Fréttablaðið - 28.01.2002, Page 10
I Rí ITABLAÐIÐ
Útgáfufélag: Fréttablaðið ehf.
Útgáfustjóri: Eyjólfur Sveinsson
Ritstjórar: Gunnar Smári Egilsson
og Jónas Kristjánsson
Fréttastjórar: Pétur Gunnarsson
og Sigurjón M. Egilsson
Ritstjórn, auglýsingar og dreifing:
Þverholti 9, 105 Reykjavík
Aðalsími: 515 75 00
Slmbréf á fréttadeild: 515 75 06
Rafpóstur: ritstjorn@frettabladid.is
Símbréf á auglýsingadeild: 515 75 16
Rafpóstur: auglysingar@frettabladid.is
Setning og umbrot: Fréttablaðið ehf.
Plötugerð: iP-prentþjónustan ehf.
Prentun: (safoldarprentsmiðja hf.
Fréttaþjónusta á Netinu: Vísir.is
Fréttablaðinu er dreift ókeypis til allra heimila á höf-
uðborgarsvæðinu. Fyrirtæki geta fengið blaðið gegn
greiðslu sendingarkostnaðar; kr. 1.100 á mánuði.
Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni
blaðsins 1 stafrænu formi og (gagnabönkum
án endurgjalds.
[ BRÉF TIL BLADSINS
Dla límdar
mjólkur-
fernur
Skáti skrifar:
Ég drekk mikið af fjörmjólk. Nú
er svo komið að ég veit ekki hvort
mér er unnt að halda því áfram.
Ástæðan er
ekki sú að
mjólkin hafi
breyst. Nei,
það er annað
sem hefur
breyst. Það er
hvernig fern-
unum er lok-
að. Svo virðist
sem notað sé
einstaklega
sterkt lím með þeim afleiðingum
að nánast er útilokað að geta opn-
að fernurnar. Það er nánast án
undantekninga að stórsér á fern-
unni eftir að mér hefur tekist að
opna hana.
Það er víðar en á mjókurfern-
um sem lím angrar mig. Ég borða
mikið af eplum og á þeim er
merkimiði sem er settur á með
ekki síður sterku limi en notað er
til að innsigla mjólkurfernur. Ekki
veit ég hvort eplamiðarnir eru
settir á með vélum eða fólk hafi
atvinnu af þessum óskunda.
Hvort sem er - mælist ég til þess
að hægt verði að borga eilítið
meira fyrir epli sem hafa enga
slíka miða. ■
10
FRETTABLAÐIÐ
28. janúar 2002 MÁNUDAGUR
Frá tónlistarhúsi til ráðstefnuhallar
1983-1987
Samtök um byggingu tónlistar-
húss yoru stofnuð 1983 undir
forystu Ármanns Arnar Ármanns-
sonar. Áhugamenn um tónlist
höfðu lengi barist fyrir því að
reist yrði hús sem hýst gæti tón-
listarflutning. Ekkert hús hafði
verið hannað með tónlistarflutn-
ing sérstaklega í huga hér á landi.
Sinfóníuhljómsveit Islands heldur
tónleika sína í Háskólabíói sem er
að mati þeirra sem gerst þekkja
illa til tónlistarflutnings fallið.
Haldin er norræn arkitekta-
samkeppni um hönnun tónlistar-
húss. Guðmundur Jónsson, arki-
tekt, sigrar í samkeppni um hönn-
un hússins sem rísa á í Laugardal.
í framhaldi af samkeppninni er
samtökunum úthlutað lóð og Dav-
íð Oddsson, þáverandi borgar-
stjóri, lýsir yfir að borgin muni
gefa eftir öll gjöld sem snerta lóð
og húsbyggingu. Fjöldi fólks ger-
ist styrktarfélagar samtakanna og
talsverðir fjármunir safnast, þó
ljóst sé að söfnunarfé dugi aðeins
fyrir broti kostnaðar.
