Fréttablaðið - 14.03.2002, Síða 8

Fréttablaðið - 14.03.2002, Síða 8
8 FRÉTTABLAÐIÐ 14.mars 2002 FIMMTUDACUR Mótmæla bíræfni ísraela í Reykjavík: Til stuðnings Palestínu ERLENT Ibúar Evrópusambandsríkja verða stöðugt óánægðari með tilveruna. Þetta kemur fram í nýrri rannsókn sem norska dagblaðið Aftenposten greinir frá. 55 prósent íbúa í Þýskalandi, Bretlandi, Frakk- landi, Ítalíu og Spáni telja ástandið í heimalandinu mjög slæmt. Þetta er nokkuð lakari útkoma en í desember þegar 49 prósent sögðu hið sama. Mest er óánægjan í Þýskalandi, 75 prósent eru óánægð með ástand mála. Það eru þó mjög misjafnar ástæður fyrir ^ánægju fólks á milli ríkja. ClÞannig eru til dæmis hryðjuverk Spánverjum efst í huga en fjölgun glæpa hrjá helst Frakka. MÓTMÆLI Félagið Ísland-Palestína efnir til mótmælastöðu fyrir fram- an Grand Hótel Reykjavík á morg- un rétt fyrir kynningu Ferðamála- skrifstofu ríkisstjórnar ísraels sem þar fer fram klukkan sex síð- degis. Félagið hvetur borgarbúa til að fjölmenna og sýna samhug með þjáningum Palestínumanna og stuðning við baráttu þeirra gegn hernámi ísraela. „Ísraelsríki hefur um áratuga skeið ofsótt Palestínumenn á grundvelli trúarbragða og þjóðern- is og svipt þá grundvallarréttind- um sínum. Félagið lýsir furðu sinni á þeirri bíræfni ferðamálaskrif- stofu ríkisstjórnar ísraels að efna til kynningar á skemmti- og sólar- landaferðum til landsins á sama tíma og heimurinn stendur á önd- inni vegna framferðis ísraelshers [...] Hér er um skipulagðar þjóð- ernisofsóknir að ræða, þar sem hernaðarlegum yfirburðum er beitt til að níðast á landlausri þjóð sem getur litla björg sér veitt gagnvart herþyrlum og flugskeyt- um,“ segir í tilkynningu félagsins Ísland-Palestína. ■ PALESTÍNSKIR FEÐGAR VIÐ RÚSTAÐ HEIMILI Misleh El Sultan hughreystir son sinn fyrir framan eyðilagt heimili þeirra í Jebaliya-Gazaströndinni, eftir árásir ísraelshers á þriðjudag. Rennidagar 19-20. mars stendur Fossberg ehf. fyrir kynn- ingu á TITEX- og TUNGALOY-skurðverkfærum (borar, fræsar, renniverkfæri, snittverkfæri). Kynningin fer fram í sýningarsal okkar á Suðurlandsbraut 14, Reykjavík. Nánari upplýsingar í síma 57 57 600. Kynningin fer fram á ensku en sölumenn okkar verða til aðstoðar. Allir áhugasamir velkomnir. * FOSSBERG 4 ¥4 FASTEIGNA W MIÐLUN Síðumúla 11 • 108 Reykjavik Sími: 575 8500 • Fax: 575 8505 Veffang: www.fasteignamidlun.is Netfang: brynjar@fasteignamidlun. is EINBÝLISHÚS KLAPPARBERG Fallegt einbýlishús á fjórum pöllum á góðum stað í Breiðholtinu. Húsið er viðarklætt steinhús, falleg gólfefni og innréttingar, arinn í stofu, fallegur garður með heitum pottti og hellu- lagðri skjólgóðri verönd. Nánari upp- lysingar á skrifstofu. RAÐ- OG PARHUS GILJALAND Mjög gott 210 fm raðhús á tveimur hæðum ásamt 26 fm bílskúr. Húsið er í góðu viðhaldi bæði að innan og utan. Stofan er rúmgóð með parketi á gólfi og fallegu útsýni.suður-svalir, borðstofa, 6-7 svefnherb., tvö bað- herb., gott eldhús og fallegur suður- garður. Suðurhlið hússins ásamt bíl- skúr tekin í geng og máluð í sumar. Toppeign á vinsælum stað. V. 22,9 m.. 4RA HERBERGJA ENGIHJALLI - KÓP. 4ra herb. 98 fm íbúð á 