að það kynni að verða til þess að fólk segði sig úr trúfélögum af fjárhagsástæðum. „Ég geri ráð fyrir því að eitthvað yrði um það. Enda er það sú mótbára sem menn hafa haft um málið allt frá 1915. Ég held hins vegar að Þjóðkirkj- an, hvað þá önnur trúfélög, myndu ekki leggjast af við þessa breytingu. Það myndi frekar hvet- ja þau til að halda sínu starfi hátt á lofti.“ ■ MÖRÐUR ÁRNASON Hef heyrt á prestum innan Þjóðkirkju að ekki verði staðið til lengdar gegn þessum breytingum. Suðurlandsbraut 32 - Sími 533 1300 - Fax 533 1305 www.fasteiaansalan.is - Netfana: arund@fasteianasalan.is Oddný I. Björgvinsdóttir Guðmundur Ó. Björgvinsson sölu-og framkvæmdastjóri Páll Höskuldsson sölumaður Leifur Aðalsteinsson sölumaður 3ja herbergja hdl. og lögg. fasteignasali Halldór H. Backman hdl. og lögg. fasteignasali 4ra-7 herbergja ÁLFTAHÓLAR Mjög góð og rúmgóð 110 fm 4ra herb. á 6 hæð í lyftublokk. Frábært útsýni, suðursvalir, og húsið í góðu ástandi. Stutt er í alla þjónustu, leiksvæöi á lóð. V. 11.9 millj. BÁRUGATA- REYKJAV. Sérlega glæsileg 64 fm mikið endurnýjuð kjallaraíbúð með sér inngangi. Rótgróinn og eftirsóttur staður í miðborginni. V. 9.9 millj. GRÝTUBAKKI Góð 98 fm íbúð á fyrstu hæð í góðu fjöl- býlishúsi. Ibúðin er mikið endurnýjuð. Áhv. ca.6.8millj. V. 10.5 millj. RÁNARGATA- REYKJAV. Glæsileg 77 fm mikið endumýjuð kjal- laraíbúð í þríbýlishúsi á góðum og rólegum stað. Ljóst parket er á mestallri íbúðinni. Sér inngangur. V. 9.9 millj. UGLUHÓLAR Glæsileg 85 fm íbúð á 3ju hæð í litlu fjöl- býlishúsi. Baðkar og sturtuklefi. Öll her- bergi með skápum. Björt og rúmgóð stofa og borðstofa. Svalir í vestur. V. 10.5 millj. FÍFULIND-PENTHOUSE Sérlega falleg 133 fm 4 herb. íbúð á tveimur hæðum. Mikið útsýni, bíl- skúrsmöguleiki á lóð. Uppþvottavél fylgir. V. 15.6 millj. SÉRHÆÐ-HAFNARF. Sérlega skemmtileg 127 fm 3-4ra herb. Neðri hæð með BÍLSKÚR í tvíbýli. Allt sér. Frábært útsýni, góð staðsetning. V.13.7 millj. VEGNA MIKILLAR SÖLU VANTAR ALLAR STÆRÐIR AF EIGNUM m FYRIRTÆKJASALA ICI Akinc SÍÐUMÚLA 15 I5LANU5 SÍMI: 588 5160 .'YHIRTÆKI TIL SOLU LÍTIÐ SÝNISHORN ÚR SÖLUSKRÁ Gissur V. Kristjánsson hdl. og lögg. fasteigna- og fyrirtækjasali SÖLUSTJÓRI GUNNAR JÓN YNGVASON DÖMUVERSLUN SEM ALLIR ÞEKKJA aóður hagnaður, selst vegna flutninga SKYNDIBITASTAÐUR M/KJÚKLING og fl, mikill og góður búnaður, flott aðstaða DAGSÖLUTURN í ATVINNUHVERFI með lotto , góð afkoma selst vegna veikinda SÓLSTOFA 11 BEKKIR VELTA 18 MILL. flott sérhönnuð aðstaða, skínandi afkoma HEILDSALA MEÐ GJAFAVÖRU flottar eftirsóttar vörur, góð velta og afkoma. FRAMLEIÐSLA í SALATGERÐ öflugt dæmi með topp sölu og afkoman eftir því. VEISLUÞJ M/ EIGIN SAL Á SPES STAÐ traust góð viðskiptasambönd , góð afkoma. BAKARÍ / KAFFISTOFA traust 50m velta , góður flottur búnaður, mjög góð afkoma SJÚKRAÞJÁLFARASTOFA 15-20 ára góð verkefnast. þekkt staðsetning . HÁRSNYRTISTOFA OG LJÓSASTOFA í einni hagstæðri heild, með góða afkomu VEITINGAST.VIDEOLEIGA. SJOPPA við stóran framhalds velta 80 m verð 19,9 m GISTIHEIMILI VESTURLANDI 25 herber.hús, salir.bar og íbúð alls um 1100 fm HEILSUSTUDIO góð velta , besti tíminn framundan, fæst á mjög góðu verði. HEILDSALA MEÐ ÞEKKTAR BYSSUR og ýmislegt tengt skotveiði, traust umboð. TRAUST RÓTGRÓIN SÉRVERSLUN með ritföng.leikföng, gjafavöru, bækur og fl BLÓMA OG GJAFAVÖRUVERSLUN í Grafarvogí, falleg vel staðsett verslun. SÖLUTURNAR GOTT ÚRVAL MIKIL SALA, VANTAR ALLAR GERÐIR FYRIRTÆKJA Á SKRÁ Skoðaðu heimasíðuna .wíVJ.f’/rirtækjasala.is Rádherra fær heilbrigðisvottorð Ríkisendurskoðun átelur landbúnaðarráðherra vegna sölu ríkisjarðar til bróður hans. Sala jarðarinnar Uppsala er ekki ámælisverð og vinnubrögð ráðuneytisins varðandi sölu ríkisjarða samræmast lögum á heildina litið. -—♦— „Landbúnaður snýst ekki bara um ær og kýr." SALA BÍKisiARÐA í áliti