1988-1994
Áhugafólk um bygginguna ger-
ir ráð fyrir að hægt verði að hefja
byggingu hússins sumarið 1991.
Hið opinbera er ekki að svo stöd-
du tilbúið að leggja fjármuni í
bygginguna. Lítil hreyfing er á
málinu á þessu tímabili.
1995-1998
Björn Bjarnason, menntamála-
ráðherra, lýsir því yfir að hann
muni beita sér fyrir því að
ákvörðun um tónlistarhús verði
tekin á kjörtímabilinu. Ljóst er að
áhugi er bæði í ríkisstjórn og hjá
borgaryfirvöldum að skriður
komist á málið. Þórhildur Þor-
leifsdóttir, leikhússtjóri, varpar
fram hugmynd um að tónlistarhús
verði reist við hið Borgarleik-
hússins og Kringlunnar. Tillagan
fær ekki mikla umræðu.
Nefnd er skipuð og skilar hún
skýrslu um málið, þar sem hug-
myndir eru uppi um sameiginlegt
ráðstefnu og tónlistarhús. Borgar-
yfirvöld lýsa yfir áhuga á að slíkt
hús rísi í miðborg Reykjavíkur.
1999-2002
Yfirvöld Reykjavíkurborgar,
menntamála og samgöngumála
Forsaga
Eftir nærfellt tuttugu ára umræðu um að
tónlistarhús sé á næsta leyti, hyllir undir
það að slíkt hús rísi á svæði Austurhafnar f
Reykjavík. Ríki og borg virðast samstíga um
að reisa hótel, ráðstefnu og tónlistarhús.
kynna ákvörðun um byggingu
ráðstefnu- og tónlistarhúss við
Reykjavíkurhöfn. Nefnd er falið
að útfæra hugmyndir og kostnað-
arskiptingu, auk þess að leita að
fjárfestum að hóteli sem ráðgert
er að rísi í samfloti. Samkeppni
um skipulag svæðisins er haldin.
Fyrstu verðlaun fá arkitektarnir
Guðni Tyrfingsson, Lotte Elkjær,
Mikel Fischer-Rassmussen og
Lasse Grosböl. Borgarstjóri lýsir
yfir að samningar um kostnaðar-
skiptingu ríkis og borgar séu á
lokastigi. ■
KVIÐDÓMURINN
Samkörríulag sjómanna og útvegsmanna hefur mælst misvel fyrir. Leitað var til fimm manna og
þeir spurðir álits á tillögunum.
ÞÓRÐUR FRIÐJÓNSSON
FORSTJÓRI ÞJÓÐHAGS-
STOFNUNAR
Ekkimikil
áhrif
„Tillögurnar
snúa náttúr-
lega fyrst og
® fremst að
framsalinu,"
sagði Þórður.
„Ég hef ekki
skoðað það sérstaklega
hvaða áhrif þær koma til
með að hafa á veiðarnar.
Ég hef ekki trú á því að
tillögurnar, ef þær kom-
ast til framkvæmda, komi
til með að hafa mikil áhrif
í þjóðhagslegu samhengi,
en það fer að sjálfsögðu
eftir því hvernig þær
verða útfærðar. Áhrifin
frá þeim þurfa að vera
mjög mikil til þess að þær
hafi áhrif á þjóðarbúið."
Þórður sagði að þegar
væri verið að skapa mjög
mikil verðmæti í sjávar-
útvegi og að væntanlega
myndu tillögurnar ekki að
neinu marki hafa áhrif á
afla upp úr sjó.
„Mér finnst ekki augljóst
að breytingarnar muni
hafa mikil áhrif á brott-
kast en þær gætu haft
einhver áhrif.“ ■
ARI EDWALD
FRAM KVÆM DASTJÓRI
SAMTAKA ATVINNULÍFSINS
Hefur áhrif á
brottkast
Ari Edwald
sagðist ekki
hafa skoðað
tillögurnar í
smáatriðum
og því gæti
hann ekki
metið hugsanleg áhrif
þeirra á þjóðarbúið.