8. hæð (efstu hæð) í lyftuhúsi. íbúðin er m.a. stofa, borðstofa, þrjú svefnherb., rúmgott eldhús, nýlegt flísalagt baðherb. o.fl. Parket og flísar á gólfum. Þvotta- herb. á 8. hæð. Tvennar svalir. Mikið útsýni. Áhv. 4,9 m. húsbréf og bygg- sj. Verð 11,8 m. KAMBASEL - BÍLSKÚR Góð 93 fm 3-4ra herb. íbúð ásamt 26 fm bíiskúr. Þrjú svefnherb., rúm- gott eldhús, parketlögð stofa með suð/vestur-svölum út af, nýlega end- urnýjað baðherb. og þvottaherb. í íbúð. Bílskúr með geymslulofti. Áhv. 5,8 m. V. 12,9 m. 3JA HERBERGJA RAUÐÁS Mjög falleg 73 fm íbúð á þriðju hæð (efstu) auk geymslu í litlu fjölbýli í Ár- bænum. Sérsmíðuð falleg eldhúsinn- rétting, parketlögð stofa, tvennar svalir með fallegu útsýni, tvö rúmgóð svefn- herb., flísalagt baðherb. með glugga. Húsið í góðu viðhaldi jafnt að innan sem utan. Áhv. 2,1 m. V. 10,9 m. HRAUNBÆR Falleg 3ja herb. 69 fm íbúð á 2.h. með sér inngang af svölum. Tvö svefnherb., rúmgóð stofa með vest- ur-svölum út af, gott eldhús með borðplássi og flísalagt baðherb. Hús og sameign í góðu ástandi, sameig- inlegt þvottaherb. með tækjum ásamt gufubaði á jarðhæð. Áhv. 4,0 m. byggingasj. V. 8,7 m. 2JA HERBERGJA HJALTABAKKI 2ja herb. ibúð á jarðhæð áþessum vinsæla stað í Bökkunum. íbúðin er stofa, rúmgott eldhús, svefnherb., baðherb. o.fl. Stutt í skóla og alla þjónustu. Verð 7,9 m. Handfrjáls búnaður. I HÖLPUM FRIÐINN Í UMFERÐINNI! ■ ■ : , ; „ i www.handfrjals.is [V Fasteignaskattar ekki lækkaðir í Garðabæ Minnihlutinn í bæjarstjórn Garðabæjar gagnrýnir sjálfstæðismenn fyrir að leggja ekkert af mörkum í baráttunni gegn verðbólgunni. Segir dæmi um að fasteignagjöld hafi hækkað um 11 til 16% um áramótin. verðbólga Það er skylda Garða- bæjar eins og annarra sveitarfé- laga að reyna að leggja sitt af mörkum til að hægja á verðbólg- unni að sögn Einars Sveinbjörns- sonar, bæjarfulltrúa Framsóknar- flokksins. Tillaga minnihlutans í bæjarstjórn um að lækka álagn- ingarprósentu fasteignaskatts íbúðarhúsnæðis úr 0,385% í 0,375% var felld á bæjarstjórnar- fundi í síðustu viku. „Meirihlutinn virðist hafa tak- markaðan áhuga á að taka þátt í þessu átaki með ASÍ og Samtökum ..4____ atvinnulífsins um að hemja verð- bólguna," sagði Einar. „Samband íslenskra sveitar- félaga hefur tekið saman yfirlit um hlut sveitarfélaga í vísitölunni. Hann er um 5%. Þar vega þyngst hlutir eins og rafmagn, hiti, dagvistar- gjöld og fasteignaskattur. Við ráð- um ekki yfir hita og rafmagni, það eru veiturnar í kringum okkur. Við ráðum hins vegar yfir dagvistar- gjöldunum og fasteignagjöldun- um. í Ijósi þess að dagvistargjöld- in og fasteignagjöldin hækkuðu umfram verðlag um áramótin þá þótti okkur vænlegt að leggja til lækkun á þeim. Sú lækkun átti að vera viðleitni okkar í átakinu gegn verðbólgunni. Þessari tillögu var einfaldlega hafnað.