Fréttablaðið


Fréttablaðið - 14.03.2002, Qupperneq 4

Fréttablaðið - 14.03.2002, Qupperneq 4
4 FRÉTTABLAÐIÐ 14. mars 2002 FIMMTUDAGUR Framreiknað- ur mannfjöldi Hagstofa fslands hefur framreiknað fjölgun fslendinga fram til ársins 2040. Samkvæmt þeirri spá mun íslendingum fjölga um tæp 20 þúsund á hverjum tíu árum. Árið 2000 voru íslendingar 282.849 en samkvæmt spánni verðum við orðnir 363.871. 2000 282.849 2010 305.354 2020 328.847 2030 349.119 2040 363.871 Faro í Portúgal Glæpakvendi framselt til Islands lögregla Fertug íslensk kona var handtekin í Faro í Portúgal í lok janúar og framseld til íslands. Hún hafði verið dæmd í 15 mán- aða fangelsi í Héraðsdómi Reykjavíkur í júní 1997 fyrir fjár- svik, skjalafals og misneytingu. Konan mætti ekki til afplánun- ar og hvarf úr landi. Hún hafði verið eftirlýst af íslenskum stjórnvöldum um alllangt skeið áður en hún fannst í Faro. Þar var hún handtekin að beiðni Alþjóða- deildar Ríkislögreglustjóra. ís- lenskir lögreglumenn sóttu hana og fluttu til Islands í febrúar til afplánunar dómsins. ■ fSTAK Húsasmiðjan hefur einfaldlega boðið betur að undanförnu segir forstjóri verk- takarisans. Istak dregið úr viðskipt- um við Byko: „Höfum ekki fengið skýringar“ viðskipti „Við höfum leitað eftir skýringum frá ístaki en það hefur ekkert komið út úr því,“ segir Jón Helgi Guðmundsson, fram- kvæmdastjóri Byko. Hann segir að fram að síðasta hausti hafi ístak verið einn stærsti viðskipta- vinur Byko. „Núna kaupa þeir ekki hjá okkur nema þeir nausyn- lega þurfi. Þeir gera það aðeins til að fá vörur sem ekki eru fáanleg- ar annarstaðar." Jón Helgi sagði það vera undarlega tilviljun að þessi breyting hafi átt sér stað eftir svonefnt Árnamál. Hann vildi þó ekki fullyrða að það væri skýringin. Páll Sigurjónsson, forstjóri ístaks, vísaði því alfarið á bug að dregið hefði verið úr viðskiptum við Byko á nokkurn hátt vegna Árnamálsins. Hann kannaðist við að frá síðasta hausti hafi félagið aukið viðskipti sín við Húsasmiðj- una, meðal annars á kostnað Byko. Það skýrðist þó eingöngu af því að Húsasmiðjan hefði boðið betur að undanförnu. Páll segist hafa gefið Jóni Helga þessar skýr- ingar. „Við höfum átt mjög langt og ánægjulegt samstarf við Byko. Það er rétt að það er keypt svolít- ið meira af Húsasmiðjunni núna, en það á sér allt eðlilegar skýr- ingar.“ ■ ’Gjald á endurkomu- og slysadeild Landspítalans: Hækkaði um 50% siúkrahús Gjald á endurkomu- og slysadeild Landspítalans-háskóla- sjúkrahúss í Fossvogi hækkaði um 700 kr. um síðustu mánaðamót, fór úr 1.400 í 2.100. Hækkunin er því 50%. „Það er verið að koma í bak- ið á fólki. Það var verið að skipta um tvo plástra hjá mér þannig að mér finnst hækkunin ansi mikil,“ segir Bryndís Hilmarsdóttir, sem varð óþyrmilega vör við hækkun- ina þegar hún mætti á spítalann. „Ég hef komið reglulega síðan ég handleggsbrotnaði í nóvember, það var engin viðvörun um hækk- unina.