„Það er alveg ljóst að
framsal aflamarks innan
ársins hefur bæði kosti og
galla,“ sagði Ari. „Það
getur stuðlað að hag-
kvæmni en hefur líka að
miklu leyti verið upp-
spretta að þeim deilum
sem útgerðir hafa átt í við
sjómenn. Uppspretta að
þeirri gagnrýni sem hefur
verið í gangi um um-
gengni við auðlindina."
Ari sagði að ef tillögurnar
kæmust til framkvæmda
myndu þær örugglega
hafa áhrif á brottkast.
„Það sem mér finnst stan-
da upp úr er þessi
ánægjulegi viðburður að
þessir aðilar skuli taka
sig saman um tillögugerð
á þessu sviði.“ ■
GUÐJÓN HJÖRLEIFSSON
BÆJARSTJÓRI í
VESTMANNAEYJUM
Þjóðarhagur
að tillögunum
„Mér þykir
mjög athyglis-
vert að full-
trúar sjó-
manna og út-
vegsmanna
hafi náð sam-
an. Það getur til lengri
tíma litið þýtt meiri sátt
um fiskveiðistjórnunar-
kerfi, sem deilur hafa ríkt
um. Með tillögunum er
verið að bregðast við um-
ræðu um brottkast á fiski.
Það mun sennileg minnka
þegar þeir sem eru með
úthlutaðar aflaheimildir
þurfa að veiða stóran
hluta þeirra. Tillögurnar
þýða líklega fækkun í
flotanum. Mörg kvótalítil
skip hafa jafnframt verið
dugleg að landa á fisk-
veiðimarkaði, þær gætu
þýtt minni umsvif þeirra.
Heildaráfhrif eru mest í
byggðarlögum þar sem
aflaheimildir hafa minnk-
að en kvótalítil skip hafa
skapað sér rekstarum-
hverfi með því að leigja
aflaheimildir." ■
RAGNAR ÁRNASON
PRÓFESSOR VIÐ
HÁSKÓLA ÍSLANDS
Voncindi ekki
til frambúðar
„Mér líst ekki
nægilega vel
á þessar til-
lögur. Þær
fela í sér tak-
mörkun á við-
skiptum með
leigukvóta. Það þýðir að
tækifæri þeirra sem vilja
stunda útgerð á grund-
velli leigukvóta eru skert.
Það þýðir að þeir sem
geta stundað svona útgerð
verða færri en áður. Það
þýðir jafnframt að tiltek-
in hagkvæmi sem falist
getur í útgerð á grund-
velli leigukvóta glatast
samfélaginu. Hitt er síðan
annað mál að vera kann
að þessar takmarkanir
dragi úr öðrum vanda
sem sjómenn og útgerðar-
menn hafa glímt við. Eins
og til dæmis það að sjó-
menn hafa tekið þátt í
svokölluðum kvótakaup-
um, svo ekki sé minnst á
brottkast kvótalítilla
skipa og annarri slæmri
umgengi um fiskimið." ■
MARKÚS MÖLLER
DEILDARSTJÓRI VIÐ
SEÐLABAN KAN N
Sjómenn út
úr skápnum
„Tillögurnar
þýða að kjarn-
inn í sjó-
mannahreyf-
ingunni sem-
ur frið við út-
gerðarmenn
upp á hlut í umframhagn-
aðinum sem kvótakerfið á
að mynda. Það var fyrir-
sjáanlegt. Sérhagsmuna-
félög á borð við sjó-
mannasamtökin vinna
fyrir sérhagsmuni þeirra
sem ráða félögunum, ekki
fyrir almannahagsmuni.