Ríkisendur- skoðunar á fyrirkomulagi land- búnaðarráðuneytisins kemur fram að starfshættir jarðadeildar landbúnaðarráðu- neytisins eru taldir samræmast lögum á heildina litið. Ráðherra er þó átalinn vegna sölu einnar jarðar og bent á nokkur atriði sem taka mætti til skoðunar. Guðni Ágústs- son segist líta á álitið sem heil- brigðisvottorð. Landbúnaðarráðherra er átal- inn af Ríkisendurskoðun vegna kaupa bróður hans á ríkisjörð. í því tilviki skrifaði ráðuneytis- stjóri undir afsalið en mat Ríkis- endurskoðunar er að koma hefði átt málinu til seturáðherra vegna þess að allir starfsmenn ráðuneyt- is starfa í umboði ráðherra. Guðni Ágústsson segist ekki hafa vitað um málið þegar það var til vinnslu í ráðuneytinu og að starfsmönn- um jarðadeildar hafi ekki heidur verið kunnugt um skyldleika kaupanda við ráðherra en segist meðtaka tilmælin. Ríkisendurskoðun gerir ekki athugasemd við sölu jarðarinnar Uppsala en beinir því til ráðuneyt- isins að það setji sér reglur um við hvað skuli miða þegar tekin er ákvörðun um hvenær maður telst ábúandi samkvæmt jarðalögum. Bent er á að bræðurnir sem keyp- tu jörðina og seldu svo ísólfi Gylfa Pálmasyni hafi ekki verið búsettir þar þegar salan fór fram SÁTTUR VIÐ ÁLIT RÍKISENDURSKOÐUNAR Sala ríkisjarðarinnar Uppsala er ekki talin ámælisverð f skýrslu Rikisendurskoðunar þótt landbúnaðarráðuneyti sé bent á að setja beri reglur um hvenær maður telst ábúandi jarð- ar samkvæmt jarðalögum. þótt þeir hefðu verið þar ábúend- ur alla sína tíð. Að mati ráðherra er einnig nauðsynlegt að taka til skoðunar hvort forkaupsréttur eigi að gilda ef augljóst er að kaupendur hafa ekki burði, til dæmis vegna aldurs, til að nýta jörð. Við mat á verðgildi jarða er nú miðað við að ábúandi ætli að stun- da þar áfram hefðbundinn bú- skap. Ríkisendurskoðun beinir þeim tilmælum til ráðuneytisins að það kanni hvort tímabært sé að taka tillit til annarra mögulegra nytja í verðlagningu ríkisjarða. Ráðherra tekur undir þessi sjón- armið Ríkisendurskoðunar. „Landbúnaður snýst ekki bara um ær og kýr,“ segir hann og bendir á verkefni eins og ferðaþjónustu og skógrækt sem bændur stunda í vaxandi mæli. Á heimasíðu landbúnaðarráðu- neytisins má finna upplýsingar heiti og söluverð ríkisjarða sem seldar voru á árunum 1997 til 2001. Þessar upplýsingar verða uppfærðar árlega. steinunn@frettabladid.is Mikil umræða vegna morðs á kúrdískri konu í Svíþjóð: Ráðstöfuð hjónabönd hafa ekkert með trú að gera noregur Eftir að Kúrdi sem bú- settur hefur verið lengi í Sví- þjóð myrti 26 ára gamla dóttur sína fyrir viku síðan, hafa mikl- ar umræður sprottið upp víða á Norðurlöndum um fyrirfram ráðstöfuð hjónabönd. Dóttirin, Fadime Sahindal, var myrt eftir að hún neitaði að giftast kúrdískum frænda sín- um vegna þess að hún var ást- fangin af sænskum manni. „Fyrirfram ráðstöfuð hjóna- bönd hafa ekkert með trú að gera,“ sagði Gerd Fleischer, formaður sjálfhjálparsamtaka fyrir flóttamenn og innflytjend- ur í Noregi í samtali við Aften- posten. Á síðasta ári fékk fólk FADIME Þessi mynd af Fadime Sahindal, var tekin árið 1998. Morðið á henni hefurvakið mikla athygli á Norðurlöndum. Fjölskylda hennar flúði frá Tyrklandi til Svíþjóðar árið 1984 þegar Kúrdar börðust fyrir sjáifstæði slnu i landinu. af nánast öllum trúarbrögðum aðstoð hjá samtökunum vegna þess að því fannst sem verið væri að beita það þrýstingi til að kvænast aðilum sem það vildi ekki kvænast. „Svipaður þrýstingur myndast einnig í sumum íhaldssömum kristnum trúarhópum," bætti Fleischer við. Á undanförnum árum hefur athygli beinst í auknum mæli að ráðstöfuðum hjónaböndum hjá múslimskum fjölskyldum. í þeim tilvikum er hins vegar ekki um trúarlegar ástæður að ræða frekar en í öðrum trúar- brögðum. Slík hjónabönd eru einnig bönnuð af islam. ■

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.