“ Að hennar sögn var starfs- fólk deildarinnar jafn hissa en það varð fyrst vart við hækkunina þegar það kveikti á tölvunum dag- inn sem hún tók gildi og fékk Fréttablaðið þetta staðfest. Sigurður Páll Óskarsson, svið- stjóri fjármálasviðs spítalans, segir skýringu hækkunarinnar vera tvíþætta. Annars vegar hafi verðið verið óbreytt frá því að það var sett á árið 1996. Hins vegar hafi það aldrei verið kostnaðar- greint. Við kostnaðargreiningu er tekið mið af kostnaði spítalans við þjónustuna. Hækkunin á við um heimsóknir til sérfræðinga við spítalann, þ.m.t. hjúkrunarfræð- inga, annarra en lækna. Sigurður Páll segir að starfsmönnum spít- landspítalinn fossvogi alans hafi verið kynntar hækkan- 500/0 hækkun á umbúðaskiptum kom irnar ■ Bryndísi illilega á óvart. togarar við bryggju Ef skip koma með fiskafganga frá vinnslu um borð í land getur aflaverðmætið aukist um einn og hálfan milljarð að sögn Kristjáns Páls- sonar. Nú er heimilt að henda afgöngum en Kristján vill breyta því. Rúmur milljarður fer í hafíð ár hvert Kristján Pálsson alþingismaður segir aflaverðmæti geta aukist um allt að einn og hálfan milljarð verði skipum sem vinna fisk á sjó gert að koma með allan afla að landi. Miklum verðmætum kastað fyrir borð. Myndi engum árangri skila, segir forstjóri Samherja. sjávarútvegur Aflaverðmæti út- gerðarinnar gæti aukist um allt að einn og hálfan milljarð króna á ári ef fullvinnsluskipum og öðrum skipum sem vinna afla um borð > verður gert skylt að koma með allan afla að landi. Þetta er niðurstaða at- hugunar sem Kristján Pálsson, þingmaður Sjálf- stæðisflokks, lét gera fyrir sig. ásamt Einari Oddi lagt fram laga- Ég hugsa að þetta sé afla- verðmæti af frystitogara og gott betur. Hann hefur, Kristjánssyni, frumvarp sem bannar skipum að henda fiski og fiskhlutum í sjóinn. „Það gæti skilað allt að einum og hálfum milljarði fyrir útgerð- irnar ef allt væri hirt sem er kast- að fyrir borð í dag,“ segir Krist- ján. „Einn og hálfur milljarður er verulegur peningur. Bara þorsk- hausar og hryggir eru einn millj- arður. Það er þokkalegasta frysti- hús sem veltir heilum milljarði. Ég hugsa að þetta sé aflaverð- mæti af frystitogara og gott bet- ur.“ Á sínum tíma var tekin ákvörð- un um að skip sem vinna afla um borð þurfi ekki að koma með fiskafganga að landi. Þetta segir Kristján að hafi verið réttlætt með því að kostnaður við breyt- ingar á skipum og úreldingu því samfara væri of mikill. Þau rök ættu ekki við í sama mæli nú. „Þetta myndi ekki skila neinum árangri í verðmætasköpun fyrir þjóðarbúið," segir Þorsteinn Már Baldvinsson. „Það er alveg rétt að það eru meiri verðmæti í þorsk- hausum en voru áður. Enda erum við allir sammála um að það séu orðin það mikil verðmæti að okk- ur beri að hirða þau. Hjá Sam- herja erum við byrjaðir að hirða þorskhausana úr þeim fiski sem við vinnum úti á sjó.“ Þorsteinn segir mikið af því sem kæmi að landi vera verðlaust ef frumvarpið verður að lögum. „Stór hluti af afla frystiskipa er grálúða og karfi sem engum hefur tekist að búa til jafn mikil verð- mæti úr og frystiskipunum. Ég bendi á úthafskarfann sem við erum að veiða 45.000 tonn af. Það er alveg rétt að það fer helmingur af aflanum í sjóinn aftur. Það er hluti sem menn vilja ekki greiða fyrir, hvorki útlendingar, mjöl- verksmiðjur eða aðrir.