En þeir fórna félögum
sínum af kvótalitlum skip-
um og skilja bágstödd
sjávarpláss eftir í súp-
unni. Þetta skerpir línur í
baráttunni milli fyrning-
arleiðar og veiðgjaldsræf-
ils ríkisstjórnarinhar. Sjó-
mannasamtökin höfðu
alltaf ímugust á gjald-
töku, nú eru þau komin út
úr skápnum. Þetta breytir
engu fyrir kvótahafa sem
veiða sjálfir og veldur
ekki stórkostlegu óhag-
ræði, því áfram má selja
langtímakvóta." ■
TILBOÐ A EGLA BREFABINDUM - VERÐ 274 KR / STK. Tilboðið gildir til 31. janúar 2002
B/C Atlantis penrti
Verb 91 kr/slkk
MULALUNDUR
NOVUS
MASTER
gatar 25 blöð.
Verö 382 kr
Ikrtan
Ljósritunarglærur.
100 stk \ pakka.
Verb 1,867kr/pk
Fuji disklingar
10 stk í pakka.
Verð 399 kr/pk
Skilblöð númeruð,
lituð, stafróf eða
eftir mánuðum.
xi
mmm »»
i ' ■
teHLU. , ,,,
i*V
! • i-::i :
TRICOM reiknivél með strimli
Verð 7.900 kr/stk
ORÐRÉTT
Vinnuslofa 5IBS • Hálúni Wc • Sími: 562 8500 • Beinn sími sölumanna 5628501 • Fax: 552 8819 • Heimasída www.mulalundut.is
Tölvuskólinn Sóltúni
Sóltuni 3 105 Rnykjavik sinii 5 62 62 12 netfang: skoli@tolvuskoli.not heimasíða: www.tolvuskoli.not
Námskeið á næstunni
Tolvunám 1
60 stundir
Windows XP
Word 2000
Excel 2000
Internet
Tölvupóstur
Næst konnt:
4.feb.-1 .mars
kl. 8:30-12:00
mán., miö. og fös.
Eldriborgarar
6.feb. kl.8:30-12:00
N á m s k c i ð H e f s t
Acceps 2 0 I feb
Word 2 04 . f e 1'
O u 11 oo k 04 feb
Front Paqe 1 08. fet>
Windows 2000 1 I . feb.
Tölvugrunnur 6 0 st. 2 6 fyrir algjöra byrjendm I e t'
* W i n d o w s * I n t o r n e t * I ölvupóstur * Word
Dreaniweaver 1 1 1 . feb.
Myndvinnslu meö
Photoshop 19. teb. 7
Vefsíöugerd
Vofsiöugerd 1
HTML
Front Page
60 stundir
18.feb-9.mars
Vofsiöugorö 2
Dreámweaver
Flash
Fireworks
120 stundir
Skráning í síma 562-6212 alla daga kl. 13-22
SYNIRNIR SLEPPA
„Það er verið að hálshöggva mig
og aðra sem eins er ástatt fyrir
og mér verður hugsað til nafna
míns, biskupsins.“
Jón Arason útgerðarmaður og skipstjóri,
DV 25. janúar.
FLUGFÉLAG
HRÖKKLASTFRÁ
ÍSLANDI
„GO hafa verið
mjög ánægðir
hérna og vilja
vera hérna. Þeir
segjast hins vegar
ekkert eiga eftir þegar þeir eru
búnir að borga þennan háa kostn-
að í Keflavík."
Jón Hákon Magnússon taismaður flugfé-
lagsins GO á íslandi, Fréttablaðið 25. jan-
úar.
ÍSLENDINGAR
ERU ÖFGAMENN
„íslendingar eru
dálitlir öfgamenn.
Annars vegar eru
þeir einhver nýj-
ungagjarnasta
þjóð í veröldinni og hins vegar
hliðhollir gömlum hefðum."
Árni Björnsson þjóðháttafræðingur,
Fréttablaðið 25. janúar.
ÝMSIR VILJA
FRAM
„Ég gef kost á mér
til áframhaldandi
setu á R-lista og
sækist að sjálf-
sögðu eftir góðu
sæti þar.“
Guðrún Jónsdóttir arkitekt og varaborgar-
fulltrúi, Fréttablaðið 25. janúar.
•i!'n..iii6. it. i :6ot<.ri«q2 ci.il siá : iíí r-