“ Ingimundur Sigurpálsson, odd- viti sjálfstæðismanna, sagði að al- menn lækkun á fasteignaskatti væri ekki inni í myndinni. „Við hækkuðum viðmiðunar- mörk á afslætti á fasteignaskatti til tekjulítilla elli- og örorkulífeyr- isþega," sagði Ingimundur. „Þá hafa hækkanir á leikskólagjöldum Ég verð var við það að margir íbúar bæjarins eru ákaflega gramir yfir því fasteigna- gjöldin hækk- uðu mikið milli ára. EINAR SVEINBJÖRNSSON „Meirihlutinn virðist hafa takmarkaðan áhuga á að taka þátt i þessu átaki með ASÍ og Samtökum atvinnulífsins." og á aðgangseyri sundlaugar, sem fyrirhugaðar voru í upphafi árs samkvæmt fjárhagsáætlun ársins, ekki komið til framkvæmdar." I bókun meirihlutans í fundargerð bæjarstjórnar kemur fram að hann líti á þetta sem mikilvægt framlag Garðabæjar til þjóðar- sáttar gegn verðbólgu. Einar sagði leikskólagjöldin hefðu verið hækkuð í september á síðasta ári og í forsendum fjár- hagsáætlunar væri gert ráð fyrir annarri hækkun á þessu ári og hvergi verið tekið fram að hætta ætti við þá hækkun. „Menn uppgötvuðu það eftir að bréf birtist í Morgunblaðinu að af- sláttakjör á fasteignasköttum til tekjulágra eldri borgara voru orðin lægri en í hinum nágrannasveitar- félögunum. Þau voru því leiðrétt til samræmis við það sem tíðkast ann- arsstaðar. Þetta telja sumir nægja en ekki við. Ég verð var við það að margir íbúar bæjarins eru ákaf- INGIMUNDUR SIGURPALSSON „Við hækkuðum viðmiðunarmörk á afslætti á fasteignaskatti til tekjulitilla elli- og ör- orkulífeyrisþega." lega gramir yfir því fasteigna- fjöldin hækkuðu mikið milli ára. ig veit ansi mörg dæmi um það að hækkun fasteignagjalda fyrir venjulegt sérbýli hafi verið á bilinu 11 til 16% umfram verðlag. Auðvit- að eru líka dæmi um miklu meiri og minni hækkanir." Einar sagði að það hefði komið fram hjá Ingimundi Sigurpálssyni, oddvita Sjálfstæðismanna, að hann teldi ekki taka því fyrir Garðbæinga að vera með í þessu átaki gegn verðbólgunni. Garða- bær væri svo lítill. Einar sagði að Bessastaðahreppur hefði sýnt mikla ábyrgð með því að hrinda þessu átaki af stað. „Bessastaðahreppur er til fyr- irmyndar og ég takk hattinn ofan fyrir þeirra frumkvæði í þessu máli. Það er hins vegar greinilegt að sjálfstæðismenn hugsa ekki alls staðar eins jafnvel þó sveitar- félögin liggi saman." trausti@frettabladid.is Nasdaq: Erfíð vika hjá farsímarisunum markaðir Bréf í finnska far- símarisanum Nokia hafa lækkað nokkuð í vikunni eftir afkomuvið- vörun á þriðjudag. Þá var greint frá því að sala á fyrsta ársfjórð- ungi yrði minni en búist var við þrátt fyrir að hagnaðarmarkmið myndu að líkindum nást. Bréf helstu samkeppnisaðilanna Motorola og Ericsson urðu í kjöl- farið einnig fyrir um 10% gengis- falli, enda eru örlög fyrirtækjanna talin samtvinnuð. Heimsmarkaðs- hlutdeild Nokia er 37%, Motorola hefur 17% og Ericsson 7%. Sérfræðingar telja vaxtar- möguleika fyrirtækjanna einna helst felast í aukinni sókn á Asíu- mörkuðum svo sem Indlandi og Kína. í Kína eru nú um 150 millj- ónir farsímanotenda. Þar mun stór hluti notenda vera í þann veg- inn að skipta út eldri farsímum fyrir nýja. Einnig er litið til þess að von er á nýjum símum frá Nokia á Bandaríkjamarkað í sum- ar sem þykja fremur líkjast far- tölvum en farsímum. Óljóst er hinsvegar hvernig notendur taka þeirri þróun. ■ JORMA OLILLA MEÐ NOKIA 7650 Framkvæmdastjóri Nokia heldur á nýjustu afurðinni: farsíma með stafrænni mynda- vél og stýripinna.

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.