“ brynjolfur@frettabladid.is Samkeppnisstofnun: Viðræður við Esso í gangi QLÍUFÉLÖGIN Komi viðbótargögn sem Olíufélagið Esso vill veita Samkeppnisstofnun að gagni við rannsókn ætlaðra brota olíufélag- anna gæti félagið fengið allt að helmingi lægri sekt en Skeljung- ur og Olís. Guðmundur Sigurðs- son hjá Samkeppnisstofnun sagði starfsmenn hafa verið í sambandi við Olíufélagið undanfarna viku um hvers eðlis þau gögn gætu verið. Hann vildi ekki tjá sig frekar um viðræðurnar. Aðspurð- ur sagði hann að of snemmt væri að fullyrða um hvort viðbótar- gögnin gætu orðið til hækkunar sektar Skeljungs og Olís samhliða lækkun á sekt Esso. „Ef viðbótargögnin upplýsa málið fljótar og betur en annars hefði oróið mun það leiða til lækkunar á hugsanlegri sekt þeirra.“ Guðmundur sagði stofnunina ekki hafa sett sér end- anleg tímamörk varðandi rann- sóknina. Það gæti þó skýrst á næstunni hvernig samstarfinu við Esso verður háttað. ■ OLÍUFÉLAGIÐ Of snemmt að fullyrða um hvort viðbótar- gögn frá Esso geti orðið til hækkunar sekt- ar Skeljungs og Olis samhliða lækkun á sekt Esso. Gatnamót Reykjanes- brautar í Garðabæ: Vilja ekki frestun fram- kvæmda vegamál Bæjarstjórn Garðabæj- ar hvetur samgönguráðherra, þingmenn Reykjaneskjördæmis og Vegagerðina til að fresta ekki framkvæmdum við mislæg gatnamót Reykjanesbrautar og Arnarnesvegar annars vegar og Vífilsstaðavegar hins vegar. Samkvæmt tillögum sveitarfé- laganna á höfuðborgarsvæðinu að forgangsröðun vegafram- kvæmda á svæðinu á fram- kvæmdum við þessi gatnamót að vera lokið árið 2006. Ingimundur Sigurpálsson, oddviti Sjálfstæðismanna í bæj- arstjórn Garðabæjar, sagðist telja ástæðu til þess að ætla að ríkið hygðist fresta fram- kvæmdum við þessi gatnamót. Þó hefði hann ekkert fast í hendi um það. Hann sagði að forsend- an fyrir því að Garðbæingar gætu sætt sig við að tvær stórar umferðaræðar lægju í gegnum bæinn væri að umferð þvert yfir þær, þ.e. Reykjanesbraut og Hafnarfjarðarveg, væri trygg. Núna, þegar lægi fyrir að tvö- falda ætti Reykjanesbrautina, væri afar brýnt að ráðist yrði í framkvæmdir við mislæg gatna- mót á sama tíma. ■ -—♦— Höfuðborgarsvæðið: Öryggis- miðstöð rís í Skógarhlíð öryggismál Slökkvilið höfuðborg- arsvæðisins (SHS) er nú með til athugunar að byggja við slökkvi- stöðina í Skógarhlíð. Sú viðbygg- ing er ætluð undir starfsemi Al- mannavarna ríkisins, fjarskipta- miðstöðvar lögreglunnar, Neyð- arlínunnar, Slysavarnafélagsins Landsbjargar auk slökkviliðsins sjálfs. Stjórn SHS hefur þegar sam- þykkt framkvæmdirnar fyrir sitt leyti. Aðildarsveitarfélögunum sjö hefur þegar verið send beiðni um heimild til 423 milljóna króna lántöku til að fjármagna bygging- una. ■ ALÞINGI Brjóstmynd af Ásgeiri Ás- geirssyni, fyrrverandi for- seta íslands og forseta sameinaðs Alþingis, verður afhent með við- höfn í gamla eftirdeildarsalnum í Alþingishúsinu síðdegis í dag. Ættingjar Ásgeirs færa Alþingi brjóstmyndina að gjöf. Ásgeir var þingmaður frá árinu 1923 til 1952, forseti sameinaðs Alþingis 1930 til 1931, fjármálaráðherra 1931 til 1932, og forsætis- og fjár- málaráðherra árin 1932-1934. Hann var svo forseti íslands frá árinu 1952 til ársins 1968.

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.